Skessuhorn - 30.09.2015, Síða 26
MIÐVIKUDAGUR 30. SEPTEMBER 201526
Nú húmar að hausti. Dagurinn styttist og litadýrð haustsins er far-
in að láta sjá sig í hlíðum fjalla og víðar. Framundan er því kaldari
tími, meira skammdegi og haustlægðir. Þá er tilvalið að nota mjúka
birtu frá kertaljósum til að lýsa upp í kringum sig og jafnvel að nota
fallega haustliti náttúrunnar til að gefa heimilinu hlýlegan blæ. Ým-
islegt er hægt að nota úr umhverfinu til skreytinga, svo sem reyni-
ber, köngla, greinar, strá og falleg laufblöð svo eitthvað sé nefnt. Á
meðfylgjandi myndum má sjá hugmyndir að því hvernig er hægt að
haustskreyta heimilið með hlýlegum tónum.
grþ / Ljósm. Pinterest
Haustlitir gefa heimilinu hlýlegan blæ
Hægt er að búa til fallega haustkransa úr laufblöðum, berjum,
stráum og könglum.
Bakki með fallegum greinum í vasa, kertaljósi og ýmsu skrauti. Notaðu köngla, ber, lauf og hvað sem þér dettur í hug. Það þarf ekki
að vera ekta, gerviskraut getur líka verið fallegt.
Trékassi með kertakrukkum og laufblöðum getur verið fallegur á
borði.
Íslenska steina, reyniber og laufblöð má nota á ýmsa vegu.
Ljósm. Þorfinnur Finnlaugsson.
Hér er búið að gera fallegan og látlausan krans úr greinum og
litlum könglum. Hann getur notið sín bæði úti og inni og svo má
uppfæra hann með jólalegu skrauti þegar nær dregur jólum.
Það má skreyta utanhúss líka og leyfa þá nýföllnu laufi að njóta sín,
það eykur á stemninguna.
Könglar eru ekki bara jólaskraut. Klóraðir könglar eru sérlega
haustlegir og flottir.
Á þessum árstíma má finna laufblöð í fallegum litum og nota í
ýmsar skreytingar.
Það er hlýleg birtan sem kemur þegar búið er að skreyta krukkuna
að utan með laufi.
Einfalt og flott. Límdu litlar greinar utan á krukku eða kertastjaka.
Reyniber eru falleg sem skraut. Þau má tína og frysta, þá
geymast þau betur. Einnig má dýfa þeim í pott með heitu vatni og
kertavaxi. Þegar vaxið flýtur á vatninu má dýfa klasa í gegnum
vaxið og síðan í kalt vatn. Ef vaxið þekur berin alveg geta þau
geymst í nokkur ár.