Skessuhorn - 20.01.2016, Side 19
MIÐVIKUDAGUR 20. JANÚAR 2016 19
Viðskiptavinir Veitna geta nú skoðað álagningu vatns- og fráveitugjalda á
Mínum síðum á veitur.is. Við höfum ákveðið að hætta útsendingu álagningar-
seðla sem er í samræmi við stefnu okkar um að minnka notkun pappírs
og auka veg rafrænnar birtingar.
Þú getur skráð þig inn á Mínar síður eftir þremur leiðum
Með lykilorði sem hægt er að fá sent í rafræn skjöl í heimabanka
Á Mínum síðum getur þú m.a. séð alla reikninga þína hjá Veitum og fylgst
með orkunotkun þinni á myndrænan hátt. Við hvetjum þig til að skrá þar
inn netfang og símanúmer svo við getum haft samband, t.d. vegna bilana
eða rekstrartruflana í þínu hverfi.
Rafræn birting álagningarseðla og reikninga
Gjalddagar eru níu, sá fyrsti 2. febrúar og sá síðasti 3. október. Þeir sem
fá álagningu í fyrsta skipti fara sjálfkrafa í netgreiðslur og geta greitt reikninga
í heimabanka. Viðskiptavinir sem eru 67 ára og eldri fá þó heimsenda
álagningarseðla og greiðsluseðla. Hægt er að breyta greiðslumáta á
veitur.is eða hjá þjónustuveri okkar í síma 516 6000.
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
–
1
6-
01
58
Álagning vatns-
og fráveitugjalda 2016
Veitur eru dótturfélag Orkuveitu Reykjavíkur (OR) og hafa séð um rekstur hitaveitu, rafveitu,
vatnsveitu og fráveitu á þjónustusvæði fyrirtækisins frá því að OR var skipt upp 1. janúar 2014.
Nánari upplýsingar um þjónustu okkar má finna á veitur.is
Um áramótin sameinuðust upplýs-
ingatæknifyrirtækin Premis, Omn-
is og Netvistun undir nafni Premis.
Á síðasta ári hafði Omnis selt versl-
unarrekstur sinn og munu tvær af
þeim verslunum halda Omnis nafn-
inu áfram. Starfsmenn Omnis og
Netvistunar eru nú fluttir í hús-
næði Premis í Hádegismóum 4 í
Reykjavík. Premis er einnig með
þrjá tæknimenn starfandi á Akra-
nesi og er skrifstofuaðstaða þeirra
við Bakkatún í húsnæði Skagans.
Premis mun byggja á tveimur meg-
in stoðum sem verða tölvuþjónusta,
kerfisrekstur og hýsing annars veg-
ar og hugbúnaðarlausnir og vefsíð-
ugerð hins vegar.
Kristinn Elvar Arnarsson, fram-
kvæmdastjóri Premis, leiðir sam-
einað félag. Hann telur mik-
il tækifæri felast í sameiningunni.
Í tilkynningu segir að Omnis hafi
mikla reynslu í nýtingu skýjalausna
en að Premis sé aftur á móti með
öfluga hýsingarþjónustu. „Við telj-
um að lausnir framtíðar felist í að
tvinna saman hagkvæmni skýja-
lausna við hýsingu þeirra kerfa
sem þurfa nálægðina.“ Kristinn
nefnir ennfremur að með samein-
ingu Netvistunar við Premis verði
til annar stærsti vefhýsingaraðil-
inn á landinu, talið í fjölda hýstra
léna.
mm
Omnis og Premis
í eina sæng
Kristinn Elvar Arnarsson framkvæmdastjóri sameinaðs félags og Bjarki Jó-
hannesson, stjórnarformaður Omnis, handsala sameininguna.
voru kúasýningar eins og fegurðar-
samkeppnir. Menn mættu með háls-
bindi, í jakkafötum og með hatt.
Það eru til stórkostlegar ljósmyndir
af þessu. Svona sýningar heyra sög-
unni til þó kvígur séu enn dæmd-
ar og jafnvel veitt verðlaun fyrir
bestu gripina. Hér á Nautastöðinni
veitum við líka alltaf verðlaun fyrir
besta naut úr hverjum árgangi. En
við sjáum að kýrnar eru bæði stærri
og afurðameiri. Júgurgerðin hef-
ur líka breyst. Þegar mjaltaróbót-
arnir komu fyrst þá höfðu sumir
áhyggjur af því að júgur- og spena-
gerð íslensku kúnna væri þannig að
ekki væri hægt að nota slíka sjálf-
virkni en það reyndust ástæðulaus-
ar áhyggjur. Skapferli gripanna er
miklu betra heldur en það var. Það
er búið að leggja mikið í þá rækt-
un.“
Heilt yfir þá hefur íslenska kýrin
staðið sig vel í að mæta nútímanum
og því er ekki síst að þakka starf-
semi Nautastöðvarinnar.
mþh/ Ljósm. úr safni Nautastöðv-
arinnar.
Guðrún Bjarnadóttir á rannsóknastofunni þar sem tekið er við sæðinu, það greint
og blandað.
Litlu nautkálfarnir koma víða af landinu og hafa það huggulegt í hálminum í
Nautastöðinni. Gangi allt að óskum geta þeir komist í hóp framtíðar ættfeðra
íslenska kúastofnsins. Hér á mynd eru þeir Strompur, Krani og Skorri.
Önnur umferð í Spurningakeppni
Snæfellsbæjar fór fram síðastlið-
ið föstudagskvöld í Röst á Hellis-
sandi. Þar kepptu lið frá Hraðbúð-
inni og Átthagastofu Snæfellsbæjar
sem bæði stóðu sig mjög vel. Þessi
umferð keppninnar var ekki síðri en
sú fyrsta og var hún mjög jöfn fram-
an af. Í lokin var það þó lið Átthag-
astofu sem hafði vinninginn. Það er
óhætt að mæla með þessari skemmt-
un og ekki er málefnið síðra sem þær
Lionskonur ætla að styrkja með ágóð-
anum af þessari keppni. En þær hafa
ákveðið að allur ágóði af Spurninga-
keppni Snæfellsbæjar renni til Smiðj-
unnar sem staðsett er að Ólafsbraut
19 í Ólafsvík. Því er um að gera að
fjölmenna á næstu keppni sem verð-
ur 20. febrúar næstkomandi og þá
fara fram tvær umferðir og munu
fjögur lið keppa. Húsið verður opn-
að klukkan 20:00 og keppnin hefst
klukkan 20:30. þa
Lið Átthagastofunnar hafði
betur í annarri umferð