Skessuhorn - 20.01.2016, Blaðsíða 10
MIÐVIKUDAGUR 20. JANÚAR 201610
við gildandi aðalskipulag en á efri
hæðum er heimild fyrir annað hvort
íbúðum eða þjónustu, til dæmis gist-
ingu eða skrifstofum.
Leyfilegt er að byggja bílakjallara
og auka nýtingarhlutfall lóðarinn-
ar þar með úr 2,01 í 2,41. Byggingar
yrðu þá að hámarki 5.541 fermetrr.
Engin kvöð er um gegnumakstur að
Borgarbraut 59.
Þeim sem vilja gera athugasemd-
ir við breytingartillöguna eða koma
sjónarmiðum sínum á framfæri er
bent á að frestur til slíks nær til föstu-
dagsins 29. janúar næstkomandi.
kgk
Rós vikunnar í vetrarkærleiknum hjá
Blómasetrinu Kaffi kyrrð í Borgar-
nesi hlýtur Heiður Hörn Hjartar-
dóttir á Bjargi. Eins og segir í tilnefn-
ingunni hlýtur hún rós fyrir dugnað
í starfi. Henni er annt um samfélag
sitt og sérstakar þakkir fær hún fyrir
að virkja útileiki barna. mm
Heiður Hörn er
rósahafi vikunnar
Auglýst hefur verið ný deiliskipu-
lagstillaga fyrir Borgarbraut 8-8a
í Stykkishólmi, þar sem Hót-
el Stykkishólmur er til húsa. Nú-
verandi hótelbygging er á þremur
hæðum en tillagan gerir ráð fyr-
ir að heimila hækkun hennar um
tvær hæðir frá samþykktum teikn-
ingum auk fimm hæða viðbygging-
ar syðst á lóðinni. Enn fremur er
lagt til lóðin að verði stækkuð um
2.300 fermetra. Hún yrði þá alls
12.100 fermetrar og heimild fyrir
9.950 fermetra byggingu á lóðinni
sem er 5.750 m2 aukning m.v. nú-
verandi byggingarmagn. Nýting-
arhlutfall lóðarinnar verði því mest
82%.
Ekkert deiliskipulag er til af lóð-
inni en í aðalskipulagi Stykkis-
hólmsbæjar fyrir árin 2002-2020 er
svæðið skilgreint sem verslunar- og
þjónustusvæði. Gert er ráð fyrir því
í aðalskipulagi að framtíðarupp-
bygging verslunar- og þjónustu-
bygginga verði við Borgarbraut
og starfsemi sem kunni að njóta
góðs af nálægð sinni við hótelið
eigi að hafa forgang. Markmiðið
með nýju deiliskipulagi lóðarinnar
við Borgarbraut 8-8a er að stuðla
að markvissri uppbyggingu á starf-
semi hótelsins en einnig ákvarða
hvar og hvernig megi byggja inn-
an lóðamarkanna. Haft er orð á því
í tillögunni að þar sem hótelið sé
á áberandi stað í byggðinni skuli
vanda til verksins og gæta að góðu
samræmi og heildaryfirbragði ný-
bygginga og eldri hluta.
Hámarks hæð bygginga verð-
ur 16,7 m frá gólfplötu ofan á þak,
að undanskildu lyftuhúsi og tækni-
rýmum, sem mega vera hærri. Fjar-
lægð hótelsins frá næstu byggð,
sem er íbúabyggð, er meiri en 40
m og því aðeins er gert ráð fyrir að
mögulegri stækkun fylgi óverulegt
skuggavarp.
Sigurbjartur Loftsson, skipu-
lags- og byggingafulltrúi í Stykkis-
hólmi, sagði í samtali við Skessu-
horn að nýja deiliskipulagið væri til
þess gert að ákvarða hvar og hvern-
ig yrði heimilt að byggja á lóðinni
í framtíðinni. Engin áform væru
uppi um framkvæmdir sem myndu
fullnýta heimildir nýs deiliskipu-
lags, að því gefnu að það yrði sam-
þykkt.
Hins vegar bætti Sigurbjart-
ur því við að uppi væru hugmynd-
ir um að bæta við einni hæð ofan
á miðbyggingu hótelsins. „Bygg-
inganefnd hefur samþykkt eina
hæð ofan á miðbygginguna og það
mál er bara í ferli,“ segir Sigur-
bjartur. Það að ferli er aftur á móti
stutt á veg komið. „Enn hefur ekki
verið gefið út byggingarleyfi. Það á
eftir að skila uppdráttum og fleiri
gögnum sem nauðsynleg eru til að
fá leyfi, ef ráðast á í framkvæmd-
ina.“ kgk
Deiliskipulagstillaga sem heimilar
verulega stækkun á Hótel Stykkishólmi
Hótel Stykkishólmi verður heimilt að hækka hótelbygginguna um tvær hæðir,
auk fimm hæða viðbyggingar til suðurs, verði ný deiliskipulagstillaga sam-
þykkt. Teikningin er tekin úr tillögunni en hana má nálgast í heild sinni á vef
Stykkishólmsbæjar.
Hótel Stykkishólmur í núverandi mynd.
Kynningarfundur um deiliskipulag
lóðanna að Borgarbraut 57-59 var
haldinn í Borgarnesi að kvöldi þriðju-
dagsins í liðinni viku. Kynntar voru
fyrirhugaðar breytingar á gildandi
deiliskipulagi, sem áður hafði mætt
töluverðri andstöðu íbúa í nágrenn-
inu, meðal annars vegna skugga-
varps og skerts útsýnis sem bygg-
ingar á lóðinni myndu hafa í för með
sér. Einnig höfðu íbúar lýst áhyggj-
um af vindstyrk í kringum bygging-
arnar. Breytingartillögunum sem
kynntar voru á fundinum er ætlað
að koma til móts við þær óskir. Sam-
kvæmt þeim er dregið úr bygginga-
magninu og byggingum raðað öðru-
vísi á lóðunum. Bílastæðabygging-
ar hafa verið fjarlægðar úr skipulag-
inu og hefur bílastæðum þess í stað
verið komið fyrir aftan við húsin. Þó
er heimild til að byggja bílakjallara.
Er það gert til að skerða síður útsýni
og draga úr áhrifum skuggavarps við
Kjartansgötu og Kveldúlfsgötu sem
liggja norðan við svæðið. Þá er gert
ráð fyrir tengibyggingu milli jarð-
hæðar Borgarbrautar 57 og 59 til að
draga úr vindstyrk.
Í samræmi við
aðalskipulag
Það skýra sjónarmið er áfram haft
að leiðarljósi að fasteignirnar sem
rísa eiga á lóðinni verði hagkvæmar
í byggingu, enda um að ræða verð-
mæta lóð í miðbæ Borgarness. Hug-
myndin felur enn í sér að háreist hús
rísi meðfram Borgarbraut með versl-
unar- og þjónusturými á jarðhæðum
en með ýmsum formum íbúðahús-
næðis á efri hæðum, í samræmi við
gildandi aðalskipulag Borgarbyggð-
ar. Enn er því gert ráð fyrir töluverðu
byggingamagni þó það sé minna en
tilgreint er í gildandi deiliskipulagi
og öðruvísi komið fyrir.
Skilyrði um
byggingamagn
Lóðin að Borgarbraut 55 verður
1.627 fermetrar og byggingar að há-
marki 1.192 fermetrar. Heimilt er að
byggja á þremur hæðum allt að 9,7
metra í átt til himins. Á jarðhæð skal
vera verslun eða þjónusta en heim-
ilt er að byggja íbúðir á efri hæðum.
Kvöð er um gegnumakstur á lóðinni
sem tengir Kjartansgötu við Borgar-
braut.
Gert er ráð fyrir því að lóðin að
Borgarbraut 57 verði 2.349 fermetr-
ar að flatarmáli með 2.941 ferm.
byggingu. Leyfileg hæð byggingar er
21 metri á sjö hæðum, verslunar- og
þjónusturýmum á jarðhæð, en íbúð-
arhúsnæði fyrir 60 ára og eldri á efri
hæðum hússins. Heimilt er að hækka
nýtingarhlutfall lóðarinnar úr 1,25 í
1,52 ef bætt verður við hæð neðan-
jarðar. Yrði byggingin þá 3.567 fer-
metrar. Rétt eins og á Borgarbraut
55 er gert ráð fyrir gegnumakstri sem
tengir Borgarbraut og Kjartansgötu.
Að Borgarbraut 59 er gert ráð
fyrir 2.284 fermetra lóð með 4.597
ferm. byggingu á fimm hæðum og
skal jarðhæðin tengjast byggingu á
lóð númer 57. Verslun eða þjónusta
skal vera á jarðhæðinni í samræmi
Tillögur að breyttu deiliskipulagi við miðbæjarreit í Borgarnesi
Hér er horft yfir svæðið sem skipulagstillagan nær yfir. Svona gæti Borgarbraut 55-59 litið út ef tillögur að breytingum við gildandi
deiliskipulag ná fram að ganga. Séð frá Hjálmakletti.
Samanburður á gildandi deiliskipulagi (að neðan) og tillögunum sem kynntar
voru á dögunum (að ofan).