Skessuhorn - 02.12.2015, Page 2
MIÐVIKUDAGUR 2. DESEMBER 20152
Fyrsti sunnudagur í aðventu var um liðna
helgi og fjölmargir landsmenn kveiktu á
fyrsta kerti aðventukransins, spádómskert-
inu. Næsta sunnudag er kveikt á Betlehems-
kertinu, því næst hirðakertinu og síðast
englakertinu. Mikilvægt er að kveikja á kert-
unum í réttri röð og gæta varúðar með eld-
inn og eldfæri á meðan á þeim logar.
Það verður sunnan- og suðvestan 5-10
m/s og él en bjart með köflum á norðan-
og austanverðu landinu. Frost á bilinu 1-14
stig, kaldast í innsveitum norðaustanlands.
Gengur í norðaustan hvassviðri eða storm
með snjókomu á föstudag. Síðar hægari
sunnanátt á Suður- og Austurlandi með
slyddu eða rigningu og hlýnar í veðri. Á
laugardag er spáð suðvestanátt 8-13 m/s,
en norðan 13-18 norðvestan til á landinu.
Víða snjókoma eða él, kólnar í veðri. Vestlæg
eða breytileg átt á sunnudag og mánudag.
Harðnandi frost og víða él.
Í síðustu viku var spurt á vef Skessuhorns:
„Hversu margar smákökusortir eru bak-
aðar á þínu heimili fyrir jólin?“ Rétt rúmur
helmingur þeirra sem svöruðu, eða 50,15%
sögðu „1-5 sortir“ en næstflestir, 24,34%
segjast kaupa smákökur. 14,66% sögðu
„6-10 sortir“ og 6,45% 21 sort eða fleiri.
„16-20 sortir“ baka 2,64% og 1,76% baka
„11-15 sortir“.
Í næstu viku er spurt:
Hvaða fylgihlut þurfa allir góðir
snjókarlar að hafa?
Svava Björk Steinarsdóttir er lykilleikmaður í
liði UMFG í úrvalsdeild kvenna í blaki og var
nýverið valin öðru sinni í U17 ára landslið Ís-
lands. Á dögunum var hún valinn íþrótta-
maður Grundarfjarðar. Svava er Vestlend-
ingur vikunnar.
Til minnis
Veðurhorfur
Spurning
vikunnar
Vestlendingur
vikunnar
Uppskeruhátíð
ferðaþjónustunnar
VESTURLAND: Uppskeru-
hátíð fólks í ferðaþjónustu á
Vesturlandi verður haldin á
morgun, fimmtudag í Borgar-
nesi. Dagskráin hefst með há-
degisverði í Landnámssetri Ís-
lands kl. 11 þar sem Ragna Ív-
arsdóttir, formaður Ferðamála-
samtaka Vesturlands og Sig-
ríður Margrét Guðmundsdótt-
ir flytja erindi. Eftir hádegismat
verður haldið í frumkvöðlasetr-
ið Hugheima þar sem Haraldur
Örn Reynisson og Sigursteinn
Sigurðsson taka á móti hópn-
um. Því næst verður komið við
í Safnahúsi Borgarfjarðar og
Ljómalind. Klukkan 16 er hald-
ið í Landbúnaðarsafn Íslands
og Ullarsetrið Hvanneyri. Á
Hvanneyri verður einnig kynn-
ing á kaffihúsinu Skemmu. Að
endingu er haldið aftur í Borg-
arnes þar sem boðið verður upp
á fordrykk og kvöldverð á Ice-
landair Hótel Hamri. Sjá nán-
ari upplýsingar í auglýsingu í
blaðinu í dag.
-grþ
Vefnaðarsýning
Ingibjargar
STYKKISH: Laugardag-
inn 28. nóvember sl. var opn-
uð sýning í Vinnustofu Tang
& Riis í Stykkishólmi á vefn-
aði eftir Ingibjörgu Hildi Bene-
diktsdóttur. Ingibjörg byrjaði
að vefa haustið 2010 og hefur
meðal annars lært hjá Guðrúnu
J. Kolbeins veflistakonu á nám-
skeiðum hjá Heimilisiðnaðarfé-
lagi Íslands. Á sýningunni er af-
rakstur undanfarinna ára, með-
al annars dúkar og púðar með
ólíkum vefnaðaraðferðum. Sýn-
ingin verður opin til 23. des-
ember. –mm
Samið um
vetrarþjónustu
STYKKISH: Stykkishólms-
bær hefur samið við verktak-
ana BB og syni ehf. annars veg-
ar og Halldór Lúðvígsson hins
vegar um að þessir aðilar ann-
ist snjómokstur og vetrarþjón-
ustu á gatnakerfi bæjarins eftir
sérstakri snjómokstursáætlun.
Auk þess sjá þessi fyrirtæki um
aðra tilfallandi vinnuvélavinnu
á vegum Áhaldahúss bæjarins
næstu 12 mánuði. Skipulag og
stjórnun verður á hendi tækni-
deildar bæjarins undir umsjón
Högna Friðriks Högnasonar
bæjarverkstjóra. Ábendingum
um vetrarþjónustu skal beina til
bæjarverkstjóra í síma 892-1189
eða til móttökuritara í Ráðhús-
inu. Frá þessu er greint á vef
Stykkishólmsbæjar.
–mm
Tek allar tegundir
hunda í snyrtingu
Hundasnyrting
Mosfellsbæ
Valborg Óðinsdóttir
Lærður hundasnyrtir
s: 865-7830
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
5
Gott verð og
persónuleg þjónusta
Eins og Skessuhorn greindi frá í
liðnum mánuði var áætlað að Fjöl-
iðjan í Borgarnesi flyttist búferl-
um fyrir nýliðin mánaðamót. Fjöl-
iðjan hafði fram til þess tíma verið
til húsa í gamla slökkvistöðinni við
Kveldúlfsgötu 2b. Eftir að Borgar-
byggð seldi gömlu slökkvistöðina
var ákveðið að flytja starfsemi Fjöl-
iðjunnar í „burstirnar þrjár“ í Brák-
arey, undir þak sem eitt sinn hýsti
kjötvinnsluna í Borgarnesi.
„Síðastliðinn föstudag, fyrir há-
degi fluttum við út með afgreiðsl-
una og móttöku endurvinnslunn-
ar. Í gær og dag höfum við ver-
ið að raða upp og koma okk-
ur fyrir,“ sagði Helgi Guðmunds-
son verkstjóri þegar Skessuhorn
heyrði í honum síðastliðinn þriðju-
dag. Vinnustofan og hæfingin flutti
svo viku síðar, eða föstudaginn 27.
nóvember og kvaðst Helgi horfa
björtum augum til framtíðar á nýj-
um stað. „Ég held að þetta verði
ágætt og við vonum auðvitað það
besta. Við erum að flytja í stærra
húsnæði og betra,“ segir Helgi.
Samhliða flutningunum hefur
starfsemin Fjöliðjunnar í Borgar-
nesi fengið nýtt nafn, Aldan. Opn-
unartímar verða þeir sömu og ver-
ið hafa.
kgk/Ljósm. Guðrún Kristinsdóttir.
Fjöliðjan í Borgarnesi flutt og fær nafnið Aldan
Arnar Pálmi Pétursson vann að
því í gær ásamt félögum sínum að
setja upp ljós og fleira tilfallandi í
dósamóttökunni.
Ölver Þráinn Bjarnason og Angela Gonder á vinnustofunni ásamt Ingigerði Jóns-
dóttur.
Hátíð fer að höndum ein – að-
ventutónleikar Tónlistarfélags
Borgarfjarðar, áttu að fara fram
í gær, þriðjudaginn 1. desember
í Reykholtskirkju, en var frestað
vegna veðurs. Þeir eru nú tímasettir
þriðjudaginn 15. desember klukk-
an 20 á sama stað. Þar koma fram
Andrés Þór Gunnlaugsson gítar-
leikari, Jón Rafnsson kontrabassa-
leikari og Karl Olgeirsson píanó-
leikari og munu þeir leika jólalög og
–sálma í léttri og hátíðlegri djass-
útsetningu. Jafnframt flytja þau
Kristín Á. Ólafsdóttir og Guðlaug-
ur Óskarsson aðventuljóð.
Verð aðgöngumiða er 2000 krón-
ur, 1000 fyrir eldri borgara og frítt
fyrir félaga í Tónlistarfélaginu og
börn. Tónleikarnir, sem hefjast kl.
20.00, eru að vanda haldnir í sam-
starfi við Reykholtskirkju og Vest-
urlandsprófastsdæmi.
mm
Tónleikum frestað í Reykholtskirkju
Leir7 og Smávinir í Stykkishólmi
vilja bjóða bæjarbúum og gestum í
heimsókn á Aðalgötu 20 í Stykkis-
hólmi næstkomandi fimmtudag, 3.
desember, kl. 20-22. „Tilefnið er að
jólin eru að nálgast og þá er ástæða
til að gleðjast. Annað sem ekki er
síður ánægjulegt er að Lára Gunn-
arsdóttir hefur flutt verkstæði sitt
Smávini inn á verkstæði Leir7. Þar
er smíðað og skapað úr úrvalshrá-
efni, leir og birki. Lára Gunnars-
dóttir sker út og tálgar birki úr
Hallormsstaðaskógi. Sigríður Erla
Guðmundsdóttir notar íslenskan
leir frá Fagradal sem aðalhráefni í
sína hluti. Við munum bjóða upp á
ljúfa stemningu með hlýlegu ívafi,
ilmi í lofti, fuglasveim og bjöllu-
hljóm,“ segir í tilkynningu.
mm
Heimboð að Aðalgötu 20 í Stykkishólmi
Kostnaður við að tvöfalda hringveg-
inn kringum landið og gera hann
að svokölluðum 2+2 vegi með tvær
akreinar í báðar áttir er áætlaður
150-200 milljarðar króna. Ef sama
vegalengd yrði lögð svokölluðum
2+1 vegi er áætlað að kostnaðurinn
yrði 100-130 milljarðar. Þá er miðað
við við óbreytta legu vegarins og að
núverandi vegur sé fullgerður sem
er þó ekki alltaf raunin. Þessi niður-
staða kom fram í svari innanríkisráð-
herra við fyrirspurn Björgvins Sig-
urðssonar varaþingmanns. Björg-
vin segir að við breikkun hring-
vegarins væri horft framhjá dýrum
framkvæmdum eins og gerð brú-
ar á Ölfusá, vegar um Hornafjarð-
arfljót, brúar yfir Lagarfljót og Jök-
ulsá á Fjöllum og fleiri samgöngu-
mannvirki. Einnig er litið fram hjá
jarðgöngum en þau eru tvö á þess-
ari leið, um Almannaskarð og und-
ir Hvalfjörð. Miðað við ýmsar við-
bótarframkvæmdir áætlar Björg-
vin að 2+2 vegagerð myndi kosta
200-260 milljarða króna og 2+1
vegur 130-170 milljarða. mm
Tvöföldun hringvegarins kostar
allt að 260 milljarða