Skessuhorn


Skessuhorn - 20.01.2016, Blaðsíða 29

Skessuhorn - 20.01.2016, Blaðsíða 29
MIÐVIKUDAGUR 20. JANÚAR 2016 29 vsv Hvalfjarðarsveit - í dag 20. janúar Opið hús fyrir eldri borgara í Fanna- hlíð milli kl. 16 og 18. Skúli Þórðarson sveitarstjóri segir frá fjárhagsáætlun Hvalfjarðar- sveitar fyrir árið 2016. Anna G. Torfadóttir myndlistamaður kynnir sig og sýnir grafík og silfurskart- gripi. Akranes - fimmtudagur 21. janúar ÍA tekur á móti Hamri í 1. deild karla í körfuknattleik kl. 19:15. Leikið verður í íþróttahúsinu við Vestur- götu. Borgarnes - fimmtudagur 21. janúar Félagsvist í safnaðarheimilinu Félagsbæ. Fyrsta kvöldið í þriggja kvölda keppni - sem dreifist á fjögur kvöld. Góð kvöld- og lokaverðlaun. Veitingar í hléi. Allir velkomnir. Akranes - föstudagur 22. janúar Súputónleikar Tónlistarskólans á Akranesi í hádeginu á bóndadag- inn. Þorri verður boðinn velkominn með hádegistónleikum nemenda í anddyri skólans kl. 12:05. Kvenna- kórinn Ymur framreiðir og selur heita og matarmikla súpu. Verð kr. 1.000.- Borgarnes - laugardagur 23. janúar Sýning á ljósmyndum eftir Ómar Örn Ragnarsson opnar í Safna- húsinu í Borgarnesi kl 13:00. Sýn- ingin hefur hlotið heitið Norðurljós vegna þema myndanna og verður hún opin til 26. febrúar. Borgarnes - laugardagur 23. janúar Mr. Skallagrímsson snýr aftur. Í tilefni af 10. starfsári Landnámsset- ursins í Borgarnesi mun Benedikt Erlingsson flytja hinn óborganlega einleik sinn um Egil Skallagrímsson. Benedikt frumsýndi einleikinn við opnun Landnámssetursins 13. maí 2006 og sló sýningin algjörlega í gegn. Sýningar verða bæði föstu- daginn 23. janúar og laugardaginn 24. janúar kl. 20. Miðasala á midi. is og í Landnámssetri. Miðaverð kr. 3.900 kr. Borgarbyggð - sunnudagur 24. janúar Messa í Borgarneskirkju kl. 11:00 og Guðsþjónusta í Brákarhlíð kl. 13.45. Organisti: Steinunn Árnadóttir. Prestur: Þorbjörn Hlynur Árnason. Stykkishólmur - sunnudagur 24. janúar Félagsvist í Setrinu kl. 15:30. Að- gangseyrir kr. 500. Á döfinni Nýfæddir Vestlendingar Starfsmaður óskast á verkstæði Vélabær ehf., bíla- og búvélaverk- stæði Borgarbyggð óskar eftir starfs- manni vönum viðgerðum á bílum, dráttar-vélum og vélum tengdum landbúnaði. Þarf að geta hafið störf sem fyrst. Upplýsingar í síma 435-1252 og 893-0688, Björn, eða í tölvupósti: velabaer@vesturland.is. Þrif í heimahúsum Tek að mér þrif í heimahúsum á Akranesi. Er ódýr. Nánari upplýsingar í síma 863-1199. Til sölu rúlluvél Welger RP 200. Mjó sópvinda. Verð 300 þús. + vsk. Uppl. í síma 861-3878, Þröstur. Til sölu rúlluvél Welger RP 200. Breið sópvinda, vantar topphlíf. Verð 450 þús. + vsk. Uppl. síma 861-3878, Þröstur. Til sölu notuð dráttarvéladekk 1 stk. 16,9/14x30. kr.15.000, 1 stk. 11,2/10x24 kr. 7.500 og 1 stk. 9,5x24 kr. 7.500. Uppl. í síma 861-3878, Þröstur. Til sölu glæsilegt Chesterfield sófasett Til sölu glæsilegt Chesterfield sófasett: sófi, tveir stólar og skrifborð- stóll í góðu standi, selst saman. Verð- hugmynd 220 þús. kr. eða raunhæft tilboð. Sófinn er 190 cm (L) x ca. 83 cm (D) x 74 cm (H). Stóll: 106 cm (W) x 83 cm (D) x 74 cm (H). Upplýsingar í síma 696-2334 eða ispostur@yahoo. com. Lazy boy stólar Til sölu eru tveir lazy boy stólar. Eru með tauáklæði. Annar brúnn, hinn grænn. Einnig stressless stóll með lausu skammeli, leðurklæddur. Seljast á 8.000 kr. stykkið.Uppl. í síma 865-7558. Mjög vandaðar Rosewood vegg- samstæður með bar Óska eftir tilboðið. Framleiðsluár sirka 1988. Gamalt og mjög vandað. Vegg- samstæður/stofuskápur með gegn- heillum rósaviðar/rauðbrúnum viði. Í skápnum eru hillur og hurðir úr gleri með ljósum að ofan. Vinstra megin er sjónvarpsskápur og í miðjuhólfi er mjög fallegur bar með ljósi og spegl- um. Lengd: 257cm. Hæð: 200cm. Dýpt: 54cm. Tilboð óskast. Verðhug- mynd: kr. 250.000. Nánari upplýsingar í síma 867-6927 eða 431-1735 og á fridmeyhelga5@hotmail.com. Leiguhúsnæði óskast Hjón með 3 börn sem hafa mikinn áhuga á að setjast að í Borgarfirði óska eftir leiguhúsnæði. Um er að ræða trausta leigjendur, reglufólk og rólyndismanneskjur. Margrét, sími 866-5307. Húsnæði óskast Vantar tveggja herbergja íbúð til leigu á Akranesi um mánaðarmótin janúar - febrúar. Góðri umgengni og skilvísum greiðslum heitið. Meðmæli ef óskað er eftir. Uppl. í síma 867-2971 eða spalmadottir1@gmail.com. Einbýlishús í Hvalfjarðarsveit Til leigu frá næstu mánaðarmótum 105 fermetra einbýlishús í Hvalfjarðar- sveit. Hitaveita og ljósleiðari. Upp- lýsingar í síma 898-2551. Lítil íbúð óskast til leigu Er 23 ára með einn hund. Óska eftir að taka á leigu litla íbúð í Borgarnesi. Uppl. eyjoingo2304@gmail.com. Húsnæði óskast Óska eftir húsnæði til leigu í Borgar- nesi, Akranesi eða nágrenni til lengri eða skemmri tíma. Skilvísum greiðslum og topp umgengni heitið. Uppl. í síma 698-3404, Einar. Hesthús til sölu Til sölu hesthús í Selási í Borgar- nesi. Pláss fyrir 6 hesta. Uppl. í síma 848-2245. TIL SÖLU Markaðstorg Vesturlands BÍLAR / VAGNAR / KERRUR LEIGUMARKAÐUR ATVINNA ÓSKAST 6. janúar. Stúlka. Þyngd 3.545 gr. Lengd 52 sm. Foreldrar: Gyða Einarsdóttir og Guð- jón Skúli Jónsson, Akranesi. Ljósmóðir: Sigríður Berglind Birgisdóttir. 13. janúar. Drengur. Þyngd 3.410 gr. Lengd 49 sm. For- eldrar: Unnur Smáradóttir og Máni Björgvinsson, Akranesi. Ljósmóðir: Erla Björk Ólafs- dóttir. ATVINNA Í BOÐI Jákvæðni, metnaður og víðsýniwww.akranes.is SK ES SU H O R N 2 01 6 1226. fundur bæjarstjórnar Akraness verður haldinn í bæjar- þingsalnum að Stillholti 16-18, þriðjudaginn 26. janúar kl. 17:00. Fundirnir eru öllum opnir og eru bæjarbúar hvattir til að mæta og kynna sér bæjarmálin. Vakin er athygli á því að hægt er að hlusta á beina útsendingu frá fundinum á FM 95,0. Bæjarmálafundir flokkanna verða sem hér segir: Sjálfs• tæðisflokkurinn í Gamla Kaupfélaginu, laugardaginn 23. janúar kl. 10.30. Frjálsi• r með Framsókn í Haraldarhúsi, Vesturgötu 32, kjallara, gengið inn frá palli, mánudaginn 25. janúar kl. 20.00. Björt fr• amtíð í Vitakaffi, Stillholti 16-18, mánudaginn 25. janúar kl. 20.00. Samfyl• kingin í Stjórnsýsluhúsinu, 1. hæð, Stillholti 16-18, laugardaginn 23. janúar kl. 11.00. Bæjarstjórnarfundur 14. janúar. Stúlka. Þyngd 4.100 gr. Lengd 54 sm. For- eldrar: Sylvía Björk Jónsdóttir og Arnar Freyr Antonsson, Akranesi. Ljósmóðir: Drífa Björnsdóttir. 15. janúar. Stúlka. Þyngd 3.750 gr. Lengd 52 sm. Foreldrar: Monika Anna Dabrowska og Lukasz Pole- waczyk, Akranesi. Ljósmóðir: Valgerður Ólafsdóttir. 17. janúar. Drengur. Þyngd 3.820 gr. Lengd 54 sm. For- eldrar: Gunnhildur Jóns- dóttir og Ingólfur Pétursson, Akranesi. Ljósmóðir: Val- gerður Ólafsdóttir og Ragna Þ. Samúelsdóttir nemi. HÚSBÚNAÐIR / HEIMILISTÆKI Getir þú barn þá birtist það hér, þ.e.a.s. barnið! www.skessuhorn.is Í stað þess að birta uppskrift af aðalrétti í þessari viku kemur hér einföld og góð uppskrift af góðu meðlæti. Sætar kartöflur eru frábært meðlæti með flest- um mat, eru hollar og ótrú- lega bragðgóðar. Hægt er að sjóða þær, mauka, grilla eða baka í ofni. Ýmsar skemmti- legar uppskriftir má finna víða á veraldarvefnum, meðal ann- ars af fylltum sætum kartöflum og fleiru. Hér er uppskrift af sætkar- töflu frönskum, sem í senn eru holl- ar og góðar. Uppskriftin er einföld en krefst smá undirbúnings. Gott er að kaupa miðstærð af kartöflum, þær eru oft bragðbetri en þær sem eru mjög stórar. Innihald: Sætar kartöflur Smá maizenamjöl til að dreifa yfir kartöflurnar Ólívuolía Salt, pipar og krydd. Sumir nota Cumin (ekki kúmen) en aðrir kjósa cayenne pipar, paprikuduft eða karrý. Hvítlaukur getur líka virkað - allt eftir smekk! Aðferð: Hitið ofninn í 200 - 220 gráð- ur (minna ef blástur er notaður). Flysjið kartöflurnar og skerið þær í franskar. Reynið að skera þær jafnt, í sambærilega bita svo þær steikist jafnt. Hendið þeim í skál, eða legg- ið þær á bökunarplötu sem er klædd með bökunarpapp- ír (alls ekki álpappír). Dreif- ið smá maizenamjöli jafnt yfir, en engar klessur. Setjið svo nokkrar skeiðar af olíu, nóg til að hylja þær. Krydda með salti, pipar og krydd- um. Passið að franskarnar séu ekki í hrúgu á plötunni, ofan á hvor annarri því þá verða þær ekki stökkar. Bak- ið í 15 mínútur, takið plötuna út og snúið frönskunum. Best er að nota spaða og snúa nokkrum í einu með snöggri handarhreyfingu. Bakið í 10 til 15 mínútur í viðbót, eða þar til þær verða stökkar. Þær eru tilbúnar þegar þær hætta að vera glansandi appelsínugular og verða mattari. Það er mikilvægt að baka þær nógu lengi, annars verða þær ekki stökkar. Ekki hafa áhyg- gjur af því að brúnirnar brenni ör- lítið. Verði ykkur að góðu! Freisting vikunnar Franskar úr sætum kartöflum

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.