Skessuhorn


Skessuhorn - 26.08.2015, Side 29

Skessuhorn - 26.08.2015, Side 29
MIÐVIKUDAGUR 26. ÁGÚST 2015 29 „Ég byrjað á þessu líklega 1980. Fyrir þann tíma var þetta bara sandur og rusl og grjót,“ segir Símon Sigurmonsson í Ytri-Görð- um, en undanfarinn þrjá og hálf- an áratug hefur hann unnið ötul- lega að landgræðslu á Garðafjöru á sunnanverðu Snæfellsnesi. Strand- lengjan sem Símon hefur grætt upp er tveggja kílómetra löng og milli 80 og 100 metra breið. „Ég sá að þarna voru tvö strá svo ég bar á þau og í kring með hálfu tonni af tilbúnum áburði. Svo næsta ár var þetta orðið að einni þúfu og ég bar á hana. Svo koma nokkrar þúfur og þetta gréri smám saman. Melgresið leggur til fræ og ég bar í það litla sem var. Þeg- ar toppurinn er orðinn stór þá ná ræturnar langt niður í jörðina. Þar eru, undir sandinum, gamlir þarab- unkar sem eru bara hreinn áburð- ur,“ bætir hann við. Hann kveðst ekki hafa hugmynd um hve mikinn áburð hann hefur borið á fjöruna í gegnum tíðina. „Landgræðslan lét mig hafa hálft tonn á ári í þrjú ár. Ég bætti svolítið við þá tölu sjálf- ur,“ segir hann. Þrátt fyrir að hafa sáð og grætt upp mikið landsvæði á Garðafjöru dregur Símon heldur úr þegar blaðamaður spyr hvort þetta hafi ekki verið mikil vinna. „Nei, þetta er svona tómstundavinna. Maður lætur þetta sjá um sig sjálft. Frið- ur fyrir rollum er líka mikið at- riði, ég er búinn að reka þær all- ar í burtu.“ Vinnuna segir hann enn fremur ekki eingöngu tilkomna vegna sér- staks áhuga á landgræðslu. „Þetta er fyrst og fremst gert til að fá frið fyrir sandfokinu. Hér áður var þetta algjör plága. Sandurinn fauk í hús og skemmdi þök, galvaníser- ingar á klæðningum og glerið í gluggunum. Flóð og fjara gera það að verkum að sandurinn er allt- af laus og vestanáttin tók hann og feykti hingað upp að húsunum,“ segir hann. „En núna hleðst hann bara upp í melgresinu efst í fjör- unni,“ bætir hann við og brosir. Með myndavél í miðju kríuvarpi Þegar hér er komið sögu var næsta mál á dagskrá að halda niður í fjöru til að taka myndir af gróð- ur vaxinni strandlengjunni, af- rakstri landgræðslustarfs Símonar. Blaðamaður bauð Símoni að fara á Skessuhornsbílnum. „Ég rata nú betur á mínum,“ svaraði hann létt- ur í bragði. Blaðamaður settist því upp í hjá honum og ekið var eftir vegarslóða áleiðis niður í fjöru. Það fyrsta sem grípur augað og berst til eyrna þeirra sem halda þar niður eftir er mikið fuglager, en í Garðafjöru er mikið kríuvarp. Bíllinn nemur staðar og samferða- mennirnir stíga út. Símon bendir á staðinn þar sem hann hefur ár- lega smellt af ljósmynd síðan hann hóf að græða upp strandlengjuna um 1980. „Ertu með húfu,“ spyr hann og fær jákvætt svar. „Þá ertu í góðum málum. Það er meira en nóg að vera með húfu,“ segir hann og sendir blaðmann um hundr- að metra leið gegnum kríuvarp- ið. Fuglarnir garga hátt og steypa sér niður hver af öðrum, í von um að hrekja þennan óboðna gest á brott. Þegar smellt hafði verið af var gangan í gegnum kríuvarpið end- urtekin. Enn görguðu kríurnar og steyptu sér niður og ef eitthvað var af meiri ákefð en áður. Símon beið við bíl sinn þar til blaðamað- ur sneri aftur. „Krían er meinlaus fugl,“ sagði Símon Sigurmonsson áður en ekið var til baka heim að bænum á Ytri-Görðum. kgk Grasi gróin Garðafjara eftir landgræðslu síðustu áratuga Upp úr 1980 þegar Símon var rétt að hefjast handa við að græða upp Garðafjörur. Smátt og smátt sáir melgresið sér og topparnir stækka. Landgræðslan komin nokkuð á veg. Þegar topparnir eru orðnir stórir teygja ræturnar sig langt niður í jörðina og ná sér í næringu í gömlum þarabunkum undir sandinum. Svona líta Garðafjörur út í dag, grasi grónar svo langt sem augað eygir. Á myndinni má einnig sjá nokkrar af þeim fjölmörgu kríum sem hrelltu blaðamann við myndatökuna. Borgnesingurinn Stefán Broddi Guðjónsson hefur verið ráðinn for- stöðumaður greiningardeildar Ar- ion banka. Stefán hefur starfað hjá bankanum frá ársbyrjun 2012 sem sérfræðingur í greiningardeild þar sem hann hefur haft umsjón með fyrirtækjagreiningu. Hann hefur víðtæka reynslu úr fjármálageiran- um en á árunum 2008 - 2011 starf- aði hann hjá Straumi fjárfestingar- banka í markaðsviðskiptum og sem forstöðumaður eigin viðskipta á Ís- landi. Á árunum 2006 - 2008 var Stefán fjárfestingastjóri hjá Exista og frá 2001 til ársins 2006 starf- aði hann í Íslandsbanka sem sér- fræðingur í greiningu og markaðs- viðskiptum. Á árunum 1998 – 2001 var Stefán blaðamaður á Viðskipta- blaðinu en á námstíma sínum starf- aði hann meðal annars hjá Samtök- um sveitarfélaga á Vesturlandi. Stefán Broddi er með B.A. gráðu í stjórnmálafræði og hefur lokið prófi í verðbréfaviðskiptum. Eiginkona hans er Þuríður Anna Guðnadóttir, hjúkrunar- og lýðheilsufræðingur, og saman eiga þau þrjá syni. mm Stefán Broddi yfir greiningar- deild Arion banka Norðurálsmót hestamannafélags- ins Dreyra var haldið á Akranesi um síðustu helgi. Fjöldi skrán- inga fór fram úr björtustu von- um og var þátttaka raunar svo góð að hefja þurfti mótið degi fyrr en áætlað hafði verið. Keppt var í tölti (T3), slaktaumatölti (T4), fjór- gangi, fimmgangi, gæðingaskeiði og 100m flugskeiði. Norðurálsmót Dreyra þótti einkar vel heppn- að og almenn ánægja meðal bæði gesta og keppenda með mótið. -fréttatilkynning Norðurálsmót Dreyra var haldið um síðustu helgi Frá verðlaunaafhendingu á Norðurálsmóti Dreyra sem haldið var um síðustu helgi. Ljósm. Stine Laatsch. Ríkjandi Íslandsmeistarar Snæfells í körfuknattleik kvenna hafa samið við bandaríska leikstjórnandann Haiden Palmer um að leika með liðinu í vet- ur. Haiden lék með Gonzaga háskóla í bandaríska háskólaboltanum fyr- ir tveimur árum þar sem hún skor- aði 19,5 stig að meðaltali í leik, tók 5 fráköst, gaf 3,5 stoðsendingar og stal 2,5 boltum. Á síðasta ári lék hún í Ísrael og skoraði að meðaltali 15,1 stig, tók 7,2 fráköst, gaf 3,3 stoðsend- ingar og stal 2,3 boltum í leik. Stefnt er að því að Haiden verði gengin til liðs við Snæfell fyrir miðjan septem- ber, segir í frétt á vef félagsins. kgk Íslandsmeistararnir styrkja liðið Leikstjórnandinn Haiden Palmer í leik með Gonzaga háskólanum. Snæfell hefur samið við körfuknatt- leiksmanninn Sherrod Nigel Wright um að leika með karlaliði félagsins á komandi keppnistímabili. Frá þessu er greint á heimasíðu félagsins. Sherrod lék síðast með George Mason háskólanum í bandaríska háskólaboltanum og skoraði 15,6 stig að meðaltali í leik á lokaári sínu í fyr- ra. Eftir að hann útskrifaðist freistaði hann þess að komast í NBA og D deildina vestanhafs en hafði ekki er- indi sem erfiði í þeirri strembnu baráttu. Hann þykir fjölhæfur leikmaður, getur leyst stöður skotbakvarðar, smáframherja og kraftframherja og kemur án efa til með að styrkja lið Snæfells á komandi vetri. Stefnt er að því að Sherrod verði kominn í Hólminn um miðjan september. kgk Snæfell semur við fjölhæfan leikmann

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.