Skessuhorn


Skessuhorn - 02.09.2015, Page 15

Skessuhorn - 02.09.2015, Page 15
MIÐVIKUDAGUR 2. SEPTEMBER 2015 15 ÞJÓNUSTA ÞJÓNUSTA BLIKKSMIÐJA Loftræstingar – Reykrör Klæðningar – Nýsmíði Viðhald – Efnissala JÁRNSMIÐJA Gjafagrindur – Nýsmíði Viðhald – Þjónusta Hesthúsinnréttingar RAFMAGNS- VERKSTÆÐI Nýlagnir – Viðhald Viðgerðaþjónusta Borgarbraut 74 • 310 Borgarnesi • 412-5300 • limtrevirnet.is Víkurhvarf 5 Stærð palls 2,55 x 8,60 m Verð kr. 1.890.000,- með virðisaukaskatti Weckman flatvagnar / löndunarvagnar Vagnar 6,5 - 17 tonn. Verðdæmi: 8 tonn kr. 1.250.000,- með virðisaukaskatti. 12 tonn kr. 1.590.000,- með virðisaukaskatti. Weckman sturtuvagnar Víkurhvarf 5 S K E S S U H O R N 2 01 2 Í verslun Rauða krossins við Borg- arbraut 4 í Borgarnesi vinna sjálf- boðaliðar gott starf þar sem vel er hugsað um verslunina. Þar geta Borgnesingar, nærsveitafólk og aðrir stoppað og keypt góð föt, töskur og veski, skó, skart og sitt- hvað fleira. Nú nýverið var rýmk- að til í versluninni og breytt svo að meira pláss skapaðist. Í Borgar- nesi eru einnig söfnunargámar þar sem fólk getur komið með föt sem ekki eru lengur í notkun og gefið Rauða krossinum. „Fötin sem eru sett í gámana hér eru þó ekki seld í versluninni hér í Borgarnesi. Það sem kemur í fatasöfnunargáminn fer allt til Reykjavíkur þar sem föt- in eru flokkuð og slíkt. Við fáum svo bretti af fötum frá Reykjavík og það eru þá föt sem hafa verið sett í gáma á öðrum stöðum á landinu,“ segir Jóhanna Möller, einn sjálf- boðaliða í versluninni, í samtali við Skessuhorn. „Við fáum bretti send að sunnan eftir þörfum og á hverju bretti eru svona tíu til tólf kassar af fötum. Á hverri vakt, eða hvern dag sem er opið, er svo tekið upp úr ein- um kassa. Það er því eitthvað „nýtt“ sem kemur í hvert skipti sem versl- unin er opin,“ bætir Jóhanna við. Rauði krossinn tekur öllum fatnaði fagnandi Verslunin er mjög vel skipulögð og þar er að finna fjölbreytt úrval af fötum fyrir allan aldur og í flest- um stærðum. „Barnafötin hjá okk- ur kosta t.d. frá 200 kr. Öll föt- in sem við seljum eru líka heil og blettalaus. Ef það er eitthvað blett- ótt eða ekki heilt þá fer það ekki í verslunina. Við viljum þó árétta að Rauði krossinn nýtir allan fatnað og efni, þó það sé götótt eða blett- ótt. Það sem er illa farið er rifið niður og notað í mottur og annað slíkt. Hér í versluninni er stuðst við verðlista sem Rauði krossinn hefur sett upp og er verðið því það sama í öllum verslunum Rauða krossins, nema í versluninni við Laugaveg 12. Þar eru merkjavörur og kosta aðeins meira. Hér förum við held ég ekkert yfir 5000 kr. og er það afar sjaldgæfur verðmiði hjá okk- ur,“ segir Helga Sif Andrésdóttir, sjálfboðaliði í versluninni. Engin skömm að kaupa notuð föt „Það er 21 sjálfboðaliði skráður hjá okkur en þó eru ekki allir jafn virkir. Þetta er allt frábært og dug- legt fólk. Við tökum öllum sem vilja hjálpa mjög vel og fleiri sjálf- boðaliða væru því vel þegnir, sér- staklega að bæta við körlum. Það er bara einn ungur drengur skráð- ur sem sjálfboðaliði hér hjá okkur og við værum alveg til í fleiri,“ segir Jóhanna og brosir. Aðspurðar hvort þær verði varar við að fólki þyki óþægilegt að koma inn í verslunina segjast þær alveg hafa orðið varar við slíkt. „Það er ekki mikið um það en maður sér samt alveg fólk sem finnst kannski óþægilegt að koma hér inn. Svo eru náttúrulega marg- ir hér í Borgarnesi sem hafa aldrei kíkt við, kannski þykir þeim óþægi- legt að versla hér. Það er þó alveg óþarfi að líða þannig, hér versl- ar allskonar fólk, bæði fólk sem á lítið af peningum og fólk sem ef- laust á alveg nóg. Það er bara alveg óþarfi að eyða fullt af peningum í föt sem þú getur alveg fengið mun ódýrara hjá okkur. Hér kemur líka tískufatnaður og merkjavörur. Það er líka mikið úrval fyrir börnin, fín leikskólaföt til dæmis,“ segja þær Jóhanna og Helga Sif. „Hér er líka leikhorn fyrir börnin og við erum alltaf með kaffi á könnunni. Fólk getur því alveg kíkt bara til okkar, sest niður, fengið sér kaffi og spjall- að á meðan börnin leika sér,“ bætir Jóhanna við. Fyrirtækjaáskoranir Þær Jóhanna og Helga Sif segja fólk almennt vera mjög duglegt að kíkja við og sumir koma jafnvel alltaf þegar það er opnað og kíkja í kassann sem er tekið upp úr þann daginn. Einnig eru margar konur sem koma við og fá garn sem Rauði krossinn úthlutar og þær prjóna vörur sem ýmist eru seldar í versl- uninni eða sendar til Hvíta-Rúss- lands. Það er því ekki allt notað sem þarna er selt. „Við reynum að vera duglegar að kynna verslunina og erum alltaf að leita að fleiri sjálf- boðaliðum. Við erum t.d. að hugsa þann möguleika að bjóða ungling- um úr grunnskóla að koma og að- stoða í versluninni. Við höfum líka farið af stað með fyrirtækjaáskoran- ir og höfum við þegar skorað á Vífil Karlsson hagfræðing. Vífill kom þá og afgreiddi hér í einn dag. Núna þarf hann að finna sér einhvern til að skora á og svo á þetta að ganga þannig áfram. Þá fær fólk að kynn- ast þessu aðeins og mögulega vilja einhverjir koma aftur og skrá sig sem sjálfboðaliða,“ segir Jóhanna. Að lokum vilja þær Jóhanna og Helga Sif koma því á framfæri að verslunin er opin þrjá daga í viku, fimmtudaga frá kl. 15-18, föstu- daga frá kl. 14-18 og laugardaga frá kl. 12-15. Alltaf er heitt kaffi á könnunni og allir velkomnir að kíkja við. arg Helga Sif Andrésdóttir og Jóhanna G. Möller eru sjálfboðaliðar í verslun Rauða krossins í Borgarnesi. Endurbætt verslun Rauða krossins í Borgarnesi Þessi systkini fengu að fara með mömmu sinni í verslun Rauða krossins í Borgar- nesi og dressa sig upp frá toppi til táar.

x

Skessuhorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.