Skessuhorn - 02.12.2015, Qupperneq 24
MIÐVIKUDAGUR 2. DESEMBER 201524
Vísnahorn
Nú dynur á okkur hið
árlega jólabókaflóð og
mætti æra óstöðugan að
gera því öllu skil sem vert
væri. Ögn gæti þó verið gaman að gægjast í
ljóðabækurnar og ætli við opnum ekki eins og
þrjár þeirra núna. Í bókinni ,,Pönnukökur og
plokkfiskur“ eftir Sigurlínu Hermannsdóttur
er kvæðið Veiðikló:
Hann stendur á bakkanum búinn til veiða,
beiturnar gaumgæfir allar,
lognkyrran vordag í víðáttu heiða.
-Á vatninu himbriminn kallar.
Fiskurinn vakir og vonglöð er sálin,
varma frá sólinni stafar.
Í vöðlurnar fer hann og veður svo álinn.
-Á vatninu himbriminn kafar.
Háfurinn tilbúinn, hatt á sig krækir,
hnýtt hefur flugur af natni.
En hlut sinn af kappi á heimavöll sækir
himbriminn úti á vatni.
Bókin ,,Hvítir veggir“ eftir Sigrúnu Har-
aldsdóttur hefur eins og bók Sigurlínar að
geyma bæði hefðbundin og minna hefðbund-
in ljóð og báðar hafa þær að geyma alvarleg
kvæði og minna alvarleg:
Nú strýkur kulið stráin heiðardala
og stakkaskiptum taka gróðurrindar.
Nú hemar auga himinblárrar lindar
en hrímið glitrar dauft á lágum bala.
Það bliknar allt og blómstur falla í dvala
og blökkum skugga varpa fjallatindar,
í fjarska ýlfra kaldir vetrar vindar
svo válega þeir örgum rómi hjala.
Þótt fuglar vorsins flestir séu á braut
á flötum mel er ennþá sumargestur,
þar mókir spói á mosagrárri sæng.
Því hann sem frír um himnavegu þaut
í helsi bjargarleysis kyrr er sestur
með brákaðan og blóði drifinn væng.
En Sigrún á ýmsa fleiri tóna til þótt þá sé
ekki alla að finna í þessari bók. Meðal annars
veltir hún fyrir sér erfiðleikum póstburðar-
kvenna og jafnframt afleiðingum ýmissa svo-
kallaðra endurbóta sem læknavísindin fremja
á kvenlíkamanum:
Hún Björg var að bera út póst
og bogin hún rétt áfram dróst.
Það var krefjandi streð
því konan var með
alveg svakaleg síkilonbrjóst.
Kristján frá Gilhaga hefur gefið út aðra bók
sína sem nefnist ,,Sögur, kvæði og kviðling-
ar“ og má nafnið heita lýsandi fyrir innihald-
ið. Meðal annars segir hann frá því er hann
var staddur í reiðhöllinni á Sauðárkróki sem
ber nafnið Svaðastaðir og horfði á konur sýna
mynsturreið:
Klukkan tifar, tíminn leið
við tölt og brokk og stökk og skeið.
Konur sýndu ringulreið
í rósamynstrum flóknum
á Svaðastöðum - sem eru núna á Króknum.
Systir Kristjáns, Sigurlaug Stefánsdótt-
ir (Lauga Stefáns) sem lengi var á Akranesi
á einnig efni í bókinni og hefur minnst af
því komist í kynni við prentsvertu fyrr. Þar á
meðal er þessi sem er ort eftir ball fyrir margt
löngu:
Hjörtun slá það heyra má
hugann næði dreymir.
Brennur þrá í brjóstum þá,
blóð um æðar streymir.
Ætli það sé þá ekki rétt að snúa sér á aðeins
hefðbundnari slóðir þessara þáttaskrifa. Júlíus
í Hítarnesi kom eitt sinn sem oftar í Borgar-
nes og átti ýmis erindi eins og gengur. Með-
al annars kom hann að gamla sláturhúsinu en
tók beygju hjá snjóskafli og hrækti í skaflinn
og sást blóðlitur. Guðmundur Sveinbjarnar-
son var nærstaddur og sá þetta og þegar Júlíus
kom aftur út kvað hann:
Nú er þínum sköpum skipt.
Skyrptu og vertu glaður.
Eggert hefur kefli kippt
úr kjapti þínum maður.
Stuttu síðar barst Guðmundi svarbréf en
eins og hann hafði réttilega giskað á hafði Júl-
íus komið við hjá Eggerti lækni og látið draga
úr sér tönn:
Einum jaxli út var svipt
er því hress og glaður
En verði gómavopni lyft
varaðu þig maður.
Ekki tel ég mig vita nákvæmlega hvernig
næsta bréf barst vestur í Hítarnes en eigum
við ekki að giska á að það hafi fengið far með
mjólkurbílnum:
Þú mátt blanda bölv og last
búa grand og fjandskapast
Ég skal standa fyrir fast
fær í andans hnútukast.
Og að öllum líkindum hefur sama flutn-
ingstæki verið notað við sendingu til baka:
Hnútuslátt ég þoli þinn
þjóta láttu skeytin stinn
Á engan hátt ég ótta finn
auka máttu róðurinn.
Greinilega hefur Guðmundur ekki ætlað að
gefa sig auðveldlega:
Þungt er bax við þras og hjax
þrekið vaxa ei mun strax
Þó skal saxa óðsins ax
æfi dags til sólarlags.
En Júlíus hafði líka vald á dýrum bragar-
háttum:
Sindra láttu silfurgrátt
sveigðu dátt í vesturátt
Ég skal þrátta, þó með sátt
þyngdu hátt ef betur mátt.
Loks kom þó aðeins friðarhljóð í Guð-
mund:
Þó ég eitthvað syngi síðar
síst ég reyni að máta þig
Við skulum hugsa hærra víðar
hættuna láta eiga sig.
Ekki veit ég nákvæmlega um tímasetningar
á þessum yrkingum en trúlega hefur það ver-
ið nærri 1950 samkvæmt mínum heimildum.
Hvað sem um það er þá verða alltaf stöðug-
ar breytingar í lífinu. Börn fæðast, vaxa upp
og verða ástfangin, stofna fjölskyldu og eld-
ast síðan og að lokum tekur það við sem við
þekkjum ekki en enginn maður getur flúið.
Óskar í Meðalheimi hafði þetta að segja:
Áhyggjur ég engar hef,
enn er tíminn nægur.
Enginn veit sitt endaskref
eða lokadægur.
Með þökk fyrir lesturinn,
Dagbjartur Dagbjartsson
Hrísum, 320 Reykholt
S 435 1189 og 849 2715
dd@simnet.is
Konur sýndu ringulreið - í rósamynstrum flóknum
Í sumar kom út
bókin „Já elsk-
an mín” sem er
vísnasafn eft-
ir Odd Jónsson á
Gili í Dýrafirði.
Það voru dæt-
ur Odds, þær Val-
gerður Jóna og
Kristín Berglind,
sem tóku saman.
Þær eiga einnig ræt-
ur á Snæfellsnes þar sem móðir þeirra
systra, Ingunn Jónsdóttir er frá Litla
Langadal á Skógarströnd. Valgerður
er kennari á Akranesi og býr í Glóru í
Hvalfjarðarsveit en Kristín býr á Ísa-
firði.
Oddur fæddist á Gili í Dýra-
firði árið 1927, þar sem hann bjó og
stundaði búskap þar til hann lést 71
árs að aldri árið 1998. Hann var mik-
ill hagyrðingur og eftir hann ligg-
ur fjöldi vísna og ljóða. Yrkisefnin
voru af ýmsum toga; náttúran í Dýra-
firði, samferðafólk hans, lífið í sveit-
inni, búskapurinn, þjóðfélagsmálin
og fjölskyldan. Oddur hafði gaman
af að kveðast á við vini og kunningja
og allnokkuð af þeim kveðskap hef-
ur varðveist. Fyrir vikið er kveðskap-
ur Odds merkileg samtímaheimild
og spegill á samfélag og mannlíf sem
einkenndi Dýrafjörð og Vestfirði á
þeim tíma sem Oddur lifði. Valgerð-
ur og Kristin gefa bókina sjálfar út og
er til sölu í verslunum Eymundsson á
Akranesi og víðar, í Kaupfélagi Stein-
grímsfjarðar auk þess sem hægt að
nálgast bókina í gegnum Facebook-
síðuna „Já elskan mín.“ Þess má geta
að nú í desember mun Valgerður lesa
upp úr bókinni á opnu húsi fyrir eldri
borgara í Hvalfjarðarsveit.
Hér má sjá sýnishorn úr bókinni
Bryndís Schram og maður hennar
Jón Baldvin Hannibalsson ráðherra,
mættu á ball hjá fótboltamönnum
á Dalvík. Þeir hirtu hattinn af Jóni
og buðu hann upp. Einnig var ráð-
herrafrúin boðin upp og fékk hæst-
bjóðandi fyrsta dansinn. Hatturinn
og dansinn voru sleginn á sömu upp-
hæð.
Ljóst er flestum að Bryndís á bágt
með blessaðan drenginn.
Sleginn á Dalvík var hatturinn hátt
í hausinn bauð enginn.
Þótt hann sé álitinn skarpur og skýr,
skilst mér að reisnin sé hnigin.
Og hjá henni sjálfri var dískoti dýr
dansinn sem fyrst skildi stiginn.
Árið 1998 komst upp um samband
Bill Clintons forseta Bandaríkjanna
og Monicu Lewinsky sem var lær-
lingur í Hvíta húsinu. Clinton reyndi
að verjast þessum ásökunum og laug
eiðsvarinn um samband sitt við Lew-
insky.
Hjá Clinton sýnist vörnin veik
það virðist enginn skilja.
Þau bara að gamni brugðu á leik
bæði af fúsum vilja.
Stakar vísur:
Dýrafjarðar dali og strönd
dreymir mig um nætur.
Það er eins og einhver bönd,
eigi þarna rætur.
---------------
Yfir snauður ljóst og leynt
liggur snjór og skari.
Græna vorið sést víst seint
með sama tíðarfari.
Haustsins lit á hagann slær,
hrynja lauf af trjánum.
Fjalls um tinda fýkur snær,
frostrós er á skjánum.
Já elskan mín
Út er komið vísnasafn eftir Odd Jónsson á Gili
Hjónin Oddur og Ingunn.
Forsíða
bókarinnar.
Knattspyrnusamband Evrópu,
UEFA, hefur líkt og undanfarin
ár úthlutað hluta af þeim tekjum
sem sambandið hafði af Meistara-
deildinni til félaga í aðildarlönd-
um UEFA. Framlög UEFA vegna
Meistaradeildarinnar renna til fé-
laga í efstu deild og munu liðin í
Pepsi-deildinni skipta á milli sín 40
milljónum króna. Hvert lið í Pepsi-
deildinni, þar á meðal ÍA, fær því
3,35 milljóna króna styrk frá UEFA
og leggur KSÍ út fyrir 38 milljón-
um króna til viðbótar til annarra
félaga. Greiðslan til félaganna skal
renna óskipt til eflingar knattspyrnu
barna og unglinga og er úthlutunin
háð því að félög haldi úti starfsemi í
yngri flokkum beggja kynja. Hvert
félag í 1. deild karla fær 1.600 þús-
und krónur og er Víkingur Ólafs-
vík eitt af þeim félögum. Félög í 2.
deild karla fá 1.100 þúsund og önn-
ur félög í deildarkeppni 800 þús-
und krónur, þar á meðal Snæfell og
Skallagrímur. grþ
Styrkja barna- og unglinga-
starf knattspyrnufélaga