Skessuhorn - 20.01.2016, Síða 1
FRÉTTAVEITA VESTURLANDS – www.skessuhorn.is 3. tbl. 19. árg. 20. janúar 2016 - kr. 750 í lausasölu
Framtíðin er
full af möguleikum
Traust fjármálaráðgjöf leggur grunn
að farsælli framtíð
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
–
1
5
-0
0
5
0
Coldfri munnúði
Fluconazol
ratiopharm
- við kvefi og hálsbólgu
Eru bólgur og verkir
að hrjá þig?
Landnámssetur Íslands,
Brákarbraut 13 – 15, Borgarnesi
Næstu sýningar
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
6
Laugardaginn
23. janúar kl. 20:00
Sunnudaginn
24. janúar kl. 16:00
Laugardaginn
13. febrúar kl. 20:00
Þorrahlaðborð sama kvöld,
hefst kl. 18:00
Rafræn áskrift
Ný áskriftarleið
Pantaðu núna
Síðdegissólin og einkum sólsetrið við sjávarsíðuna hefur verið afar fallegt undanfarna daga hér við vestanvert landið. Þessa mynd tók Sigurður Aðalsteinsson í fjörunni
í Hvalfirði, skammt fyrir neðan Saurbæ og Hótel Glym, síðdegis á mánudaginn. Geislar sólar böðuðu fjörðinn og fjöllin rósrauðum ævintýrablæ í miðsvetrarblíðunni.
Nú líður að því að Vesturlands-
deildin í hestaíþróttum rúlli af stað.
Fyrsta mótið verður föstudagskvöld-
ið 5. febrúar í reiðhöllinni Faxaborg
í Borgarnesi. Stofnun Vesturlands-
deildarinnar hefur verið í farvatninu
undanfarin ár en undirbúningsnefnd
var sett saman á haustmánuðum og
nú er tekin við önnur nefnd sem sér
um framkvæmd mótanna.
„Í stuttu máli er Vesturlandsdeild-
in tvíþætt stigakeppni í Hestaíþrótt-
um, það er bæði einstaklings- og
liðakeppni. Keppt er í fimm grein-
um hestaíþrótta á fjórum kvöldum í
febrúar og mars. Skráðir eru til leiks
24 knapar sem mynda sex fjögurra
manna lið. Þrír keppendur úr hverju
liði mæta til leiks í hverri grein.
Óhætt er að segja að deildin saman
standi af sterkustu knöpum svæðis-
ins og því mikil veisla framundan í
Faxaborg,“ segir í tilkynningu frá
Vesturlandsdeildinni.
Keppniskvöldin eru sem hér seg-
ir og áætlað er að keppni hefjist öll
kvöldin klukkan 19.00. Föstudaginn
5. febrúar verður keppt í fjórgangi.
Föstudaginn 19. febrúar í fimmgangi
og fimmtudaginn 11. mars í fimm-
gangi. Miðvikudaginn 23. mars,
daginn fyrir skírdag, verður keppt í
gæðingafimi og fljúgandi skeiði,“ að
sögn Arnar Ásbjörnssonar sem sæti á
í framkvæmdanefnd mótsins.
mm
Líður að fyrstu keppni í
Vesturlandsdeildinni í hestaíþróttum
Svipmynd frá Vesturlandssýningu í Faxaborg. Hér taka vestlenskar valkyrjur hrossin
til kostanna.
Undanfarna daga hefur verið góð-
ur afli hjá þeim bátum sem róa frá
höfnum í Snæfellsbæ. Pétur Boga-
son hafnarvörður segir í samtali við
Skessuhorn að aflabrögð hafi auk-
ist jafnt og þétt síðustu daga. Neta-
báturinn Bárður SH kom með um
24 tonn að landi á mánudagskvöld
en þeir tvílönduðu og á sunnudag
var aflinn um 21 tonn. Dragnótar-
bátar hafa einnig verið með ágætan
afla að sögn Péturs. Til dæmis var
Sveinbjörn Jakobsson SH með tæp
14 tonn á mánudag og þar af voru
rúmlega átta tonn af kola. Línu-
bátar gera það einnig gott og seg-
ir Pétur og afli þeirra fari í tíu tonn
yfir daginn, en góður afli hafi ver-
ið í byrjun mánaðarins þar sem afl-
inn fór upp í 20 tonn og var algjört
mok hjá þeim línubátum sem lengst
sóttu á miðin. Að lokum gat Pétur
þess að 21 bátur landi þessa dagana
í Ólafsvík og sé nóg að gera hjá öll-
um.
af
Ágæt veiði báta í Snæfellsbæ
Pétur Pétursson skipsverji á Bárði SH sem landaði 24 tonnum á mánudagskvöld,
en aflinn fékkst í aðeins fjórar trossur.