Skessuhorn


Skessuhorn - 15.10.2015, Síða 30

Skessuhorn - 15.10.2015, Síða 30
MIÐVIKUDAGUR 14. OKTÓBER 201530 Hver er afstaða þín til þess að samþykkt verði breyting á deili- skipulagi svo að HB Grandi geti endurbætt og stækkað fisk- þurrkun sína (Laugafisk) á Akranesi? Spurning vikunnar Spurt á Akranesi Alfreð Guðjónsson: Alveg sjálfsagt mál. Ég finn enga lykt. Kolbrún Ingvarsdóttir: Laugafiskur á bara að fara úr bænum. Guðmundur Elíasson: Það á að leyfa þetta. Lyktin er óverulegt vandamál og þetta skapar mikla atvinnu. Ásta Alfreðsdóttir: Ég er andvíg þessu. Eiríkur Óskarsson: Ég er þessu fylgjandi. „Ég er náttúrulega mikill stuðnings- maður Skallagríms. Pabbi spilaði lengi með liðinu á níunda áratugn- um og mamma var í stjórn. Bróðir minn er spilandi aðstoðarþjálfari og systir mín spilaði lengi. Sjálfur fékk ég ekki þessa sömu hæfileika, ég er meira bara í fræðunum,“ segir Hall- dór Óli Gunnarsson léttur í bragði. Hann vinnur nú að meistaraverkefni í hagnýtri menningarmiðlun. „Þeg- ar kom að vali á lokaverkefni lang- aði mig að gera eitthvað sem teng- ist Borgarnesi og þetta finnst mér eiga mjög vel við,“ bætir hann við, en viðfangsefni þess er saga körfu- knattleiksfélags Skallagríms. Halldór segir verkefnið hafa mælst vel fyrir meðal heimamanna, hann hafi rætt við fjölda fólks sem þekki söguna og orðið margs vísari. „Upphaf körfuboltans í Borgarnesi má rekja aftur til ársins 1958 þeg- ar Guðmundur Sigurðsson flytur hingað og byrjar að kenna í grunn- skólanum. Hann hafði lært körfu- bolta í Kennaraháskólanum. Hann kemur strax á fót skipulögðum æf- ingum í gamla íþróttasal grunnskól- ans og skömmu síðar bæjarkeppn- um, þar sem keppt var við Snæ- fellinga og fleiri,“ segir Halldór. „Skallagrímur kemst svo fyrir alvöru á kortið í íslenskum körfubolta að- eins sex árum síðar þegar kvenna- liðið verður Íslandsmeistari 1964,“ bætir hann við. Þegar búið er að koma liðinu á koppinn þarf svo að halda starfinu gangandi. Þar kemur til skjalanna Bjarni Bachmann. „Bjarni kemur hingað 1961 til að starfa sem kenn- ari. Hann var með bakgrunn sem íþróttaþjálfari frá Íþróttakennara- skólanum á Laugarvatni og kom strax á fót mjög öflugu yngri flokka starfi. Hann gerði 2. og 3. flokk að Íslandsmeisturum ´68-´69 og má eiginlega segja að hann hafi lyft fé- laginu á næsta þrep,“ segir Halldór. „Það má nefna nokkra svona mikil- væga pósta í sögu félagsins, eins og til dæmis þegar Gunnar Gunnars- son kemur úr KR. Hann var þáver- andi landsliðsmaður og algjör lykil- maður þegar meistaraflokkur karla komst í fyrsta sinn upp í 1. deild, sem þá var efsta deildin,“ bætir hann við og segir að það sama hafi gerst þegar Birgir Mikaelsson, eða Biggi Mikk, kemur fyrir tímabilið 1990-91. Þá hafi liðið farið beint upp. Fyrrum liðsfélagi Larry Bird Halldór segir að allir þessir menn hafi gert mikið fyrir Skallagrím en einnig hafi komið menn eins og Ívar Webs- ter og síðar Alexander Ermolinskij, sem beinlínis hafi breytt því hvern- ig körfuboltinn var spilaður í Borg- arnesi. „Ívar Webster er til dæm- is dálítið merkilegur náungi. Hann er annar erlendi leikmaðurinn sem spilaði með Skallagrími. Áður hafði hann spilað í Indiana State háskólan- um með Larry Bird en kom hingað ´79, spilar með Skallagrími og gerði 2. flokk kvenna að bikarmeisturum sem þjálfari,“ segir Halldór. „Webs- ter kom með ýmsa hluti með sér sem menn höfðu einfaldlega ekkert verið að spá í hér á landi og höfðu aldrei sést í íslenskum körfubolta.“ En vitanlega er saga Skallagríms ekki bara dans á rósum. „Það eru auð- vitað hæðir og lægðir í þessu, eins og gengur. Meðal þess sem ég hef rekið augun í er að á milli hápunkta í rúm- lega 55 ára sögu Körfuknattleiks- deildar Skallagríms virðast þeir kom- ast á um það bil tíu ára fresti,“ seg- ir Halldór. „Það er athyglisvert mið- að við þessa merkilegu sögu félags- ins að meistaraflokkur karla hef- ur aldrei orðið Íslandsmeistari og meistaraflokkur kvenna aðeins einu sinni. Bæði karlarnir og konurnar hafa nú á að skipa ungum og mjög efnilegum liðum. Síðasti hápunktur- inn í sögu félagsins kom árið 2006 og samkvæmt mínum hávísindalegu út- reiknum ættu liðin því að fagna vel- gengni á næstu árum. Það eru því bjartir tímar framundan hjá Skalla- grími,“ bætir hann við og brosir. Stuðningsmenn, ekki áhorfendur Aðal rannsóknarspurning verkefn- isins er: „Af hverju er svona sterk hefð fyrir körfubolta í Borgarnesi?“ Halldór reynir að svara þeirri spurningu bæði út frá sögunni og eins menningarlegu samhengi. „Ástæðan fyrir því að körfubolti varð fyrir valinu, en ekki handbolti eða fótbolti, virðist fyrst og fremst vera sú að það er bara auðveldara að búa til körfuboltalið. Það eru færri inni á vellinum í einu, hinar íþrótt- irnar eru fjölmennari,“ segir hann. Úr því körfubolti náði strax fót- festu með skipulögðu starfi upp- hafsmanna hefur íþróttin með ár- unum orðin samofin samfélaginu í Borgarnesi. „Við höfum svo lengi átt góð lið að flestir Borgnesingar hafa einhvern tímann tengst körfu- boltanum með einum eða öðrum hætti. Æft og spilað sjálfir eða átt börn sem spila og svo auðvitað mætt reglulega á leiki,“ segir Halldór og víkur að stuðningsmönnum liðsins og leggur áherslu á að Skallagrím- ur eigi stuðningsmenn, ekki áhorf- endur, það sé tvennt ólíkt. „Í gamla salnum var náttúrulega ekkert pláss fyrir áhorfendur, nema bara ef set- ið var uppi í gluggum og ofan á rimlunum. Það er því ekki fyrr en íþróttahúsið er byggt 1978 að fólki gefst almennilega kostur á að sjá Skallagrím spila. Síðan þá hafa Borgnesingar haft það orð á sér að vera dálítið blóðheitir í stúkunni og þetta er einn af fáum heimavöllum þar sem stuðningsmenn hvetja liðið allan leikinn,“ segir Halldór og er ánægður með sitt heimafólk. Sýning á sögunni væntanleg Miðlun rannsóknarinnar er auðvi- tað liður í lokaverkefni Halldórs til meistaraprófs í hagnýtri menning- armiðlun. Körfuboltasögu Skalla- gríms ætlar hann að miðla með sýn- ingu sem sett verður upp í íþrótta- húsinu. „Ég vildi fara með sýn- inguna eitthvað annað en í safna- húsið eða á hefðbundna sýninga- staði. Úr varð að ég fékk leyfi til að setja hana upp í íþróttahúsinu og mér finnst hún eiga heima þar,“ segir Halldór sem áætlar að sýn- ingin verði opnuð fyrir lok þessa mánaðar. „Þarna verða til sýnis alls konar dýrgripir,“ segir Halldór og dregur fram kassa. „Þetta eru leik- skýrslur frá fyrstu árum félagsins og leyfisbréf til þátttöku í Íslands- mótinu. Það verða gínur íklæddar gömlum búningum, skórnir hans Ermolinskij og fleiri munir,“ bæt- ir hann við. „Svo verður auðvitað hellingur af ljósmyndum og fullt af myndböndum. Ég vil eiginlega ekki gefa of mikið upp, en hvet fólk til að koma og skoða þegar þar að kemur.“ kgk Halldór Óli Gunnarsson meistaranemi í hagnýtri menningarmiðlun. Rannsakar af hverju svona sterk hefð er fyrir körfubolta í Borgarnesi Halldór Óli Gunnarsson kafar í körfuboltasögu Skallagríms Lokahóf knattspyrnufélags ÍA var haldið laugardaginn 10. október síðastliðinn. Fengu fjölmargir leik- menn viðurkenningu fyrir frammi- stöðu sína á undangengnu sumri. Bar þar hæst val á bestu og efnileg- ustu leikmönnum meistaraflokk- anna. Unnur Ýr Haraldsdóttir og Ár- mann Smári Björnsson voru val- in bestu leikmennirnir, en þau eru bæði fyrirliðar meistaraflokks. Unnur Ýr var einnig valin besti leikmaður meistaraflokks kvenna að mati stuðningsmanna en af körl- unum töldu stuðningsmenn mark- vörðinn Árna Snæ Ólafsson best- an. Efnilegust voru valin Aníta Sól Ágústsdóttir og Albert Hafsteins- son. Tryggvi Haraldsson var valinn besti leikmaður annars flokks karla og Arnór Sigurðsson efnilegast- ur. Helgi Jónsson fékk Kiddabikar- inn sem fyrirmyndarleikmaður árs- ins. Í öðrum flokki kvenna var Al- dís Ylfa Heimisdóttir valin best en Sandra Ósk Alfreðsdóttir efnileg- ust. Þá hlaut Alexandra Bjarkadótt- ir TM-bikarinn að launum sem fyr- irmyndarleikmaður ársins. Að lokum voru leikmönnum veittar viðurkenningar fyrir fjölda leikja undir merkjum félagsins. Garðar Gunnlaugsson hefur leik- ið 200 leiki með ÍA, Eggert Kári Karlsson, Ólafur Valur Valdimars- son og Árni Snær Ólafsson 150. Hallur Flosason, Birta Stefánsdótt- ir og Unnur Ýr Haraldsdóttir hafa öll fyllt hundrað leiki fyrir félagið. Hafliði Breiðfjörð Jóhannsson var valinn besti dómarinn, Helgi Ólafs- son verðmætastur og Helgi Sig- urðsson efnilegastur. kgk Unnur og Ármann valin best á lokahófi ÍA Árni Snær Ólafsson og Unnur Haraldsdóttir voru valin bestu leikmenn meistara- flokks að mati stuðningsmanna ÍA. Sigrún Ríkharðsdóttir færir þeim viðurkenn- inguna. Ljósm. Magnús Guðmundsson. Ívar Webster treður boltanum í íþrótta- húsinu í Borgarnesi árið 1980. Lið Skallagríms sem fagnaði Íslandsmeistaratitli kvenna árið 1964 ásamt Guð- mundi Sigurðssyni skólastjóra, en einnig frumkvöðli í körfuboltanum í Borgar- nesi. Er þetta eina meistaraflokkslið félagsins sem hefur orðið Íslandsmeistari.

x

Skessuhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.