Skessuhorn


Skessuhorn - 02.09.2015, Blaðsíða 24

Skessuhorn - 02.09.2015, Blaðsíða 24
MIÐVIKUDAGUR 2. SEPTEMBER 201524 Freisting vikunnar Í lok sumars eru á mörgum ís- lenskum heimilum til margar krukkur af splunkunýrri rabar- barasultu. Sultan er yfirleitt not- uð í bakstur, með lambasteikinni, ofan á pönnukökur eða vöfflur eða jafnvel gefin til vina og vanda- manna í fallegum krukkum. Þegar kemur að bakstri sem inniheldur rabarbarasultu er hjónabandssæla líklega sú vinsælasta. Hér birtum við uppskrift af svokallaðri hátíð- ar hjónabandssælu, sem er örlít- ið öðruvísi en sú hefðbundna en alveg ótrúlega ljúffeng og bragð- góð. Hátíðar hjónabandssæla 2 bollar haframjöl 2 bollar kókosmjöl 2 bollar hveiti 2 bollar hrásykur 250 gr. smjör 2 stk. egg vanilludropar (smá slurkur) möndludropar (smá slurkur) Rabarbarasulta 100 gr. suðusúkkulaði Þurrefnunum hrært saman. Síð- an eru eggjum, dropum og mjúku smjöri bætt saman við. Hrært og hnoðað. Deiginu er síðan þjappað ofan í smurt mót. Smyrjið rabar- barasultu ofan á og myljið að lok- um restina af deiginu yfir og loks súkkulaðinu. Bakað í 190° heitum ofni í um 40 mín. Hjónabandssæla með rabarbarasultu og súkkulaði Ljósm. Berglind Guðmundsdóttir. Opnun á verkum Anne Hers- zog verður mánudaginn 7. sept- ember frá 16 til 18 í Átthagastof- unni í Ólafsvík. Anne fæddist 1984 í Frakklandi en býr og starfar á Ís- landi. Hún hefur lokið námi í kvik- myndarannsóknum, margmiðlun og listum frá ýmsum háskólum í Frakk- landi, meðal annars Université París 1 Panthéon Sorbonne. Verk Anne hafa verið sýnd á Íslandi, Frakk- landi, New York, Trinidad og To- bago og Europu, svo eitthvað sé nefnt. Í Átthagastofunni mun Anne sýna verk um eldfjall eða svokallað „Art brut.“ Viðfangsefnið er Snæ- fellsjökull. Sýningin verður opin á opnunartíma Átthagastofunnar, frá kl. 9:00—16:00, út september. -fréttatilkynning Opnar myndlistarsýningu í Átthagastofunni Hjónunum Helga Guðmundssyni og Júlíu Gunnarsdóttur í Vogum á Vatnsleysuströnd er margt til lista lagt. Margir þekkja til þeirra eft- ir að þau ferðuðust hringinn um landið á Farmal Cub með sérsmíð- aða kúrekakerru í eftirdragi, nú síðast í sumar. Á ferð blaðamanns um Voga á Vatnsleysuströnd á bæjarhátíð þar nýverið var honum boðið í garðinn til þeirra hjóna. Garðurinn er ævintýri líkastur, fal- lega skreyttur með gömlum mun- um og styttum, hænsnin áttu sinn stað innan um blóm og skrautjurtir. Hér er hestur og gamall áburðar- dreifari meðal sýningargripa. Þrátt fyrir að Vogar séu utan helsta út- breiðslusvæðis Skessuhorns, mega góðar myndir sem þessar ekki falla ónotaðar. mm Óvenjulegur garður í Vogunum Skagakonan og áhugaljósmynd- arinn Þórdís Björnsdóttir hefur opnað ljósmyndasýningu á ann- arri hæð Akranesvita, þar sem hún sýnir myndir sínar á næstu vikum. Um er að ræða tuttugu fjölbreytt- ar myndir, sem hafa margar hverj- ar á sér ævintýralegan blæ. Þórdís tók flestar myndirnar sjálf og hef- ur unnið þær í tölvu og sett saman. „Þetta eru bara uppstillingar mínar og hugmyndir. Í samsettu myndun- um nota ég allt frá tveimur og upp í fimm ólíkar myndir og blanda þeim saman,“ segir Þórdís. Hún segist þó ekki geta blandað hverju sem er saman, passa þurfi upp á birtu og litasamsetningu þó að ýmislegt sé hægt að laga í myndvinnslufor- ritum. Sýningin er sölusýning og verður opin í vitanum fram yfir Vökudaga. Þó að komið sé fram á haust verð- ur ýmislegt um að vera í vitanum enda er búið að framlengja ráðn- ingarsamning við vitavörðinn fram til næsta vors. Á fyrstu hæð Akra- nesvita er málverkasýning mynd- listarkonunnar Önnu S. Helga- dóttur og næstkomandi laugardag verður frumflutt tónverk í vitan- um. Það er hljómsveitin Mógil sem flytur verkið, sem samið er sérstak- lega fyrir Akranesvita. Viðburður- inn er hluti af verkefninu „Akra- nesviti: Rými til tónsköpunar“ sem var styrkt af Uppbyggingarsjóði Vesturlands. Verkefnið snýst um að rannsaka hljómburð og endurkast í rými Akranesvita með sérstöku til- liti til tónsmíða og tónlistarflutn- ings í rýminu. Tónleikarnir hefjast klukkan 20. grþ Sýningar og tónleikar framundan í Akranesvita Þórdís Björnsdóttir sýnir ljósmyndir í Akranesvita fram yfir Vökudaga. Hjónin Jón Trausti Hervarsson og Júlíana Bjarnadóttir á Akranesi fögnuðu gullbrúðkaupi 21. ágúst síðastliðinn. Fjórum dögum áður varð Jón Trausti sjötugur og af því tilefni var slegið upp veislu heima hjá þeim hjónum á Vallarbrautinni, þar sem þau héldu upp á hvoru tveggja í faðmi fjölskyldu og vina. Hjónin giftu sig árið 1965, nokkr- um dögum eftir að Jón Trausti varð tvítugur. Hann þurfti því svokall- að forsetaleyfi til að geta kvænst unnustu sinni. „Karlmenn þurftu að vera 21 árs en ég var nýorðinn tvítugur. Konum var aftur á móti treyst til að giftast átján ára, enda hafa þær alltaf verið betur gefnar en við strákarnir,“ segir Jón Trausti hress í samtali við Skessuhorn. Hann segist ekki hafa látið aldur- inn stoppa sig og sótti því um und- anþágu. „Maður þurfti að fara suð- ur í dóms- og kirkjumálaráðuneyt- ið með bréf frá prestinum. Svo var leyfið sent til baka þegar þetta hafði verið afgreitt. Þannig að það kom bréf undirritað annað hvort af for- setanum eða ráðuneytisstjóranum, þar sem fram kom að þeir góðfús- lega veittu þetta leyfi.“ Fóru að búa eftir giftingu Jón Trausti sló á létta strengi í af- mælisveislunni og sýndi gestun- um bréfið. „Konan tók upp á því að syngja til mín lag þar sem hún hafði breytt textanum lítillega. Ég vissi að hún ætlaði að gera eitthvað eins og henni er lagið svo ég varð að vera viðbúinn,“ segir hann. Jón Trausti segir að það hafi ekki verið óalgengt í þá daga að fólk hafi þurft að fá þessa undanþágu. „Fólk fór oft að búa, líkt og það gerir í dag, og gifti sig svo eitthvað seinna. Við fórum samt ekki að búa fyrr en eft- ir brúðkaupið. Vorum búin að taka íbúð á leigu og gera allt tilbúið, svo fluttum við inn eftir að við giftum okkur. Nú höfum við verið saman í blíðu og stríðu öll þessi ár, eigum þrjú börn, þrjú tengdabörn og sex barnabörn, yndislegan hóp.“ grþ /Ljósm. hb. Þurfti forsetaleyfi til að kvænast Jón Trausti og Júlíana fögnuðu nýlega gullbrúðkaupi. Jón Trausti með leyfisbréfið frá dómsmálaráðuneytinu. Í bréfinu stendur meðal annars: Leyfisbréf handa Jóni Trausta Hervarssyni til þess að mega kvænast unn- ustu sinni Júlíönu Bjarnadóttur, þótt hann hafi eigi náð lögmæltum hjúskapar- aldri.“ Neðst á blaðinu kemur fram að gjaldið fyrir bréfið var 150 krónur.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.