Skessuhorn


Skessuhorn - 20.01.2016, Blaðsíða 27

Skessuhorn - 20.01.2016, Blaðsíða 27
MIÐVIKUDAGUR 20. JANÚAR 2016 27 Pennagrein Krossgáta Skessuhorns Hér er ný krossgáta fyrir lesendur að leysa. Þeir sem vilja geta sent Skessuhorni lausnarorð/in á netfang- ið: krossgata@skessuhorn.is fyrir klukkan 15 á mánu- dögum. Athugið að fullt nafn og heimilisfang þarf að fylgja með lausninni. Þeir sem ekki hafa aðgang að tölvupósti sendi lausnir á Kirkjubraut 56, 300 Akra- nesi (athugið að póstleggja þarf lausnir í síðasta lagi á föstudegi). Dregið verður úr réttum innsendum lausnum og fær vinningshafinn bókagjöf frá Skessu- horni. 66 lausnir bárust við krossgátu í blaðinu í síðustu viku. Lausnin var: „Mörsugur.“ Vinningshafi er: Em- ilía Líndal Gísladóttir, Suðurgötu 43, 300 Akranesi. mm Óða- mála Örlög Flýtir sér Sefa Tölur Ábreiða Lítinn bor Læðast Trúar Hljóð- færi Dvel Lét fara Þvaga Van- þóknun Samhlj. Tók Drasl Korn Tvíhlj. Rausn Ólund Sund Orka 1000 Tíska Frekar Elfur 8 Kjökrar Þófi 13 3 Báru Reimar Skel Öf.tvíhlj Fors. Veisla Kvað Kusk Hvíldir Blaðra Ógöng- ur Sátum Skýr Minnast 7 Kona Jukk Sérhlj. 15 Frá Karl Lokað 16 Mynni Hætta Forsögn Fær Yfir- höfn 10 Rófan Alloft Tóm Tætlur Öl 5 12 Ras Leiðsl- ur Til Venda Sjór Berg- málar Listi Skordýr Væta Vottar Tuldra Fýla Hreinsa Rolla Artin Þreytir Gæfa 2 Massi Hljóð- færi 17 Tvíhlj. Eld- stæði Korn Draga Örn Átt Lélegar Hraði Ævi Ógnar Sérstök Band Vissa Naumt Sáldra Verma 9 Bók Spurn Auðug 1 Napurt 4 Þægur Ala Samhlj. 14 Erfiði Kurt Tónn Sóma Hagur Afrit 11 Mær Dýpi 6 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15 16 17 Skraflfélag Grundarfjarðar var stofnað á skraflkvöldi á Láka Hafn- arkaffi í Grundarfirði síðastliðinn miðvikudag. Félagið er það fyrsta sem stofnað er utan höfuðborgar- svæðisins þar sem Skraflfélag Ís- lands er starfrækt. Stofnfélagar voru sextán og er markmið félagsins að auka veg skrafliðkunar á Snæfells- nesi, eins og segir í fréttatilkynn- ingu. Þeim markmiðum hyggst fé- lagið ná með því að félagsmenn og aðrir áhugasamir hittist einu sinni í mánuði og spili skrafl. Einnig með því að standa fyrir viðburðum og efna til samstarfs með öðrum fé- lögum og stofnunum. Formaður Skraflfélags Grundar- fjarðar var kjörinn Gunnar Jóhann Elísson, Guðrún Björg Guðjóns- dóttir var kjörin varaformaður og meðstjórnandi er Óli Steinar Sól- mundarson. „Í október var fyrsta opna Rökk- urmótið í skrafli haldið í tilefni af árlegum Rökkurdögum í Grund- arfirði og var þátttakan þar fram- ar vonum. Heimafólk og gestir frá Skraflfélagi Íslands öttu þar kappi í skrafli og var mótið virkilega vel heppnað. Á mótinu kom fram að mikill áhugi er á skraflspilinu í bænum og hugmyndir kviknuðu um að spila skrafl reglulega. Það er ánægjulegt að skraflfélag hafi nú verið stofnað og stefnt er að því Stofnuðu Skraflfélag Grundarfjarðar að spilað verði annan miðvikudag hvers mánaðar framvegis. Öllum er velkomið að skrá sig í félagið, jafnt Grundfirðingar sem öðrum og er þátttaka ókeypis,“ segir í tilkynn- ingu frá félaginu. mm Í þungum þönkum. Veitt voru verðlaun í þremur flokkum á fyrsta skraflkvöldi félagsins. Formaðurinn sjálfur, Gunnar Jóhann, fékk verðlaun fyrir viðsjárverðasta orðið, ruslbögu. Guðrún Reynisdóttir fékk verðlaun fyrir stigahæstu lögn kvöldsins og verðlaun fyrir hæsta stigaskor í leik fékk Ingibjörg Sigurðardóttir. Nýafgreidd fjárlög fyrir 2016 bjóða ekki upp á lausnir í byggða- málum. Þar má sjá mikinn niður- skurð á fjármagni til sóknaráætl- anna og handahófskenndar að- gerðir sem bera augljós merki um skort á framtíðarsýn. Engin sam- gönguáætlun er til dæmis í gildi og hefur ekki verið síðan 2014. Verstu óvinir byggðanna eru fólksfækkun, lágt menntunarstig, hækkandi meðalaldur, erfiðar sam- göngur og einhæft atvinnulíf þar sem störfum hefur farið fækkandi. Byggðarlög sem kljást við þenn- an vanda eiga engu að síður við- reisnar von og gætu fullvel bjarg- að sér ef þau nytu þeirrar innviða- uppbyggingar sem er nauðsynleg til atvinnu- og búsetuþróunar. Þá er ég að tala um góðar samgöngur, örugga raforku og traust fjarskipti á borð við símasamband og inter- netaðgengi – allt þættir sem gera einstök svæði samkeppnishæfari en ella væri. Því miður er gæðum verulega misskipt milli landshluta hvað þetta varðar, og á meðan má spyrja hvort við við séum í raun ein þjóð í einu landi. Grunnstoðirnar þrjár Öflugar samgöngur, góð fjarskipti sem tryggja greiðar internetteng- ingar og raforkuöryggi eru grund- völlur þess að atvinnulíf þrífist og byggð þróist í landinu. Standi þessar þrjár meginstoðir sterkar í hverjum landshluta eru þær trygg- ing fyrir vænlegum búsetuskil- yrðum. Á öðrum áratug 21. ald- ar hlýtur það að teljast sjálfsagð- ur hlutur hvar á landinu sem er að hafa þessa megininnviði í lagi, ekki síst þar sem opinber stefna mið- ar að aukinni samþættingu þjón- ustu milli landshluta, sameiningu stofnana yfir sveitarfélagamörk og ekki síður sameiningu sveitarfé- laga um land allt. Slík áform velta að sjálfsögðu á því að samgöngur séu milli svæða og að internetsam- band sé nógu gott fyrir rafræna stjórnsýslu. Auk traustra innviða þurfa byggðirnar að fá að njóta auð- linda sinna, landgæða og mann- auðs. Þannig byggjast upp væn- leg búsetu- og atvinnuskilyrði á sjálfbærum forsendum. Í því ljósi er mikilvægt að sveitarfélögin eigi þess kost að njóta tekna af vaxandi ferðamannastraumi víða um land að þau eigi þess kost að byggja upp álitleg ferðamannasvæði inn- an sinna marka og taka þátt í því með ferðaþjónustuaðilum að gera svæði sín að álitlegum val- kosti fyrir ferðamenn. Það er ekki nógu gott að reiða fram einhverj- ar neyðarreddingar í fjáraukalög- um til að byggja upp ferðamanna- staði eins og gerðist síðastliðið haust. Slíkt ber vott um fullkom- inn skort á framtíðarsýn. Ferða- þjónustan er og hefur verið hrað- vaxandi undanfarin ár og hennar vöxtur jafnvel orðinn of mikill fyr- ir ákveðin landsvæði meðan önn- ur gætu sem best tekið við því sem út af stendur. Þessi ört vaxandi at- vinnugrein þarf fumlausa stefnu- mótun og traust lagaumhverfi. Deilum gæðum En það er líka mikilvægt að lands- menn allir geti notið góðs af þeim gæðum sem er að hafa á aðskiljan- legum svæðum landsins. Í því ljósi ætti að vera sjálfsagt jafnréttis- mál að jafna húshitunar- og flutn- ingskostnað sem enn er verulega íþyngjandi þáttur á köldum svæð- um og veldur umtalsverðri mis- munun milli landshluta. Undan- farin ár hafa unnist áfangar í því máli, en enn vantar verulega fjár- muni til þess að nóg sé að gert. Á þessu ári vantar um 215 millj. kr. til jöfnunar húshitunar og 65 millj. kr. til jöfnunar kostnaðar vegna raforkudreifingar. Síðast en ekki síst þarf að gera þá kröfu að nægar fjárveitingar séu tryggðar í fjárlögum til að bæta að- gengi að menntun og tryggja ör- yggi sjúklinga og gæði heilbrigð- isþjónustu um allt land. Ekki þarf að hafa mörg orð um mikilvægi þess að grunnþjónusta í mennta- og heilbrigðiskerfinu sé aðgengi- leg í heimabyggð. Það ætti líka að vera sjálfsagt mál að heimamenn hafi sjálfir mest um það að segja hvernig þjónustan er veitt. Eins og sakir standa skortur verulega á að svo sé í reynd. Byggðaröskun er ekki náttúrulögmál Framtíðarsýn og langtímaáætlan- ir eru mikilvæg forsenda þess að hægt sé að efla byggðir landsins og skapa þeim umhverfi til vaxtar. Sú gamla byggðastefna að stýfa ölm- usu úr hnefa í formi tímabund- inna skyndilausna fyrir byggðirn- ar er úrelt fyrir löngu. Byggðirn- ar hafa ekkert að gera við plástra á svöðusár sín. Þær þurfa að fá að byggja upp grunnstoðir sínar og njóta auðlinda sinna, landgæða og mannauðs. Þess vegna er brýnt að áfram verði unnið á forsendum Sóknaráætlana landshlutanna sem hrint var af stokkum fyrir nokkr- um árum en virðast því miður hafa fengið náðarhöggið hjá rík- isstjórninni eftir að fjármunir til þeirra voru skornir niður. Því miður skortir mjög á fram- tíðarsýn í málefnum landsbyggð- arinnar við núverandi aðstæð- ur. Átakanlegustu dæmin um það er annars vegar niðurskurður til Sóknaráætlana, hins vegar sú ákvörðun ríkisstjórnarinnar að af- nema fjárfestingaáætlun fyrri rík- isstjórnar sem gerði ráð fyrir stór- átaki í innviðauppbyggingu, með- al annars öflugu samgönguátaki, á grundvelli fjármögnunar sem lá fyrir þá þegar. Byggðaröskun er ekki náttúru- lögmál. Hún er afleiðing ákvarð- ana og aðgerða. Með sama hætti er hægt að taka ákvarðanir og grípa til aðgerða sem sporna gegn neikvæðri byggðaþróun. Byggðar- lög í vanda gætu snúið vörn í sókn ef þau fengju bara réttu „verkfær- in“. Til þess þarf hins vegar fram- tíðarsýn og vilja. Vissulega búum við í harðbýlu og dreifbýlu landi – en við erum ein þjóð. Gleymum því ekki. Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir, Höf. er alþingismaður Samfylk- ingarinnar í NV-kjördæmi. Ein þjóð í einu landi?

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.