Skessuhorn


Skessuhorn - 02.12.2015, Qupperneq 21

Skessuhorn - 02.12.2015, Qupperneq 21
MIÐVIKUDAGUR 2. DESEMBER 2015 21 Þriðjudaginn 8. desember næstkom- andi verður sagnakvöld í Snorrastofu kl. 20.30, þar sem Óskar Guðmunds- son rithöfundur í Véum segir frá Skúlabók sinni – og kynnir viðfangs- efnið. Stefnt er að notalegri kvöld- stund á aðventu með kaffiveitingum og spjalli. Aðgangur er ókeypis. Skúli Alexandersson fæddist í fá- brotnu samfélagi norður á Ströndum sem allt í einu varð miðlægt pláss með síld og sældargróða á fjórða áratug síðustu aldar. Skúli horfði aldrei að- gerðalaus á samfélag sitt, hann reyndi strax á ungaaldri að hafa áhrif, betr- umbæta – já eða bylta þjóðfélagi sem var að taka á sig nýja mynd. Hann naut unglingur trúnaðar til forystu í hvers kyns félagsskap en mestu mun- aði um formennsku hans í verkalýðs- félagi Strandamanna. Þar fékk hann eldskírn í stéttaátökum sem höfðu mótandi áhrif á framtíð hans. Þó var honum ekki auðveldlega í stétt komið í þeim skilningi að engin bönd héldu honum við sama bás. Enda lifði hann í þeirri þjóðfélagslegu mótsögn að vera gegnumheill sósíalisti og einarð- ur atvinnurekandi. Eftir nokkurra ára sjómennsku, nám í Samvinnuskóla og kaupfélags- dvöl á Sauðárkróki lenti Skúli eins og fyrir tilviljun á Hellissandi. Skúli ætl- aði bara að vinna þar í tvo mánuði, en áður en fyrsta árið leið, var hann kominn á kaf í félagsmál og pólitík í Neshreppi utan Ennis. Þar beið líka stóra ástin í lífi hans og Skúli festi tjaldhæl sinn til frambúðar í landi Snæfellsássins. Hann var snemma kjörinn til forystu og varð vinsæll og virtur oddviti og þingmaður, fram- kvæmdaglaður og framsækinn. Allt Vesturland varð vettvangur Skúlans. Hann var stórhuga og ráðríkur, svo sumum fannst nóg um, en jafnframt svo ráðhollur að yfirleitt gast mönn- um best að hans ráðum. Aldrei missti Skúli sjónar af gleðinni og gróandanum, gerðist á háum aldri forystumaður landvernd- ar og skógræktar af sömu ástríðu og fyrir öðrum þjóðþrifamálum. Hug- myndaauðgi og skapandi vinnusemi einkenndi hann allt til hinsta dags. Hann féll frá 21. maí síðastliðinn á 89. aldursári. Hann gekk ævinlega glaður og reifur til allra verka – og innilegur hlátur þótti einkenna frá- sagnir hans og heillandi framkomu. Því þótti vel fara á heiti bókar: Þá hló Skúli. -fréttatilkynning Bókin Þá hló Skúli kynnt í Snorrastofu Svipmynd frá útgáfuhófinu fyrir um mánuði síðan þegar bókin kom fyrst út. Ljósm. mþh. Jólastemningin er komin á Bóka- safni Akraness. Safnið hefur ver- ið skreytt hátt og lágt, jólabækurn- ar eru komnar úr dvala og prýða hverja hilluna á fætur annarri. Jóla- bókaflóð útgefenda hefur skilað sér inn á safnið og fjöldi nýrra titla kominn í útleigu. Mikill metnað- ur hefur verið lagður í jólaskreyt- ingarnar á safninu og skrautið hæf- ir vel, enda mikið til gert úr göml- um bókum. Það eru Erla Dís Sigur- jónsdóttir og Gerður Jóhanna Jó- hannsdóttir sem hafa veg og vanda af skrautinu á bókasafninu í ár. Að sögn Gerðar er þetta þriðja árið í röð sem safnið er skreytt á þenn- an hátt. Efnið sem við notum er annað hvort endurnýtt eða beint úr náttúrunni, segir hún. Köngl- ar og greinar koma úr skógrækt- inni og svo notum við bækur sem búið er að afskrifa. Við höfum svo notað afgangsefni, meðal annars frá því á Húllumhæinu í sumar og kúl- urnar voru keyptar í Búkollu, bætir hún við. Hún segir Erlu Dís alveg eiga heiðurinn af bókaskrautinu en hreindýr úr pappa, arinn og annað skraut hafi þær unnið að í samein- ingu. Allt árið séu þær að spá í hvað gæti verið skemmtilegt að gera fyr- ir jólin og í ár hafi arinstofa Sveinka og hreindýrafjölskyldan orðið fyrir valinu. grþ Jólaskrautið unnið úr gömlum bókum Heimatilbúin arinstofa Sveinka. Gerður skar út hornin en Erla Dís gerði skrautið ofan á arninum. Takið eftir glugganum sem einnig er heimatilbúinn. Víða má sjá fallegt skraut úr bókum eftir Erlu Dís. Gerður skar út hreindýrafjölskyldu sem stendur úti í glugga. Könglarnir sem hanga í glugganum voru týndir í skógræktinni á Akranesi. Það er ýmislegt hægt að gera við bækurnar, meðal annars pakka gjöfum inn í blaðsíður. Jólakortastandurinn er flottur.Hreindýrshöfuð búið til úr bók. Útgáfudagar næstu vikur www.skessuhorn.is Miðvikudagur 9. desember Miðvikudagur 16. desember (Jólablað) Miðvikudagur 30. desember Miðvikudagur 6. janúar 2016 Auglýsingapantanir í Jólablað Skessuhorns þurfa að berast í síðasta lagi föstudaginn 11. desember á netfangið emilia@skessuhorn.is eða í síma 433-5500

x

Skessuhorn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.