Skessuhorn - 02.09.2015, Blaðsíða 6
MIÐVIKUDAGUR 2. SEPTEMBER 20156
Greiðslumark
í mjólk selt
á 200 kr
LANDIÐ: Tilboð í kaup og
sölu á greiðslumarki í mjólk
voru opnuð á mánudaginn hjá
Matvælastofnun. Markaðurinn
fer fram samkvæmt reglugerð
nr. 190/2011. Jafnvægisverð á
markaði reyndist nú 200 krón-
ur fyrir hvern lítra mjólkur og
er það 50 krónum hærra lítra-
verð en á síðasta markaði sem
fram fór 1. apríl í vor. Alls bárust
Matvælastofnun 24 tilboð um
kaup eða sölu á greiðslumarki.
Gild sölutilboð voru níu og gild
kauptilboð voru 15. Alls var 367
þúsund lítrar boðnir til sölu en
óskað eftir kaupum á 950 þús-
und lítrum. Þeir sem lögðu inn
tilboð um sölu á greiðslumarki á
verði sem var 200 krónur á lítra
eða lægra selja nú greiðslumark
sitt. Sjá nánar á mast.is.
-mm
Telja brýnt að
hefja vegafram-
kvæmdir
AKRANES: Bæjarráð Akranes-
kaupstaðar telur að brýnt sé orð-
ið að ráðast í framkvæmdir við
Vesturlandsveg til að tryggja ör-
yggi vegfarenda á Vesturlandi.
Vegurinn er með eina akrein í
hvora átt og verða akstursskil-
yrði oft erfið vegna veðurfars á
Kjalarnesi og í Kollafirði. Bæj-
arráð sendi umsögn til sam-
göngu- og umhverfisnefndar
Alþingis 4. júní síðastliðinn þar
sem lögð er áhersla á áðurnefnd-
ar framkvæmdir. Þetta kemur
fram í fundargerð bæjarráðs frá
27. ágúst síðastliðnum. Á sama
fundi var fjallað um öryggismál
í Hvalfjarðargöngum. Þá kem-
ur fram að það liggi fyrir að gera
þurfi vandaða umferðarspá fyr-
ir Vesturlandsveg og Hvalfjarð-
argöng til næstu tíu ára, sem
taki mið af vaxandi fjölda ferða-
manna á Íslandi og aukinna um-
svifa á Grundartanga.
–grþ
Kostnaður og
tekjur lægri en
áætlað var
BORGARBYGGÐ: Á fundi
Byggðarráðs Borgarbyggðar
fimmtudaginn 27. ágúst síð-
astliðinn fór Eiríkur Ólafs-
son, fjármálastjóri Borgar-
byggðar, yfir fjárhagsstöð-
una í lok júlímánaðar miðað
við fjárhagsáætlun. Þar kom
fram að í flestum liðum væri
kostnaður undir áætlun en
jafnframt væru tekjur einnig
nokkuð lægri en áætlað hafði
verið. Þrátt fyrir fjölgun íbúa
og góða atvinnustöðu virðast
útsvarstekjur ekki samræm-
ast væntingum, segir í fund-
argerð.
–kgk
Gert við vatns-
leka á Hellis-
sandi
SNÆF: Í síðustu viku var
unnið við lekaleit á Hellis-
sandi, eftir kvartanir íbúa
vegna lágs vatnsþrýstings þar
í bæ. Á heimasíðu Snæfells-
bæjar kemur fram að upptök
lekans hafi fundist að lokum
með aðstoð hlustunarbúnað-
ar. Gati á vatnslögn hafi ver-
ið lokað og vatnsþrýstingur
hafi aukist til muna eftir lag-
færingarnar.
–kgk
Ólsaragleði í
september
RVK: Ólsaragleðin 2015
verður haldin laugardaginn
12. september næstkomandi
í Gullhömrum í Grafarholti
í Reykjavík. Þar munu koma
saman brottfluttir Ólsarar og
þeir sem enn búa heima. Þar
verður boðið upp á þriggja
rétta máltíð, happadrætti,
ljósmyndasýningu og óvænt-
ar uppákomur. Að kvöldverð
loknum verður dansleik-
ur þar sem hljómsveitirnar
Klakabandið og Nota Bene
leika fyrir dansi. Veislustjór-
ar kvöldsins eru Olga Krist-
jáns og Sigga á Grund. Nán-
ari upplýsingar má finna á
facebook síðunni Brottfluttir
Ólsarar eða hjá Jensínu Her-
mannsdóttur, s. 846-8836
og Díönu Ríkharðsdóttur s.
869-8121.
-fréttatilkynning
Íbúafundur í
kvöld
BORGARFJ: Sveitarfé-
lagið Borgarbyggð hefur
boðað til opins íbúafundar á
Hvanneyri í kvöld, miðviku-
daginn 2. september klukk-
an 20:00. Á dagskrá fundar-
ins er kynning á ákvörðun-
um sveitarstjórnar um breyt-
ingar á rekstri og skipulagi
Hvanneyrardeildar Grunn-
skóla Borgarfjarðar. Að því
loknu verða umræður og fyr-
irspurnir.
-mm
Fjölbrautaskóli Vesturlands á Akra-
nesi á afmæli 12. september næst-
komandi. „Í tilefni af því koma
fyrrverandi og núverandi starfs-
menn skólans saman klukkan hálf-
tíu til miðnættis á Gamla Kaup-
félaginu við Kirkjubraut á Akra-
nesi. Allir sem hafa starfað við skól-
ann eru hvattir til að líta við og lyfta
glasi eða kaffibolla,“ segir í tilkynn-
ingu frá Átthagafélagi FVA. Þess
má einnig geta að félagið heldur úti
sérstakri Facebook síðu. mm
Hafist verður handa við að leggja
ljósleiðara um Skógarströnd í Döl-
um nú í haust, frá Hörðubóli í Mið-
dölum og sem leið liggur að Stykk-
ishólmi. Er það fyrirtækið Orku-
fjarskipti hf. sem mun leggja ljós-
leiðarann. Verkefnið var kynnt á
íbúafundi í Árbliki föstudaginn 25.
ágúst síðastliðinn. Þar ræddi Har-
aldur Benediktsson alþingismað-
ur um átak varðandi ljósleiðara-
væðingu landsins á næstu árum og
Guðmundur Gunnarsson frá Rafal
og SSV fór yfir hönnun ljósleiðara-
kerfis um Dali.
Benedikt S. Haraldsson, verk-
efnisstjóri Orkufjarskipta, fór yfir
stöðu mála fyrir fyrirhugaða lagn-
ingu ljósleiðarans um Skógar-
strönd. Í máli hans kom fram að
eins og staðan er í dag stendur
ekki til að leggja heimtaugar sam-
hliða sjálfum ljósleiðaranum heldur
verður aðeins gert ráð fyrir þeim.
Að sögn Sveins Pálssonar, sveitar-
stjóra í Dalabyggð, er unnið að því
þessa dagana að finna leiðir til að
leggja megi og tengja heimtaug-
arnar um leið og ljósleiðarann um
Skógarströnd.
„En að öðru leyti er staðan sú
að við vonumst auðvitað til að
átak um ljósleiðaravæðingu Íslands
hljóti framgöngu hjá ráðuneytum
og fjárlaganefnd nú í haust. Raf-
al hefur, að tilhlutan Dalabyggðar
og Samtaka sveitarfélaga á Vestur-
landi, unnið að hönnun dreifikerf-
is um Dalabyggð og er sú vinna
langt komin. Enn er unnið að því
að finna leiðir til að leggja og tengja
heimtaugar um leið og lagt verður
milli Hörðubóls og Stykkishólms
en ekki er hægt að segja fyrir um
niðurstöðu á þessari stundu,“ sagði
Sveinn.
kgk
Í síðustu viku voru þýskir slökkvliðsmenn á
ferð um Vesturland. Þeir gistu í Ólafsvík og
nýttu dagana til að skoða sig um á Snæfells-
nesi. Þriðjudaginn 25. ágúst nýttu þeir til að
sigla um Breiðafjörðinn með Sæferðum og
um kvöldið áttu þeir heimboð til Slökkviliðs
Grundarfjarðar. Þar var kátt á hjalla en á borð-
um var grillaður koli í boði G.Run og ýms-
ar veigar. Voru Þjóðverjarnir og fylgdarmenn
þeirra frá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins
hinir kátustu með þetta og skemmtu sér kon-
unglega enda veður með ágætum. tfk
Ljósleiðari verður lagður um Skógarströnd í Dölum í haust, frá Hörðubóli í Mið-
dölum til Stykkishólms.
Ljósleiðari um Skógarströnd í haust
Gleðistund á afmæli Fjölbrautaskóla Vesturlands
Þýskir slökkviliðsmenn á ferð