Skessuhorn


Skessuhorn - 30.09.2015, Síða 19

Skessuhorn - 30.09.2015, Síða 19
MIÐVIKUDAGUR 30. SEPTEMBER 2015 19 Dag ur í lífi... Matráðs Nafn: Sigríður Kristjánsdóttir Fjölskylduhagir/búseta: Ég er gift og á tvö börn og bý á Haga- mel í Hvalfjarðarsveit. Starfsheiti/fyrirtæki: Matráður í Heiðarskóla. Áhugamál: Veiði og garðrækt. Miðvikudagurinn 23. septem- ber 2015. Klukkan hvað vaknaðirðu og hvað var það fyrsta sem þú gerðir? Ég vaknaði kl 6:30, byrj- aði á því að fá mér kaffi og fór svo í sturtu. Hvað borðaðirðu í morgun- mat? Ég fékk með hafragraut. Hvenær fórstu til vinnu og hvernig? Ég keyrði í vinnuna og var mætt um kl. 7:30. Fyrstu verk í vinnunni: Ég byrjaði á því að hella upp á kaffi, maður verður alltaf að gera það fyrst. Svo fór ég að undirbúa morgunmat fyrir börnin. Hvað varstu að gera klukkan 10? Þá var ég að ganga frá eftir morgunmatinn og byrja að und- irbúa glænýjan fisk sem átti að vera í hádegismat. Hvað gerðirðu í hádeginu? Þá var ég að skammta mat á diskana fyrir börnin. Hvað varstu að gera klukkan 14: Ég var að ganga frá eftir há- degismatinn og að þrífa eldhúsið eftir daginn. Hvenær hætt og það síðasta sem þú gerðir í vinnunni? Það síðasta sem ég gerði var að klára fráganginn og svo fór ég heim kl. 15:30. Hvað gerðirðu eftir vinnu? Ég byrjaði á því að setja í þvottavél og svo heklaði ég smá áður en ég eldaði kvöldmatinn. Hvað var í kvöldmat og hver eldaði? Það voru fiskibollur sem ég eldaði og þær voru alveg ótrú- lega góðar, þó ég segi sjálf frá. Hvernig var kvöldið? Kvöldið var mjög skemmtilegt. Ég fór á Oddfellow fund þar sem ég hitti skemmtilegt fólk og átti gott kvöld. Hvenær fórstu að sofa? Ég fór að sofa um miðnætti. Hvað var það síðasta sem þú gerðir áður en þú fórst að hátta? Að undirbúa mig fyrir háttinn, bursta tennur og svo- leiðis. Hvað stendur uppúr eftir dag- inn? Frábær Oddfellow fundur þar sem ég hitti skemmtilegar konur og eyddi kvöldinu í mjög góðum félagsskap. Eitthvað að lokum? Allt er gott sem kemur að norðan. FRUMHERJI HF. – ÞEGAR VEL ER SKOÐAÐ www.frumherji. is Stykkishólmur 2015 Bifreiðaskoðun verður hjá Bílaverkstæðinu Dekk & smur, Nesvegi 5 Fimmtudaginn 8. október Föstudagurinn 9. október Lokað í hádeginu kl. 12.00 – 13.00 Tímapantanir í síma 438 – 1385 Allar stærðir ökutækja skoðaðar S K E S S U H O R N 2 01 5 Skólatölvan 2015 Frábær alvöru ProBook tölva frá Hewlett Packard Skjástærð: 15,6" LED HD Anti-glare Örgjörvi:AMD Quad Core A8-7100 1.8 GHz, Turbo Speed: 3.0 GHz Vinnsluminni: 8GB (DDR3) 1600MHz (Max 16GB) Geymslumiðlar: 500GB Smart SATA harður diskur Skjákort: R6 M255DX Dual graphics með 2 GB sjálfstæðu DDR3 minni Upplausn á skjá: 1366 x 768 Minniskortalesari: 2 í 1 Geisladrif: DVD+/-RW SuperMulti DL skrifari Hljóðkort: SRS Premier Sound hljóðstýring Stýrikerfi: Windows 10 Glæsilegt SS208 hátalarasett frá ACME Fylgir með í kaupunum. Verð kr. 129.900,- Borgarbraut 61—310 Borgarnes Sími 422-2210 sala@taekniborg.is Opið 10-18 virka daga 11-15 laugardaga erð kr. 119.900,- Árleg bólusetning gegn inflúensu er að hefjast á Heilbrigðisstofnun Vesturlands. Sóttvarnarlæknir mælir með inflúensubólusetningu fyrir: Alla einstaklinga 60 ára og eldri. • Öll börn og fullorðna sem þjást af langvinnum hjarta-, lungna-, • nýrna- og lifrarsjúkdómum, sykursýki, illkynja sjúkdómum og öðrum ónæmisbælandi sjúkdómum. Þungaðar konur.• Ofangreindum forgangshópum stendur bóluefni til boða sér að kostnaðarlausu en greiða þarf komugjald á heilsugæslustöð. Vinsamlegast bókið tíma á ykkar heilsugæslustöð milli kl. 08.00 – 16.00. Byrjað verður að sprauta þann 6. október 2015. Einnig viljum við vekja athygli á bólusetningu gegn lungnabólgubakteríum fyrir 60 ára og eldri. Starfsfólk heilsugæslustöðva HVE. Bólusetning gegn inflúensu SK ES SU H O R N 2 01 5

x

Skessuhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.