Skessuhorn - 15.10.2015, Page 29
MIÐVIKUDAGUR 14. OKTÓBER 2015 29
Óska eftir hlutastarfi
Ég er 27 ára kona og stunda nám
í LBHÍ á Hvanneyri. Ég er að leita
mér að hlutastarfi með skólanum
á Hvanneyri, í Borgarnesi eða
nágrenni. Hef margvíslega reynslu
af afgreiðslustörfum, þrifum og
þjónustu og er búin að starfa sem
verslunar- og rekstrarstjóri síðustu
ár. Vinsamlegast hafðu samband
ef þú ert að leita að duglegum og
stundvísum starfsmanni. Netfang:
brynja1988@hotmail.com.
Mitsubishi L200
Til sölu MMC L200 árgerð 2004.
Dísel, sjálfskiptur og með pallhúsi.
Bíllinn er ekinn 208. þús. km. og er
með nýrri vél. Upplýsingar í síma
692-5525.
Einbýli óskast í Hvalfjarðarsveit
Reyklaust, reglusamt par óskar
eftir einbýli til leigu í Hvalfjarðar-
sveit. Góðri umgengni og skilvísum
greiðslum heitið. Fyrirframgreiðsla
og trygging samkomulag. Upplýs-
ingar í síma 848-1186 og olgeir56@
simnet.is.
Íbúð til leigu
Tveggja herbergja 60m2 nýuppgerð
íbúð á efri hæð til leigu á Vestur-
götu Akranesi. Nánari uppl. í síma
892-6615.
Óska eftir íbúð
5 manna fjölskylda óskar eftir íbúð/
húsi. Helst 4-5 herbergja. Má vera
staðsett á Akranesi, Borgarnesi og
á Kjalarnesi. Erum með topp með-
mæli. Sími: 894-4039.
Íbúð í Borgarnesi til leigu
65 fm 2 herbergja íbúð við Helgu-
götu er í boði til langtímaleigu.
Laus núna 15 okt. Leigan er 95
þús., rafmagn og hiti ekki innifalið.
Leigan er gefin upp þannig hægt
er að sækja um húsaleigubætur.
kristinmarkusdottir@gmail.com.
Felgur og dekk
265 70 R Toyota.Verð 70 þús. kr.
Uppl. í síma 861-7521.
Rafmagnshægindastóll
Til sölu lítið notaður rafmagns-
hægindastóll úr leðri með lyftu.
Upplýsingar í síma 695-8742.
Hvolpar til sölu
Til sölu hvolpar undan 1. verð-
launatíkinni Leynigarðs Lexíu og
veiðimeistaranum ISFtCH Lisdrum
Omega of Copperbirch. Uppl. í síma:
845-6828.
Aligæsir og trésmíðavélar til sölu
Er með um 60 aligæsir til sölu, selj-
ast ódýrt. Einnig 2 trésmíðavélar til
sölu, 3 fasa. Fara ódýrt. Upplýsingar
í síma 691-0778.
Geymsluhúsnæði í Borgarnesi
Leigjum út geymslupláss í Borgar-
nesi fyrir tjaldvagna og fellihýsi.
Upplýsingar í síma 895-9812.
GoPro myndavél
Gopro Hero 3 til sölu ásamt fullt af
aukahlutum. Verð 60 þúsund. Upp-
lýsingar í síma 898-7633.
Borgarbyggð -
fimmtudagur 15. október
Sinfóníutónleikar í Reykholtskirkju.
Nordsjællands Sinfonia leikur verk
eftir Grieg, Carl Nielsen, F. Kuhlau og
H.C.Lumbye: Hljómsveitin var stofnuð
árið 2014 með samruna tveggja
þekktra hljómsveita, Københavns
Sinfonia og Nordsjællands Symfonior-
kester. Íslandsferðin er fyrsta tónlistar-
ferð sveitarinnar eftir sameiningu en
áður höfðu hljómsveitirnar haldið
tónleika víða í Evrópu. Tónleikarnir
hefjast kl. 20 og aðgangseyrir er 1.500
kr.
Borgarbyggð -
fimmtudagur 15. október
Félagsvist í safnaðarheimilinu
Félagsbæ, Borgarnesi kl. 20. Þriðja
kvöldið í þriggja kvölda keppni, sem
dreifist á fjögur kvöld. Góð kvöld- og
lokaverðlaun. Veitingar í hléi. Allir
velkomnir.
Dalabyggð -
fimmtudagur 15. október
Draugasaga í Sævangi, síðasta sýning
15. október kl. 20. Leikfélag Hólmavík-
ur og Sauðfjársetur á Ströndum sýnir
nýtt verk, Draugasögu eftir Jón Jóns-
son á Kirkjubóli í Sævangi. Það byggir
á þjóðsögum af svæðinu, sígildri
mannvonsku og margvíslegum
myrkraverkum fyrri alda. Jón Jónsson
höfundur verksins leikstýrir Drauga-
sögu, en Arnór Jónsson er leikarinn.
Hemúllinn samdi hljóðmyndina, Ásta
Þórisdóttir og Ester Sigfúsdóttir sjá
um förðun og búninga og Jón Valur
Jónsson um tæknimál ásamt Jóni.
Verkið er ekki við hæfi barna 12 ára
og yngri. Pöntunarsími er 693-3474.
Akranes -
fimmtudagur 15. október
Ljúfir tónar á Skökkinni. Hljómsveitin
My Sweet Baklava leikur ljúfa tóna á
Skökkinni milli 20:30 og til lokunar
kl. 22:00.
Grundarfjörður -
föstudagur 16. október
Alþjóðlega kvikmyndahátíðin
Northern Wave. Hátíðin er haldin í
áttunda sinn helgina 16.-18. október
næstkomandi. Stuttmyndir rúlla alla
helgina í Samkomuhúsi Grundarfjarð-
ar en einnig er boðið upp á tónleika
með hljómsveitinni MilkyWhale
og fiskiréttakeppni Grundfirðinga.
Nánar á heimasíðu hátíðarinnar www.
northernwavefestival.com.
Stykkishólmur -
laugardagur 17. október
Snæfell tekur á móti Stjörnunni í
úrvalsdeild kvenna í körfuknattleik í
íþróttahúsinu í Stykkishólmi kl. 15:00.
Akranes - sunnudagur 18. október
Einmenningsmót í boccia. Félög
aldraðra á Akranesi og Borgarbyggð
efna til einmenningsmóts í boccia.
Mótið fer fram í Íþróttahúsinu við
Vesturgötu á Akranesi. Mótið hefst kl
10.30 og eru skráðir keppendur um
sjötíu frá átta félögum á suðvestur-
horninu.
Stykkishólmur -
sunnudagur 18. október
Snæfell tekur á móti Njarðvík í 1. deild
karla í körfuknattleik í íþróttahúsinu í
Stykkishólmi kl. 19:15.
Á döfinni
Markaðstorg Vesturlands Nýfæddir Vestlendingar
5. október. Drengur. Þyngd 4.060
gr. Lengd 54 sm. Foreldrar: Tinna
Steindórsdóttir og Valdimar
Þór Guðmundsson, Akranesi.
Ljósmæður: Jóhanna Ólafsdóttir
og Bryndís Á. Bragadóttir.
11. október. Stúlka. Þyngd 3.140
gr. Lengd 50 sm. Móðir: Berglind
M. Skarphéðinsdóttir, Akranesi.
Ljósmóðir: Jóhanna Ólafsdóttir.
30. september. Drengur. Þyngd
3.640 gr. Lengd 50 sm. Foreldrar:
Ólöf Kristín Jónsdóttir og
Guðmundur Birkir Kristbjörnsson,
Borgarnesi. Ljósmóðir: Lóa
Kristinsdóttir.
8. október. Stúlka. Þyngd 3.395 gr.
Lengd 52 sm. Foreldrar: Elín Ólöf
Eiríksdóttir og Sigurður Laxdal
Einarsson, Akranesi. Ljósmóðir:
Lára Dóra Oddsdóttir.
TIL SÖLU
BÍLAR/VAGNAR/KERRUR
ATVINNA ÓSKAST
LEIGUMARKAÐUR
ÝMISLEGT
Markaðstorg
Vesturlands
www.skessuhorn.is
Nemendur og starfsfólk Grunda-
skóla á Akranesi fjölmenntu í
íþróttahúsið á Jaðarsbökkum í gær-
morgun þegar reglubundinn stór
samsöngur fór fram. Þá voru for-
eldrar og aðstandendur barnanna
jafnframt boðnir velkomnir sem og
leikskólabörn. Líkt og undanfarin
ár var sameinast í söng og skiptust
nemendur á að leiða sönginn með
aðstoð kennara.
mm/ Ljósm. sas.
Stór samsöngur í
Grundaskóla
Á fjórða hundrað björgunarsveitar-
manna frá yfir 30 björgunarsveitum
af landinu voru um síðustu helgi á
landsæfingu björgunarsveita sem
haldin var í Eyjafirði. Þar fékkst
fólkið við að leysa ólík verkefni til að
æfa handbragð sem björgunarsveit-
arfólk þarf að kunna skil á. Umfang
æfingarinnar var mjög mikið og til
að mynda voru 60 sérfróðir um-
sjónarmenn verkefna og tugir sjálf-
boðaliða sem gerðu aðstæður eins
raunverulegar og framast var unnt.
Björgunarsveitarhópar leystu þann-
ig ólík verkefni. Til dæmis að að
keyra þrautabrautir, bjarga fólki úr
flugvélarflaki, hlúa að slösuðu fólki,
æfa leitaraðferðir, bjarga fólki úr
sjálfheldu og svo mætti lengi telja.
Æfing af þessari stærðargráðu krefst
mikils undirbúnings en þykir nauð-
synleg til að gefa nýliðum jafnt sem
reyndu björgunarsveitafólki tæki-
færi til æfinga við sem raunveruleg-
astar aðstæður. mm/ Ljósm. sós.
Landsæfing
björgunarsveita
var í Eyjafirði