Fréttablaðið - 07.11.2019, Side 40
Kær bróðir og frændi,
Benedikt Alfreðsson
Silfurbraut 6, Höfn í Hornafirði,
andaðist á Hjúkrunarheimilinu á Höfn
þann 4. nóvember.
Fyrir hönd aðstandenda,
Ljósbjörg Alfreðsdóttir
Ástkær frænka okkar,
Aðalheiður Lovísa
Rögnvaldsdóttir
verður jarðsungin
frá Siglufjarðarkirkju
laugardaginn 9. nóvember kl. 14.00.
Fyrir hönd aðstandenda,
Guðbjörg Jóhannsdóttir Bjarni Árnason
Ástkær eiginmaður minn og besti vinur,
faðir, tengdafaðir, afi og langafi,
Alfreð Eyjólfsson
kennari og skólastjóri,
Marteinslaug 1, Reykjavík,
lést á Landspítalanum við Hringbraut
31. október. Hann verður jarðsunginn frá
Hallgrímskirkju þriðjudaginn 19. nóvember kl. 15.00.
Guðjónía Bjarnadóttir
Kristín Alfreðsdóttir
Eyjólfur Bjarni Alfreðsson Þóra B. Valdimarsdóttir
Alfreð Jóhannes Alfreðsson
barnabörn og barnabarnabarn.
Ástkær móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
Elín Pálmadóttir
frá Snóksdal,
lést í faðmi fjölskyldunnar á
hjúkrunarheimilinu Eir í Grafarvogi
2. nóvember. Jarðarförin fer fram frá
Guðríðarkirkju í Grafarholti þriðjudaginn 12. nóvember
kl. 13.00. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á
Alzheimersamtökin.
Elvira Viktorsdóttir Guðmundur St. Sigmundsson
Kristín Viktorsdóttir Sveinbjörn Guðjónsson
Lýður Pálmi Viktorsson Sigríður Jóna Eggertsdóttir
Elín Berglind Viktorsdóttir Unnar Smári Ingimundarson
ömmu- og langömmubörn.
540 3320 • gardheimar.is
blomabud@gardheimar.is
Leyfðu okkur
að aðstoða þig!
Við þökkum auðsýnda samúð og
hlýhug vegna andláts ástkærrar
móður okkar, tengdamóður, ömmu
og langömmu,
Sigríðar Jónsdóttur
Bólstaðarhlíð 41,
Reykjavík.
Sérstakar þakkir til félagsmiðstöðvar Bólstaðarhlíðar,
heimaþjónustunnar og starfsfólks Vífilsstaða auk annarra
sem sinntu henni af alúð.
Ágúst Sigurjónsson Sesselja Hrönn Jensdóttir
Helga Jónína Sigurjónsdóttir Hafsteinn Már Ársælsson
Guðný Sigurjónsdóttir Svavar M. Sigurjónsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Okkar ástkæra
Sigríður Stefánsdóttir
frá Norður-Reykjum,
áður til heimilis að Ljósheimum 8,
lést á hjúkrunarheimilinu Eir
miðvikudaginn 25. september.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey
að ósk hinnar látnu.
F.h. aðstandenda,
Sigurður Hálfdán Leifsson
Sængin er búin að vera í vöru-þróun hjá okkur í tæpt ár. Í henni er íslensk ull sem búið er að fínkemba í nokkur lög. Svo er f jölskyldufyrirtæki í Þýskalandi sem saumar
hana fyrir okkur,“ segir Sigríður Jóna
Hannesdóttir, verkefnastjóri hjá Ístex
í Mosfellsbæ, og hampar nýjustu afurð
fyrirtækisins, léttri og dúnmjúkri sæng.
Í sængunum er mislit ull sem ekki er
gjaldgeng í lopa og band, að sögn Sig-
ríðar Jónu. Hún bendir á að jákvætt sé
að geta nýtt afgangsull með þessum
hætti. „Við notum bæði togið og þelið,
þvoum það mjög vel og fínkembum.
Ullin er svo lagskipt í hólfum í sænginni
og vegna meðhöndlunarinnar fer hún
ekki í hnökra eða hnúta þó að sængin sé
þvegin. Eins má setja sængina á vægan
hita í þurrkara,“ lýsir hún.
Fyrir þá sem leggja áherslu á að
kaupa vörur úr íslensku hráefni er
þarna greinilega kominn annar val-
kostur en dúnninn. En tauið er eflaust
í báðum tilfellum erlent. Í ullarsæng-
unum er það úr 100% bómull. Sigríður
Jóna segir þýska fyrirtækið sem sér um
saumaskapinn útvega það. „Hún er
okkur dýrmæt, þessi þýska fjölskylda,
og hefur verið einstaklega hjálpleg og
þolinmóð við að búa til réttu sængina
sem við erum ánægð með,“ segir hún
og bætir við að reyndar sé um tvær
þykktir að ræða, heilsárssæng og vetr-
arsæng. Heilsárssængin heiti Embla
og vetrarsængin Iðunn. „Iðunn er með
tveimur lögum, meira af ull en Embla,“
útskýrir hún og bætir við: „Kosturinn
við íslensku ullina er hvað hún andar
vel og hún er líka létt. Það er rúmlega
eitt kíló í heilsárssænginni og örlítið
meira í vetrarsænginni.“
Koddar úr sama hráefni eru í vöru-
þróun hjá Ístex, upplýsir Sigríður Jóna.
Hún segir ullarsængurnar ekki komnar
í verslanir en hins vegar hægt að panta
þær á heimasíðunni lopidraumur.is og
heimsending sé ókeypis innanlands.
gun@frettabladid.is
Afgangsull nýtt í sængur
Íslenska ullin hefur haldið yl á þjóðinni um aldir. Nú er komin ný sæng á markaðinn
hjá Ístex. Sængin er bæði létt og hlý og í henni leikur ullin okkar aðalhlutverkið.
Við sem höfum prófað sængurnar erum hæstánægð með þær. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Merkisatburðir
1550 Jón Arason, biskup á Hólum, og synir hans, Björn
Jónsson, prestur á Melstað og Ari Jónsson, lögmaður,
eru teknir af lífi í Skálholti eftir harðvítugar deilur á milli
lútherskra manna og kaþólskra um völd í landinu.
1659 Frakkar og Spánverjar gera með sér Pýreneasátt-
málann og binda þannig enda á 24 ára stríð milli ríkjanna.
1718 Danska herskipið Giötheborg strandar við Ölfusár-
ósa. Áhöfnin bjargast.
1931 Héraðsskólinn í Reykholti er vígður, en hann var
einn af níu skólum, sem stofnaðir voru að frumkvæði
Jónasar Jónssonar frá Hriflu.
1972 Richard Nixon vinnur yfirburðasigur á George
McGovern í forsetakosningum í Bandaríkjunum.
1976 Fyrsti hluti Hitaveitu Suðurnesja er tekinn í notkun.
1987 Ólafur Ragnar Grímsson verður
formaður Alþýðubandalagsins og tekur
við af Svavari Gestssyni.
1989 Kommúnistastjórnin í Austur-
Þýskalandi segir af sér en Egon Krenz
er áfram þjóðhöfðingi.
1991 Bandaríski körfuknattleiksmaður-
inn Magic Johnson tilkynnir að hann sé með HIV sem batt
enda á feril hans.
1995 Fellibylurinn Angela gengur yfir Filippseyjar og
Víetnam með þeim afleiðingum að 882 farast. Vindhrað-
inn nær 58 m/s með hviðum upp í 80 m/s.
1996 Fellibylur gengur yfir Andhra Pradesh á Indlandi
með þeim afleiðingum að 2.000 farast.
2000 Hópur ræningja ræðst á Þúsaldarhvelfinguna í
London til að stela Þúsaldardemantinum en eru gripnir
af lögreglu.
2000 Hillary Clinton tekur sæti í öldungadeild Banda-
ríkjaþings.
7 . N Ó V E M B E R 2 0 1 9 F I M M T U D A G U R28 T Í M A M Ó T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
TÍMAMÓT
0
7
-1
1
-2
0
1
9
0
5
:0
2
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
4
2
B
-E
0
5
0
2
4
2
B
-D
F
1
4
2
4
2
B
-D
D
D
8
2
4
2
B
-D
C
9
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
0
5
6
s
_
6
_
1
1
_
2
0
1
9
C
M
Y
K