Skessuhorn - 30.09.2015, Qupperneq 6
MIÐVIKUDAGUR 30. SEPTEMBER 20156
Ýmis óhöpp í
umferðinni
VESTURLAND: Einn öku-
maður var tekinn fyrir ölv-
un við akstur og annar fyr-
ir akstur undir áhrifum fíkni-
efna í umdæmi Lögreglunn-
ar á Vesturlandi í vikunni sem
leið. Alls urðu sjö umferðaró-
höpp í umdæminu. Á Akranesi
varð árekstur á gatnamótum
þar sem biðskylda var ekki virt,
minni háttar skemmdir urðu á
ökutækjum. Í öðru tilviki var
ekið á ljósastaur sem ökumað-
urinn hafði ekki tekið tíman-
lega eftir. Ökumaðurinn slapp
án teljandi meiðsla en draga
þurfti bifreiðina stórskemmda í
burtu og ljósastaurinn bognaði
nokkuð. Við Akrafjall missti
ungur ökumaður bifreiðina út
af og ofan í skurð, ökumað-
ur og fjórir farþegar sluppu
þar með skrekkinn. Á Laxár-
dalsheiðinni í Dölum sluppu
fimm erlendir ferðamenn án
teljandi meiðsla er þeir misstu
bílaleigubíl sinn útaf veginum í
lausamöl. Kranabíll frá Borð-
eyri var fenginn til að ná bíln-
um þeirra upp á veginn aft-
ur. Þá misstu erlendir ferða-
menn bifreið sína útaf vegin-
um á norðanverðri Vatnaleið-
inni og fór bifreiðin nokkrar
veltur. Ökumaðurinn meiddist
á öxl og var fluttur á sjúkrahús.
Árekstur varð milli þriggja bíla,
við tilraun tveggja ökumanna,
á sama tíma, til framúraksturs
á þjóðveginum við Svignaskarð
síðdegis á sunnudaginn. Einn
málsaðilinn, erlendur ferða-
maður, sá ekki ástæðu til að
stöðva eftir áreksturinn og ræða
við hina ökumennina og hélt
hann för sinni áfram. Hafðist
upp á honum vestur á Snæfells-
nesi þar sem hann var tekinn
tali og honum gerð grein fyr-
ir því að svona hagaði maður
sér ekki hérlendis. Einn öku-
manna hlaut lítilsháttar meiðsli
og var hann fluttur á sjúkra-
hús með sjúkrabíl. Töluverð-
ar skemmdir urðu á ökutækjum
en þau voru þó ökufær.
-mm
Spila bridds
BORGARFJ: Spilamennska
hófst hjá Briddsfélagi Borgar-
fjarðar síðastliðið mánudags-
kvöld. Til leiks mættu átta pör
og úr varð hin besta skemmt-
un. Sveinbjörn og Lárus virtust
í fantaformi án að hafa svo mik-
ið sem lagt kapal í sumar. Kapp-
arnir enduðu með 66,7% skor
og langfyrsta sætið. Kristján og
Jóhann hafa líklega náð æfingu
í leitarmannakofanum og tóku
annað sætið með tæplega 58%
skor. Næstu mánudagskvöld
verður áfram spilaður eins kvölds
tvímenningur og því kjörið fyrir
óvana að koma og spreyta sig, að
sögn Ingimundar Jónssonar fjöl-
miðlafulltrúa BB. -mm
Ærlegt fjör á
Sauðamessu
BORGARNES: Það verður
ærlegt fjör í Borgarnesi laugar-
daginn 3. október næstkomandi
þegar Sauðamessa verður haldin
hátíðleg. Sauðamessa er árlegur
viðburður þar í bæ og alltaf hald-
in fyrsta laugardag októbermán-
aðar. Formleg dagskrá hefst kl.
13:30 með fjárrekstri frá Skalla-
grímsgarði í rétt við Hjálmaklett
þar sem hátíðardagskrá tekur
við. Meðal annars verða flutt
tónlistaratriði, umhverfisverð-
laun Borgarbyggðar verða veitt
ásamt verðlaunum fyrir frum-
legustu lopaflíkina. Þá verð-
ur sveitakeppni í X-Traktor auk
þess sem keppt verður í læra-
kappáti. Gestir og gangandi geta
verslað með sauðslegan varning á
markaði og gætt sér á sauðasúpu
með Stafrófum í boði Rafta og
Landssambands sauðfjárbænda.
Dagskrá lýkur svo með Sauða-
balli í Hjálmakletti um kvöld-
ið þar sem sauðfjárbóndasonur-
inn Magni Ásgeirsson leikur fyr-
ir dansi ásamt hljómsveit sinni Á
móti sól. –kgk
Atvinnuleysi var
3,8% í ágúst
LANDIÐ: Samkvæmt Vinnu-
markaðsrannsókn Hagstofu Ís-
lands voru að jafnaði 197.300
manns á aldrinum 16-74 ára á
vinnumarkaði í ágúst á þessu ári,
sem jafngildir 84,3% atvinnu-
þátttöku. Af þeim voru 189.800
starfandi og 7.500 án vinnu og í
atvinnuleit. Hlutfall starfandi af
mannfjölda var 81,1% og hlut-
fall atvinnulausra af vinnuafli var
3,8%. Samanburður mælinga
fyrir ágúst 2014 og 2015 sýnir
að atvinnuþátttaka jókst um 1,3
prósentustig og hlutfall starfandi
fólks af mannfjölda gerði það
einnig, eða um 2 stig. Atvinnu-
leysi dróst hins vegar saman um
0,9 prósentustig frá því í ágúst
2014, fór úr 4,7% í 3,8%. –mm
Sigurbjartur
ráðinn
STYKKISH: Á fundi bæjar-
stjórnar Stykkishólms 22. sept-
ember var samþykkt tillaga bæj-
arstjóra að ráða Sigurbjart Lofts-
son í starf skipulags- og bygg-
ingarfulltrúa Stykkishólmsbæj-
ar. Sigurbjartur er ráðinn í fullt
starf en hefur starfað sem skipu-
lags- og byggingarfulltrúi Stykk-
ishólmsbæjar og Grundarfjarð-
arbæjar. Ráðningin tekur gildi 1.
október nk. Þetta kemur fram á
vef Stykkishólmsbæjar.
-mm
Húsbíll fauk út af veginum skammt
vestan við Króksfjarðarnes um miðj-
an dag á laugardaginn og splundrað-
ist yfirbygging hans. Sex bandarísk-
ir ferðamenn voru í bílnum og mat
læknir sem kom á slysstað að tvo þeirra
þyrfti að flytja á sjúkrahús með þyrlu
og sótti þyrla Landhelgisgæslunn-
ar þá. Nokkur viðbúnaður var vegna
slyssins. Auk lögreglu kom sjúkrabíll
frá Búðardal með lækni. Þá unnu fé-
lagar í björgunarsveitinni Heima-
mönnum á Reykhólum við hreinsun á
vettvangi eins og meðfylgjandi mynd
sýnir. mm/ Ljósm. sm.
Tvennt slasaðist þegar húsbíll fór út af
Íslensk lambakjöt á spottprís í Noregi
Í verslun Bunnpris á vesturströnd
Noregs gat fólk í liðinni viku keypt
íslenskt lambakjöt; framparta og
læri. Verðið vakti athygli blaða-
manns Skessuhorns, en þarna er
nú hægt að kaupa kíló af íslensku
lambalæri á 69 norskar krónur,
en það er samkvæmt gengi dags-
ins 1.040 krónur. Enn meiri verð-
munur er hins vegar á súpukjöti,
en í fyrrgreindri verslun í Nor-
egi var hægt að fá það keypt fyrir
49 norskar krónur. Kjötið er merkt
framleiðandanum Klover og verð-
ið merkt „besta verðtilboð“. Sam-
kvæmt heimildamanni Skessuhorns
hefur verð á íslenska lambakjöt-
inu jafnvel verið enn lægra, farið
niður í 59 norskar krónur. Flestar
kjötvinnslur á vesturströnd Nor-
egs kaupa kjöt óunnið frá heildsala
í Stavanger sem flytur það inn til
landsins og selur óunnið til áfram-
vinnslu og í verslanir.
Hér á landi hafa stórmarkaðirnir í
haust verið að bjóða kílóið af lamba-
læri á tilboði, en sjaldnast þó und-
ir 1.400 krónum. Að sögn Sindra
Sigurgeirssonar formanns Bænda-
samtaka Íslands er í gildi samn-
ingur við Norðmenn um útflutn-
ing á 600 tonnum af dilkakjöti frá
Íslandi. Sá samningur er hagstæð-
ur þeim og mjög lágir tollar leggj-
ast á vöruna. Þetta segir Sindri vera
skýringuna fyrir lágu verði ytra, en
engu að síður kom það honum á
óvart að heyra hversu ódýrt kjötið
er í Vestur Noregi, þegar þetta var
borið undir hann.
mm
Úr verslun Bunnpris við Förde í V-Noregi. Ljósm. eó.