Skessuhorn - 02.09.2015, Blaðsíða 17
MIÐVIKUDAGUR 2. SEPTEMBER 2015 17
Félags- og skólaþjónusta Snæfellinga auglýsir starf í
„Smiðjunni“ í Ólafsvík, sem er dagvinnustofa,
hæfing og atvinnutengd úrræði fatlaðs fólks.
Um er að ræða 100% stöðugildi, vinnutími virka daga kl. 8.00 – 16.00.
Launakjör skv. samningum SDS og sveitarfélaganna.
Æskilegt en þó ekki skilyrði er að umsækjandi búi að félagsliðamenntun
og eða starfsreynslu er nýtist í starfi með fólki með fötlun, hafi góða
samskiptahæfileika, sé úrræðagóður, skipulagður og stundvís.
Skriflegar umsóknir er tilgreini menntun, fyrri störf,
umsagnaraðila og sakavottorð viðkomandi berist til undirritaðs
sem jafnframt veitir frekari upplýsingar um starfið:
Sveinn Þór Elinbergsson, forstöðumaður, sveinn@fssf.is,
Klettsbúð 4, 360 Hellissandi.
Umsóknarfrestur er til 10. september 2015.
Atvinna í boði
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
5
Eftirfarandi starf er laust til umsóknar:
Starf þroskaþjálfa í búsetuþjónustu. •
Sótt er um rafrænt á heimasíðu
Akraneskaupstaðar á þar til gerðu eyðublaði
Nánari upplýsingar er að finna á www.akranes.is S
K
ES
SU
H
O
R
N
2
01
5
Laust starf hjá Akraneskaupstað
Bíll fór út af við Miðskóg í Dölum
að morgni síðasta miðvikudags.
Bílinn lenti utan vegar en bílstjór-
inn náði honum aftur upp á veg-
inn þar sem hann valt á hliðina.
Dráttarbíl þurfti til að fjarlægja
bílinn en hann mun vera talsvert
skemmdur. Einn maður var í bíln-
um og var hann fluttur til skoð-
unar á Heilbrigðisstofnun Vestur-
lands í Búðardal.
mm/ Ljósm. km.is
Bílvelta í Dölum
Föstudaginn 28. ágúst var flutn-
ingaskipið Sunna við festar í
Grundarfjarðarhöfn. Það vakti at-
hygli ljósmyndara að ofan á skipinu
var skurðgrafa ein stór og mikil sem
þjónar hlutverki krana við lönd-
un og lestun í skipið. Sunna var
að koma með 130 tonn af salti fyr-
ir fiskvinnslur á svæðinu. Það voru
starfsmenn Djúpakletts sem sáu um
löndunina ásamt skipverjum.
tfk
Með salt til fiskvinnslunnar
Flutningaskipið Flinterrachel átti
viðkomu í Ólafsvíkurhöfn síðastlið-
inn laugardag með saltfarm. Skip-
ið sem er 3442 brúttótonn að stærð
var að koma þangað í fyrsta skipti
en heimahöfn þess er í Rotterdam í
Hollandi. 1100 tonnum af salti var
landað í Ólafsvíkurhöfn fyrir salt-
fiskverkanir í Snæfellsbæ. Er þetta
stærsti saltfarmur sem skipað hef-
ur verið upp í Ólafsvík. Venjulega
þegar saltskip koma til Ólafsvíkur
hefur verið landað á bilinu 500 til
800 tonnum. Það voru starfsmenn
frá Ragnari og Ásgeiri í Grundar-
firði sem sáu um löndunina. Næsti
viðkomustaður skipsins var í Stykk-
ishólmi og þar á eftir Grindavík og
Reykjavík. þa
Stærsti saltfarmurinn til þessa
Hún hefur sjálfsagt farið fram hjá
fáum, sú umræða sem hefur skap-
ast á landinu um móttöku flótta-
fólks frá Sýrlandi undanfarna daga.
Hundruðir víðsvegar um landið
hafa boðist til að leggja fram hjálp-
arhönd, allt frá því að bjóða fólki
húsnæði og fæði, fatnað og hluti eða
vináttu og stuðning. Í Borgarbyggð
hefur verið stofnaður á Facebo-
ok hópurinn Hjálparhönd - stuðn-
ingsnet fyrir móttöku flóttamanna í
Borgarbyggð. Á átján klukkustund-
um voru meðlimir hópsins komn-
ir yfir 150 manns, þegar staðan var
tekin síðdegis í gær. „Hópur fólks
sem vill leggja sitt af mörkum til að
skapa aðstæður svo Borgarbyggð
geti tekið á móti flóttafólki og
hjálpað því að fóta sig í nýju samfé-
lagi. Þessi síða er hugsuð sem vett-
vangur til að ræða saman og koma
með hugmyndir að því hvað sé að
gera til að rétta hjálparhönd. Eng-
inn getur gert allt en allir geta gert
eitthvað,“ segir í lýsingu um hóp-
inn á Facebook síðunni.
grþ
Stuðningsnet fyrir móttöku flótta-
manna stofnað í Borgarbyggð
Þessar dömur hittust á Kaffi Kyrrð í Borgarnesi í fyrrakvöld og ræddu um ástandið
í Sýrlandi og straum flóttafólks til Evrópu. Ljósm. Hjálparhönd.