Skessuhorn


Skessuhorn - 30.09.2015, Page 38

Skessuhorn - 30.09.2015, Page 38
MIÐVIKUDAGUR 30. SEPTEMBER 201538 Hver er besti haustmaturinn? Spurning vikunnar (spurt í Stykkishólmi) Magnús Þór Kristinsson „Slátur“ Sigurður Kristjánsson „Lifrin er alltaf fín, skorin þunnt og steikt á pönnu“ Guðbjörg Egilsdóttir „Svið“ Ásta Jónsdóttir „Íslensk kjötsúpa“ Hafdís Björgvinsdóttir „Hjörtu og lifur“ Lokahóf yngri flokka hjá Knatt- spyrnufélagi ÍA var haldið í Akra- neshöllinni í liðinni viku. Byrjað var á knattþrautum og vítaskotum þar sem leikmenn meistaraflokk- anna stóðu vaktina. Samúel Þor- steinsson flutti nokkur skemmti- leg lög og síðan tók við verðlauna- afhending. Að lokum fengu all- ir grillaða pylsu og Svala áður en haldið var heim á leið. Þeir sem fengu verðlaun á lokahófinu eru eftirtaldir: 3.fl.kvk Besti leikmaður: Bergdís Fanney Einarsdóttir Efnilegasti leikmaður: Fríða Halldórsdóttir Mestu framfarir: Dagmar Sara Bjarnadóttir 3.fl.kk Besti leikmaður: Ástþór Ýmir Alexandersson Efnilegasti leikmaður: Sigurður Hrannar Þorsteinsson Mestu framfarir: Róbert Ísak Erlingsson 4.fl.kvk Besti leikmaður: Ásta María Búadóttir Efnilegasti leikmaður: Erna Björt Elíasdóttir Mestu framfarir: Selma Dögg Þorsteinsdóttir 4.fl.kk Besti leikmaður: Marteinn Theodórsson Efnilegasti leikmaður: Ísak Bergmann Jóhannesson Mestu framfarir: Óðinn Örn Óskarsson 5.fl.kvk Leikmaður ársins: Védís Agla Reynisdóttir Leikmaður ársins: Þorgerður Bjarnadóttir Leikmaður ársins: Arnheiður Anna Hallvarðsdóttir 5.fl.kk Leikmaður ársins: Tómas Þórisson Leikmaður ársins: Hákon Arnar Haraldsson Leikmaður ársins: Ólafur Haukur Arilíusson Bergdís hlaut Stínubikarinn Stínubikarinn var afhentur í fyrsta sinn efnilegasta leikmanni yngri flokka kvenna. Bikarinn er nefnd- ur í höfuðið á Kristínu Aðalsteins- dóttur, Stínu, sem er fyrsta lands- liðskona ÍA en hún var burðarás í liði ÍA í kringum 1980 og lék sinn fyrsta landsleik árið 1981 og alls þrjá landsleiki á árunum 1981-1982. Stínubikarinn á að vera hvatning til ungra stúlkna að stefna hátt og vinna sér sæti í meistaraflokki ÍA og landsliðinu eins og Stína gerði Lokahóf yngri flokka í knattspyrnu hjá ÍA á sínum tíma. Gefandi bikarsins er Þorgeir og Ellert hf. Það var Berg- dís Fanney Einarsdóttir sem fékk bikarinn en hún var jafnframt kos- in besti leikmaður 3. flokks. Berg- dís Fanney er 15 ára framherji sem stóð sig frábærlega með 3. flokki, 2. flokki og átti einnig góða innkomu í þremur leikjum með meistara- flokki kvenna. Hún gerði 19 mörk í 14 leikjum með 3. flokki í sumar og fjögur mörk í sex leikjum með 2. flokki. Arnór fékk Donnabikarinn Donnabikarinn er afhentur efnileg- asta leikmanni yngri flokka karla og kom hann í hlut Arnórs Sigurðs- sonar. Donnabikarinn var fyrst af- hentur árið 1983 en þá voru það Arnar og Bjarki Gunnlaugssynir sem hlutu þann heiður. Í fyrra var það Guðmundur Sigurbjörnsson sem fékk þann bikar. Donnabik- arinn var gefinn árið 1983 af fjöl- skyldu Donna, sem hét fullu nafni Halldór Sigurbjörnsson, en hann var burðarás í fyrsta Gullaldarliði Skagamanna. Hann lék 110 leiki með Skagamönnum og skoraði 40 mörk, en einnig lék hann átta lands- leiki fyrir Ísland. Arnór Sigurðsson er 16 ára miðjumaður. Hann spil- aði að mestu með 2. flokki í sumar og lék þar 14 leiki og skoraði eitt mark. Hann lék einnig sjö leiki með 3. flokki og gerði í þeim sex mörk. Arnór hefur æft með meist- araflokki ÍA í sumar og verið í leik- mannahópi í tveimur leikjum í sumar. Arnór vann sér sæti í U17 landsliðinu á árinu og stóð sig vel í verkefnum landsliðsins. mm/ia.is Arnór var upptekinn í landsliðsverkefni með U17 þegar lokahófið fór fram, en Sigurður Sigursteinsson faðir hans og Sunna Rún systir hans tóku við Donna- bikarnum fyrir hönd Arnórs. Með þeim á myndinni eru Magnús Guðmundsson formaður KFÍA og Lárus Ársælsson formaður uppeldissviðs KFÍA. Samúel Þorsteinsson tók lagið fyrir krakkana. Verðlaun fyrir 3. fl karla. Róbert Ísak, Sigurður Hrannar og Ástþór Ýmir. 5.fl kk. Hákon Arnar, Tómas og Ólafur Haukur. Með þeim á myndinni er Jón Þór Hauksson. 4. fl. kk. Ísak Bergmann, Ingunn (móðir Óðins Arnar) og Marteinn. Þær fengu viðurkenningar í 4. fl. kvk. Selma Dögg, Erna Björt og Ásta María. Bergdís Fanney með Stínubikarinn. 5.fl kvk. Arnheiður Anna, Þorgerður og Védís. Hjá þeim er Haraldur Ingólfsson framkv.stj. Bestu árangur í 3. fl kvk. Bergdís Fanney og Fríða. Á myndina vantar Dagmar Söru sem sýndi mestar framfarir.

x

Skessuhorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.