Skessuhorn - 02.12.2015, Blaðsíða 7
MIÐVIKUDAGUR 2. DESEMBER 2015 7
Kvenfélagið 19. júní hélt sitt ár-
lega jólabingó í matsal Landbún-
aðarháskóla Íslands á Hvanneyri
síðastliðinn föstudag. Mikill fjöldi
sótti bingóið, eða um 250 manns.
Spilaðar voru 20 umferðir og ríkti
mikil stemning í salnum. Með-
fylgjandi myndir sýna fjöldann
sem var kominn til að styðja við
starf kvenfélagsins því allur ágóði
af bingóinu rennur til góðra mál-
efna innan héraðs. „Kvenfélagið
vill þakka öllum þeim fjölmörgu
fyrirtækjum og einstaklingum sem
gáfu okkur vinninga kærlega fyrir
stuðninginn,“ segir í tilkynningu
frá félaginu.
mm
Kvartþúsund mætti á
jólabingó kvenfélagsins
Árlegur fundur bæjarstjórnar unga
fólksins á Akranesi fór fram um
miðjan nóvembermánuð. Þar tóku
til máls fimm fulltrúar ungs fólks á
Akranesi en á fundinum sátu einnig
bæjarstjóri og bæjarfulltrúar. Sig-
ríður Indriðadóttir forseti bæjar-
stjórnar stýrði fundinum og í upp-
hafi hans kynnti hún að tillaga sem
kom upp á bæjarstjórnarfundi unga
fólksins fyrir ári síðan hafi verið
samþykkt af bæjarstjórn. Sú tillaga
snýr að því að fulltrúar í ungmenn-
aráði Akraness tilnefni áheyrnar-
fulltrúa sem taki sæti í skóla- og
frístundaráði þegar málefni ung-
menna eru á dagskrá. Fulltrúinn
mun hafa málfrelsi og tillögurétt.
Fulltrúar unga fólksins komu inn
á ýmis málefni á fundinum, hrós-
uðu bæjaryfirvöldum fyrir það sem
vel hefur verið gert og spurðu um
stöðu ýmissa mála sem rædd voru í
fyrra. Meðal þess sem rætt var um
á fundinum var að stofna hverfa-
nefndir sem gætu séð um leikvelli í
sínu hverfi, ástand gatna á Akranesi
barst í tal, ósk kom fram um stærra
eldhús í Brekkubæjarskóla, húsnæð-
isvandi FIMA var ræddur og kaup á
róbótabörnum til grunnskólanna til
að nýta sem forvarnaverkefni. Þá var
einnig rætt um skólalóðir grunnskól-
anna, líkt og undanfarin ár, og stytt-
ingu framhaldsskólans. Komið var
inn á þá neikvæðu umræðu sem ver-
ið hefur um Fjölbrautaskóla Vestur-
lands og nefndi fulltrúi þess skóla
að meira mætti gera úr því jákvæða
sem gert er í skólanum. Þá var einn-
ig rætt um það sem betur mætti fara
á Írskum dögum, með tilliti til unga
fólksins sem ekki hefur aldur til að
fara inn á ákveðna viðburði. Bæjar-
fulltrúar tóku vel í tillögur og hug-
myndir fulltrúa unga fólksins. Þeir
sem ávörpuðu ungmennin þökk-
uðu þeim fyrir þeirra framlag og
hrósuðu þeim fyrir jákvæðni, góðan
undirbúning og góðar tillögur.
grþ
Unga fólkið fær áheyrnarfulltrúa í
skóla- og frístundaráði
Hafðu okkur
með í ráðum
569 6900 08:00–16:00www.ils.is
Okkar hlutverk hefur frá upphafi verið að stuðla að jafnvægi
og að allir hafi jafna möguleika á að eignast húsnæði, hvar
sem er á landinu.
Hjá okkur færðu óháða og trausta ráðgjöf, hvort sem þú ætlar
að kaupa eða leigja, þannig að þú vitir örugglega hvað þú ert
að fara út í.