Skessuhorn - 02.12.2015, Qupperneq 5
MIÐVIKUDAGUR 2. DESEMBER 2015 5
FRUMHERJI HF. – ÞEGAR VEL ER SKOÐAÐ
www.frumherji. is
Stykkishólmur 2015
Skoðun frestast
Bifreiðaskoðun hjá Dekk og Smur á Nesvegi 5
sem átti að vera fimmtudaginn 3. desember og
föstudaginn 4. desember frestast.
Nýir skoðunardagar eru:
Mánudagur 21. desember
Þriðjudagur 22. desember
Lokað í hádeginu kl. 12.00 – 13.00
Tímapantanir í síma 570-9090
S
K
E
S
S
U
H
O
R
N
2
01
5
Þriðjudaginn 15. desember verður jólaúthlutun
Mæðrastyrksnefndar Akraness að Dalbraut 1 ( Krónuhúsinu,
gengið inn bakatil). Úthlutað verður frá kl. 13:00 til 17:00.
Tekið verður á móti umsóknum alla virka daga frá kl. 11:00 til 13:00
í símum 859-3000 María og 859-3200 Kolbrún Harpa
til og með 10. desember.
Umsækjendur þurfa að skila inn nýjasta skattframtali
(sem er trúnaðarmál og verður skilað til baka við úthlutun).
Tekið verður á móti skattframtölum og öðrum upplýsingum í húsi
Rauða Krossins að Skólabraut 25 A mánudaginn 7. desember og
föstudaginn 11. desember frá kl. 16:00 til 18:00.
Mjög mikilvægt er að umsóknir berist sem fyrst eða í síðasta lagi
10. desember þar sem úrvinnsla umsókna tekur tíma.
Með vinsemd og virðingu,
Mæðrastyrksnefnd Akraness.
Jólaúthlutun
Mæðrastyrksnefndar Akraness
Athugið að eftir 18. desember verður engin
úthlutun svo sækið um tímanlega.
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
5
Knattspyrnuþjálfarafélagið veitti
á dögunum viðurkenningar fyrir
vel unnin störf. Meðal þeirra sem
hlutu viðurkenningu var Ejub Pur-
isevic, en hann hlaut hana fyrir vel
unnin störf við þjálfun yngri flokka.
Ejub hefur þjálfað á Snæfellsnesi
síðan árið 2002 með einu hléi og
náð mjög góðum árangri bæði í
yngri flokka starfinu sem og með
meistaraflokk karla. Er Ejub því vel
að þessari viðurkenningu kominn.
þa
Ejub fékk
viðurkenningu
Í síðustu viku þurftu bekkjarfélag-
arnir Anton Elí Einarsson og Elís
Dofri G Gylfason báðir að yfirgefa
íþróttatíma 9. bekkjar Grunnskól-
ans í Borgarnesi með stuttu milli-
bili. Ástæðan er sú að tvö óskyld
óhöpp áttu sér stað í þessum eina
íþróttatíma sem þó stóð aðeins
yfir í 40 mínútur. Atvikuðust þau
þannig að í leik sem þar fór fram
féll Anton við og lenti á olnbogan-
um með þeim afleiðingum að hann
brotnaði. Kennari leitaði umsvifa-
laust aðstoðar starfsmanns íþrótta-
hússins og fylgir Antoni úr tíman-
um. Honum er svo komið af stað til
læknis á Akranesi. En rétt á með-
an kennarinn leitaði aðstoðar fyr-
ir Anton slasaði Elís sig þegar sam-
nemandi hljóp óvart framan á hönd
hans. Að skömmum tíma liðnum
hittust félagarnir svo á Heilbrigð-
isstofnun Vesturlands á Akranesi,
komnir undir læknis hendur.
Þrátt fyrir að óhöppin séu alls
óskyld og líta megi á það sem ein-
skæra tilviljun, að þau hafi átt sér
stað í sömu kennslustundinni, hafa
stjórnendur Grunnskólans í Borg-
arnesi ákveðið að breyta verklagi
við íþróttakennslu. Það staðfesti
Júlía Guðjónsdóttir skólastjóri í
samtali við Skessuhorn. Hún sagði
að keyptar hefðu verið talstöðv-
ar svo kennari geti alltaf kallað eft-
ir aðstoð starfsmanns íþróttahúss-
ins án þess að yfirgefa salinn. Nem-
endur yrðu þá aldrei eftirlitslaus-
ir. Þó það hefði ef til vill ekki get-
að komið í veg fyrir seinna óhappið
í umræddum íþróttatíma sagði hún
að alltaf þegar óhöpp ættu sér stað
þyrftu stjórnendur að horfa til þess
sem betur mætti fara, því hafi verið
ákveðið að gera þessar ráðstafanir.
Eins og áður sagði er Anton oln-
bogabrotinn og þarf hann að gang-
ast undir aðgerð. Elís sagði hins
vegar í samtali við blaðamann að
hann væri á leið í myndatöku í vik-
unni og fengi þá skorið úr um hvort
bein hefði brotnað í fingri hans
eður ei. Hann ítrekaði að hann leit-
aðist ekki við að skella skuldinni
á nokkurn mann, einfaldlega hafi
verið um óhapp að ræða. kgk
Tilviljun að tvö óhöpp urðu í
sama leikfimitímanum
Bekkjarfélagarnir Anton Elí Einarsson og Elís Dofri G Gylfason úr Borgarnesi
hittust nokkuð óvænt á sjúkrahúsinu á Akranesi í síðustu viku.
Landbúnaðarháskóli Íslands færði
nýverið Ungmennafélaginu Íslend-
ingi lítið timburhús að gjöf sem
notað verður sem áhaldageymsla
við Sverrisvöll á Hvanneyri. Hús-
ið er alls sex fermetrar að gólf-
flatarmáli og var áður notað sem
rannsóknaaðstaða á vegum LbhÍ.
Undanfarin ár hefur það hins veg-
ar staðið í geymslu. Þetta er kær-
komin gjöf fyrir ungmennafélagið
sem stendur fyrir íþróttaæfingum
á Sverrisvelli frá sumarbyrjun og
fram á haust. Það hefur lengi ver-
ið ósk félagsins að bæta geymslu-
aðstöðu fyrir áhöld við Sverrisvöll.
Hingað til hafa áhöld til íþrótta-
iðkunar verið geymd á efra hæð í
gamla bútæknihúsinu. Ulla R. Ped-
ersen, formaður Umf. Íslendings,
segir á vef Landbúnaðarháskólans
að hún og aðrir félagar í Íslendingi
séu afar þakklátir fyrir gjöf Land-
búnaðarháskóla Íslands. Hún muni
nýtast vel. Landbúnaðarháskól-
inn og ungmennafélagið hafa lengi
átt farsælt samstarf um uppbygg-
ingu og rekstur íþróttamannvirkja
á Hvanneyri, enda hafa bæði nem-
endur skólans sem og grunnskóla-
nemar á Hvanneyri auk íbúa þar og
í nágrenni nýtt sér hana. Félags-
svæði Ungmennafélags Íslendings
er Hvanneyri, Andakíll og Skorra-
dalur. Á félagssvæðinu eru um 90
börn á aldrinum 1-15 ára. Íbúar eru
samtals um 500 en þar af búa 400 á
Hvanneyri. mþh
Ungmennafélagið Íslendingur
fær geymslu að gjöf
Húsið góða sem áður var notað til rannsókna.
Bæjarstjórnarfundur
í desember
Næsti fundur bæjarstjórnar Akraness verður haldinn þann
15. desember næstkomandi í stað 8. desember.
Fundur bæjarstjórnar þann 22. desember fellur niður.
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
5
Eftirfarandi störf eru laus til umsóknar:
Starf forstöðumanns í búsetuþjónustu•
Starf byggingarfulltrúa•
Starf kennara í Grundaskóla•
Sótt er um rafrænt á heimasíðu
Akraneskaupstaðar á þar til gerðu eyðublaði
Nánari upplýsingar er að finna á www.akranes.is
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
5
Laus störf hjá Akraneskaupstað