Skessuhorn - 15.10.2015, Blaðsíða 19
MIÐVIKUDAGUR 14. OKTÓBER 2015 19
S
K
E
S
S
U
H
O
R
N
2
01
5
AUGLÝST EFTIR UMSÓKNUM Í
UPPBYGGINGARSJÓÐ VESTURLANDS
Veittir verða styrkir til
atvinnuþróunar og nýsköpunar
Á heimasíðu Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi, www.ssv.is,
undir flipanum „Uppbyggingarsjóður“ er að finna upplýsingar
um umsóknarferli, reglur og viðmið varðandi styrkveitingar.
Frestur til að skila umsóknum er til 27. október 2015.
Þegar fréttaritari Skessuhorns var á
ferðinni í Rifi um liðna helgi rakst
hann á Þorvarð Jóhann Guðbjarts-
son útgerðarmann og frístunda-
bónda fyrir utan verðbúð hans.
Þar var Þorvarður í óða önn að
svíða lambahausa. Sagðist hann að
hafa slátrað 22 lömbum að þessu
sinni og síðan fengið gefins aðra 22
hausa til viðbótar, þar sem ekki allir
hanteri og borði slíkan mat. „Mér
þykja svið herramanns matur. Nú
er ég vel birgur fram að vori,“ sagði
hann og hélt áfram að svíða haus-
ana.
af
Svið eru herramannsmatur
Glöggir vegfarendur í Snæfellsbæ
hafa eflaust tekið eftir tveimur
hjólreiðamönnum með aftanívagna
sem verið hafa á ferðinni að und-
anförnu. Þetta voru engir venjuleg-
ir hjólreiðamenn. Þeir Adam Mast-
ers og Salomon Anaya koma báð-
ir frá Los Angeles í Bandaríkjunum
og eru á ferðinni umhverfis landið
á reiðhjólum sínum. Gera þeir góð-
verk með að bjóða íbúum á hverj-
um stað upp á viðgerðir á reiðhjól-
um. Hugmyndin að ferðinni kvikn-
aði árið 2011 þegar Adam hitti
gamlan vin sinn og listamann Sal-
omon og enduðu þeir á Flateyri þar
sem þeir voru að vinna að tveimur
verkefnum, en þeir eru báðir lista-
menn og miklir áhugamenn um
hjólreiðar. Salomon er listaverka-
sali að atvinnu og Adam vinnur sem
hjólaleiðsögumaður og ferðast með
hjólahópa til fjölda landa.
Á hverjum morgni þegar þeir fé-
lagar voru á leiðinni til vinnu sáu
þeir hóp barna á hjólum. Sáu þeir
jafnframt að hjólin voru í misgóðu
ástandi. Fengu þeir þá hugmynd að
koma aftur til Íslands og þá með
það að markmiði að gera við hjól
fyrir börn þeim að kosnaðarlausu
og verða þeim hvatning til að halda
áfram að hjóla. Þennan draum sinn
hafa þeir nú látið rætast og verða á
ferðinni um Ísland allan október-
mánuð. Til að geta látið draum-
inn rætast hófu þeir söfnun þar
sem vinir, ættingar og aðrir hétu
á þá til að hægt yrði að fjármagna
ferðina. Komu þeir komu með alls-
kyns varahluti í reiðhjól með sér
sem þeir draga svo á eftir sér á reið-
hjólunum og er farangurinn ekki
léttur, en hvor um sig dregur um
það bil hundrað kíló. Þeir ferðast
á sem ódýrastan máta og reyna að
fá ódýra gistingu. Fengu þeir til
dæmis fría gistingu í Frystiklefan-
um í Rifi gegn því að mála herberg-
ið sem þeir fengu að hafa til afnota
til að geta gert við hjólin innandyra
fyrir börnin í Snæfellsbæ. Voru þeir
mjög þakklátir fyrir það og sögðu
ómetanlegt að geta sofið inni eft-
ir að hafa hjólað allan daginn úti í
haustveðrinu á Íslandi.
Þegar ljósmyndari hitti þá að
máli var í nógu að snúast við hjóla-
viðgerðir í Frystiklefanum og mörg
hjól sem búið var að koma með til
viðgerðar. Fannst þeim sérstaklega
skemmtilegt að bæjarstjórinn hafði
komið með hjól í viðgerð. Þeir gáfu
sér þó tíma til að spjalla, voru upp
með sér af athyglinni, og sögðust
hlakka til framhaldsins. Þeir stefna
nú á að verða komnir hringinn um
landið 30. október en þá ætla þeir
að halda sýningu í Reykjavík á lista-
verkum sem þeir ætla að búa til í
ferðinni. Þeir vildu einnig þakka
fyrir hlýjar móttökur og lang-
aði að koma á framfæri að ef ein-
hvern langaði að bjóða þeim gist-
ingu á einhverjum af viðkomustöð-
unum væri það frábært. Næsti við-
komustaður þeirra félaga er Stykk-
ishólmur áður en þeir halda á Vest-
firði.
þa
Listamenn á ferð um
landið og gera við reiðhjól
Adam Masters og Salomon Anaya buðu upp á hjólaviðgerðir í Rifi í síðustu viku.
Þessi óvenjulegu lista- og hugsjóna-
menn við vinnu sína í Frystiklefanum.
Skeifunni 3h ll Sími: 588 5080 ll dynjandi.is
Öryggishanskar
og fatnaður
Dynjandi býður upp á hlífðar- og öryggis fatnað
sem uppfyllir ströngustu kröfur.
Hafðu samband. Við veitum þér faglega aðstoð.