Skessuhorn - 20.01.2016, Side 13
MIÐVIKUDAGUR 20. JANÚAR 2016 13
Meðan við bjuggum þarna eignaðist
ég yngri bróður, Kristján. Einhvers
staðar er það skráð á opinbera papp-
íra að hann sé fæddur í Félagsheim-
ilinu Dalabúð,” segir Sæmundur.
Þegar hann horfir til baka og veltir
fyrir sér skemmtanalífinu í Dalabúð
brosir hann við og segir: „Áður fyrr
var maður alltaf með þeim síðustu út
á skemmtunum. Það verður bara að
koma í ljós hvort maður verði með
þeim síðustu út í ár.“
sm
Verslun Tunguhálsi 10 - Sími 415 4000
www.kemi.is - kemi@kemi.is
Fyrir börn - Fyrir fullorðna - Fyrir fagmenn
Sæmundur Grétar Jóhannsson fer
heldur ótroðnar slóðir þegar hann
fagnar sextugsafmæli sínu næstkom-
andi laugardag, 23. janúar. Það hitt-
ir þannig á að sama dag er þorra-
blót Laxdæla haldið í félagsheimilinu
Dalabúð og ákvað Sæmundur að slá
tvær flugur í einu höggi, fagna tug-
unum sex á þorrablóti og taka þátt
í gleðinni með því að greiða niður
miðaverð að hálfu og gefa þannig til
samfélagsins. Að sögn Sæmundar var
löngu ákveðið að halda upp á áfang-
ann og þegar dagsetningin hitti svona
vel á blót var ákveðið að hans nánustu
fögnuðu með honum á þorrablóti.
„Ég hafði alltaf hugsað mér að
halda upp á afmælið og gert ráð fyr-
ir veislu og veislusal. Það má segja
að ég hafi séð mér leik á borði að fá
skemmtiatriði í kaupbæti,“ segir Sæ-
mundur brosandi. „Mínir nánustu
sitja með mér til borðs og fagna með
mér; Kolbrún Rut dóttir mín, for-
eldrar og systkini og eitthvað af þeirra
börnum,“ segir Sæmundur sem jafn-
framt gerir ráð fyrir að njóta skemmt-
unarinnar með fjölmörgum vinum
og kunningjum úr samfélaginu sem
gjarnan mæta á blót. „Fyrir þorra-
blót verð ég með opið hús á Dala-
koti þar sem ég býð ættingjum, vin-
um og kunningjum upp á fordrykk
milli klukkan 18:00 og 19:30,“ bætir
Sæmundur við.
Hefur mætt á öll blót
fyrir utan eitt
Sæmundur hefur góða reynslu af
því að starfa í þorrablótsnefndum
en a.m.k. fimm sinnum hefur hann
verið í því hlutverki fyrir þorrablót
Laxdæla. Eftir að hann fór að mæta
á þorrablótin hefur hann einungis
einu sinni misst af blóti. „Ég fer allt-
af á blót fyrir utan eitt skipti sem ég
missti úr. Ekki man ég hvað ég var að
gera þetta eina skipti sem ég sat hjá.
Þetta er góð skemmtun og mest gam-
an þykir mér ef það eru verulega góð
skemmtiatriði, hnitmiðuð og gerð á
réttmætan hátt þar sem fólkið í sam-
félaginu fær sína umfjöllun,“ segir
Sæmundur.
„Eitt árið náði ég að fara á öll blót-
in í Dölum; í Búðardal, Árbliki, Stað-
arfelli og Tjarnarlundi. Þar að auki
fór ég á þorrablót Vegagerðarinnar
í Borgarnesi en það var daginn fyr-
ir blótið í Búðardal.“ Þegar Sæmund-
ur var spurður hvort hann hefði ekki
fengið nóg af þorramatnum var því
svarað neitandi: „Ég fæ aldrei nóg af
þorramat.“
Er virkur í ýmsum
störfum í samfélaginu
Sæmundur starfar hjá Vegagerðinni
í Búðardal en í gegnum árin hefur
hann haft ýmis önnur verkefni á sinni
könnu. Hann hleypur í skarðið þegar
menn vantar í sjúkraflutninga og hef-
ur gert það frá árinu 2000. Sæmund-
ur er einn af þremur slökkviliðsstjór-
um Dalabyggðar en þeir skipta með
sér vöktum og tekur hver þeirra viku
í senn. Einnig er Sæmundur í Björg-
unarsveitinni Ósk og meðlimur í
Lionsklúbbi Búðardals en þar hefur
hann í tvígang tekið að sér að sitja í
stjórn. Í gegnum tíðina hefur hann
tekið að sér ýmis önnur verkefni í
samfélaginu, t.d. starfað í stjórnum
hjá Rauða kross deild Búðardals og í
Ungmennafélaginu Óafi Páa.
Bjó í Félagsheimilinu
Dalabúð
Sæmundur er fæddur á Neðri-Brunná
í Saurbæ en alinn upp á Efri-Múla frá
eins árs aldri. Þegar hann var níu ára
fluttist fjölskyldan í Búðardal og bjó
næstu þrjú árin í Félagsheimilinu
Dalabúð eða þar til foreldrar hans
hófu búskap á bænum Ási skammt
frá Búðardal. „Þegar við fluttum í
Búðardal bjuggum við í Félagsheim-
ilinu Dalabúð. Í þeim hluta sem nú
hýsir tónlistardeild Auðarskóla voru
íbúð og Búnaðarbankinn. Pabbi fékk
vinnu í bankanum við stofnun hans
og leigði íbúðina þar við hliðina á.
Heldur upp á sextugsafmælið
og niðurgreiðir þorrablótsmiða
Laxdæla um helming
Sæmundur Grétar Jóhannsson heldur með stæl upp á afmælið sitt á laugardag-
inn.
Eygló Harðardóttir félags- og hús-
næðismálaráðherra og Sveinn Krist-
insson, formaður Rauða kross Ís-
lands hafa undirritað samning sem
kveður á um hlutverk RKÍ varðandi
móttöku, aðstoð og stuðning við sýr-
lenska flóttafólkið sem væntanlegt er
til landsins frá Líbanon í samstarfi
við Flóttamannastofnun Sameinuðu
þjóðanna. Kostnaður vegna samn-
ingsins nemur 41 milljón króna. Mót-
taka flóttafólksins felur í sér formlegt
samstarf milli velferðarráðuneytis-
ins, mótttökusveitarfélaganna, þ.e.
Akureyrarkaupstaðar, Hafnarfjarð-
arbæjar og Kópavogsbæjar og RKÍ,
þar sem hver aðili gegnir skilgreindu
hlutverki við móttöku flóttafólksins,
þjónustu við það og stuðning.
Meginhlutverk RKÍ samkvæmt
samningnum í umboði velferðar-
ráðuneytisins er að hafa umsjón með
stuðningsfjölskyldum flóttafólksins,
undirbúa íbúðir flóttafjölskyldna fyr-
ir komu þeirra og aðstoða þær við að
koma sér upp nauðsynlegu innbúi,
veita almenna liðveislu, gæta hags-
muna fólksins og veita því aðstoð við
alþjóðlega leitarþjónustu fyrir flótta-
fólk ef þess gerist þörf. RKÍ skal einn-
ig taka þátt í fræðslu- og kynningar-
starfi fyrir samstarfsaðila verkefnisins
í samvinnu við samstarfshópinn.
mm
Samningur um aðkomu Rauða
krossins að móttöku flóttafólks
Sorg er eðlileg í kjölfar ástvinamissis en oft gerist það að sá sem
syrgir á ertt með að vinna sig til sáttar í sorgarferlinu. Sorgin
hefur ólíkar birtingarmyndir en einkenni geta verið líkamleg,
tilnningaleg, hugræn og félagsleg.
Markmið námskeiðsins er að hjálpa þátttakendum að draga úr vanlíðan sem fylgir
sorginni og nna leiðir til að auka jákvæð bjargráð í erðum aðstæðum. Lögð verður
áhersla á fræðslu og leiðir til að vinna með sorgina, heildræna nálgun, slökun og
hugleiðslu. Að auki verður boðið upp á hælega hreyngu og útivist í fallegu umhver.
Innifalið er gisting, hollur og góður matur, aðgangur að líkamsrækt, sundlaugum og
baðhúsinu Kjarnalundi.
Umsjón er í höndum Bryndísar Einarsdóttur sálfræðings ásamt hópi fagfólks
Heilsustofnunar.
Verð á mann: 130.000 kr. (123.500 í tvíbýli)
Sorgin og líð
Vikudvöl fyrir þá sem hafa orðið fyrir ástvinamissi
dagana 21.-28. febrúar eða 17.-24. apríl 2016.
Grænumörk 10 - Hveragerði - heilsustofnun.is
Nánari upplýsingar í síma 483 0300 eða heilsa@heilsustofnun.is
Heilsustofnun
Náttúrulækningafélags Íslands