Skessuhorn


Skessuhorn - 02.09.2015, Blaðsíða 26

Skessuhorn - 02.09.2015, Blaðsíða 26
MIÐVIKUDAGUR 2. SEPTEMBER 201526 Mikið var um að vera í sunnan- verðum Borgarfirði um helgina. Í Hvalfjarðarsveit stóðu Hvalfjarð- ardagar yfir alla helgina með fjöl- breyttri dagskrá um alla sveit þar sem fjölmargir tóku þátt í leik og starfi. Í Borgarnesi hélt svo Kaup- félag Borgfirðinga sína árlegu uppskeruhátíð á laugardaginn með líflegri dagskrá fyrir fólk á öll- um aldri. Góð mæting var, en að sögn Guðsteins Einarssonar kaup- félagsstjóra voru heldur færri gest- ir en undanfarin ár og helgaðist það af því að bændur voru út um allt hérað að slá og hirða há, enda hékk hann þurr. „Við fögnum því að bændur nýttu daginn til hey- skapar enda veitir ekki af að bæta heyforðann. Mér skilst að hey- magn úr fyrra slætti hafi víða ver- ið rýrt. Engu að síður fengum við marga gesti til okkar á laugardag- inn og erum ánægð með hvernig til tókst. Vegna veðurs voru flest- ir inni í versluninni og hún stapp- full af fólki. Þetta gekk prýðilega og við erum ánægð, aðsókn var langt umfram væntingar. Bænd- ur kikja bara í kaffi til okkar síð- ar þegar vel stendur á hjá þeim,“ sagði Guðsteinn. mm/ Ljósm. hb. Vel mætt á Sumarhátíð Kaupfélagsins þrátt fyrir að bændur væru í heyskap Frekar kuldalegt var á útisvæðinu í Borgarnesi en samt voru margir. Reiðskóli Guðrúnar Fjeldsted var með hesta á staðnum og krakk- arnir fengu að fara á bak. Gefið á garðann. Löng röð við grillaðar pylsur utan við verslunar- hús KB. Sýnikennsla í meðferð veiðiháfa. Keppni í girðingastaurakasti var spennandi. Málin rædd inn í verslunarhúsinu. Guðsteinn Einarsson, Haukur Júlíusson og Pálmi Ingólfsson ræða heimsmálin. Pylsurnar runnu út en það var Búnaðarfélag Mýramanna sem sá um að grilla. Árni Jónsson var ánægður með tilveruna.Geiri frá Kvíum og Jón Pétursson ræða málin. Visit the locals er kynningarátak ferðaþjónustufyrirtækja Markaðsstofa Vesturlands hlaut á síðasta ári styrk úr Menning- arráði Vesturlands til vinnslu á verkefninu Visit the locals. „Við fengum styrk til að kynna fyrirtæki á Vesturlandi sem bjóða upp á persónulega heimsókn ferðafólks,“ segir Kristján Guð- mundsson forstöðumaður Markaðsstofu Vesturlands í samtali við Skessuhorn. Sex myndbönd hafa nú verið framleidd og má finna þau inni á vefsíðunni www.visitthelocals.is. Að sögn Krist- jáns stendur til að búa til fleiri myndbönd. Verkefnið var unnið í samstarfi við Búdrýgindi ehf. sem sá um upptökur. arg Bjarteyjarsandur í Hvalfirði, rótgróin ferðaþjónusta, fallegur og skemmtilegur áfangastaður fyrir þá sem eru á ferð um Hvalfjörðinn. Þar er stunduð sauðfjárrækt, ferðaþjónusta og fræðslustarfsemi. Þar er margt í boði, t.d. gallerí í súrheysgryfju, gistiaðstaða, gönguferðir með leiðsögn og margt fleira. Á Ytri-Fagradal á Skarðsströnd í Dölum búa Halla Sigríður Steinólfs- dóttir og Guðmundur Gíslason. Þar stunda þau sauðfjárbúskap þar sem ræktað er lífrænt lambakjöt. Þau Halla og Guðmundur taka vel á móti gestum sem vilja koma og kynna sér fjárbúskapinn. Á bænum eru 500 kindur, þrír fjárhundar, hænur, hani og býflugur. Á Erpsstöðum í Dölum búa þau Þorgrímur Einar Guðbjartsson og Helga Elínborg Guðmundsdóttir. Þar reka þau kúabú en árið 2009 var einnig opnað Rjómabúið Erpsstaðir þar sem þau búa til og selja ýmsar mjólkurafurðir. Þangað eru gestir velkomnir í heimsókn þar sem þeim er boðið að skoða búið, klappa dýrunum og versla margskonar góðgæti. Hjá Guðrúnu Bjarnadóttur í Hespuhúsinu við Andakílsárvirkjun geta gestir stoppað og fengið að sjá hvernig íslensk ull er lituð með jurtum. Þar er einnig úrval af jurtalituðu bandi til sölu. Ingi Hans Jónsson er einn þekktasti sagnamaður landsins og í Sögustofunni hans í Grundarfirði geta gestir fengið að hlusta á hann segja sögur fyrir alla fjölskylduna. Ingi Hans byrjaði snemma að segja sögur en hann lærði það af föður sínum sem var sjómaður og öðrum sjómönnum. Í Frystiklefanum á Rifi er boðið upp á margskonar menningarvið- burði, leiksýningar, lifandi tónlist og margt fleira, ásamt því að þar er rekið hostel.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.