Fréttablaðið - 07.11.2019, Side 38

Fréttablaðið - 07.11.2019, Side 38
7 . N Ó V E M B E R 2 0 1 9 F I M M T U D A G U R26 S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð GOLF Haukur Örn Birgisson, forseti Golfsambands Íslands, segir lík­ urnar fara dvínandi á því að mót á Evrópumótaröð kvenna í golfi fari fram á Íslandi í ljósi þess hversu hár kostnaður því fylgir að halda slíkt mót á Íslandi. Golfsambandið hefur ekki slegið hugmyndina út af borð­ inu en Haukur segist ekki eiga von á því að úr því rætist á næstunni. Fréttablaðið greindi frá því síð­ asta sumar að Evrópumótaröðin hefði sýnt því áhuga á að bæta við móti á Íslandi og staðfestu bæði Haukur og fjölmiðlafulltrúi móta­ raðarinnar að áhugi væri til staðar sem mætti rekja til ársins 2017. Um er að ræða næst sterkustu mótaröð heims á eftir þeirri bandarísku og á Ísland einn fulltrúa á mótaröðinni, Skagameyna Valdísi Þóru Jóns­ dóttur. Valdís Þóra náði besta árangri sem íslenskur kylfingur hefur náð á Evrópumótaröðinni þegar hún lenti í þriðja sæti í fyrra. Þá hafa Guðrún Brá Björgvinsdóttir og Ólafía Þór­ unn Kristinsdóttir einnig leikið stök mót á mótaröðinni undanfarin ár en Ólöf María Jónsdóttir varð fyrsti kylfingurinn sem komst inn á móta­ röðina árið 2003. „Við höfum ekki setið formlegan fund um þetta mál í nokkurn tíma, ég hef nokkrum sinnum hitt á fram­ kvæmdastjóra mótaraðarinnar á ráðstefnum erlendis og við höfum rætt þetta þar án þess að sitja form­ legan fund. Það sem tefur málið og kemur í veg fyrir að þetta sé komið á teikniborðið hjá Golfsambandinu er sá mikli kostnaður sem fylgir því að halda slíkt mót,“ sagði Haukur í samtali við Fréttablaðið, spurður út í tíðindi af viðræðunum. „Kostnaður við mót af þessari stærðargráðu er mikill og lendir á mótshaldara. Sá kostnaður er yfirleitt yfirstiginn með aðkomu styrktar aðila í tengslum við mótið. Stærsti kostnaðarliðurinn er verð­ launaféð í mótinu og svo auðvitað framkvæmdakostnaðurinn. Þetta eru umtalsverðar upphæðir sem hlaupa á tugum milljóna króna sem við þyrftum að finna.“  Haukur segir að fyrir vikið séu ekki mörg íslensk fyrirtæki sem koma til greina sem leiði til þess að viðræður þurfi helst að fara fram við fyrirtæki erlendis. „Það yrðu ekki mörg fyrirtæki til­ búin að standa í slíkum kostnaði, þá helst fyrirtæki sem starfa á alþjóð­ legum markaði en á Íslandi eru þau bara ekki mjög mörg. Því miður munu þessar viðræður líklegast alltaf stranda á peningamálunum,“ segir Haukur og heldur áfram: „Það yrði frekar að leita erlendra samstarfsaðila í þessum málum en það er erfiður markaður að komast á. Það er ekki á stefnuskrá GSÍ að fara í slíka fjársjóðsleit á næstunni þegar líkurnar eru litlar á að árang­ ur náist.“ GSÍ er ekki búið að slá hugmynd­ ina út af borðinu en Haukur segir líkurnar fara minnkandi. „Við munum ekki útiloka neitt og verðum alltaf tilbúin að skoða möguleikana sem koma upp. Við værum auðvitað til í að halda golf­ mót fyrir bestu kylfinga Evrópu en fjárhagsleg hlið málsins stendur í vegi fyrir því á litlum markaði,“ segir Haukur spurður hvort mögu­ leikinn sé til staðar að halda mót af slíkri stærðargráðu á Íslandi. kristinnpall@frettabladid.is SPORT FÓTBOLTI Erik Hamrén og Freyr Alexandersson tilkynna í dag hvaða 23 leikmenn urðu fyrir valinu fyrir lokaleiki Íslands í H­riðli undan­ keppni EM 2020. Fram undan eru tveir leikir gegn Tyrklandi og Mol­ dóvu á útivelli þar sem Ísland verður að taka fullt hús stiga til að halda lífi í veikri von Strákanna okkar um að komast beint inn á lokakeppni Evr­ ópumótsins næsta sumar. Íslenska liðið kemur saman til æfinga á mánudaginn í Tyrklandi þar sem liðið mun æfa í aðdraganda leikj­ anna áður en haldið verður til Istan­ búl þar sem Ísland mætir Tyrklandi að viku liðinni á heimavelli Galatas­ aray sem tekur 52.000 manns í sæti. Ísland þarf að vinna báða leikina í þessu landsleikjahléi og treysta á að Andorra takist að næla í óvænt stig gegn Tyrklandi á heimavelli sínum. Þannig lifir veik von Íslands um að komast beint inn í lokakeppnina en líklegra er að Strákarnir okkar þurfi að fara í umspil í gegnum Þjóðadeildina sem fer fram í vor. Ólíklegt er að Jóhann Berg Guðmundsson og Aron Einar Gunnarsson geti gefið kost á sér enda báðir að glíma við meiðsli. Aron Einar birti myndband á Insta­ gram­reikningi sínum í vikunni að hann væri farinn að taka næstu skref í endurhæfingu sinni en hæpið er að hann hafi heilsu til að taka þátt í leikjum Íslands og Tyrk­ lands. Þá sagði knattspyrnustjóri Burnley á dögunum að það væru enn nokkrar vikur í að Jóhann Berg kæmist aftur út á völl. Þá er óvíst með þátttöku Rúnars Más Sigurjónssonar, leikmanns Astana í Kasakstan, sem fór meiddur af velli í leik Íslands og Frakk­ lands. Rúnar sat á bekknum í síðasta leik Astana en hefur ekki komist inn á völlinn frá Frakkaleiknum. Það eru hins vegar engar líkur á því að Albert Guð­ mundsson verði í hópnum á meðan hann nær sér af meiðslum á ökkla. Aðrir leikmenn ættu að vera heilir heilsu og geta gefið kost á sér fyrir verkefnið. – kpt Hamrén kynnir landsliðshópinn í dag Í fjórum leikjum í undankeppninni hefur engu liði tekist að skora hjá Tyrkjum í Tyrklandi. Langsótt að fjármagna mót af þessari stærðargráðu á Íslandi Forseti Golfsambands Íslands segir það orðið ólíklegt að mót á Evrópumótaröð kvenna í golfi fari fram á Íslandi þrátt fyrir að báðir aðilar hafi sýnt því áhuga. Kostnaðurinn við að halda slíkt mót hleypur á tugum milljóna og fellur á þann sem heldur mótið sem gerir frekari viðræður erfiðari. Valdís Þóra sem slær hér af teig hefur náð bestum árangri Íslendinga á Evrópumótaröðinni. MYND/LET/TRISTAN JONES Því miður munu þessar viðræður alltaf standa á peningamál- unum sem fylgja slíku móti. Haukur Örn Birgis- son, forseti GSÍ Erum með mikið úrval af allskonar bílaverkfærum á frábæru verði! ViAir 12V loftdælur í miklu úvali. Hleðslutæki 12V 6A 6T Búkkar 605mm Par Jeppatjakkur 2.25t 52cm. Omega Viðgerðarkollur 4.995 9.999 17.995 7.495 Smáratorgi 1, 201 Kópavogi, sími 588 6090, vl@verkfaeralagerinn.is Mán.-fim. kl. 9-18, fös. kl. 9-18:30, lau. kl. 10-18, sun. kl. 12-17 Verkfæralagerinn KEILA Arnar Davíð Jónsson var grátlega nærri því að verða fyrsti Íslendingurinn til þess að tryggja sér sigur á móti sem er hluti af heimsmótaröðinni sem og banda­ rísku mótaröðinni í keilu í gær þegar hann var einum pinna frá sigri á Kuwait International mót­ inu. Arnar Davíð mætti einum fremsta keiluspilara heims, Dom­ inic Barrett, í úrslitunum þar sem Englendingurinn hafði nauman 278­277 sigur. Arnar fór þó ekki tómhentur heim því hann fékk um þrjár millj­ ónir íslenskra króna fyrir afrek sitt. – hó Einum pinna frá sigri í Kúveit FÓTBOLTI Tilkynnt var í gær að Ólafur Jóhannesson myndi koma í þjálfarateymi Stjörnunnar og stýra liði Garðbæinga ásamt Rúnari Páli Sigmundssyni. Ólafur skrifaði undir tveggja ára samning við Stjörnuna í gær, rúmum mánuði eftir að Valur ákvað að framlengja ekki samning Ólafs. „Það voru nokkur lið sem ræddu við mig í haust en á þeim tímapunkti vildi ég bara kúpla mig aðeins frá fótboltanum og ég var búinn að stilla mig inn á það að taka mér bara ársfrí frá bolt­ anum,“ segir Ólafur Davíð Jóhann­ esson í samtali við Fréttablaðið. „Eftir að ég kom heim úr fríi þar sem ég náði að hlaða batteríin hafði Rúnar Páll samband við mig og mér leist vel á þær hugmyndir sem hann hafði um samstarf okkar um þjálfun liðins. Ég fann það að löngunin til þess að halda áfram að þjálfa kom aftur og ég ákvað að slá til,“ segir Ólafur enn fremur en hann og Rúnar Páll munu stýra liðinu í sameiningu. – hó Ólafur til liðs við Stjörnuna Rúnar Páll og Ólafur á blaðamanna- fundi í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR 0 7 -1 1 -2 0 1 9 0 5 :0 2 F B 0 5 6 s _ P 0 3 8 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 3 1 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 9 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 6 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 4 2 B -F 4 1 0 2 4 2 B -F 2 D 4 2 4 2 B -F 1 9 8 2 4 2 B -F 0 5 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 A F B 0 5 6 s _ 6 _ 1 1 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.