Fréttablaðið - 07.11.2019, Síða 2

Fréttablaðið - 07.11.2019, Síða 2
Veður Hæg A- átt, úrkomulaust að kalla og víða bjart. Austan 8-13 m/s og él syðst á landinu. Bætir í vind vestast annað kvöld. Frost 0 til 10 stig, kaldast fyrir norðan. SJÁ SÍÐU 30 Ráðherrar fengu boðsbréf á barnaþing N Ý F O R M h ú s g a g n a v e r s l u n h ú s g a g n av e r s l u n Strandgötu 24 | 220 Hafnarfjörður | Sími 565 4100 | nyform.is Komið og skoðið úrvalið K371 sófi Fáanlegt í leðri og tauáklæði, margir litir 3ja sæta 2ja sæta og stólar Opið virka daga 11-18 laugardaga 11-15 SAMFÉLAG „Verkin á sýningunni eru ljósmyndir og hljóðupptökur af fólki hér í bænum. Pólsku fólki í samfélaginu hér sem ég þekkti ekkert en hef nú orðið svo heppin að kynnast. Hér býr nefnilega ótrú- lega mikið af áhugaverðu og hlýju pólsku fólki sem er að gera áhuga- verða hluti,“ segir listakonan Vena Naskrecka. Hún heldur listsýningu á Pólskri menningarhátíð sem fram fer á Nesvöllum í Reykjanesbæ á laug- ardag. Á hátíðinni er áhersla lögð á persónulegar sögur bæjarbúa af pólskum uppruna. Boðið verður upp á tónlistaratriði, pólskan götu- matarmarkað og Polonez-dans, svo fátt eitt sé nefnt. „Ég hitti fólkið, það sagði mér sínar sögur og ég tók af því myndir. Allir tóku mér ótrúlega vel og það var frábært að heyra sögur þeirra,“ segir Vena. „Áður en þau sögðu mér sögurnar spjölluðum við saman þannig að þau kynntust mér og ég þeim, það varð til þess að sam- skiptin urðu opnari,“ bætir hún við. „Sýningargestir setja á sig heyrn- artól og hlusta á viðmælendur mína segja sögur sínar og mynd- irnar sem ég tók af þeim verða til sýnis. Með því að gera þetta svona en ekki sem hefðbundið vídeóverk fæst meiri nánd á milli sýningar- gesta og söguhetjunnar,“ segir hún. „Sumar sögurnar eru á pólsku og aðrar á íslensku. Þær eru svo allar þýddar yfir á pólsku eða íslensku eftir því sem við á svo allir geti lesið þær. En sama hvort tungumálið sýningargestir skilja hvet ég alla til þess að setja á sig heyrnartólin og hlusta. Það er svo margt sem leynist í frásögnum okkar. Hljóm- fallið í röddinni og tilfinningin getur aukið upplifunina,“ útskýrir Vena. Hún segir sögurnar jafn margar og ólíkar og söguhetjurnar en að ýmislegt hafi þær þó átt sameigin- legt. „Við töluðum um alls konar hluti, til dæmis upplifun Pólverja af því að búa á Íslandi. Öll voru þau sammála um mikilvægi þess að læra íslensku og að Íslendingar hefðu tekið þeim vel,“ segir hún. Hátíðin var haldin í fyrsta sinn í fyrra við mikinn fögnuð bæjarbúa en um 16 prósent íbúa í Reykja- nesbæ eru af pólskum uppruna. Vena telur mikilvægt að slíkir við- burðir séu haldnir í öllum sam- félögum og séu kjörin leið til að þjappa saman og auka tengsl fólks af ólíkum uppruna. „Sama hvort við erum frá Pól- landi eða Íslandi þá búum við öll nálægt hvert öðru, börnin okkar ganga í sömu skólana og við erum með svipaðar upplifanir, og ef við erum meðvituð um fólkið í kringum okkur og sögur þess líður okkur betur,“ segir hún. birnadrofn@frettabladid.is Byggir á persónulegum sögum í verkum sínum Pólsk menningarhátíð verður haldin í Reykjanesbæ á laugardaginn í tilefni af þjóðhátíðardegi Póllands, 11. nóvember. Vena Naskrecka heldur þar sýningu sem byggir á persónulegum frásögnum einstaklinga af pólskum uppruna. Vera Naskrecka við nokkur verka sinna á sýningunni. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Sumar sögurnar eru á pólsku og aðrar á íslensku. Þær eru svo allar þýddar yfir á pólsku eða íslensku eftir því sem við á svo allir geti lesið þær. Vena Naskrecka, listakona Sindri Þór Stefánsson fékk fjögurra og hálfs árs dóm. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR DÓMSMÁL Bitcoin-málið svokall- aða er ekki enn komið á dagskrá Landsréttar en dómur í málinu var kveðinn upp í janúar. Sjö menn voru þá dæmdir fyrir aðild að inn- brotum og þjófnaði úr tveimur gagnaverum. Þeir fimm sem hlutu þyngstu refsingu áfrýjuðu málinu til Landsréttar og var málið skráð þar 8. mars síðastliðinn. Þótt átta mánuðir séu liðnir hefur málið ekki enn verið tekið á dagskrá réttarins. Í svari Landsréttar við fyrirspurn Fréttablaðsins segir að ástæðan sé sú að ríkissaksóknari hafi enn ekki þingfest málið og afhent gögn þess til Landsréttar. Í svari ríkis- saksóknara segir að Héraðsdómur Reykjaness hafi enn ekki af hent gögn málsins þótt óskað hafi verið eftir því og sú beiðni verið ítrekuð. Björn Bergsson, skrifstofustjóri Landsréttar, segir að þegar málið hafi verið þingfest verði verjendum og ákæruvaldi veittir frestir til að skila greinargerðum en það sé fyrst að lokinni þessari gagnaöflun sem málið sé tilbúið til málf lutnings og unnt að af kveða dagsetningu hans. Aðspurður segir Björn að ekki sé unnt að fullyrða að málið hafi beðið lengur en önnur mál sem verið hafa til meðferðar hjá réttinum. Sindri Þór Stefánsson hlaut þyngsta dóminn í héraði en hann var dæmdur til fjögurra og hálfs árs fangelsisvistar fyrir skipulagningu og framkvæmd brotanna. – aá Bíða enn eftir Landsrétti Þrjátíu ár eru liðin frá því að Barnasáttmálinn, samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins, var samþykktur. Því verður fagnað með ýmsu móti. Hápunkturinn verður án efa barnaþing, sem umboðsmaður barna stendur fyrir í fyrsta skipti í ár. Barnaþingið verður haldið í Hörpu 21. til 22. nóvember. Ráðherrar fengu af hent boðsbréf á þingið í skemmtilegri athöfn í Alþinghúsinu í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI Þorlákshöfn. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA ÖLFUS Bæjarráð Ölfuss hefur hafnað því að ganga til viðræðna við Árborg um sameiningu sveitarfélaganna að svo stöddu. Kveðst bæjarstjórnin þó fagna því að bæjarráð Árborgar stígi fram og lýsi „vilja til að nálgast nágranna sína og samstarfsaðila á jafningjagrunni“ eins og segir í bókun. „Á sama tíma hefur framganga bæjarfulltrúa Árborgar hins vegar ekki verið með þeim sama hætti líkt og kom fram á haustfundi Héraðsnefndar Árnes- inga nú í október.“ Þá benda Ölfusingar á að sveitar- félögin hafi rætt um sameiningu á árunum 2016 til 2017 en að þeim við- ræðum hafi lokið án niðurstöðu. - gar Sameining er ekki á dagskrá 7 . N Ó V E M B E R 2 0 1 9 F I M M T U D A G U R2 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 0 7 -1 1 -2 0 1 9 0 5 :0 2 F B 0 5 6 s _ P 0 5 5 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 5 5 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 2 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 2 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 4 2 B -C 7 A 0 2 4 2 B -C 6 6 4 2 4 2 B -C 5 2 8 2 4 2 B -C 3 E C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 B F B 0 5 6 s _ 6 _ 1 1 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.