Skessuhorn - 15.10.2015, Blaðsíða 25
MIÐVIKUDAGUR 14. OKTÓBER 2015 25
Krossgáta Skessuhorns
Hér er ný krossgáta fyrir lesendur að leysa. Þeir sem
vilja geta sent Skessuhorni lausnarorð/in á netfangið:
krossgata@skessuhorn.is fyrir klukkan 15 á mánudög-
um. Athugið að fullt nafn og heimilisfang þarf að fylgja
með lausninni. Þeir sem ekki hafa aðgang að tölvupósti
sendi lausnir á Kirkjubraut 56, 300 Akranesi (athug-
ið að póstleggja þarf lausnir í síðasta lagi á föstudegi).
Dregið verður úr réttum innsendum lausnum og fær
vinningshafinn bókagjöf frá Skessuhorni.
47 lausnir bárust við krossgátu í blaðinu í síðustu
viku. Lausnin var: „Lag er á ef lyndir báðum.“ Vinn-
ingshafi er: Jóhann Magnús Hafliðason, Furugrund
70, 200 Kópavogi.
mm
Upp-
hrópun
Gægjur
Lær-
dómur
Aðdáun
Leikni
Fagur
Heimlid
Fimm
Tími
Liða-
mót
Ótta
Ölkrá
Leifar
Villt
Sko
Tíu
Deilur
Frá
Bogi
Dag-
stjarna
Nýja
6
Fjöldi
Upp-
skera
Ægir
Áfall
Átt
2
Mylsna
Púkar
Hlífa
And-
staða
Samhlj.
Bardagi
Refsa
Fæddi
Auðið
Hlý
Ílát
Virða
Hegri
Dröfn
8
Ögn
1000
10 Sund
Varta
Svall
4
Bið
Tölur
Tengi
Sýl
Stallur
5 Síðan
Skar
Röð
Hólf
Hrun
Stríðni
Bunga
Fróðar
Korn
Dreifa
Féll
Tíndi
Þreytt
Grugg
Skark-
ala
Þefa Lirfu
And-
vari
Æfðar
Slá
Þrep
Titill
Gálaus
At-
vinna
Suddi
Kássa
Dropi
Sósa
Ekki
Léreft
Sífellt
Mitti
Ógn
Tölur
3
Aðstoð
Hanki
Nískar
Strit
9
Verma
Stækk-
uðu
Gat
1 7
Félagi
Stía
Dót
1 2 3 4 5 6 7 8 9 10
Þriðjudaginn 29. september síðast-
liðinn var ekið utan í kyrrstæðan
bláan fólksbíl á stæði utan við Fjöl-
brautaskóla Vesturlands við Voga-
braut á Akranesi og hann skemmd-
ur töluvert á hlið. Sá sem það gerði
ók í burtu á hvítum eða ljóslitum
bíl. Þeir sem geta gefið upplýsing-
ar eru beðnir að hafa samband við
Lögregluna á Vesturlandi sem tók
skýrslu um málið. Sími lögreglu er
444-0300. fréttatilk.
Dansk-íslenska tríóið Almatra mun
leika í Akranesvita sunnudaginn 18.
október kl. 17. Tríóið leikur melód-
ískan, frískotinn jazz undir áhrifum
frá norrænni þjóðlagahefð og sam-
anstendur efnisskráin af útgáfum
hljómsveitarmeðlima af sálmum og
þjóðlögum i bland við eigin tón-
smíðar. Hljómheimurinn er marg-
breytilegur, allt frá ambient tónlist
nútímans til þjóðlagatónlistar fyrri
alda og mun ómur vitans bæta ann-
arri vídd í upplifunina. Tríóið skipa:
Benjamin Kirketerp á bassa, Snæ-
björn Gauti Snæbjörnsson á saxó-
fón og Troels Buur Jensen á gítar.
Aðgangseyrir er 1000 kr. en eng-
inn posi er á staðnum. Tónleikarn-
ir standa yfir í um það bil klukku-
stund. Vert er að taka fram að lítið
er um sæti í vitanum en gestir eru
hvattir til að ganga um og upplifa
tónlistina. -fréttatilkynning
Síðastliðinn fimmtudag komu
nemendur framhaldsskólanna
þriggja á Vesturlandi saman þeg-
ar hinn árlegi „West side“ við-
burður var haldinn. West side er
keppni milli skólanna þriggja þar
sem fulltrúar þeirra etja kappi í
ýmsum keppnisgreinum. Að þessu
sinni var komið að Fjölbrautaskóla
Snæfellinga að halda viðburðinn
og mættu um 310 nemendur frá
skólunum þremur þetta árið. Svo
fór að lokum að FVA sigraði West
side 2015 eftir spennandi keppni.
Keppnin hófst með íþróttamóti
í íþróttahúsinu í Ólafsvík, þar sem
keppt var í körfuknattleik, blaki,
fótbolta og endað á bumbubolta,
þar sem leikin er knattspyrna með
stórum jógabolta. Eftir íþróttirn-
ar var FSN í forystu með 18 stig,
FVA í öðru sæti með 15 stig og
MB rak lestina með 3 stig. Boð-
ið var upp á sameiginlega pizzu-
veislu fyrir nemendur áður en leik-
ar héldu áfram. Eftir matinn hófst
spurningakeppnin Gettu Betur
milli skólanna þriggja. Þar sigr-
aði lið FVA í báðum umferðum
Alexandra Chernyshova, sópr-
an söngkona og tónskáld í Hval-
fjarðarsveit, verður með tón-
leika 21. október næstkomandi
í Kaldalóni í Hörpu. Þar mun
Alexandra jafnframt kynna út-
gáfu nótnabókar óperunnar
Skáldið og Biskupsdóttirin. Alex-
andra útsetti fjórtán lög úr óper-
unni fyrir rödd og píanó. Óper-
an Skáldið og Biskupsdóttirin
var frumsýnd vorið 2014 í Hall-
grímskirkju í Saurbæ við góðar
undirtektir gesta.
-fréttatilkynning
Hér má sjá stuðningsmannalið FVA en fjölmargir nemendur frá Akranesi skelltu
sér á West side í Ólafsvík.
FVA varði titilinn í árlegri West side keppni
Leikar hófust með körfuboltaleik. Hér má sjá FVA og MB etja kappi.
Frískotinn jazz í Akranesvita
Gefur út nótnabók fyrir óperuna
Skáldið og Biskupsdóttirin
Ekið utan í bíl við fjölbrautaskólann
og endaði með 21 stig. FSN varð í
öðru sæti með 18 stig en MB í því
þriðja með 6 stig. Hátíðinni var
svo slitið með balli sem haldið var í
félagsheimilinu Klifi í Ólafsvík, þar
sem DJ-Finni og Árni Húmí héldu
uppi stuðinu. „Þetta tókst einstak-
lega vel, þetta var fjölmennasta ball
FSN til þessa,“ segir Hilmar Orri
Jóhannsson forseti NFSN. Hann
segir undirbúninginn hafa geng-
ið vel, enda hafi nemendafélagið
byrjað á honum í byrjun septem-
ber. „Þetta var bara allt mjög vel
heppnað og skemmtilegt, við erum
alveg í skýjunum með þetta,“ bæt-
ir Hilmar Orri við.
grþ /Ljósm. af.
Leikmenn og stuðningsmenn FSN skemmtu sér konunglega.