Skessuhorn - 30.09.2015, Side 18
MIÐVIKUDAGUR 30. SEPTEMBER 201518
Veiðin hefur verið afar góð í
Reykjadalsá í Borgarfirði í sum-
ar og nýtt veiðimet staðreynd. Áin
er nú að komast í 300 laxa en fyrra
metið í henni er frá 2013 þegar 297
laxar komu á land. Veitt er í ánni
til og með dagsins í dag, 30. sept-
ember, svo góðar líkur eru á að tal-
an hækki eitthvað frá því þetta var
skrifað. „Veiðin er búin að vera æv-
intýralega góð í Reykjadalsá í sum-
ar,“ segir Óskar Færseth stjórn-
armaður í Stangveiðifélagi Kefla-
víkur. Veiðileyfi í Reykjadalsá eru
fremur ódýr og því margir sem
stíga þar sín fyrstu spor í laxveið-
inni. Töluvert mun um að veiði-
menn hafi fengið maríulaxana sína
í Reykjadalsá í sumar.
gb
Nýtt veiðimet slegið í
Reykjadalsá
Reykjadalsá neðan við Klett.
Verkefnið „Hjólum í skólann,“ þar
sem nemendur og starfsmenn fram-
haldsskólanna kepptust um að nýta
sem oftast virkan ferðamáta til og frá
skóla, er nú lokið. Alls tóku 19 fram-
haldsskólar þátt í ár, en það er sami
fjöldi og í fyrra. Það var Íþrótta- og
Ólympíusamband Íslands sem stóð
að verkefinu sem hefur það mark-
mið að vekja athygli á virkum ferða-
máta sem heilsusamlegum, um-
hverfisvænum og hagkvæmum sam-
göngumáta meðal nemenda og
starfsmanna framhaldsskólanna. Á
meðan á verkefninu stóð var dregið
úr skráðum þátttakendum og gátu
þeir unnið hraðamæli. Síðasta dag-
inn var svo dregið út TREK reiðhjól
að verðmæti 100.000kr frá Ernin-
um. Með því að taka mynd og setja á
Instagram og merkja með #hjolum-
iskolann gátu þátttakendur unnið
sér inn gjafakort frá Valitor.
Þrír efstu skólarnir í hverjum
flokki fá á næstu dögum senda til
sín verðlaunaplatta fyrir árangur
sinn í verkefninu. Í flokki skóla með
400-1000 nemendur var Fjölbrauta-
skóli Vesturlands á Akranesi í öðru
sæti en alls voru sjö skólar skráðir til
þátttöku í þeim flokki.
mm
FVA starfsfólk og nemendur duglegir
í átakinu Hjólum í skólann
Stöllurnar Margrét Brynjarsdótt-
ir óperusöngkona og Vaiva Mazu-
lyte konsertpíanisti komu til lands-
ins um liðna helgi. Þær ætla að
halda tónleika á nokkrum stöðum á
landinu, m.a. í hlöðunni á Hvann-
eyri, nánar tiltekið Halldórsfjósi á
föstudagskvöldið. Margrét er bor-
in og barnfæddur Borgfirðingur en
Vaiva er frá Litháen. Þær kynntust
í Osló, þar sem þær stunduðu nám
á sama tíma á sitthvoru sviðinu,
Margrét í söng en Vaiva í píanó-
leik. Samstarfið kom einfaldlega
til vegna þess að þeim líkaði hvorri
við aðra. Vaiva og Margrét eru báð-
ar með mastersgráður. Vaiva sér-
hæfði sig í kammertónlist, meðleik
og er einnig konsertpíanisti. Mar-
grét er með masterspróf í einsöng
og sviðsframkomu ásamt óperu-
söng. Þessar sveitalegu heimskonur
ræddu stuttlega við blaðamann í til-
efni tónleikanna.
Rótarýklúbbur
Borgarness ýtti
boltanum af stað
Þetta er fyrsta tónleikaferðin sem
Margrét og Vaiva fara saman, utan
Noregs, þar sem þær búa og starfa.
Þeim finnst bæði skemmtilegt og
viðeigandi að fyrsta tónleikaferðin
hafi orðið til heimalands annarrar
þeirra. „Líklega hefur þó umræðan
um að koma til Íslands hafist á síð-
asta ári,“ segir Margrét hugsi þeg-
ar nánar er spurt út í tilurð þessarar
ferðar. „Vaiva hafði komið hingað
sem ferðamaður og hrifist af landinu
en svo varð ekkert meira úr þessum
hugleiðingum. Það var hins vegar
vegna boðs Rótarýklúbbs Borgar-
ness um að ég kæmi þar fram á um-
dæmisþingi hreyfingarinnar sem
haldið verður í Borgarnesi í byrjun
október sem umræðan fékk vængi
að nýju. Allt var sett á fulla ferð
til þess að af þessu gæti orðið og
með góðra manna hjálp tókst það.“
Vaiva tekur undir og segir að það
hafi eiginlega verið með ólíkindum
að náðst hafi að koma þessu í kring.
„Það er greinilegt að smæð þjóð-
arinnar og að ýmsir þekkja marga,
hefur hjálpað hér til. Það hefur ver-
ið mjög athyglisvert að fylgjast með
Margréti í þessum undirbúningi,“
segir hún brosandi. Vaiva verður á
Íslandi í tíu daga en Margrét leng-
ur. Tónleikaröðin hófst í Akureyr-
arkirkju síðasta sunnudag en síðan
verða þær með tónleika á Hvann-
eyri, nánar tiltekið í hlöðu Hall-
dórsfjóss, föstudaginn 2. október
en síðustu tónleikarnir í þessari
heimsókn munu verða í Háteigs-
kirkju daginn eftir.
Óvenjulegur
tónleikastaður
Vaiva hefur ekki spilað í fjósi eða
hlöðu áður og telur að það verði
gríðarlega spennandi reynsla. Ekki
síst að fá að prófa að vera með tón-
leika á svona gjörólíkum stað á alla
lund, frá hennar fyrri upplifun-
um. „Ég hef aðallega spilað í tón-
leikasölum og kirkjum og þá frek-
ar í stærri bæjum, svo þetta er alveg
nýtt. Ég er tilbúin að prófa þótt við-
urkennast verði að þessi staðsetn-
ing er fyrir utan þann ramma sem
ég hef áður starfað innan. En ögr-
anir gefa lífinu gildi.“ Margrét er
hins vegar alin upp í sveit og henni
fannst þessi óvenjulegi staður í raun
heillandi. „Prógrammið okkar heit-
ir „Er lífið dans á rósum?“ Þar erum
við að mínu mati að skoða ýmis-
legt sem lífið býður upp á. Gleði
og sorgir, svart og hvítt, þung-
lyndi og léttlyndi, allt tilfinning-
ar og upplifanir sem gera lífið þess
virði að lifa því, íslenskt fjós passar
því flott inn í þessa upplifunarflóru.
Með því að syngja í fjósi finnst mér
einnig að við séum að tengja sam-
an tvo heima, sem ekki hafa endi-
lega bundist á þennan hátt fyrr. Ég
held ekki að margir hafi mætt með
konsertpíanista og leikið undir þar
sem áður hljómaði hefðbundinn
söngur íslenskra kúa,“ og Margrét
brosir breytt en heldur síðan áfram.
„Klassíski heimurinn hefur mikið af
gömlum hefðum og með þessu vali
á tónleikastað tengjumst við þeim
hefðum sem hafa viðgengist í aldr-
araðir í íslenskri náttúru og vinnu-
hefð bænda, sem sagt tenging milli
tveggja ólíkra heima.“
Íbúar Hvanneyrar
gríðarlega hjálplegir
Stöllurnar segja aðspurðar um
ástæður þess að Halldórsfjós hafi
orðið fyrir valinu, en ekki eitthvert
annað fjós, einkum vera viðmót og
framkoma íbúanna á Hvanneyri.
„Það var alveg sama við hvern við
töluðum eða hvert við leituðum,
allir íbúar á Hvanneyri voru svo já-
kvæðir og tilbúnir að hjálpa okkur
að koma þessu í framkvæmd. Þann-
ig að valið var ekki erfitt þegar til
kom,“ segir Margrét. „Landbúnað-
arsafnið lætur í té sjálfan tónleika-
staðinn, konurnar í kaffihúsinu
Skemmunni verða í samstarfi með
okkur, sama gildir um þá sem reka
barinn og ótal fleiri einstaklinga á
Hvanneyri. Ef allt þetta fólk hefði
ekki komið að þessum undirbún-
ingi, hefðu tónleikarnir líklega ekki
getað orðið þarna, þar sem fyrir-
varinn var svo skammur. Við viljum
því nota þetta tækifæri til að þakka
hinu hjálpsama og indæla fólki á
Hvanneyri fyrir þeirra mikilvæga
stuðning og hjálp.“
Margir bestu söngvarar
heimsins byrjuðu að
syngja með kúnum
Eins og fram hefur komið er Mar-
grét óperusöngvari og er sífellt
meira að fara inn á þá braut sem
nefnd hefur verið Wagner söng-
kona. „Margar bestu Wagners
söngkonur heimsins hafa byrjað
sem ungar stúlkur að syngja í fjósi
heima hjá sér og fengið kýrnar
til að taka undir sönginn. Þar má
m.a. nefna Birgit Nilson og Kirs-
ten Flagstad, þar er ekki leiðum að
líkjast. Kýrnar eru reyndar ekki í
fjósinu lengur en það er ekki erf-
itt að ímynda sér að þær séu þar,“
segir hún hlægjandi. Margrét bæt-
ir einnig við að Bjarni Guðmunds-
son, forstöðumaður Landbúnað-
arsafnsins á Hvanneyri, hafi sagt
henni að þeir sem byggðu hlöð-
una hafi verið mjög músíkalskir og
sungið við vinnu sína. Það sé því
bara flott að koma aftur með söng
í húsið og þær trúi því að vegg-
ina þyrsti í að endurlifa þá gömlu
góðu tíma þegar sungið var í hús-
inu. Þær stöllur bæta við að fólk
verði að koma í hlýjum fötum, ís-
lensk lopapeysa sé jafnvel við hæfi.
„Við erum jú að syngja og spila
í fjóshlöðu sem eðli málsi sam-
kvæmt er ekki búin hitunarbúnaði.
En þess utan er þetta bara gríðar-
lega spennandi og enn eitt innlegg
í reynslubanka lífsins, rétt eins og
yfirskrift tónleikanna,“ segja þær
Vaiva Mazulyte og Margrét Brynj-
arsdóttir að lokum.
mm
Það verður tónaflóð í Halldórsfjósi á Hvanneyri
-segja Margrét Brynjarsdóttir söngkona og Vaiva Mazulyte píanóleikari sem koma þar fram á föstudaginn
Margrét Brynjarsdóttir og Vaiva Mazulyte sem verða með tónleika í Halldórsfjósi, næstkomandi föstudag.