Skessuhorn


Skessuhorn - 15.10.2015, Blaðsíða 1

Skessuhorn - 15.10.2015, Blaðsíða 1
FRÉTTAVEITA VESTURLANDS – www.skessuhorn.is 42. tbl. 18. árg. 14. október 2015 - kr. 750 í lausasölu Arion hraðþjónusta – hafðu það eins og þú vilt Arion appið • Netbanki • Hraðbankar Coldfri munnúði Fluconazol ratiopharm - við kvefi og hálsbólgu Eru bólgur og verkir að hrjá þig? Vökudagar á Akranesi 29. okt. – 7. nóv. Rafræn áskrift Ný áskriftarleið Pantaðu núna Síðdegis á sunnudaginn kom upp eldur í kyrrstæðum og mannlausum BMW fólksbíl sem stóð við hlið húss Skotfélags Akraness á æfinga- og keppnissvæðinu við rætur Akrafjalls. Áður en slökkvilið kom á svæðið gat ökumaður vörubíls, sem átti leið hjá, komið bandi í hinn brennandi bíl og dregið hann frá húsinu. Félagar í Slökkviliði Akraness og Hvalfjarðarsveitar mættu síðan á staðinn og gekk vel að slökkva eldinn. Bíllinn er gjörónýtur. mm Torfi Lárus Karlsson er 18 ára Borgnesingur og nemandi á þriðja ári í Menntaskóla Borgarfjarð- ar. Hann er yngstur fimm systkina og býr heima hjá Sigurbjörgu Ólafsdóttur móður sinni við Beru- götu í Borgarnesi. Torfi Lárus fæddist með sjald- gæfan sjúkdóm sem lýsir sér með ofvexti í sogæðum og veldur bólgum í vefjum sem þenjast út. Hann var mikið veikur sem barn og í raun var ekki ljóst í fyrstu hvað hægt væri að gera fyrir hann þegar hann fæddist. Sogæðaæxli teljast góðkynja æxli þar sem þau vaxa aðeins staðbundið en dreifa sér ekki. Æxlið er staðsett á efri hluta líkamans; í brjóstkassa, hægri hendi og vinstri upphandlegg. Nú setur Torfi Lár- us stefnuna á ferð til Boston í Ameríku og á Child- rens hospital mun hann gangast undir enn eina að- gerðina þar sem tekið verður meira af hægri hendi. Sjálfur kveðst hann hlakka til ferðarinnar og að fá aðgerðina framkvæmda því þyngd handarinnar sé farin að há honum mikið. Nú sé þar að auki auð- veldara fyrir hann að fara út þar sem hann er orðinn altalandi á ensku og því hægara með öll samskipti við lækna og hjúkrunarfólk. Stóran hluta ævi sinnar hefur Torfi Lárus dval- ið á spítala. Hann lá inni á vökudeild Landspítal- ans fyrstu mánuðina en fór í sína fyrstu aðgerð til Boston sex mánaða gamall. Þessi aðgerð var löng og erfið, tók rúmlega sólarhring. Síðan hefur Torfi farið í fjölmargar aðgerðir til Boston til að draga úr eða fjarlægja ofvöxtinn. Síðast dvaldi Torfi í Boston árið 2007 þar sem hann gekkst undir þrjár aðgerðir. Áætlað var árið 2004 að hendin vægi um fimm kíló og hefur þyngdin valdið hryggskekkju og bakverkj- um og minna pláss er fyrir lungun. Þarf hann því að vera tengdur súrefni á nóttunni. Æxlið er mest á hægri hendinni og hefur hún stækkað með honum. Nú hyggjast læknarnir taka höndina af fyrir ofan olnboga til að létta frekar á bakinu, skilja eftir stúf fyrir létta gervihendi, einskonar greip. Aðgerðin verður framkvæmd 9. nóvember næstkomandi en Torfi og Sigurbjörg móðir hans fara utan 2. nóvem- ber og hefst þá undirbúningur lækna og rannsóknir. Heimkoma er áætluð í lok nóvember, en það fer þó eftir batanum að aðgerð lokinni. Þegar heim verð- ur komið tekur við endurhæfing og sjúkrahússvist í Reykjavík í einhverjar vikur. Í byr un næsta árs stefnir Torfi Lárus svo á að halda áfram náminu í Menntaskóla Borgarfjarðar. Styrktarreikningur Þar sem Torfi Lárus er nú orðinn 18 ára greiða sjúkratryggingar ekki kostnað aðstandanda við ut- anferðina né vinnutap. Þetta er því fjárhagslega þungur baggi fyrir fjölskylduna. Stofnuð hefur verið styrktarsíða af þessum sökum, er á Facebook und- ir „Torfi Lárus styrktarsíða“. Þeir sem vilja styrkja fjölskylduna geta lagt inn á reikning í nafni Torfa Lárusar. nr. 0326-13-110166 kt. 290497-2219. Í þessu sem mörgu öðru gildir að margt smátt ger- ir eitt stórt. mm Torfi Lárus á leið í aðgerð í nóvember Sigurbjörg Ólafsdóttir og Torfi Lárus Karlsson.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.