Skessuhorn


Skessuhorn - 15.10.2015, Blaðsíða 28

Skessuhorn - 15.10.2015, Blaðsíða 28
MIÐVIKUDAGUR 14. OKTÓBER 201528 Vörur og þjónusta Hönnun prentgripa & alhliða prentþjónusta Drei bréf - Boðsbréf Ritgerðir - Skýrslur Reikningar - Eyðublöð Umslög - Bréfsefni Fjölritunar- og útgáfuþjónustan Getum við aðstoðað þig? sími: 437 2360 olgeirhelgi@islandia.is www.skessuhorn.is Þjónustuauglýsingar Skessuhorns Auglýsingasími: 433 5500 R E S T A U R A N T Upplýsingar í síma: 430 6767 R E S T A U R A N T Upplýsingar í síma: 430 6767 Bíldahöfða 12 • Reykjavík • 587 6688 • www.fanntofell.is fanntofell@fanntofell.is • facebook.com/fanntófell-ehf BORÐPLÖTUR - SÓLBEKKIR Framleiðum eftir óskum hvers og eins Mikið úrval efna, áferða og lita SK ES SU H O R N 2 01 4 PARKETLIST PARKETSLÍPUN OG LÖKKUN Sigurbjörn Grétarsson GSM 699 7566 parketlist@simnet.isparketlist@parketlist.is Sem landsbyggð- armanni í húð og hár er mér frek- ar lítið tilhlökkunarefni að aka til Reykjavíkur. Ekki þó vegna þess að ég hafi eitthvað mikið út á höfuð- borgina sem slíka að setja. Ég bjó þar sjálfur í rúman áratug og líkaði það þokkalega að mörgu leyti. Eitt var það þó sem ég var óskaplega feginn að losna við þegar ég flutti þaðan. Það var umferðin. Hraðinn, svíningarnar, reiðiflautin og um- ferðarteppurnar sem töfðu mann. Allt varð þetta til að auka hjart- sláttinn og valda manni ónotum nánast á hverjum degi. Þegar maður ekur suður á bóg- inn með tún, beitarhaga og frið- sælan búsmalann á hvora hönd eru Hvalfjarðargöngin eins og fordyri þess vítis sem maður má þola sem ökumaður í borg óttans. Það var því ekki bætandi á stressið þegar Spölur setti upp vegslár við gjald- hliðin. Þessi ólíkindatól standa eins og hallarverðir frá miðöldum með sverð brugðið við öxl. Oft hreyfast þær ekki og maður ekur framhjá þeim með óttablandinni virðingu. En svo veit maður aldrei hve- nær þær sveifla sverðinu snarlega í veg fyrir mann og æpa „STANS, Í NAFNI SPALAR!“ Dyraverð- ir með mikilmennskubrjálæði hafa löngum farið í taugarnar á mörgu fólki. Þessar slár standa eins og holdgervingar þeirra tudda sem hafa ánægju af því að bögga fólk í anddyrum skemmtistaða. Það er því kannski ekki skrýtið að sumt fólk hafi hrokkið í kút og ákveðið að finna vegslánum allt til foráttu. Að þekkja óvininn Í fyrstu var ég nokkuð sammála þessum reiðiröddum. En svo komst ég að dálitlu merkilegu. Ég ákvað að prófa að draga úr öku- hraðanum. Ef maður hægir vel á sér áður en maður kemur að slán- um þá er maður í miklu betri að- stöðu til að reikna þær út. Þá gefst mér góður tími til að sjá í hvernig skapi þær eru og hvort þær ætli að bögga mig eða ekki. Ég leyfi slánni að gera sínar upp- og niður æfing- ar eins og Ninja hermaður sem sveiflar kylfum og keðjum ógnandi í kringum axlirnar á sér. Ég bíð slakur en píri augun og fylgist ein- beittur með hverri hreyfingu. Að lokum lyftist sláin og er kyrr. Ég ek rólega framhjá, nikka hausnum í takt við lagið í útvarpinu og hugsa með mér; „ha ha, þarna sá ég við þér fanturinn þinn.“ Spölur segir að tilgangurinn með vegslánum hafi verið tvíþætt- ur. Aðal tilgangurinn var að draga úr umferðarhraða framhjá gjald- skýlunum. Hinn tilgangurinn var að stöðva þá sem aka í gegnum áskriftarhliðin án þess að vera með veglykil. Full þörf virðist hafa verið á því draga úr hraðanum en spyrja má að því hvernig tekið var á því. Meðalið þarf að helgast af tilganginum Spölur bendir á að svona slár sjá- ist víða í gjaldhliðum erlendis. Það er mikið rétt. En þar virðist til- gangur þeirra ekki vera að draga úr hraða heldur að stöðva bíla til að innheimta gjald. Ég hef kannski ekki ferðast nógu víða en þetta er í fyrsta skipti sem ég hef séð vegslár notaðar sem hraðahindrun. Hing- að til hef ég aðeins séð hraðahindr- anir eða þrengingar notaðar í þeim tilgangi. Ólíkt vegslám eru hraða- hindranir og þrengingar hannaðar til að hindra hraða. Ef aðal vandamálið var í upphafi ökuhraðinn þá er spurning hvort ekki hefði verið ódýrara, einfald- ara, fljótlegra og hentugra að byrja á því að smella niður hraðahindr- unum framan við hliðin, áður en farið var að beita slánum. Þar með hefði aðal tilganginum strax ver- ið náð á einfaldan og ódýran hátt. Sjálfsagt hefði líka fækkað þeim til- vikum þar sem bílar aka án veglyk- ils í gegnum áskriftarhliðin. Mér segir svo hugur um að í flestum til- vikum hafi fólk ekið röngu meg- in í gegn vegna misskilning eða flumbrugangs, en ekki verið með einbeittan brotavilja til að svindla á veggjaldinu. Með því að draga úr hraða hefði eflaust verið hægt að fækka þeim tilvikum. Í mörgum tilvikum, og senni- legast flestum, hlýtur ástæðan fyrir því að bílar klessi á slárnar að vera sú að fólk hafi ekið of hratt miðað við aðstæður og ekki náð að stöðva áður en það áttaði sig á slánni. Hraðahindranir myndu ekki að- eins hægja á bílunum heldur líka á hjartslætti ökumanna þegar ekið er undir vegslárnar ógurlegu. Þeir myndu svitna minna í lófunum og hafa betra tak á stýrinu. Færri fuss- um-svei og skammpistlar myndu svo vonandi birtast á Facebook og í blöðunum. Kjartan S. Þorsteinsson Pennagrein Slárnar sem ekki slógu í gegn Nýverið kom út bókarkorn sem nefnist Vasapési partýljónsins. Pét- ur Bjarnason tók saman, en í bók- inni er að finna leiðbeiningar um veislustjórn ásamt limrum, lausavís- um og léttmeti af ýmsu tagi. „Pés- anum hefur verið dreift í bókabúð- ir og fleiri sölustaði og verður þar til sölu á viðráðanlegu verði. Flóki forlag gefur bókina út en dreifingu annast Nordic Games, sími 896 8888,“ segir í tilkynningu. Á bókarkápu segir m.a.: „Ótrú- lega margir þurfa einhvern tím- ann að standa á sviði í partýum, á þorrablótum eða öðrum samkom- um til að reyna að skemmta við- stöddum. Stundum tekst vel og stundum miður, eins og gengur. Til að finna efni fyrir þetta þarf oft að leita í grínsíðum blaða, brand- arabókmenntum, limru- og í ljóða- bókum og víðar. Þetta er seinlegt og tími oft knappur. Í þessum pésa er árangur slíkrar leitar í áranna rás og birtist hér samanþjappað í handhægu broti sem miðast við vasa af venjulegri gerð,“ segir Pét- ur Bjarnason. mm Vasapési partýljónsins Líkt og verið hefur undanfarin ár er október mánuður Bleiku slaufunnar, árvekni- og fjáröflunarátaks Krabba- meinsfélags Íslands gegn krabba- meinum hjá konum. Af því tilefni stefnir Krabbameinsfélag Akraness og nágrennis á að vera með bleikan viðburð að kvöldi fimmtudagsins 15. október næstkomandi í samstarfi við Akraneskaupstað. Í tilkynningu frá Krabbameinsfélaginu segir að farið verði í bleika skemmtigöngu, ef veð- ur leyfir. Áætlað er að gangan hefj- ist klukkan 18 við Stjórnsýsluhúsið Stillholti 16-18. Gangan hentar fyr- ir alla fjölskylduna og eru þátttakend- ur hvattir til að mæta í bleiku eða að vera með eitthvað bleikt meðferðis, svo sem trommur eða blöðrur. Auk þess verði boðið upp á happadrætti fyrir alla göngugarpa. „Torgið sem baðað er bleikum bjarma í október verður endastöðin þar sem slaufuberi ársins 2015 verður kynntur, ung bar- áttukona mælir nokkur orð, tónlist, gleði og endað verður á að draga út happadrættisvinning,“ segir í tilkynn- ingunni. Krabbameinsfélag Akraness og ná- grennis óskar einnig eftir stuðningi fyrirtækja á svæðinu til að vekja at- hygli á árvekni- og fjáröflunarátak- inu Bleiku slaufunni. Óskað er eft- ir vinningum í happadrættið ásamt því að fyrirtæki skapi bleika stemn- ingu, til dæmis með bleikri lýsingu eða útstillingu og tilboðum á bleik- um vörum. Þeir sem vilja styðja við málefnið með þessum hætti er bent á að hafa samband í síma 666-8112 eða með tölvupósti á akranes@krabb.is eða krabbak@gmail.com. grþ Síðastliðinn þriðjudag hittust áhugamenn um ferðaþjónustu á Akranesi í fyrsta sinn og ræddu mál- in. Hilmar Sigvaldason vitavörð- ur í Akranesvita stóð fyrir fund- inum og segir hann hafa verið vel heppnaðan. „Þetta var ágætis fund- ur. Þetta voru allt aðilar af Akranesi úr ferðaþjónustu og frá fyrirtækjum sem tengjast ferðaþjónustu óbeint. Ferðaþjónusta er svo víðtækt hug- tak, það er nefnilega ekki bara upp- lifun að skoða, gista og borða held- ur koma inn í þetta fjölmörg önn- ur atriði, svo sem íþróttir, tónlist og myndlist,“ segir Hilmar. Hann segir aðilana hafa kynnt sitt, skipst á skoðunum og rætt um sameigin- lega ferðaþjónustu, hversu mikil- væg hún er. Hilmar segir hópinn hafa ákveðið að gera Facebook- síðu ætlaða fyrir áhugamenn um ferðaþjónustu og ákveðið hafi verið að hittast reglulega í framhaldinu. „Þetta verða ekki formlegir fundir, þetta er ekki félagsskapur sem slík- ur heldur bara einn lítill þáttur í því að efla samstarf ferðaþjónustuaðila. Þetta er bara fólk að hittast og ekk- ert endilega þeir sem eru í bransan- um, heldur líka þeir sem hafa áhuga á ferðaþjónustu. Ég hefði reynd- ar viljað sjá fólk úr Hvalfjarðar- sveit líka, því þetta eru svo nátengd svæði sem eiga margt sameiginlegt. Ef við stöndum saman erum við sterkari. Við þurfum á því að halda að kynna okkur og koma okkur á kortið, allavega á betra kort en við erum á í dag.“ grþ Hilmar Sigvaldason flaggar hér vitasokkunum frægu. Áhugafólk um ferðaþjónustu ætlar að hittast reglulega Bleikur viðburður á Akratorgi Líkt og í fyrra er Akratorg lýst upp með bleikum bjarma í októbermánuði, mánuði Bleiku slaufunnar.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.