Skessuhorn


Skessuhorn - 26.08.2015, Blaðsíða 31

Skessuhorn - 26.08.2015, Blaðsíða 31
MIÐVIKUDAGUR 26. ÁGÚST 2015 31 Krossgáta Skessuhorns Hér er ný krossgáta fyrir lesendur að spreyta sig á að leysa. Þeir sem vilja geta sent Skessuhorni lausnarorð/ in á netfangið: krossgata@skessuhorn.is fyrir klukkan 15 á mánudögum. Athugið að fullt nafn og heimilis- fang þarf að fylgja með lausninni. Þeir sem ekki hafa aðgang að tölvupósti sendi lausnir á Kirkjubraut 56, 300 Akranesi (athugið að póstleggja þarf lausnir í síð- asta lagi á föstudegi). Dregið verður úr réttum inn- sendum lausnum og fær vinningshafinn bókagjöf frá Skessuhorni. 68 lausnir bárust við krossgátu í blaðinu í síðustu viku. Lausnin var: „Málugum er mein að þegja.“ Vinningshafi er: Kristrún Líndal Gísladóttir, Dal- braut 33, Akranesi. mm Ó- freskja Taska Fugl Hrekkir Bárur Op Naut Labb Lötur Óstand Tvíhlj. Deilur Bitlaus Snið Kvak Játar Orsök Nánd Flaust- ur Flöt Sk.st. Skinn Tölur Sérhlj. Vía Ás Afleit Afrek Rabb- arbari Vilji HJóm Skýr Áhald 7 9 14 Röskur Skora Sköpun 4 1 Fiskur 100 11 Hita- tæki Heilir 12 Hól Eink.st. Vissa Fugl Gætni Læti Mett Skjól Fruma Maður 17 Áköf Reið Á fæti Þegar Veður Villtur Refsa Smart Skordýr- ið 5 Arinn Mauk 6 2 Skaði Heiður Væskill Hreyf- ing Svöl Sk.st. Syllur Mátu- legur Angan 10 Föngu- legur Kall Gömul Alltaf Tölur Rögg Hljóm Agnir Tuskan Natin 3 Mylsna Óhóf Rasar 13 Tölur Alúð Fljótt Galsi Erfiði 15 Ekki Loforð 20 Hávaði Bar 19 Fött Samhlj. 18 Snjó- korn Púka 8 Þúst Ofan- ferð Háski Nærist Gelt Rúlluðu Tútta Galgopi 16 Tóm Korn Ægir 21 Álit Einn Hvílt 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20 21 Matarhátíð Búrsins verður hald- inn um helgina í og við Hörpu í Reykjavík, en hún hét áður Matar- markaður Búrsins. Hlédís Sveins- dóttir er verkefnisstjóri: „Markað- urinn núna verður haldinn helgina 29.-30. ágúst og verður jafnframt stærsti matarmarkaður landsins. Nú bætast við matarvagnar og Sirk- us Íslands kætir börn með blöðr- um og andlitsmálningu. Slow food samtök Íslands elda Diskósúpu og vekja með því athygli á matarsó- un. Ýmsir framleiðendur verða með „votar og þurrar“ örkynning- ar í fundaherberginu Stemmu sem rúllar á hálftíma fresti frá kl. 11:30 til 16:30. Te, kaffi, vín, ostur, súkk- ulaði og fleira verður kynnt. Bragð- góð fræðsluerindi verða á hverjum heilum tíma frá kl. 12:00 til 16:00 í Kaldalóni, þar sem kafað er dýpra í ýmislegt sem tengist mat og mat- armenningu. Má þar nefna kaffi- ræktun í Gvatemala, hvað hægt er að gera til að minnka matarsóun, frumvarp um sauðahrámjólk verð- ur kynnt, matur úr skordýrum, líf- fræðilegur fjölbreytileiki, nýsköp- un í landbúnaði, heimavinnsla og fleira. Markaðurinn verður opinn frá klukkan 11 til 17 og er aðgang- ur 1000 kr. en frítt fyrir börn 16 ára og yngri.“ Hlédís segir jafnframt að uppruni, umhyggja og upplifun séu einkunnarorð á Matarhátíð Búrsins að þessu sinni. Þá segir Hlédís að dagana 7.-10. október fari Matarmarkaður Búrsins bæjarleið til London. „Nánar tiltekið á þúsund ára gamlan og virtan markað sem þar er haldinn. Íslenskir bændur og sjómenn ætla að selja sínar vörur þar, en einnig að sjá hvernig þessi gamli og virðulegi markaður gengur fyrir sig. Kannski erum við að borga til baka það sem víkingarnir stálu frá þeim fyrir 1000 árum þegar þeir sigldu upp Thames ánna,“ segir Hlédís Sveinsdóttir. mm Matarhátíð Búrsins haldin um næstu helgi Svipmynd frá Matarmarkaði í Hörpu sem nú hefur fengið nafnið Matarhátíð. „Siglingin gengur vel,“ segir Krist- ján Loftsson forstjóri Hvals að- spurður um hvernig för flutninga- skipsins Winter Bay gengur um norðausturslóð áleiðis til Japan. Skipið er hlaðið 1800 tonnum af frosnu hvalkjöti frá Hval og er sigl- ing skipsins um norðurhöf tíma- mótaferð í gegnum siglingaleið Ís- hafsins norður fyrir Rússlands, um Beringssund áleiðis til Kyrrahafs og kaupenda kjötsins í Japan. Á vefn- um Marinetraffic.com, þar sem alla jafnan má sjá staðsetningu skipa, má sjá að síðast þegar för Winter Bay var skráð, var skipið statt norð- an við Noreg 3. ágúst síðastliðinn. Eftir það hefur sjálfvirk skráning um ferðir og staðsetningu skips- ins fallið út. Vera kann að það sé vegna þess að hvalaverndunarsinn- inn Paul Watson og hans fólk hjá Sea Shepherd-samtökunum lýstu því opinberlega yfir að markmið þeirra væri að koma í veg fyrir að hvalkjötsfarmur Hvals hf. kæm- ist á ákvörðunarstað í Japan. En „siglingin gengur vel,“ segir Krist- ján Loftsson sem vildi að öðru leyti ekkert láta hafa eftir sér um hval- kjötsfarminn. mm Sigling með hvalkjöts- farminn gengur vel Sýn Bjarna Þórs skopmyndateiknara Skessuhorns á ferð Winter Bay um norðurhöf. Hljómsveitin Dúmbó og Steini stefna á að halda stórdansleik á Akranesi 7. nóvember næstkomandi. Hafa þeir óskað eftir að fá íþrótta- húsið við Vesturgötu á leigu undir viðburðinn og var erindi þeirra tek- ið fyrir á fundi bæjarráðs 13. ágúst síðastliðinn. Í fylgiskjölum fundar- gerðarinnar kemur fram að félag- arnir í Dúmbó og Steina hafi í kjöl- far 50 ára afmælistónleika fengið fjölda áskorana um að halda dansleik á Skaganum fyrir þann aldurshóp sem byggði upp vinsældir hljóm- sveitarinnar og sótti böllin af krafti í þá daga. Í framhaldinu sendi hljóm- sveitin tölvupóst til allflestra Skaga- manna í árgöngunum 1942 - 1952 um fyrirhugaðan dansleik. Upphaf- lega stóð til að dansleikurinn yrði haldinn í Gamla Kaupfélaginu en miðað við viðbrögðin við bréfinu telja þeir félagar að sá salur verði of lítill undir þann fjölda fólks sem bú- ist er við að vilji mæta. „Nú á eftir að reyna á þátttökuna en hún gæti orðið sex til sjö hundruð manns og það sem okkur þætti mjög leitt er að mikill fjöldi fengi ekki aðgöngumiða og að alltof þröngt yrði um þá sem kæmust inn í Gamla Kaupfélagið,“ segir í fylgiskjali fundargerðarinn- ar. Hefur hljómsveitin því óskað eft- ir að fá afnot af íþróttahúsinu fyrir viðburðinn. Jákvætt tekið í erindið Dagsetningin á viðburðinum er ákveðin með tilliti til menningarhá- tíðarinnar Vökudaga, sem er hald- in á Akranesi á hverju hausti. Telja meðlimir hljómsveitarinnar að brottfluttir sem ætla að sækja dans- leikinn geti þá nýtt tækifærið og kíkt á fleiri menningarviðburði sem verði í gangi á þessum tíma. Bæjar- ráð Akraneskaupstaðar tók jákvætt í erindið og vísaði því til menn- ingar- og safnanefndar til skoðun- ar í tengslum við hvort viðburður- inn geti verið hluti af formlegri dag- skrá Vökudaga. „Við getum lítið tjáð okkur um málið á þessu stigi. Það eina sem við getum sagt er að það var tekið jákvætt í erindið og nú er búið að vísa þessu áfram til hlut- eigandi aðila, sem taka endanlega ákvörðun,“ sagði Jón Trausti Her- varsson, einn af meðlimum Dúmbó og Steina í samtali við Skessuhorn. grþ Dúmbó og Steini stefna á stórdansleik á Akranesi Hljómsveitin eins og hún var skipuð þegar hún kom saman fyrir tónleika í Hörpu 2013. Ljósm. úr safni.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.