Skessuhorn


Skessuhorn - 02.12.2015, Síða 14

Skessuhorn - 02.12.2015, Síða 14
MIÐVIKUDAGUR 2. DESEMBER 201514 Pallur úr 100% endurunnu plasti var í sumar settur upp í Vatnshelli í þjóðgarðinum á Snæfellsnesi. Efnið sem notað var heitir KLP og er að stórum hluta endurunnið úr plast- flöskum sem og undirstöður og burðarbitar sem spanna fimm metra. Efnið er framleitt af Lankhorst Re- cycling í Hollandi sem hefur fram- leitt og þróað lausnir úr endurunnu plasti síðastliðna fjóra áratugi. Fyr- irtækið býður einnig lausnir sem eru unnar á vernduðum vinnustað sem staðsettur er á svæði fyrirtækis- ins. Það er VER ehf á Akranesi sem flytur inn og selur efnið sem pallur- inn er gerður úr. Verkið í Vatnshelli var unnið fyrir Umhverfisstofnun af fagmönnum frá Kvistfelli ehf. KLP efnið er tilvalið við aðstæður eins og eru í Vatnshelli þar sem er mik- ill raki. Efnið er mun stamara en til dæmis harðviður. Auk þess er það viðhaldsfrítt og með 50 ára ábyrgð framleiðanda, að sögn Magnúsar H. Sólmundssonar hjá Ver ehf. Einnig selur VER ehf jarðvegs- grindur sem notaðar eru í bílastæði, göngustíga og í landbúnað svo eitt- hvað sé nefnt og eru þær endurunn- ar úr plastpokum. Í göngustíg sem lagður var við Bjarnarfoss á Snæ- fellsnesi í sumar úr þessu grindum fóru sem dæmi um 355.000 notað- ir plastpokar eins og við kaupum í matvöruverslunum. „Það sem vinnst með því að nota þessar grindur, t.d. í bílastæði, þarf ekki frárennslislagn- ir þar sem vatnið fer niður í gegn- um þær. Auðvelt að leggja þær þar sem ekki þarf tæki, grindurnar bera 20 tonna öxulþunga og svo er þetta einnig góð leið til að losna við plast- ruslið,“ segir Magnús H Sólmunds- son hjá Ver ehf. mm Endurunnar plastflöskur í palli í Vatnshelli Pallur úr endurunnu plasti markar gönguleið niður í Vatnshelli. Pallurinn inni í Vatnshelli er úr endurunnu plastefni. Við Bjarnarfoss á Snæfellsnesi hefur plastefni verið notað sem efsta lag göngustíga. Þarna sjáum við endurunnið plast úr sem nemur 335 þúsund notuðum inn- kaupapokum. Göngleið að Fjaðrargljúfri á Síðu, þar sem endurunnið plastefni er notað í stíginn. B. Sturluson er vaxandi fyrirtæki sem nú haslar sér völl á Vesturlandi. Það gerist með því að fyrirtækið kaupir rekstur flutningafyrirtæk- isins Ragnars og Ásgeirs í Stykk- ishólmi. „Þeir hjá Ragnari og Ás- geiri hafa verið með vöruflutninga til og frá Stykkishólmi í ein fjórtán ár. Nú vildu þeir hætta því og ein- beita sér að ytri hluta Snæfellsness; Grundarfirði og Snæfellsbæ. Þeir komu að máli við mig og buðu mér að kaupa reksturinn í Stykkishólmi og ég sló til. Við munum hins veg- ar eiga samstarf og hlaupa undir bagga með hvorum öðrum á álags- tímum ef með þarf,“ segir Böðv- ar Sturluson framkvæmdastjóri B. Sturluson ehf. Með bíladellu frá barnæsku Yfirtaka fyrirtækis Böðvars á rekstri Ragnars og Ásgeirs í Stykkishólmi á sér öðrum þræði sögulegar forsend- ur. Böðvar er borinn og barnfædd- ur Hólmari og þar ólst hann upp. „Öðrum þræði má segja að ég sé uppalinn í þessu húsi þar sem vöru- afgreiðslan er í Stykkishólmi. Ég var alltaf í minni barnæsku að sniglast í kringum Guðmund Benjamínsson sem var með vöruflutninga í Stykk- ishólmi um margra ára skeið. Ég var bara með svo mikla bíladellu og ólst upp í götunni fyrir ofan og það var því nærtækt að leita til Guðmundar og starfsmanna hans. Svo fór ég að vinna hjá þeim sem bílstjóri um leið og ég varð 17 ára gamall á sendi- bíl og lyftara í útkeyrslu í Stykkis- hólmi. Síðan hættu þeir rekstri og Ragnar og Ásgeir úr Grundarfirði tóku við og ég fylgdi með þangað. Þar var ég 2003 – 2005. Svo fór ég í skóla til að læra viðskiptafræði,“ segir Böðvar. Vinnan tók þó yfir skólasetuna enda var Böðvar orð- inn reyndur flutningabílstjóri og stjórnandi vinnuvéla og hugurinn leitaði alltaf í þá átt. Fyrr en varði var hann kominn á fulla ferð í eigin rekstri. Fyrirtækið B. Sturluson var stofnað í byrjun árs 2009. Hóf rekstur í hruninu Böðvar lítum um öxl og lýsir sög- unni í stórum dráttum. „Þetta var á umbrotatímum í þjóðfélaginu. Þarna fór ég í það að selja notuð tæki og tól úr landi sem losnað hafði um eftir að efnahagshrunið varð haustið 2008. Síðan fór starfsemin að vinda upp á sig. Við hófum að flytja tæki inn til landsins en seld- um einnig tæki á milli landa í Evr- ópu. Ég hef líka stundað viðskipti með notaða flutningabíla og aðrar vélar hér innanlands. Svo leiddi eitt af öðru. Ég fékk verkefni fyrir bíla sem ég átti og þar með hófst rekst- ur og akstur flutningabíla, eink- um fyrir Eimskip. Síðan 2013 höf- um við verið með nokkra bíla fyrir Eimskip þar sem við höfum stund- að vöruflutninga um allt land. Árið 2011 tókum við líka við umboði fyrir sænskt fyrirtæki sem framleið- ir sólaða hjólbarða fyrir vörubíla og rútur og höfum við flutt inn mik- ið af hjólbörðum frá þeim. Upp úr áramótum 2011/2012 varð svo við- snúningur hér á landi. Útflutning- ur á notuðum bílum og vélum frá Íslandi hætti og við fórum í stað- inn að flytja þetta inn fyrir verktaka og flutningsaðila. Þá mátti kannski segja að kreppan í þessum atvinnu- greinum væri að baki og menn vantaði tæki til að anna verkefnum hér innanlands og endurnýja þau sem fyrir voru í landinu.“ Þrátt fyrir að viðsnúningur hafi orðið í verktakageiranum þá seg- ir Böðvar að þessi hluti atvinnu- lífsins fari ekki jafn hratt af stað og sumir hafa látið í veðri vaka. „Menn eru varari um sig, varkárari en þeir voru fyrir hrun. Þeir velta hlutun- um meira fyrir sér, hvað þeir kosta og þar fram eftir götunum. Þensl- an er ekki eins og hún var misser- in fyrir hrun. Flestir hafa lært af reynslunni.“ Starfsmönnum fjölgar Aðspurður segir Böðvar að fyrirtæk- ið B. Sturluson hafi gengið ágætlega. „Hróður okkar hefur vaxið með ári hverju. Sumum þykir þetta vera dá- lítið sérstök blanda að vera bæði í flutningum og síðan stunda viðskipti með bíla og tæki en við höfum aldrei farið neitt í grafgötur með það. Nú vinna sex manns hjá fyrirtækinu en okkur mun fjölga í níu starfsmenn með rekstrinum í Stykkishólmi. Það fylgja tvö stöðugildi með í kaupun- um og við munum síðan bæta við einum starfsmanni. Engar uppsagn- ir verða í kjölfar þessara kaupa okkar í Stykkishólmi. Frekar munum við reyna að fjölga störfum þar held- ur en hitt. Aðalstöðvar fyrirtækisins verða eftir sem áður við Vagnhöfða í Reykjavík en hér eftir mun ég verða með annan fótinn fyrir vestan.“ Böðvar segir að kaupunum á rekstrarhluta Ragnars og Ásgeirs fylgi ekki bílafloti heldur sé um að ræða kaup á vöruafgreiðslunni í Stykkishólmi. „Við verðum þarna bæði með vöruafgreiðslu fyrir Flytj- anda og Landflutninga. Ég nota mína bíla í þessa flutninga til og frá Stykkishólmi.“ Björt framtíð í Stykkishólmi Framkvæmdastjóri B. Sturluson segist sjá marga góða möguleika til framtíðar í Stykkishólmi. „Stykk- ishólmur er að sækja í sig veðrið. Það kom ákveðin deyfð yfir bæinn þegar hörpuskelstofninn hrundi en sjávarútvegsfyrirtækin hafa verið að rétta hægt og bítandi úr kútn- um eftir það. Nú er skelin vonandi að koma aftur og því munu fylgja umsvif. Svo hafa opnast tækifæri í tengslum við nýjan og stærri Bald- ur og stamstarf við flutningsaðila á sunnanverðum Vestfjörðum. Síðan sjáum við að ferðaþjónust- an er að verða mjög öflug í Stykk- ishólmi. Það krefst mikilla aðfanga. Við sjáum það alveg á flutningun- um hvað þeir aukast yfir sumartím- ann þegar ferðamennirnir eru hvað flestir í bænum. Svo er Bónus með verslun í Stykkishólmi og þang- að kemur fólk víða að bæði af Snæ- fellsnesi og vestan af fjörðum,“ seg- ir Böðvar. Hann bætir svo við að margt mæli með því að festa sig í sessi fyr- ir vestan. „Ég leyni því heldur ekki að ég sé með þessu ákveðna leið til að flytja heim í Stykkishólm í fram- tíðinni með mína fjölskyldu. Við búum í Reykjavík en höfum stefnt að því að flytja vestur. Konan mín Guðrún Tinna Ólafsdóttir vinnur reyndar líka hér hjá B. Sturluson og er fjármálastjóri. Við stefnum að því að vera með rekstur bæði í Stykkishólmi og Reykjavík í fram- tíðinni. Flutningadeildin verður þá fyrir vestan en söludeildin hér í Reykjavík.“ mþh Böðvar Sturluson framkvæmdastjóri B. Sturluson ehf: Tekur við flutningum til og frá Stykkishólmi Böðvar Sturluson í liðinni viku við fyrirtæki sitt á Vagnhöfða í Reykjavík. Bílar frá B. Sturlusyni í veiðarfæraflutn- ingum hjá Hampiðjunni. Vinnuhesturinn P-210 á vegum úti eitt sumarkvöld.

x

Skessuhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.