Fréttablaðið - 07.11.2019, Síða 56

Fréttablaðið - 07.11.2019, Síða 56
Dreifing dreifing@postdreifing.is Ef blaðið berst ekki 800 1177 Við segjum fréttir Smáauglýsingasíminn og skiptiborð 550 5000 Ritstjórn 550 5070 ritstjorn@frettabladid.is Auglýsingadeild 550 5050 auglysingar@frettabladid.is Prentun Torg. ehf mest lesna dagblað landsins. ÞÚ GETUR NÁLGAST FRÍTT EINTAK AF FRÉTTABLAÐINU VÍÐSVEGAR UM LANDIÐ. Óskir þú eftir því að fá blaðið í áskrift, hafðu samband við Póstdreifingu. Einu sinni heyrði ég um mann að hann léti ekki góða fýlu fram hjá sér fara. Það var hundur í honum og maðurinn skemmtilegur eftir því. Eftir margra ára vangaveltur er niður- staða mín að ekkert geti skýrt fýluna betur en að maðurinn var svangur. Við lifum í samfélagi þar sem svengdin telst dyggð. Í samfélagi þar sem fólk lætur hafa eftir sér opinberlega að uppáhaldsdrykkur þess sé vatn og að það besta sem það fær á morgnana sé spínat. Vitleysan fær að vaða uppi. Fyrir vikið felur fólk ekki lengur áfengi í skápum heldur mat. Skúff- urnar í skrifborðinu í vinnunni geyma ekki lengur vinnupappíra heldur nammið sem heldur geðinu gangandi. Ég er glöð ef ég er södd og líka mun minna glöð ef ég er svöng. Þess vegna læt ég það helst ekki henda. Ég veit að ég er ekki ein hér. Er boðið upp á mat í brúðkaupsveisl- um vegna þess að fólk getur ekki borðað heima hjá sér? Eru heitir réttir með skinku og aspas í öllum betri barnaafmælum af því að afmælisbarnið heimtar það? Nei, það er væntumþykja til gestanna sem mæta til afmælisbarns, sem einhver annar á. Í aðdraganda aðventu og jóla fer málstaður lífsglaða fólksins á dagskrá, fólksins sem elskar kjöt, er sjúkt í sykraðar kartöflur og sósur og fer á taugum yfir inn- liti á bráðamóttöku í kjölfarið. Það er ekki eins og við séum með hjartaflökt alla daga. Vandaður undirbúningur jólahalds felst í að teikna upp þétt jólaboð, ákveða hvaða hugmyndafræði á að vinna með í röðum á hlaðborðunum og að muna að gefa af sér, til dæmis kenna öðrum að fara alltaf með nýjan disk í röðina, aldrei að flagga fyrri ferðum. Þannig kveðjum við fýluna saman sem samfélag. Litlu lygarnar Þorbjargar Gunnlaugsdóttur BAKÞANKAR FERSKT Á FERÐINNI * FRESH TO GO *VIÐ RÚLLUM ÞESSU UPP* / DAGLEGA MEÐ FERSKASTA ÁLEGGINU / SómaTortillur DAG HVERN LESA 96.000 ÍSLENDINGAR FRÉTTABLAÐIÐ AÐ MEÐALTALI HEIMILD: PRENTMIðLAMÆLING GALLUP APR-JÚN 2019, 12-80 ÁRA, ALLT LANDIð HAGSTOFA ÍSLANDS, MANNFJÖLDATÖLUR, 2019 - MEST LESNA DAGBLAÐ LANDSINSFRÉTTABLAÐIÐ 0 7 -1 1 -2 0 1 9 0 5 :0 2 F B 0 5 6 s _ P 0 5 6 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 5 6 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 1 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 1 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 4 2 B -C 2 B 0 2 4 2 B -C 1 7 4 2 4 2 B -C 0 3 8 2 4 2 B -B E F C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 A F B 0 5 6 s _ 6 _ 1 1 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.