Skessuhorn


Skessuhorn - 15.10.2015, Blaðsíða 18

Skessuhorn - 15.10.2015, Blaðsíða 18
MIÐVIKUDAGUR 14. OKTÓBER 201518 Steinar Berg í Fossatúni í Borgar- firði mun í lok þessa mánaðar gefa út bókina „Trunt-Trunt, sögur af tröllum, álfum og fólki.“ Hér er á ferð athyglisverð bók fyrir börn og fullorðna. Steinar byggir á þjóð- sögum Jóns Árnasonar og lætur sögurnar lifna við á ævintýraleg- an hátt í texta og með myndræn- um frásögnum sex listamanna. Eins og margir vita eru þjóðsögur Jóns skráning munnmælasagna, stutt- ar sögur; þekktar og minna þekkt- ar, sem Steinar notar sem grunn og staðfærir að Vesturlandi. „Ég er þarna að nota þjóðsögur Jóns Árna- sonar sem efnisveitu og bæti svo við frumsömdu efni. Þjóðsögurnar eiga það flestar sammerkt að vera rýrar og allt voru þetta munnmælasögur. Ég geri nú meira úr þessum sög- um og tengi þær allar inn á ákveðna staði á Vesturlandi og gef þeim smá persónusköpun. Þær gerast á Hvalfjarðarströnd, í Borgarfirði, á Snæfellsnesi, Arnarvatnsheiði og í Hítardal. Þannig kemur fram í sög- unni „Hver er sinnar gæfu smið- ur,“ hvernig stendur á því að mest myndaða fjall Íslands heitir Kirkju- fell, sem það hefur ekki alltaf gert. Raunar er ég þarna að gefa mér skáldaleyfi til að taka þjóðsögurnar, nota þær sem efnivið sem með við- bótar skáldskap tengist vonandi nú- tímanum, þó sögusviðið sé aftan úr öldum,“ segir Steinar þegar blaða- maður sest niður með honum með eintak af bókinni sem fer í almenna dreifingu í lok þessa mánaðar. Skrifar fyrir ferðamenn Steinar er enginn nýgræðingur í útgáfu. Forlagið gaf út eftir hann bókina Tryggðatröll fyrir nokkr- um árum. Steinar yfirtók útgáfu- réttinn af þeirri bók og hefur nú selt í um tíu þúsund eintökum eft- ir að hann lét þýða hana yfir á erl- end tungumál að auki. „Nú er ég farinn að skrifa fyrir ferðamenn. Markaðurinn er að koma til okkar. Ferðamenn þyrstir í efni sem teng- ist þeim löndum og landssvæðum sem þeir eru að heimsækja. Bók- ina Tryggðatröll hef ég þannig selt víða um land og raunar viðurkenni ég fúslega að útgáfa þeirra bókar hefur skipt sköpum í ferðaþjón- ustunni okkar í Fossatúni,“ segir Steinar. Hann kveðst ætla að fara svipaða leið með nýju bókina. „Ég læt þýða hana yfir á nokkur tungumál. Bók- in er byggð þannig upp að hún er nokkurs konar sögukort fyrir Vest- urland. Auk bókarinnar þá stefni ég á að koma henni síðar meir í App smáforrit fyrir snjalltæki, raf- ræna útgáfu þar sem hægt verður að bæta við ljósmyndum, videó- um og fleiru til að tengja lesand- ann enn betur við staðina sem sög- urnar eru látnar gerast á.“ Sagnahefðin nauðsynleg „Ég kynntist því vel þegar ég var fé- lagi í All Senses samtökunum, sem störfuðu um hríð hér á Vesturlandi, að það var alltaf verið að tala um mikilvægi þess að tengja söguna við staðina til að ferðafólk gæti tengst þeim betur. Ég reyni í þessari bók að ramma sögurnar inn í landslag og hefja sagnahefðina upp á þann þann stall sem hún á skilið. Við Ís- lendingar þurfum að vera ófeimn- ir að tengja söguna og arfinn okk- ar saman og bæta þannig upplifun gesta af landinu.“ Byrjaði skrifin á spítala Steinar segist vera búinn að vera fjögur ár að skrifa þessa bók og hafi upphafið ekki komið til af góðu. „Ég fékk heiftarlega blóðeitrun í september 2011 og var nærri dauð- ur.“ Hann leggur vigt á orð sín og sýnir með tveimur fingrum að ein- ungis hafi munað broti úr milli- metra að hann hefði farið yfir móð- una miklu þetta haust. „Þetta var svo heiftarlegt að læknarnir urðu að gefa mér þann stærsta fúkkalyfja- skammt sem nokkrum manni hef- ur verið gefinn fyrr og síðar í sögu spítalans á Akranesi. Þeir kölluðu þetta hestaskammta! Dældu í mig fúkkalyfjum í æð á fjögurra tíma fresti í rúma tvo mánuði. Þegar ég dvaldi á spítalanum á Akranesi reyndi ég að nýta tímann og byrj- aði þá að skrifa þessa bók. Hef svo verið að fínpússa hana af og til síð- an. Ég ákvað að fá sex listamenn með mér í lið til að myndskreyta bókina. Þrír þeirra eru margreind- ir í sínu fagi en þrír eru að hasla sér völl og kannski rúmlega það við myndskreytingar bóka. Hver þessara listamanna myndskreytir tvær sögur. Úr þessu verða þannig 12 þjóðsögur og 90 síðna bók sem ég er afar stoltur af,“ segir Stein- ar. Aðspurður af hverju Brian Pilk- inton hefði ekki myndskreytt þessa bók líkt og hinar þrjár fyrri, svar- ar Steinar að hann hefði meðvitað valið að fá aðra í verkið að þessu sinni. „Sögurnar eru fjölbreyttar, ævintýri, ærsl, dramatík og spenna, mér fannst því tilvalið að fá fjöl- breytni í vinnslu myndskreytinga líka.“ Tröllin rækta ævintrýaþrána Tröllagarðurinn í Fossatúni hef- ur markað staðnum talsverða sér- stöðu í röðum ferðaþjónustufyr- irtækja á síðustu árum. Þar geta börn og fullorðnir gengið um holtin á árbakka Grímsár og sog- að í sig fróðleik um tröll og for- ynjur úr sagnaheimi. En trúir Steinar Berg sjálfur á tröll? „Já, af hverju ekki? Sagnir um tröll teygja sig langt aftur í aldir og hafa fylgt okkur Íslendingum mann fram af manni. Orðið tröll merkir eitt- hvað ókennilegt, hafði upphaflega margræða merkingu og ég trúi sannarlega á hið óræða. Því getum við leyft okkur að skálda í eyðurn- ar og ímynda okkur það sem uppá vantar. Íslendingar jafnt og erlend- ir gestir okkar hafa gaman að þessu og sögur af tröllum rækta barns- lega ævintýraþrá í okkur.“ Útgáfan hefur bætt reksturinn Steinar og Ingibjörg Pálsdóttir kona hans í Fossatúni hafa nú gert talsverðar breytingar á rekstrinum og segir Steinar þær hafa leitt til góðs. „Það var hárrétt ákvörðun hjá okkur að loka tjaldstæðunum í Fossatúni. Það er ekki hægt að keppa við sveitarfélögin um rekst- ur þeirra og því skynsamlegt að hætta þátttöku í þeirri ójöfnu sam- keppni. Í staðinn höfum við auk- ið við gistiþjónustu í Fossatúni og komum til með að eflast enn frek- ar fyrir næstu vertíð. Við byrjuð- um í fyrrasumar með smáhýsa- leigu, svokölluð Camping pods eða podda, erum með gistiheim- ili og svo leigjum við út fullbúin hótelherbergi í nýjum húsum með baði og morgunmat. Áherslan er á fjölbreytta gistiþjónustu og bóka- skrifin og útgáfan eru ásamt gamla vínylplötusafninu mínu mikilvægar stoðir sem við byggjum á. Ferða- fólk kemur í vaxandi mæli í Fossa- tún til að fá bækur áritaðar af höf- undinum og þessi nýja bók á enn frekar eftir að efla þann þátt.“ Steinar ætlar í lok þessa mánað- ar að gefa út bókina Trunt – Trunt, en hann er sjálfur útgefandi og ætl- ar að annast dreifingu. „Við lokum hluta rekstrarins, þ.e. sveitahótel- inu, í þrjá mánuði í vetur svo við getum einbeitt okkur að útgáfu og kynningu á bókinni. Tímann fram að næstu mánaðamótum nota ég til að undirbúa útgáfuna vel og sendi hana svo í verslanir og fylgi henni eftir með einhverjum skemmtileg- heitum,“ segir rithöfundurinn og sagnaskáldið Steinar Berg í Fossa- túni. mm Gefur út vestlenska útgáfu af þjóðsögum Steinar Berg heldur hér á nýju bókinni en dreifing hennar hefst í lok þessa mánaðar. Surtur í Hallmundarhrauni. Teikning: Pétur Antonsson. Á þessu korti má sjá hvernig sögusvið tólf staðfærðra þjóðsagna dreifist um Vesturland.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.