Skessuhorn - 20.01.2016, Qupperneq 2
MIÐVIKUDAGUR 20. JANÚAR 20162
Víkingur AK 100, hið
nýja uppsjávarveiðiskip
HB Granda, lá í síðustu
viku við Skarfabakka í
Reykjavík þar sem höf-
uðstöðvar Hampiðjunn-
ar eru. Þar voru ný veið-
arfæri og annar búnaður
tekinn um borð. Skipið er
búið öllum nýjustu veið-
arfærum Hampiðjunn-
ar til að fanga uppsjávar-
fisk svo sem síld, loðnu,
makríl og kolmunna. Þrjú
flottroll voru sett um borð
sem henta munu til veiða jafnt í yfir-
borði sjávar sem á meira dýpi. Einn-
ig voru settir nýir stærðarstillanlegir
flotvörpuhlerar af fullkomnustu gerð.
Hvor um sig eru 15 fermetrar að flat-
armáli og vega fjögur tonn. Til við-
bótar þessu var einnig komið nýjum
togtaugum upp á vindur skipsins og
loðnunót tekin um borð.
Á mánudag var skipið svo við veið-
arfæraprófanir vestur af landinu þar
sem til stóð að reyna bæði flotvörpur
og hringnót til að ganga úr
skugga um að allur búnaði
virkaði sem skyldi. Að þessu
loknu var tekin olía í Reykja-
vík. Aðfaranótt þriðjudags-
ins hélt Víkingur AK síðan
í sína fyrstu veiðiferð á kol-
munnamiðin sunnan Fær-
eyja. Þar hafa nokkur íslensk
skip stundað veiðar und-
anfarið og aflað þokkalega
þegar á annað borð hefur
gefið til veiða vegna veðurs.
Venus NS, systurskip Vík-
ings AK ,kom til að mynda
til Vopnafjarðar með 2.750 tonn af
kolmunna um liðna helgi. Uppsjáv-
arflotinn bíður annars þess að hefja
loðnuveiðar en enginn kvóti hefur
enn verið gefinn út til íslenskra skipa.
mþh
Bóndadagur er á föstudaginn og markar
hann upphaf Þorra samkvæmt gamla nor-
ræna tímatalinu. Eins og alþjóð veit tíðkað-
ist það í eina tíð húsbóndinn á heimilinu
færi fyrstur manna á fætur á bóndadag,
klæddi sig í aðra skálm nærbuxna sinna
og hoppaði á öðrum fæti kringum bæinn.
Skessuhorn minnir að þessu sinni á að gott
og gilt getur verið að halda í gamlar hefðir.
Svo hvetjum við vitni sem hugsanlega ná
mynd af athæfi húsbændanna til að senda
okkur myndir!
Suðaustan 10-18 m/s á morgun, fimmtu-
dag. Hvassast vestast á landinu. Þurrt að
kalla á Norðurlandi en annars staðar smá
rigning, einkum á Suðausturlandi. Hiti 2 til
8 stig. Vestlæg eða breytileg átt, 5-13 m/s,
á föstudag. Rigning, slydda eða snjókoma
austan til og hiti 0 til 5 stig. Úrkomulítið
vestanlands og hiti við frostmark. Hæg suð-
læg eða breytileg átt á laugardag. Slydda
eða snjókoma á köflum suðaustan- og
austan til. Annars úrkomulítið. Hiti í kring-
um frostmark. Á sunnudag er útlit fyrir suð-
læga átt með éljum vestan til en bjartviðri
á Norðaustur- og Austurlandi. Frost víðast
hvar. Vestanátt með éljum, en snjókomu eða
slyddu austast á mánudag. Hiti í kringum
frostmark austan til en annars vægt frost.
Í síðustu viku var spurt á vef Skessuhorns:
„Á nýtt Landssjúkrahús að rísa við Hring-
braut eða á öðrum stað?“ Rúmur helmingur
þeirra sem tóku afstöðu, eða 55,5% vilja að
nýtt sjúkrahús rísi við Hringbraut. „Á öðrum
stað á höfuðborgarsvæðinu“ svöruðu næst-
flestir, eða 39,74%. 3,42% kváðust ekki hafa
skoðun á því og 1,14% sögðu að ekki ætti
að ráðast í byggingu nýs sjúkrahúss.
Í næstu viku er spurt:
Hver er þinn eftirlætis þorramatur?
Hinn 16 ára gamli knattspyrnumaður, Helgi
Guðjónsson frá Reykholti, var um helgina
valinn Íþróttamaður Borgarfjarðar, annað
árið í röð. Helgi leikur með Fram og þykir
meðal allra efnilegustu knattspyrnumanna
landsins. Hann er Vestlendingur vikunnar.
Til minnis
Veðurhorfur
Spurning
vikunnar
Vestlendingur
vikunnar
Ölvun og
útafakstur
VESTURLAND: Um klukkan
þrjú aðfararnótt síðasta mánu-
dags var Lögreglunni á Vest-
urlandi tilkynnt um umferð-
aróhapp á Vesturlandsvegi við
Galtarholt í Borgarhreppi.
Þar hafði pallbifreið, sem var
ekið til norðurs, lent út af veg-
inum, endastungist og hafn-
að á hliðinni ofan í vegskurði.
Ökumaðurinn var í bílbelti en
hlaut minniháttar meiðsli og
var fluttur á heilsugæslustöðina
í Borgarnesi til aðhlynningar.
Samkvæmt upplýsingum lög-
reglu er ökumaðurinn grunað-
ur um að hafa ekið undir áhrif-
um áfengis og hlaut því viðeig-
andi meðferð laganna varða að
lokinni læknisskoðun. Bifreiðin
var mikið skemmd og var flutt
á brott með kranabíl. Alls var
tilkynnt um fjögur umferðaró-
höpp í umdæmi Lögreglunn-
ar á Vesturlandi í liðinni viku
auk þess sem að ofan grein-
ir. Öll urðu þau á Akranesi og
flest minniháttar og án meiðsla.
Í einu þeirra var fólksbifreið
ekið utan í umferðarskilti sem
er við hringtorgið utan við lög-
reglustöðina. Þar hafði öku-
maður líklega dottað und-
ir stýri. Um 30 ökumenn voru
teknir fyrir of hraðan akstur í
liðinni viku í landhlutanum og
reyndist einn þeirra vera svipt-
ur ökuleyfi og annar var undir
áhrifum fíkniefna. Úrvinnsla úr
hraðamyndavélum af öllu land-
inu fer fram hjá Lögreglunni á
Vesturlandi og skiluðu þær um
380 hraðamælingum í vikunni.
Á Vesturlandi voru hraðamæl-
ingarnar flestar við Fiskilæk
sunnan Hafnarfjalls og í Hval-
fjarðargöngunum, eða rúmlega
200. Loks voru skráningarnúm-
er tekin af 18 bifreiðum vegna
tryggingar- og skoðunarmála.
–mm
Úr leik í
Gettu betur
VESTURLAND: Öll lið fram-
haldsskólanna á Vesturlandi eru
úr leik í Gettu betur, spurninga-
keppni framhaldsskólanna á
RÚV. Líkt og undanfarin ár
skráðu allir framhaldsskólar á
Vesturlandi sig til leiks en áður
en til keppni kom dró lið LbhÍ
sig úr keppni en það hafði dreg-
ist á móti liði MA. Í fyrstu um-
ferð keppninnar á Rás 2 tap-
aði lið Fjölbrautaskóla Snæfell-
inga fyrir Fjölbrautaskóla Suð-
urnesja með 32 stigum gegn 23
og lið Menntaskólans á Laugar-
vatni hafði betur gegn Mennta-
skóla Borgarfjarðar með 23
stigum gegn 9. Lið Fjölbrauta-
skóla Vesturlands komst áfram
í aðra umferð eftir sigur á liði
Fjölbrautaskóla Suðurlands 29
- 23. Í annarri umferð mætti
FVA Menntaskólanum á Ísa-
firði í æsispennandi keppni, þar
sem MÍ sigraði naumlega. Lið-
in voru nokkuð jöfn að loknum
hraðaspurningum en lið FVA
leiddi með einu stigi. Að lokn-
um fjórum bjölluspurningum
var munurinn orðinn sjö stig en
þá hrökk lið MÍ í gírinn og sigldi
smám saman fram úr FVA. Þeg-
ar kom að hljóðspurningunni
munaði einungis einu stigi á
liðununum, MÍ í vil. Hvorugt
liðið náði að svara þeirri spurn-
ingu og enduðu leikar því með
sigri MÍ og komst í sjónvarpið í
fyrsta sinn í sögu keppninnar.
–grþ
Á morgun, fimmtudaginn 21. janúar
milli klukkan 12 og 17 verður Manna-
mót markaðsstofanna haldið í flug-
skýli flugfélagsins Ernis við Reykja-
víkurflugvöll. Tilgangur viðburðar-
ins er sem fyrr að kynna landsbyggð-
arfyrirtæki fyrir ferðaþjónustuaðilum
í höfuðborginni og mynda tengsl þar
á milli. Í tilkynningu frá markaðs-
stofum landshlutanna segir að mark-
mið viðburðarins sé meðal annars „að
vinna að dreifingu ferðamanna um
landið allt og efla uppbyggingu heils-
ársferðaþjónustu.“
Sífellt meiri áhersla er lögð á að
dreifa ferðamönnum betur um land-
ið, meðal annars í nýrri ferðamála-
stefnu sem ráðherra ferðamála kynnti
á haustmánuðum. Er það gert til
að draga úr þeim árstíðarbundnum
sveiflum sem einkennt hafa ferða-
þjónustu, ekki síst á landsbyggðinni.
Sérstök áhersla verður því lögð á vetr-
arferðamennsku á Mannamóti í ár.
Eins og undanfarin ár mun fjöldi
fyrirtækja á Vesturlandi senda full-
trúa sína á samkomuna til að kynna
sína starfsemi og mynda tengsl við
ferðaskrifstofur og önnur fyrirtæki í
greininni. „Af þeim 180 ferðaþjón-
ustufyrirtækjum sem taka þátt í ár
munu rúmlega 30 fyrirtæki af Vest-
urlandi senda fulltrúa sína á Manna-
mót,“ segir Kristján Guðmundsson,
forstöðumaður Markaðsstofu Vest-
urlands, í samtali við Skessuhorn.
„Þátttaka fyrirtækja í landshlutanum
hefur almennt verið góð og þau hafa
almennt góða reynslu af viðburðin-
um,“ bætir hann við.
Auðvitað er það undir hverju fyrir-
tæki komið hve vel gengur að mynda
tengsl við ferðaskrifstofur og selja
sína vöru, en næg tækifæri ættu þó að
gefast til slíks þar sem ferðaskrifstofur
eru duglegar að senda starfsfólk sitt á
viðburðinn. „Við höfum haft spurnir
af því að ein stærsta ferðaskrifstofan
í Reykjavík ætli að senda 150 starfs-
menn sína á Mannamót til að kynna
sér starfsemi ferðaþjónustufyrirtækja
á landsbyggðinni,“ segir Kristján.
kgk
Mannamót í ferðaþjónustu haldið í flugskýli Ernis
Hluti fulltrúa þeirra fyrirtækja á Vesturlandi sem tóku þátt í Mannamóti markaðs-
stofanna á síðasta ári og kynntu þar sína starfsemi.
Víkingur Ak undirbúinn til veiða
Víkingur við Skarfabakka í Reykjavík um liðna helgi. Á
bryggjunni liggur hluti af þeim veiðarfærum sem sett voru um
borð í skipið.
Í Jólablaði Skessuhorns var jóla-
krossgáta og myndagáta sem lesend-
ur gátu glímt við að leysa yfir hátíð-
irnar. Þeir sem það kusu sendu inn
lausnir og tóku um leið þátt í léttum
leik. Alls bárust Skessuhorni á fjórða
hundrað lausnir og ber að þakka þann
mikla áhuga. Heppnir þátttakand-
ur hafa nú verið dregnir úr pottin-
um. Fyrir rétta lausn í myndagátunni
var sú heppna Hrefna Svanborg-
ar Karlsdóttir á Akranesi. Lausnar-
orðin voru: „Branduglan hefur ver-
ið valin einkennisfugl Vesturlands.“
Fyrir rétta lausn í krossgátunni hlýt-
ur verðlaun Karen Welding í Borg-
arnesi. Báðar hljóta þær að laun-
um bókina „Stríðsárin 1938-1945“
eftir Pál Baldvin Baldvinsson. Þeim
Hrefnu og Karen er óskað til ham-
ingju, en þær hafa báðar fengið bók
sína í hendur. mm
Verðlaunahafar í getraunum Jólablaðs
Karen Welding. Hrefna Svanborgar Karlsdóttir.
Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar
er ekki ánægð með að Umhverfis-
stofnun skuli hafa hunsað athuga-
semdir og ábendingar sem sveitar-
stjórnin gerði varðandi nýtt starfs-
leyfi og stækkun álvers Norðuráls
á Grundartanga. Umhverfisstofn-
un samþykkti þetta rétt fyrir síð-
ustu jól.
Tilkynning frá stofnuninni um
þetta var tekin fyrir á fundi sveit-
arstjórnar Hvalfjarðarsveitar 12.
janúar síðastliðinn. Þar var eftir-
farandi bókað: „Sveitarstjórn Hval-
fjarðarsveitar harmar að Umhverf-
isstofnun hafi ekki tekið tillit til
fjölmargra réttmætra ábendinga og
athugasemda sveitarfélagsins varð-
andi útgáfu starfsleyfis til Norður-
áls á Grundartanga sem stofnunin
gaf út þann 18. desember sl.
Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar
fagnar því að starfsemi Norðuráls
séu, þrátt fyrir fyrirhugaða fram-
leiðsluaukningu, settar skorður um
losun mengandi lofttegunda. Þetta
atriði er í samræmi við stefnumörk-
un og skipulagsáætlanir Hvalfjarð-
arsveitar um að losun mengandi
lofttegunda á iðnaðarsvæðinu á
Grundartanga verði ekki aukin.“
Þessi bókun var samþykkt með
sex atkvæðum sveitarstjórnar-
fulltrúanna Björgvins Helgason-
ar oddvita, Hjördísar Stefánsdótt-
ur, Jónellu Sigurjónsdóttur, Daní-
els Ottesen, Brynju Þorbjörnsdótt-
ur og Björns Páls Fálka Valsson-
ar. Sjöundi fulltrúinn, Stefán Ár-
mannsson, sat hjá.
Sveitarstjórnin hafði í október
síðastliðinn afgreitt ítarlegar at-
hugasemdir til Umhverfisstofn-
unar í umsögn vegna nýs starfs-
leyfis og fyrirhugaðrar stækkun-
ar álversins. Þar voru meðal annars
settar fram kröfur um minni flúor-
mengun, lýst efasemdum um rétt-
mæti og trúverðugleika þess að ál-
verið hefði sjálft eftirlit með eig-
in mengun og fullyrt að viðbragðs-
áætlun við mengunarslysum væri
loðin. Stækkun álversins hefur ver-
ið umdeild og meðal annars hef-
ur Umhverfisvaktin við Hvalfjörð
sent frá sér harðorð mótmæli vegna
hennar.
mþh
Álver Norðuráls á Grundartanga.
Harma að ekki hafi verið
tekið tillit til ábendinga