Fréttablaðið - 07.11.2019, Síða 16

Fréttablaðið - 07.11.2019, Síða 16
Tölvuleikir til gagns Hún segir líka að vitað sé að strákar séu meira í tölvuleikjum en stelpur sem geti leitt til félagslegrar ein- angrunar en það er líka mikilvægt að líta til þess að tölvuleikirnir geti ýtt undir samskipti hjá strákum. Þeir sem spila saman tali einn- ig saman á meðan tölvuleikir séu spilaðir og ákveði jafnvel í gegnum spjall í tölvuleik hvenær eigi að hitt- ast og fara í sund eða fótbolta. Því sé einnig í sumum tilvikum hægt að einangrast ef leikjatölva og nýjustu leikirnir eru ekki til staðar. „Það að segja að skjár sé slæmur og tölvur slæmar, þetta er alls ekki svona einfalt. Það er hægt að þróa með sér tilfinningagreind og allt mögulegt í gegnum tölvuleiki.“ Það er því ekki vitað af hverju þessi kynslóð er svona einmana og frekari rannsókna er þörf. „Við vitum ekki hvort þetta er tengt aldrinum; hvort fólkið sem er orðið fullorðið í dag hafi verið meira einmana þegar það var á þessum aldri. Það þurfum við að skoða. Ég myndi alveg halda að það gæti verið þannig að það tengist aldrinum,“ segir hún en einmanaleikinn og hamingja haldast í hendur. „Við erum með mesta einmana- leikann og minnstu hamingjuna hjá ungum karlmönnum. Það er ekki sami munur á elstu hópunum hjá konum og körlum.“ Velsæld eða farsæld Dóra segir að það sé munur á vel- sældar- og farsældarhamingju. „Velsæld tengist stundargleði og ánægju, farsældarhamingja tengist meira þroska og tilgangi í lífinu og verður til eftir að fólk hefur gengið í gegnum eitthvert ferli. Sá þáttur hamingjunnar er sterkari hjá eldra fólki. Það er þakklátara. Það er komið með einhverja reynslu og sækist ekki eins eftir stundar- sælu og hefur meiri þrautseigju. Mat fólks á hamingju og hvað það er sem gerir það hamingjusamt er ólíkt á milli þessara aldurshópa. Það kemur ákveðið æðruleysi með þroska og aldri. Hvað öðrum finnst skiptir minna máli,“ segir Dóra. Sérstakir spjallkassar Hún segir mikilvægt að skapa nátt- úruleg tækifæri fyrir fólk að hittast og er ekkert sérstaklega hrifin af sjálfsafgreiðslukössum í verslunum. „Ég held það sé ekki sniðugt. Það eru komnir sérstakir kassar í Hollandi, þar sem er hægt að gefa sér tíma til að spjalla. Þetta er ekki hraðkassi, heldur öfugt, svona spjallkassi,“ segir hún. „Við þurfum að vera meira vak- andi fyrir því hvernig við sem sam- félag búum til tækifæri fyrir fólk til að hittast. Lífið snýst ekki um að hlaupa í gegnum það, heldur að stoppa og njóta. Hraðkassinn er Teitur Guðmundsson læknir Bregðumst við í framhaldsskóla Krakkar í menntaskóla eru oftar en ekki farin úr sínu uppeldishverfi og það verður stundum rof í vinahópum á þessum tímapunkti, þegar vinir tvístrast hver í sína áttina. Þess vegna þarf að fylgjast vel með unglingum á þessum aldri. Eins og fram kom í Til- veruumfjöllun Fréttablaðsins síðasta fimmtudag er markviss kennsla í félags- og tilfinn- ingafærni áberandi minnst í framhaldsskólum. Þetta kom fram í landskönnun á geð- rækt í skólum, sem Embætti landlæknis gerði. Þar kemur enn fremur fram að framhalds- skólar standi bæði leik- og grunnskólum að baki þegar kemur að gagnasöfnun um líðan og hagi nemenda. 70% framhaldsskóla leggja fyrir árlegar nemendakannanir til að meta líðan og skólabrag á móti yfir 90% grunnskóla. Kannanirnar virðast vera vannýttar í framhaldsskólum en rétt um einn af hverjum tíu gerir slíkar kannanir og bregst við með stuðningi ef merki eru um félagslega einangrun eða útilokun meðal nemenda. Í ljósi þess að margir fram- haldsskólar eru með fjölbrauta- kerfi þar sem nemendur eru með ólíkum hópum í hverju fagi og auðvelt er að „týnast“ í fjöl- mennum skólum væri gagnlegt að nýta tengslakannanir betur á þessu skólastigi. Þær veita tæki- færi til að fá yfirsýn yfir þann hluta nemenda sem hefur veik tengsl við samnemendur eða starfsfólk í skólanum. ekki endilega málið, heldur að gefa sér tíma til að staldra við og spjalla. Sérstaklega fyrir fólk sem enginn bíður eftir heima.“ Sífellt f leiri búa einir en það að vera einn er alls ekki það sama og að vera einmana. Það er vel hægt að líða vel með sjálfum sér og það er líka hægt að vera einmana með öðrum, þegar þessi djúpu félagslegu tengsl skortir. „Við eigum miserfitt með að mynda tengsl. Sumir eiga mjög auð- velt með það en aðrir ekki. Sumir hafa þörf fyrir að eiga bara einn góðan vin á meðan það hentar ekki öðrum. Þarfirnar eru ólíkar.“ Margir eiga góða fjölskyldu sem er mikilvægur þáttur í félagslegum tengslum þeirra. Bros í göngutúr „En það eiga ekki allir fjölskyldu sem þeir tengja við. Við þurfum að hugsa um hvernig við sköpum samfélag þar sem við gefum öllum tækifæri til þess að vera í gefandi samskiptum við annað fólk,“ segir Dóra sem er efins um það að taka manneskjur út úr öllum þjónustu- störfum, „og vélvæða allt saman svo við komumst sem hraðast í gegnum þetta allt og missum kannski af því sem skiptir máli. Lífið er þetta ferðalag og við þurfum að læra að njóta þess. Við þurfum að vera með- vitaðri um fólkið í kringum okkur og heilsa fólkinu í kringum okkur. Bara það að fá bros í göngutúr lætur mann upplifa tengsl við annað fólk, að maður skipti máli. Það er einhver sem tekur eftir manni,“ segir hún en auðvitað þarf meira til en bros en það er samt eitthvað sem allir geta gefið. Dóra vill búa í samfélagi sem hlúir að fólki. „Við þurfum líka að hugsa út í alla nýju Íslendingana, að bjóða þeim með, og líka fólki sem er að glíma við eitthvað. Það er mikil- vægt að fólk eigi sér sinn samastað þar sem það getur komið og mynd- að tengsl. Skiljum engan eftir, látum okkur alla varða og tökum þá með.“ Við þurfum að vera meira vakandi fyrir því hvernig við sem sam- félag búum til tækifæri fyrir fólk til að hittast. Lífið snýst ekki um að hlaupa í gegnum það, heldur að stoppa og njóta. Dóra Guðrún Guðmundsdóttir Ha? kunna sumir að segja, á meðan aðrir eru mér hjartan-lega sammála. Það eru meira að segja til rannsóknir sem sýna fram á að jákvætt og hamingjusamt fólk er líklegra til að hafa sterkara ónæmiskerfi, jafna sig hraðar á áföllum og veikindum auk þess að sjá tækifæri í því sem aðrir gætu upplifað sem vandamál sem er ótvíræður kostur og gífurlega mikilvægt. Hlátur er líklega eitt besta meðalið sem við þekkjum og því nauðsynlegt fyrir okkur að hlæja nokkrum sinnum á dag. Það lækkar blóðþrýsting og víkkar æðarnar með hjálp nituroxíðs, lækkar streituhormón eins og kortisol og leysir úr læðingi endorfín sem er náttúrulegt verkjalyf líkamans. Þá er einnig búið að sýna fram á aukna T-frumu virkni ónæmiskerfisins og þar af leiðandi bættar varnir við smitsjúkdómum, fyrir utan þá gleði sem fylgir því að hlæja og vera í kringum fólk sem brosir og geislar af vellíðan. Hláturjóga er til dæmis eitt form sem er mjög áhrifaríkt og heilsubætandi, fyrir utan hvað það er skemmtilegt. Þetta getur vissulega reynst erfitt og ýmislegt sem hefur áhrif hér á, það er margt sem getur byrgt sýn, við getum kennt öðrum um ófarir og aðstæður, gengið gegn eigin sannfæringu og samvisku, þóknast öðrum og gleymt sjálfum okkur. En á endanum er það líklega takmark okkar allra að láta okkur líða vel og það erum fyrst og fremst við sjálf sem stýrum því. Á sama tíma megum við ekki gleyma náunganum, aðstæðum hans og því að láta gott af okkur leiða, svo þetta getur reynst býsna flókið. Eitt af grundvallaratriðunum við hamingju er umgengni við annað fólk á öllum aldri og samskipti við þá sem standa manni næst. Rannsóknir hafa staðfest að sterk félagsleg tengsl eru einn sterkasti þátturinn sem stuðlar að góðri líkamlegri og andlegri heilsu. Það á við um eiginlega alla og því mikilvægt að rækta þau sem mest og best. Gerðu þér far um að hitta vini og kunningja, fjölskyldu og vini, taktu þátt í félags- starfi eða skipulögðum athöfnum hvers kyns. Einmanaleiki er eitur og ber að forðast eins og heitan eldinn. Það er mikill munur á því að vilja vera einn og njóta kyrrðar og friðar eða vera ein- mana og upplifa sig afskiptan. Ég hef haldið fyrirlestra undanfarið um það að njóta lífsins, f léttað saman við heilsufar og áhættuþætti þess, þar sem hafa spunnist líf legar umræður um samhengi hlutanna. Nær undantekn- ingarlaust hafa komið upp nýir f letir, sjónarmið og hugmyndir frá áheyr- endum sem sýnir hversu mikilvæg andleg og líkamleg líðan okkar er. Það er hægt að fylla margar greinar um ein- staka sjúkdóma og tengingu þeirra við líðan einstaklingsins bæði sem orsök og afleiðingu. Máttur hugans er mikill og hefur það sýnt sig ítrekað í gegnum tíðina að sjálfstraust og viljastyrkur þarf ekki að vera í neinu samhengi við líkamlegt atgervi, en fari slíkt saman verður það verulega áhugavert. Það er vitaskuld ekki til nein ein leið að settu marki, enda óraunsætt, hitt er þó ljóst að það eru ákveðin lykilatriði sem allir verða að hafa í huga. Hugsaðu um sjálfan þig því einungis þannig getur þú hugsað um aðra, gerðu alltaf þitt besta og vertu stolt/ur af því, sýndu þolinmæði og þrautseigju. Hugsaðu jákvætt og gefðu bros og hlýju, þú færð það margfalt til baka!  Jákvæðni margra meina bót TILVERAN 7 . N Ó V E M B E R 2 0 1 9 F I M M T U D A G U R16 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 0 7 -1 1 -2 0 1 9 0 5 :0 2 F B 0 5 6 s _ P 0 4 1 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 4 1 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 6 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 6 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 4 2 B -D 1 8 0 2 4 2 B -D 0 4 4 2 4 2 B -C F 0 8 2 4 2 B -C D C C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 B F B 0 5 6 s _ 6 _ 1 1 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.