Skessuhorn - 15.10.2015, Page 1
FRÉTTAVEITA VESTURLANDS – www.skessuhorn.is 42. tbl. 18. árg. 14. október 2015 - kr. 750 í lausasölu
Arion
hraðþjónusta
– hafðu það eins og þú vilt
Arion appið • Netbanki • Hraðbankar
Coldfri munnúði
Fluconazol
ratiopharm
- við kvefi og hálsbólgu
Eru bólgur og verkir
að hrjá þig?
Vökudagar
á Akranesi
29. okt. – 7. nóv.
Rafræn áskrift
Ný áskriftarleið
Pantaðu núna
Síðdegis á sunnudaginn kom upp eldur í kyrrstæðum og mannlausum BMW fólksbíl sem stóð við hlið húss Skotfélags Akraness á æfinga- og keppnissvæðinu við rætur
Akrafjalls. Áður en slökkvilið kom á svæðið gat ökumaður vörubíls, sem átti leið hjá, komið bandi í hinn brennandi bíl og dregið hann frá húsinu. Félagar í Slökkviliði
Akraness og Hvalfjarðarsveitar mættu síðan á staðinn og gekk vel að slökkva eldinn. Bíllinn er gjörónýtur. mm
Torfi Lárus Karlsson er 18 ára Borgnesingur og
nemandi á þriðja ári í Menntaskóla Borgarfjarð-
ar. Hann er yngstur fimm systkina og býr heima
hjá Sigurbjörgu Ólafsdóttur móður sinni við Beru-
götu í Borgarnesi. Torfi Lárus fæddist með sjald-
gæfan sjúkdóm sem lýsir sér með ofvexti í sogæðum
og veldur bólgum í vefjum sem þenjast út. Hann
var mikið veikur sem barn og í raun var ekki ljóst í
fyrstu hvað hægt væri að gera fyrir hann þegar hann
fæddist. Sogæðaæxli teljast góðkynja æxli þar sem
þau vaxa aðeins staðbundið en dreifa sér ekki. Æxlið
er staðsett á efri hluta líkamans; í brjóstkassa, hægri
hendi og vinstri upphandlegg. Nú setur Torfi Lár-
us stefnuna á ferð til Boston í Ameríku og á Child-
rens hospital mun hann gangast undir enn eina að-
gerðina þar sem tekið verður meira af hægri hendi.
Sjálfur kveðst hann hlakka til ferðarinnar og að fá
aðgerðina framkvæmda því þyngd handarinnar sé
farin að há honum mikið. Nú sé þar að auki auð-
veldara fyrir hann að fara út þar sem hann er orðinn
altalandi á ensku og því hægara með öll samskipti
við lækna og hjúkrunarfólk.
Stóran hluta ævi sinnar hefur Torfi Lárus dval-
ið á spítala. Hann lá inni á vökudeild Landspítal-
ans fyrstu mánuðina en fór í sína fyrstu aðgerð til
Boston sex mánaða gamall. Þessi aðgerð var löng
og erfið, tók rúmlega sólarhring. Síðan hefur Torfi
farið í fjölmargar aðgerðir til Boston til að draga úr
eða fjarlægja ofvöxtinn. Síðast dvaldi Torfi í Boston
árið 2007 þar sem hann gekkst undir þrjár aðgerðir.
Áætlað var árið 2004 að hendin vægi um fimm kíló
og hefur þyngdin valdið hryggskekkju og bakverkj-
um og minna pláss er fyrir lungun. Þarf hann því
að vera tengdur súrefni á nóttunni. Æxlið er mest á
hægri hendinni og hefur hún stækkað með honum.
Nú hyggjast læknarnir taka höndina af fyrir ofan
olnboga til að létta frekar á bakinu, skilja eftir stúf
fyrir létta gervihendi, einskonar greip. Aðgerðin
verður framkvæmd 9. nóvember næstkomandi en
Torfi og Sigurbjörg móðir hans fara utan 2. nóvem-
ber og hefst þá undirbúningur lækna og rannsóknir.
Heimkoma er áætluð í lok nóvember, en það fer þó
eftir batanum að aðgerð lokinni. Þegar heim verð-
ur komið tekur við endurhæfing og sjúkrahússvist
í Reykjavík í einhverjar vikur. Í byr un næsta árs
stefnir Torfi Lárus svo á að halda áfram náminu í
Menntaskóla Borgarfjarðar.
Styrktarreikningur
Þar sem Torfi Lárus er nú orðinn 18 ára greiða
sjúkratryggingar ekki kostnað aðstandanda við ut-
anferðina né vinnutap. Þetta er því fjárhagslega
þungur baggi fyrir fjölskylduna. Stofnuð hefur verið
styrktarsíða af þessum sökum, er á Facebook und-
ir „Torfi Lárus styrktarsíða“. Þeir sem vilja styrkja
fjölskylduna geta lagt inn á reikning í nafni Torfa
Lárusar. nr. 0326-13-110166 kt. 290497-2219. Í
þessu sem mörgu öðru gildir að margt smátt ger-
ir eitt stórt.
mm
Torfi Lárus á leið í aðgerð í nóvember
Sigurbjörg Ólafsdóttir og Torfi Lárus Karlsson.