Skessuhorn - 15.10.2015, Blaðsíða 2
MIÐVIKUDAGUR 14. OKTÓBER 20152
upp á 170 tonna framleiðslu á viku að
hámarki. Þeirri starfsemi hefur fylgt
meiri lyktarmengun en margir íbúar
telja sig geta sætt sig við
Bæjaryfirvöld leituðu á dögun-
um álits Ívar Pálssonar lögfræð-
ings í skipulagsmálum, vegna erind-
is skipulags- og umhverfisráðs Akra-
ness eftir að HB Grandi hafði sótt um
breytingu á deiliskipulagi þeirra lóða
sem hýsa fiskþurrkun fyrirtækisins
á Breiðargötu 8, 8A og 8B. Það var
þetta erindi skipulags- og umhverfis-
ráðs sem tekið var fyrir á bæjarstjórn-
arfundi síðdegis í gær. Bæjarfulltrú-
ar samþykktu ályktun Ólafs Adolfs-
sonar formanns bæjarráðs þess efnis
að HB Granda yrði gert að skila inn
fyllri gögnum um vinnsluaðferðir og
annað við þurrkun fisks, áður en bæj-
arstjórn gæti tekið ákvörðun um að
setja ferli um breytingu deiliskipulags
í gang, eða hafnaði erindinu.
Lögfræðingur Akraneskaupstaðar
telur ráðlegt að kallað verði eftir ítar-
legri upplýsingum frá fyrirtækinu um
möguleg áhrif starfseminnar og bún-
að og aðferðir sem gert er ráð fyrir
að nota við vinnsluna til að lágmarka
grenndaráhrif. Þar er einkum horft
til lyktarmengunar sem íbúar á Akra-
nesi hafa kvartað sáran undan, eins
og þekkt er orðið. Sjö bæjarfulltrúar
samþykktu þessa tillögu, en tveir sátu
hjá við afgreiðslu málsins í gær, þær
Valdís Eyjólfsdóttir Sjálfstæðisflokki
og Ingibjörg Pálmadóttir Framsókn-
arflokki og óháðum.
mþh/mm
Október er mánuður Bleiku slaufunnar, ár-
verkni- og fjáröflunarátaks Krabbameins-
félags Íslands gegn krabbameini hjá kon-
um. Bleiki dagurinn er föstudagurinn 16.
október næstkomandi og verða viðburðir
í tilefni hans víða á Vesturlandi. Á Akranesi
verður bærinn málaður bleikur á fimmtu-
daginn eins og lesa má í auglýsingu í
Skessuhorni.
Suðvestan 8-13 m/s og dálítil rigning verður
um vestanvert landið á fimmtudag. Hægara
austantil og bjartviðri. Hiti 3-8 stig. Áfram
suðvestanátt á föstudag, 8-15 m/s og hvass-
ast á Norðvesturlandi. Súld eða rigning en
þurrt norðaustan og austan til. Hiti 6-12 stig.
Sunnanátt, 8-15 m/s og þokusúld eða rign-
ing á laugardag, mestur vindur og úrkoma
vestast á landinu. Hiti 7-11 stig. Bjartviðri
norðaustan- og austanlands, hægari vind-
ur og hiti allt að 15 stigum. Sunnanátt með
rigningu og skúrum verður á sunnudag, en
áfram bjart á Norðausturlandi. Hiti 5-11 stig
en kólnar með kvöldinu. Áfram sunnanátt á
mánudag en heldur vaxandi og með rign-
ingu. Þurrt að kalla á Norðausturlandi. Hiti
5-10 stig.
Í síðustu viku var spurt á vef Skessuhorns:
„Hvernig ferðu til skóla eða vinnu?“ Meiri-
hluti þeirra sem tók afstöðu eða 53,77%
sagðist fara á bíl. 16,07% sögðust fara gang-
andi. „Mismunandi“ sögðu 7,21%, „Með
rútu“ sögðu 6,23% og 5,57% hjóla til skóla
eða vinnu. 11,15% kváðust vera miklir inni-
púkar og svöruðu því: „Fer ekki út.“
Í næstu viku er spurt:
Hversu mörg tungumál talar þú?
Fólk sem er málefnalegt og þorir að standa
með sannfæringu sinni, án þess að hjóla í
manninn og einbeita sér að málefninu, eru
Vestlendingar vikunnar. Það getur átt við
nokkra, kannski býsna marga. Það heyrist
bara hærra í hinum!
Til minnis
Veðurhorfur
Spurning
vikunnar
Vestlendingur
vikunnar
Bókarkynning í
kvöld
HVANNEYRI: Bjarni Guð-
mundsson á Hvanneyri hyggst
kynna nýútkomna bók sína,
Íslenska sláttuhætti, í Land-
búnaðarsafninu á Hvanneyri í
kvöld, miðvikudag klukkan 20.
Þar verður auk þess boðið upp
á léttar, en vínlausar veitingar.
Í viðtali sem birtist við Bjarna
í síðasta Skessuhorni var sagt
frá því að kynningin færi fram
á þriðjudagskvöld. Ákveðið var
að seinka henni um einn dag
sökum mikils framboðs afþrey-
ingar í héraðinu á þriðjudags-
kvöldinu, eða í gær.
–mm
Ýmis óhöpp í
umferðinni
VESTURLAND: Alls urðu
átta umferðaróhöpp í umdæmi
Lögreglunnar á Vesturlandi
í liðinni viku, helmingurinn
minniháttar mál. Meðal þeirra
má nefna að erlendir ferða-
menn lentu í að aka á grjót á
Kaldadalsvegi og varð töluvert
tjón á bílnum, en engin meiðsli
á fólki. Þá valt dráttarvél á hlið-
ina eftir að hafa mætt stórum bíl
á Laxárdalsvegi í Dölum. Öku-
maður dráttarvélarinnar fór í
læknisskoðun vegna eymsla eft-
ir byltuna. Ökumaður fólksbif-
reiðar á leið í gegnum Borgar-
nes fékk krampaflog og missti
bifreiðina útaf veginum þar sem
hún valt. Tvennt var í bifreið-
inni og var fólkið flutt á sjúkra-
hús til aðhlynningar. Bíll með
kerru fékk á sig vindhviðu á Út-
nesvegi við Arnarstapa. Þá kom
eldur upp í mannlausri bifreið
utan við Akranes á sunnudag,
eins og lesa má um á forsíðu.
Loks segir í dagbók lögreglu að
einn ökumaður hafi verið tek-
inn fyrir ölvun við akstur.
-mm
Hafró á ralli við
landsteinana
VESTURLAND: Haustrall
Hafrannsóknastofnunar stend-
ur nú yfir. Hafrannsóknaskip-
ið Árni Friðriksson og togarinn
Jón Vídalín eru nú við rann-
sóknir út af Vesturlandi. Síð-
ar mun rannsóknaskipið Bjarni
Sæmundsson bætast í hópinn. Í
svokölluðu haustralli eru tekin
stöðluð botnvörputog víða við
landið. Afalbrögðin eru síðan
notuð sem mælikvarði eða við-
miðun við mat á ástandi fiski-
stofna. Fylgjast má með ferðum
skipanna á vef Hafró. –mþh
Klettagörðum 5, 104 Reykjavík | stolpi@stolpiehf.is
Gámaleiga
Er gámur lausnin fyrir þig?
Búslóðageymsla � Ártíðabundinn lager � Lager � Sumar-/vetrarvörur
Frystgeymsla � Kæligeymsla � Leiga til skemmri eða lengri tíma
Við getum líka geymt gáminn fyrir þig
568 0100
stolpiehf.is
HAFÐU
SAMBAND
Maðurinn sem ráðist var á í heima-
húsi við Vitateig 1 á Akranesi föstu-
daginn 2. október síðastliðinn lést á
sjúkrahúsi fimm dögum síðar. Hann
hét Karl Birgir Þórðarson og var
fæddur árið 1957. Karl Birgir komst
aldrei til meðvitundar eftir árásina.
36 ára karlmaður eru grunaður um
árásina. Í tilkynningu sem lögregl-
an sendi frá sér vegna andláts Karls
Birgis segir um atburðarásina að
föstudaginn 2. október hafi lögregla
verið kölluð að húsi á Akranesi ásamt
sjúkraliði þar sem tilkynnt hafði ver-
ið um meðvitundarlausan mann og
líklega væri um hengingu að ræða.
Á vettvangi var vitni sem kom að og
hafði hafið endurlífgun. Fljótlega eft-
ir komu lögreglu og sjúkraliðs á stað-
inn var annar maður handtekinn
grunaður um tilraun til manndráps.
Sá var síðar úrskurðaður í gæslu-
varðhald til 14. október í Héraðs-
dómi Vesturlands og var sá úrskurð-
ur kærður til Hæstaréttar sem stað-
festi úrskurð héraðsdóms. Lögreglan
á Vesturlandi rannsakar málið með
stuðningi tæknideildar lögreglunnar
á höfuðborgarsvæðinu.
mm
Lést í kjölfar líkamsárásar
Vitateigur 1 á Akranesi.
Bæjarstjórn Akraness samþykkti á
fundi sínum í gær að óska eftir ítar-
legri gögnum frá HB Granda varð-
andi áform þess um stækkun fisk-
þurrkunar Laugafisks á Breið á Akra-
nesi. Þau gögn þurfi að berast áður
en bæjarstjórn tekur afstöðu til þess
hvort farið verði í breytingaferli á
deiliskipulagi á athafnasvæði fyrir-
tækisins á Neðri Skaga. Þær breyt-
ingar myndu meðal annars fela í sér
að HB Granda yrði leyft að fara í
viðamiklar breytingar og stækkun á
fiskþurrkun Laugafisks á Akranesi.
Heildarvinnslugeta að framkvæmd-
um loknum yrði þannig á bilinu 500
til 600 tonn á viku. Núgildandi starfs-
leyfi Laugafisks á Akranesi hljóðar
Óska eftir frekari upplýsingum frá
HB Granda vegna fiskþurrkunar
Þorskhausar búnir undir þurrkun hjá Laugafiski á Akranesi. Ljósm. fh.
Frá fundi bæjarstjórnar Akraness síðdegis í gær. Ingibjörg Valdimarsdóttir forseti
bæjarstjórnar stýrði fundi.