Skessuhorn - 15.10.2015, Page 6
MIÐVIKUDAGUR 14. OKTÓBER 20156
Samdráttur í
aflaverðmæti
VESTURLAND: Verðmæti
landaðs fiskafla á Vesturlandi
dróst saman um 4,6% í júní-
mánuði samanborið við sama
mánuð 2014. Alls var land-
að afla fyrir 273,6 milljónir
króna í júní í ár en í fyrra nam
þessi upphæð 286,8 milljón-
um króna. Heildar aflaverð-
mæti í júnímánuði jókst hins
vegar um 18,9% á landsvísu
samanborið við júní 2014 og
endaði í tæpum 10,7 milljörð-
um. Allt þetta er samkvæmt
tölum frá Hagstofu Íslands.
–mþh
Ferðamenn
fleiri en milljón
LANDIÐ: Um 123 þúsund
erlendir ferðamenn fóru frá
landinu í september síðast-
liðnum samkvæmt talningu
Ferðamálastofu í Leifsstöð,
eða 35 þúsund fleiri en í sept-
ember á síðasta ári. Aukning-
in nemur um 40% milli ára
og hefur hún ekki mælst svo
há milli ára í september frá
því Ferðamálastofa hóf taln-
ingar. Fjöldinn frá áramót-
um er nú kominn yfir eina
milljón gesta. Aukning hef-
ur verið alla mánuði ársins á
milli ára, eða 34,5% í janú-
ar, 34,4% í febrúar, 26,8% í
mars, 20,9% í apríl, 36,4%
í maí, 24,2% í júní, 25,0%
í júlí og 23,4% í ágúst. Um
71% ferðamanna í septem-
ber síðastliðnum voru af
tíu þjóðernum. Bandaríkja-
menn voru fjölmennastir
eða 22,7% af heildarfjölda
og næstfjölmennastir voru
Þjóðverjar (10,3%) og Bret-
ar (10,3%). Þar á eftir fylgdu
síðan Kanadamenn (5,5%),
Norðmenn (4,5%), Frakkar
(4,1%), Danir (4,0%), Svíar
(3,7%), Kínverjar (3,5%) og
Spánverjar (2,8%).
–mm
Tvær fasteigna-
sölur á dag
VESTURLAND: Í nýliðn-
um septembermánuði var
þinglýst 60 kaupsamning-
um um fasteignir á Vestur-
landi. Þar af voru 27 samn-
ingar um eignir í fjölbýli, 26
samningar um eignir í sér-
býli og sjö samningar um
annars konar eignir. Heild-
arveltan í þessum viðskiptum
var 2.119 milljónir króna og
var meðalupphæð á samn-
ing 35,3 milljónir króna.
Af þessum 60 samningum
var 31 samningur um eign-
ir á Akranesi. Þar af var 21
samningur um eignir í fjöl-
býli og tíu samningar um
eignir í sérbýli. Heildarvelt-
an var 1.605 milljónir króna
og meðalupphæð á samning
51,8 milljónir króna.
–mm
Sýningin
Gleym þeim ei
framlengd
BORGARNES: Sýning-
in Gleym þeim ei í Safna-
húsinu í Borgarnesi hef-
ur verið framlengd til 13.
nóvember. Upphaflega var
ráðgert að sýningartím-
inn yrði út október. Met-
aðsókn hefur verið að sýn-
ingunni og hefur hún hlotið
einróma lof gesta. Á sýning-
unni er sögð saga fimmtán
kvenna af starfssvæði safn-
anna í Borgarnesi. Fór öll
efnisöflun fram í nánu sam-
starfi við fjölskyldur þeirra
sem rituðu texta og útveg-
uðu myndir og gripi. Þegar
sýningin verður tekin nið-
ur verður hún skrásett og
heimildirnar settar á Hér-
aðsskjalasafn til framtíðar-
varðveislu. Hönnun sýning-
arinnar var í höndum Heið-
ar Harnar Hjartardóttur.
–mþh
Viðurkenna
verður réttindi
fatlaðra
LANDIÐ: Á aðalfundi Ör-
yrkjabandalags Íslands í síð-
ustu viku var samþykkt harð-
orð ályktun til stjórnvalda
um að viðurkenna réttindi
fatlaðs fólks: „Aðalfund-
ur Öryrkjabandalags Íslands
(ÖBÍ) krefst þess að stjórn-
völd fullgildi samning Sam-
einuðu þjóðanna um rétt-
indi fatlaðs fólks (SRFF) á
haustþingi 2015, ásamt val-
frjálsri bókun hans og gangi
svo strax í að lögfesta hann.
Þannig eiga stjórnvöld að
efla og tryggja mannsæm-
andi framfærslu, ásamt að-
gengi, algildri hönnun, heil-
brigðisþjónustu, menntun og
atvinnu við hæfi. Með lög-
festingu SRFF verður réttur
fatlaðs fólks til virkrar þátt-
töku í samfélaginu tryggður
til jafns við þátttöku annarra.
Undir samninginn rúmast
öll baráttumál ÖBÍ með-
al annars kjaramál, aðgengi,
heilbrigðismál, atvinnumál,
menntamál og sjálfstætt líf.“
–mm
Arion banki færði síðastliðinn
fimmtudag sveitarfélaginu Borgar-
byggð tölvugjöf ætlaða til notkun-
ar í grunn- og leikskólum sveitar-
félagsins. Um er að ræða notaðan
tölvubúnað, 30 tölvur, og 70 skjái.
Bernhard Þór Bernhardsson, svæð-
isstjóri Arion banka á Vesturlandi,
hafði orð á því við afhendinguna
að upplýsingatækni væri ekki síð-
ur mikilvæg í uppbyggingu nú-
tíma skólastarfs en í starfsemi fjár-
málafyrirtækja. Hann bætti því við
að þó tölvurnar væru ekki leng-
ur nægilega öflugar til keyra kerfi
bankans væru þær vel nothæfar til
flestra annarra hluta og því upplagt
að nota þær innan veggja skólanna.
Það væri von starfsmanna bankans
að þessi búnaður nýttist vel í skóla-
starfi í héraðinu.
Kolfinna Jóhannesdóttir sveitar-
stjóri, sem veitti gjöfinni viðtöku
fyrir hönd Borgarbyggðar, sagði
að búnaðurinn kæmi sér vel fyrir
skólana og þakkaði starfsmönnum
þann hlýhug og stuðning við sam-
félagið sem sýndur væri með gjöf-
inni.
kgk
Á næstu vikum tekur Smiðjan til
starfa á nýjum stað í Ólafsvík og
um leið eykst umfang starfsem-
innar. Smiðjan er dagþjónusta og
vinnustofa fyrir fatlaða með skerta
starfsgetu. Verður Smiðjan til húsa
á Ólafsbraut 19 þar sem sparisjóð-
urinn var áður til húsa. Í Smiðj-
unni verður veitt aðstoð við að fá
og halda vinnu á almennum vinnu-
markaði hluta úr degi eða hluta
úr viku, með eða án stuðnings. Í
Smiðjunni verður endurnýting höfð
í hávegum. Hlutir verða endurnýtt-
ir og seldir á vægu verði. Innkom-
an verður lögð í sameiginlegan sjóð
sem nýttur verður til að auka lífs-
gæði þeirra sem þar starfa svo sem
með að sækja námskeið á vegum Sí-
menntunarmiðstöðvar Vesturlands.
Gunnsteinn Sigurðsson umsjón-
arþroskaþjálfi segir í samtali við
fréttaritara Skessuhorns að Smiðj-
an taki við ýmsum efnivið til endur-
nýtingar. Nefnir hann kertaafganga,
tóm sprittkerti, allt lím, gömul föt,
umslög með frímerkjum á, gler-
augu, áldósir, garnafganga, gler-
krukkur, málningarafganga, alskyns
saumadót og margt fleira. Gunn-
steinn biður íbúa endilega að hugsa
til Smiðjunnar með slíka hluti.
af
Iðnaðarmenn að störfum í vikunni sem leið í væntanlegu húsnæði Smiðjunnar.
Smiðjan tekur til starfa í Ólafsvík
Bernhard Þór Bernhardsson, svæðisstjóri Arion banka á Vesturlandi, afhenti
Kolfinnu Jóhannesdóttur sveitarstjóra tölvugjöfina.
Grunnskólar Borgarbyggðar
fá veglega tölvugjöf