Fréttablaðið - 07.11.2019, Síða 26

Fréttablaðið - 07.11.2019, Síða 26
Með því að auglýsa í Atvinnublaðinu nær þitt fyrirtæki til 89% lesenda dagblaða* á höfuðborgarsvæðinu. Í stað þess að mega bara klæðast Nike get ég nú klætt mig í hvaða skó sem er og ég verð pottþétt ekki uppiskroppa með skó. Þórdís Lilja Gunnarsdóttir thordisg@frettabladid.is NBA-deildin í körfubolta leyf-ir nú annað leikárið í röð að leikmenn klæðist íþrótta- skóm í hvaða lit og munstri sem er. Það hefur sett skemmtilegan blæ á bandarísku körfuboltasenuna og margir reka upp stór augu þegar þeir sjá skrautlegt skótau NBA- liða í upphafi leiktíðarinnar. Það að skærustu stjörnur NBA geti nú klæðst æpandi litum og skræpóttu munstri eftir eigin höfði á vafa- laust eftir að hafa áhrif á gjörv- allan tískuheiminn og aðdáendur sportsins um heim allan. Galopnar skóskápinn Það var framherjinn PJ Tucker hjá Houston Rockets sem hleypti þessari nýjung óform- lega af stað því hann hefur á undanförnum árum glatt bæði áhorfendur og leik- menn með því að mæta til leiks í fágætum og litríkum Nike-skóm. Tucker hefur verið samningsbundinn Nike allan sinn leik- feril en losnaði undan samningnum 1. október síðastliðinn. Önnur íþróttavörumerki slást nú um að fá PJ Tucker til liðs við sig en hann hefur tekið ákvörðun um að njóta þess að vera samnings- laus næstu mánuði til að geta klætt sig í hvaða skó sem er. „Mig langar að vera frjáls. Nú get ég loksins galopnað skóskápinn og klæðst hvaða skóm sem hugurinn girnist og það mun ég gera á Troðið með stæl Litadýrð og frumleg hönnun sést nú á fótum leikmanna NBA-deildarinnar sem skemmta sér hið besta við að vera skrautlegir til fótanna á vinsælasta körfuboltasviði heims. hverjum degi þar til ég skrifa undir næsta samning. Ég vil því skoða hvert einasta merki til að sjá hvað höfðar mest til mín,“ sagði Tucker í samtali við fjölmiðilinn ESPN. Ekki alltaf í sömu skónum Skósafn Tuckers geymir þúsundir skópara í stærðinni 47. „Ég hef aldrei viljað spila í einni merkjavöru og vil það ekki enn. Ég vil ekki vera alltaf í sömu skónum og hef þörf fyrir fjölbreytileika. Það er alveg möguleiki að spila alla leiktíðina án samnings og mér þætti það sko alls ekki leiðinlegt. Ég verð heldur pottþétt ekki uppiskroppa með skó!“ sagði Tucker hinn kátasti. Í fyrstu leikviku NBA á dög- unum mætti Tucker í bleikum og grænum Vans-strigaskóm en með gamla, rauða Kobe Bryant-skó frá Adidas til vara. Á heimavelli gegn New Orleans steig hann inn á völl- inn í nýjum ólífugrænum og svörtum Jordan 6 Retro Travis Scott-skóm með Cactus Jack- þema. „Ég bara varð að mæta í Travis 6 áður en einhver annar gerði það,“ sagði Tucker fyrir leikinn. Hann leitar logandi ljósi að nýjum og gömlum körfuboltaskóm hvert sem hann fer. „Í stað þess að mega bara klæðast Nike get ég nú klætt mig í hvaða skó sem er. Ég gat loksins farið út í Pharr- ell N.E.R.D. frá Adidas um daginn og þeir eru svakalegir. Einir af mínum uppáhalds.“ Skótískunni halda engin bönd á leikvöllum NBA þar sem áhorfendur fylgjast grannt með jafnt körfubolta og skóm. P.J. Tucker í búningi Houston Rockets. NORDICPHOTOS/GETTY Str. 36-52/54 Fleiri litir BUXUR Bæjarlind 6 • S. 554 7030 Við erum á Facebook kr. 7.900.- kr. 9.800.- kr. 12.900.- Skeifunni 8 • 108 Reykjavík • Sími: 517 6460 • www.belladonna.is Verslunin Belladonna NETVERSLUN WWW.BELLADONNA.IS NÝJAR VÖRUR Í HVERRI VIKU 4 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 7 . N ÓV E M B E R 2 0 1 9 F I M MT U DAG U R 0 7 -1 1 -2 0 1 9 0 5 :0 2 F B 0 5 6 s _ P 0 3 8 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 3 1 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 9 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 6 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 4 2 B -F 4 1 0 2 4 2 B -F 2 D 4 2 4 2 B -F 1 9 8 2 4 2 B -F 0 5 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 A F B 0 5 6 s _ 6 _ 1 1 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.