Skessuhorn - 15.10.2015, Blaðsíða 20
MIÐVIKUDAGUR 14. OKTÓBER 201520
Knapamerkjanámskeið eru nú
haldin í samvinnu hestamanna-
félagsins Faxa og Grunnskóla
Borgarfjarðar og eru fyrir nemend-
ur í 6.-10. bekk. Knapamerki gefa
1 - 5 einingar á framhaldsskóla-
stigi. Þessi skemmtilega samvinna
hófst árið 2014 en framundan er
þriðji veturinn í uppsveitum Borg-
arfjarðar. Bóklega kennslan fer
fram í áhugasviðsvali í Grunnskóla
Borgarfjarðar á Kleppjárnsreykj-
um en þar kenna þau Randí Hola-
ker og Haukur Bjarnason á Skán-
ey. Í Varmalandsdeild GBF kenn-
ir Linda Rún Pétursdóttir. Verk-
lega námið er haldið í nýju reið-
höllinni á Skáney og þar er einnig
hægt að fá lánaðan hest á knapa-
merkjanámskeiðið. Við vorum 12
nemendur sem tökum þátt síðast-
liðinn vetur, sex í knapamerki 1 og
aðrir sex í knapamerki 2.
Knapamerkjanámskeið hafa
verið haldin um árabil með sama
hætti í Borgarnesi, þ.e. í samvinnu
hestamannafélagsins Skugga og
Grunnskólans í Borgarnesi. Reið-
kennari þar er Heiða Dís Fjelds-
teð. Í fyrra voru þar 25 nemendur,
þ.a. voru 11 í knapamerki 5, sem
er síðasta og erfiðasta stig knapa-
merkjanna og einkunnir voru með
þeim hæstu, sem hafa náðst á loka-
prófi. Við eigum þarna góðar fyr-
irmyndir og er frábært að fá mark-
vissa kennslu í reiðmennsku strax
frá unga aldri.
Höf: Sverrir Geir Guðmundsson,
10. bekk í Kleppjárnsreykjadeild GBF.
Knapamerkjanámskeið í
samvinnu hestamanna-
félaga og grunnskóla
Á knapamerkjanámskeiði á Skáney í vor. Frá vinstri Haukur á Skáney, Sverrir Geir
(greinarhöfundur) í Giljahlíð, Erna á Brekku í Norðurárdal, Sara Sigurðardóttir á
Hvanneyri og Margrét Sæunn í Geirshlíð.
Meistaraflokkur karla í körfuknatt-
leik hefur verið endurvakinn eft-
ir rúmlega áratugar hlé og mun
leika í þriðju deild Íslandsmótsins
í vetur. Skessuhorn ræddi við Að-
alsteinn Jósepsson um körfubolt-
ann í Grundarfirði, en hann verð-
ur spilandi þjálfari liðsins á komandi
keppnistímabili ásamt Einari Þór
Jóhannssyni. Að sögn hans verð-
ur liðið í vetur skipað heimamönn-
um, auk þess sem tveir til þrír ung-
ir leikmenn úr Snæfelli munu leika
með Grundfirðingum á vensla-
samningi í vetur. „Við verðum að
sjá stóru myndina. Hér í Grund-
arfirði eru aðeins um 90 krakkar
í grunnskólunum og við náum því
ekki að halda úti neinum keppnum
þar. Þeim stendur til boða að keppa
undir merkjum Snæfells, sem er frá-
bært því það gerir þeim kleift að æfa
körfubolta. En til dæmis í unglinga-
flokki Snæfells eru efnilegir strákar
sem fengju lítið að spila með þeim
í úrvalsdeildinni. Það er því um að
gera að fá þá til að spila með okkur
í 3. deildinni. Það er gott fyrir alla,“
segir Aðalsteinn.
Að sögn hans hefur verið æft
síðan um mánaðamótin ágúst-
september. Aðeins þrír í liðinu
hafa spilað skipulagðan körfubolta
áður og því má segja að liðið sé
nánast á byrjunarreit. „Við erum
búnir að vinna þetta í raun frá
grunni, setja menn í stöður og
kenna þeim undirstöðuatriðin í
skipulögðum körfubolta. Menn sem
hafa ekki farið í gegnum keppnir
og aldrei leikið í kerfi þekkja ekki
hlaup og stöður, hindranir og
annað slíkt,“ segir Aðalsteinn.
„En við ætlum okkur fyrst og
fremst að búa til körfuboltalið og
endurvekja körfuboltahefðina hér
í Grundarfirði sem áframhaldandi
samvinnuverkefni við Snæfell. Við
sjáum fyrir okkur að stelpur og
strákar sem koma í gegnum yngri
flokka starfið geti farið inn í Hólm og
ungir, hæfileikaríkir leikmenn gætu
spilað hér í gegnum venslasamninga.
Þá eru þeir tveimur til þremur árum
undan jafnöldrunum þegar þeir
koma upp í meistaraflokk.“
Svæðisvörn í gryfjunni í
Grundarfirði
Grundfirðingar búa ekki svo vel að
eiga körfuboltavöll sem gæti talist
löglegur keppnisvöllur í úrvalsdeild.
Aðalsteinn segir það hins vegar ekki
þurfa að vera ókost. „Körfubolta-
völlur er 27x15 en það er stíft mál
á húsinu okkar. Við reiknum með
að nýta okkur það og spila svæðis-
vörn á heimavelli. Það var lenska hér
á árum áður og hún er dálítið sterk
í mannskapnum. Þá vorum við líka
með svindlara í vörninni, mann sem
hljóp af stað um leið og hitt liðið tók
skot. Ef við náðum frákasti var kast-
að fram á hann, skilaði auðveldum
stigum,“ segir hann og bætir því við
að vel hafi verið mætt á heimaleiki í
gegnum tíðina og nálægð áhorfenda
og leikmanna skapi góða stemningu.
Í raun sé íþróttahúsið í Grundarfirði
algjör gryfja. „En á útivelli ætlum
við að prófa svæðisvörnina fyrst um
sinn og sjá hvernig hún virkar þegar
komið er í stærri hús.“
Sóknarleikurinn verður einfaldur
að sögn Aðalsteins og helgast það
helst af óreyndum mannskap. „Á
móti svæðisvörn eru sex til sjö svæði
sem þarf að fylla í hverri sókn.
Það eru fjórar stöður fyrir utan,
endalínuhlauparar og einn uppi á
lyklinum. Svo verða menn bara að
vera duglegir að hlaupa í eyðurnar.
Á móti maður á mann vörn þurfum
við að vera duglegir að setja upp
hindranir fyrir hvorn annan og
drippla sem minnst. Láta boltann
sjá um að láta vörnina hlaupa. Það
er í rauninni lykillinn að öllum
körfubolta,“ segir Aðalsteinn.
Horft til framtíðar
Æfingahópurinn telur 15 manns og
að sögn Aðalsteins er ágætis áhugi
fyrir verkefninu. „Við erum þokka-
lega vel mannaðir með einn til tvo
leikmenn í hverja stöðu og nokkra
sem geta spilað margar stöður. Ég
og Einar erum 36 og 37 ára og tveir
aðrir sem koma til með að spila mik-
ið eru yfir þrítugu. Þannig að burð-
arstólpinn í liðinu á ekki mörg ár
eftir. Hins vegar erum við í góð-
um málum með þennan mannskap
næstu fimm árin og ef það verður
viss endurnýjun verðum við með fínt
lið. Það er bara svipað og aðrir eru
að berjast við,“ segir Aðalsteinn.
Aðstandendur liðsins hafa safnað
styrkjum til búningakaupa auk þess
að selja auglýsingar á búningana. Var
það gert til að fjármagna þátttöku í
Íslandsmótinu. Auk þess fær liðið
félagsgjöld og allt fé sem ekki nýtist
núna verður geymt til næsta árs. „Við
Einar reynum að sjá stóru myndina í
þessu og Ingi Þór [þjálfari Snæfells]
er búinn að vera mjög liðlegur og
hefur aðstoðað okkur mikið. Það má
ekki gerast að hér vakni mikill áhugi
og komist á en svo hrynji allt ef til
þess kemur að við Einar getum ekki
sinnt þessu lengur. Okkar markmið
er að hér verði stundaður körfubolti
um ókomna tíð,“ segir Aðalsteinn
Jósepsson að lokum.
Áhugasömum er bent á að
fyrsti leikur Grundfirðinga í
þriðju deildinni í vetur fer fram
í Grundarfirði laugardaginn 17.
október næstkomandi þegar B lið
Keflavíkur kemur í heimsókn.
kgk
Grundfirðingar endurvekja meistaraflokk
karla í körfuknattleik
Aðalsteinn Jósepsson verður spilandi þjálfari Grundarfjarðar í vetur ásamt Einari Þór Jóhannssyni. Ljósm. tfk.
Forsetamerki skátahreyfingarinn-
ar hefur verið veitt dróttskátum
og rekkaskátum árlega síðan 1965.
Viðurkenningin táknaði í upphafi
lok dróttskátaþjálfunarinnar, en
frá árinu 2008 eru það rekkaskátar
sem þiggja merkið úr hendi forseta
Íslands. Forsetamerkið er staðfest-
ing þess að skátinn hafi hlotið til-
tekna þjálfun í skátahreyfingunni
og með starfi sínu talist verður
þess að hljóta þessa viðurkenningu.
Skilyrði fyrir afhendingu þess er að
skátinn sé 17-20 ára, hafi stundað
þróttmikið rekkaskátastarf samfellt
í tvö ár hið minnsta, hafi lokið til-
skildum námskeiðum og verkefn-
um og hafi lifað í anda skátaheitis
og skátalaga.
Síðastliðinn sunnudag fékk
Halldóra Aðalheiður Ólafsdóttir í
Skátafélagi Borgarness afhent for-
setamerki. Halldóra hefur starfað
með skátafélaginu í fimm ár sem
almennur þátttakandi, flokks- og
sveitaforingi. „Það eru tíu ár síð-
an einhver úr okkar félagi hefur
fengið þetta merki og 50 ár síð-
an byrjað var að veita þessa viður-
kenningu. Halldóra er sú fimmta
úr Skátafélagi Borgarness sem fær
forsetamerkið,“ segir í tilkynningu
frá Skátafélagi Borgarness.
Þrjár stúlkur úr Skátafélagi Akra-
ness fengu Forsetamerkið við sama
tilefni. Það eru þær Hafdís Ósk
Jónsdóttir, Hrönn Óskarsdóttir
og Erla Björk Kristjánsdóttir, en
Erla starfaði áður með Skátafélagi
Borgarness líkt og Halldóra Aðal-
heiður.
mm
Fengu forsetamerki
skátahreyfingarinnar
Fríður hópur rekkaskáta sem fengu Forsetamerkið afhent við hátíðlega athöfn á Bessastöðum síðastliðinn sunnudag.