Skessuhorn - 02.12.2015, Qupperneq 25
MIÐVIKUDAGUR 2. DESEMBER 2015 25
Krossgáta Skessuhorns
Hér er ný krossgáta fyrir lesendur að leysa. Þeir sem vilja
geta sent Skessuhorni lausnarorð/in á netfangið: kross-
gata@skessuhorn.is fyrir klukkan 15 á mánudögum. At-
hugið að fullt nafn og heimilisfang þarf að fylgja með
lausninni. Þeir sem ekki hafa aðgang að tölvupósti sendi
lausnir á Kirkjubraut 56, 300 Akranesi (athugið að póst-
leggja þarf lausnir í síðasta lagi á föstudegi). Dregið verð-
ur úr réttum innsendum lausnum og fær vinningshafinn
bókagjöf frá Skessuhorni.
118 lausnir bárust við krossgátu í blaðinu í síðustu viku.
Lausnin var: „Ljósatími.“ Vinningshafi er: Vilhelmína
Salbergsdóttir, Svelgsá, 340 Stykkishólmi. mm
Upp-
spretta
Bragð
Vafi
Eink.st.
Eignir
Ráð-
vandur
Span
Vatna-
gróður
Nudda
Skortur
Ginnast
Japla
Hagn-
aður
Glymur
Fjalls-
brún
Fjöldi
Slúta
Ókunn
Býsn
Tölt
Átt
Hár
Missir
Rök
Ofan
Kostur
Blundur
Skart-
klæði
Heiður
Mana
Þar til
14 4
Dáð
Andar-
tak
6 9
Bindi
Líf-
færi
Samhlj.
Duft
Leyfist
Vilji
Ljós-
ker
16 Röð
Hryssu
Sprell
17
Dreifa
Fugl
Kvaka
Geil
Mjöður
Hætta
Arða
Hetja
1 15
Sætta
sig vð
10 Fuglinn
Skáborð
Ferskur
12 21
Þráður-
inn
20 Hælir
Finnur
leið
Seinar
Til
Óregla
Þramm
Fiskar
Andi
Þys
Þannig
Gæði
Rót
Fuglar
Hanki
Vein
8
Nisti
Maður
7 Ras
Tölur
Samhlj.
Par
Kall
Raul
Innan
Yfir-
skin
13 Fugl
Gap
Hryðja
Krota
Sk.st.
Merk
2
Liða-
mótin
Lota
3 Glöð
Ásaka
51
For-
faðir
Tóm
11 Heilt
Verma
3 Eins
Ökuþór
Ending
Massi
Háls
Lastið
Frá
Geisla-
baug
Dvelja
Alltaf
Til-
búinn
18
10
Samhl.
4 Sérhl.
19 22 5
1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20 21 22
Snorrastofa í Reykholti
Snorrastofa, menningar- og miðaldasetur
í Reykholti
Sími 433 8000
www.snorrastofa.is
snorrastofa@snorrastofa.is
Þriðjudagurinn 8. des. 2015
kl. 20:30
í Bókhlöðu Snorrastofu
Þá hló Skúli
– sagt frá bók og skyggnst á bakvið tjöldin
Kaffiveitingar
Ókeypis aðgangur
Sagnakvöld þar sem Óskar
Guðmundsson rithöfundur
í Véum segir frá Skúlabók
sinni – og kynnir viðfangsefnið.
Stefnt er að notalegri kvöld-
stund á aðventu.
Ásatrúarfólki hefur fjölgað mjög
á Akranesi og nágrenni á síðustu
árum, að sögn Jóhönnu Harðar-
dóttur Kjalnesingagoða sem býr í
Hlésey við Hvalfjörð. „Á Skagan-
um er nú margt fullorðið, heiðið
fólk og auk þess margar ungar fjöl-
skyldur með börn og unglinga. Ég
hef ekki nema tvisvar haldið blót á
Skaganum. Fólk hér um slóðir hef-
ur sótt til Reykavíkur, á Mógilsá
og hingað í Hlésey til að hittast, en
nú verður breyting á því. Ég ætla
að halda hátíðablót að Görðum á
gamlársdag, 31. desember, nánar
tiltekið við hringinn bak við Safn-
askálann í Görðum. Blótið heitir
Níu nætur og hefst klukkan 16,“
segir Jóhanna.
Hún segir að nafnið Níu næt-
ur sé dregið af því að jól heiðinna
manna eru á vetrarsólstöðum sem
eru 22. desember. „Þann dag lofaði
Gerður Gymisdóttir, sem er tákn
sólarinnar, að verða kona frjósem-
isguðsins Freys og sagðist myndu
hitta hann eftir níu nætur í skóg-
inum Barra. Einmitt á þeim tíma
fer næmt fólk að finna fyrir því að
daginn er tekið að lengja á ný og
því ætlum við að fagna hækkandi
sól og biðja goðmögnin af gefa
okkur bjarta framtíð.“
Jóhanna segir að þetta blót á
gamlársdag sé ekki aðeins fyr-
ir heiðið fólk. „Á jólablótum í
Reykjavík er oft mikið af fólki sem
er vant að fagna hækkun sólar. Það
eru auðvitað allir sólardýrkendur
og þeir sem hafa áhuga á kynnast
einhverju nýju innilega velkomn-
ir á Níu nætur við Garða. Eftir
athöfnina sjálfa verður farið inn í
Garðakaffi og í boði eru kaffi eða
kakó til að ylja sér við og írsk lista-
kona sem býr á Skaganum, Elaine
Clark, ætlar að flytja okkur tón-
list.“
mm
Ásatrúarfólk blótar níu
nætur á gamlársdagLeikárið hjá leikfélaginu Sv1 í
Menntaskóla Borgarfjarðar er kom-
ið á fullt skrið. Leikfélagið setur
upp verk á hverju ári og í ár varð ís-
lenska barnaleikritið um Benedikt
búálf fyrir valinu. Handritshöfund-
ur er Ólafur Gunnar Guðlaugsson
en Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson
samdi tónlistina. Stefán Benedikt
Vilhelmsson hefur verið ráðinn leik-
stjóri en hann leikstýrði einnig Stút-
ungasögu sem leikfélag skólans setti
upp árið 2012.
Að ýmsu að huga
Að sögn Ellenar Geirsdóttur for-
manns Sv1 hefst ferlið hjá leikfélag-
inu um leið og skólinn hefst á haust-
in, þegar byrjað er að funda. „Við
vorum snemma á ferðinni með sýn-
inguna í fyrra en ákváðum að hægja
aðeins á dæminu í ár. Þetta var svo
mikið stress í fyrra að við náðum
varla að njóta okkar á undirbún-
ingstímabilinu. Við ákváðum því að
frumsýna eftir áramótin og stefnum
á frumsýningu fyrstu vikuna í febrú-
ar,“ segir Ellen. Hún segir nóg að
gera hjá félögum Sv1 við undirbún-
ing sýningarinnar enda töluverð
vinna við að setja upp leikrit. „Við
æfum alla virka daga fram á kvöld í
augnablikinu en í janúar verða æf-
ingar svo gott sem alla daga. Svo
er margt annað sem þarf að huga
að, svo sem fjármagn, leikmunir og
leikmynd. Það er ýmislegt sem þarf
að redda fyrir svona sýningu.“
Efna til teikni-
samkeppni
Ellen segir félagið nú vera að safna
styrkjum frá fyrirtækjum á svæð-
inu en til stóð að vera með fjáröfl-
un á aðventunni. „Við ætluðum að
hafa fjölskyldudag en þurftum því
miður að hætta við það af óviðráð-
anlegum ástæðum. Í staðinn verð-
um við með leik á Facebook þar
sem við biðjum foreldra eða for-
ráðamenn, afa og ömmur, frænd-
ur og frænkur að koma teikningum
barna sinna, barnabarna eða ann-
arra barna til okkar,“ segir Ellen.
Hún segir að leiknum verði kom-
ið á framfæri með stöðuuppfærslu
á Facebook síðu félagsins fljót-
lega. Teikningin þarf vera af ein-
hverri persónu í leikritinu og vel
merkt með fullu nafni og aldri.
„Við í leikfélaginu munum síðan
velja tíu flottustu teikningarnar og
fá hlutlausan aðila til að velja 1. og
2. sætið. Í vinning fyrir fyrsta sæti
eru miðar fyrir alla fjölskylduna
á sýninguna en fyrir annað sætið
eru tveir miðar. Við vonum bara
að sem flestir hafi gaman af þessu
og taki þátt. Svo vonumst við auð-
vitað til þess að Borgnesingar og
þeir sem búa í sveitunum í kring
taki vel í starfið okkar og að sem
flestir sjái sér fært að mæta á sýn-
inguna, þetta gæti verið skemmti-
legt og vonandi eitthvað sem öll
fjölskyldan sem getur notið,“ segir
Ellen að endingu.
grþ
Æfingar hafnar á Benedikt búálfi
Fyrsti samlestur hjá Sv1 eftir að hlutverkaskipan var kynnt. Ljósm. Stefán
Benedikt Vilhelmsson.
Skeifan 8 | 108 Reykjavík | sími 517 6460 | www.belladonna.is
Vertu þú sjálf, líka um jólin