Skessuhorn - 20.01.2016, Blaðsíða 20
MIÐVIKUDAGUR 20. JANÚAR 201620
Nýverið hófust æfingar á leikrit-
inu „Græna húsið“ sem nemendur
Brekkubæjarskóla á Akranesi ætla
að frumsýna 25. febrúar næstkom-
andi í Bíóhöllinni. Um er að ræða
stórt verkefni, stútfullt af tónlist.
Það eru leiklistar- og tónmennta-
kennararnir Heiðrún Hámundar-
dóttir og Samúel Þorsteinsson sem
sömdu verkið og sjá þau einnig um
leikstjórn og stjórn tónlistar.
Þetta er í annað skipti sem
Brekkubæjarskóli setur upp svo
stórt verkefni en fyrir þremur árum
var sýndur söngleikurinn Elskaðu
friðinn, sem sló rækilega í gegn. Að
sögn Elinbergs Sveinssonar, kenn-
ara við Brekkubæjarskóla og um-
sjónarmanns með verkefninu, verð-
ur verkið sett upp af nemendum í
unglingadeild skólans og taka fjöl-
margir þátt í uppsetningunni með
einum eða öðrum hætti. „Það taka
tveir þriðju af unglingadeildinni
þátt, ásamt fjölmörgum kennurum.
Við tókum valið hjá unglingunum
og settum það næstum allt undir
þetta verkefni, þannig að krakkarn-
ir gátu valið að koma að sýningunni
á ýmsa vegu. Allur hljóðfæraleikur,
söngur og dans er í höndum nem-
enda og þeir vinna líka sem sviðs-
menn, tæknimenn, sjá um búninga-
gerð, förðun, leikmyndasmíði, leik-
skrárgerð og margt fleira. Til að
allt gangi upp þá spilar líka stórt
hlutverk það góða samstarf og sam-
vinna sem er á milli kennara skól-
ans,“ segir Elinbergur. „Við upp-
setningu verksins er notast við að-
ferðina „allir á svið“ sem þýðir að
öllum nemendum býðst að taka þátt
í verkinu ef þeir hafa áhuga á því.
Auðvitað eru hlutverkin samt mis-
stór en allir komast að sem vilja,“
bætir hann við.
Öll undirbúningsvinna við leik-
ritið er komin á fullt, búið er að
skipa í hlutverk og samlestur haf-
inn. Hugað er að búningum og
hljómsveitin æfir af fullum kappi,
enda verður leikritið stútfullt af
tónlist, bæði nýrri og eldri. „Um
helmingur tónlistarinnar er frum-
saminn af nemendum og kennur-
um, sem og allir textarnir. Heið-
rún og Sammi leggja mikla áherslu
á lifandi tónlistarflutning á sýning-
unum. Svo eru krakkarnir á fullu í
að setja saman veglega leikskrá sem
við ætlum að dreifa í öll hús hér á
Akranesi.“ Áætlað er að sýna sjö
sýningar í Bíóhöllinni og er verkið
fyrir alla aldurshópa. „Við gerð síð-
asta söngleiks mættum við frábær-
um stuðningi bæjarbúa og fyrirtæki
í heimabyggð studdu vel við bakið á
okkur í formi styrkja. Við vonumst
til að það gangi aftur vel núna og
að okkur verði vel tekið,“ segir El-
inbergur að endingu.
grþ
Brekkubæjarskóli setur upp annað leikrit
Annar samlestur hjá leikhópnum. Þessar stúlkur voru að útbúa snið fyrir búningana.
Unnið af kappi við undirbúning leikskrár. Drengir sem sjá um sviðsmynd og tæknimál en eru nú að undirbúa leikskrána.
Sæþór Þorbergsson matreiðslumeist-
ari í Stykkishólmi og eigandi Narf-
eyrarstofu ásamt fjölskyldu sinni hef-
ur opnað veitingastaðinn á nýjan leik,
eftir fimm ára hlé. „Við tókum úr lás
á laugardaginn, þá var fyrsti dagur í
endurlífgun,“ segir Sæþór en rekst-
ur Narfeyrarstofu var leigður út um
nokkurra ára skeið. „Við vorum með
staðinn í tíu ár en leigðum svo starf-
semina frá okkur. Ég týndi aðeins
heilsunni og ákvað þá að stíga til hlið-
ar. Ég starfaði í afleysingum hér og
þar á meðan, horfði í kringum mig og
reyndi að læra eitthvað. Einnig not-
aði ég tækifærið til að ljúka meistara-
réttindum. En það hefur verið ljóst
síðastliðin tvö ár að við ætluðum að
taka við staðnum aftur.“ Sæþór seg-
ist hafa varið góðum tíma í að velta
því fyrir sér hvað hann vildi gera fyr-
ir staðinn og hvernig, eftir að hann
myndi opna aftur. „Við vildum ekki
fylgja straumnum. Við fórum því af
stað með „Local food“ hugmynd sem
snýr að því að nota matinn héðan af
svæðinu og unnum það í samráði við
Rannsóknamiðstöð landbúnaðarins
og Atvinnuráðgjöf Vesturlands. Sett
var saman ný viðskiptaáætlun og við
verðum svæðisbundin í öllu sem við
gerum,“ útskýrir hann.
Fullunnið frá svæðinu
Fjölskylda Sæþórs ætlar að standa
samhent að rekstrinum. „Þorberg-
ur Helgi sonur okkar Steinunnar
Helgadóttur konu minnar er að fara á
samning sem matreiðslunemi hjá mér.
Aníta Rún dóttir okkar er svo í skóla í
Reykjavík en hún ætlar að koma heim
í Stykkishólm um helgar og vinna hjá
okkur á Narfeyrarstofu.“
Það veitir ekki af vinnufúsum
höndum því mikið stendur til. Sæþór
lýsir því að til standi að fullvinna af-
urðir frá svæðinu. „Við höfum með-
al annars verið að vinna úr lamba-
skrokkum og þurfum að búa til rétti
úr öllum hluta skepnunnar. Svo vor-
um við í þróunarverkefni sem snýr að
þróun heimaafurða, styrkt af Matís.
Við höfum meðal annars prófað okk-
ur áfram í hrápylsugerð, fullvinnslu á
vöðvum í reyk og búið til „skinku“ úr
öðru en svínakjöti, svo sem hrossa-
vöðvum og ærkjöti. En þá má það víst
ekki heita skinka nema það sé svína-
kjöt,“ bætir hann við.
Sæþór og fjölskylda hafa því kom-
ið sér upp sérhæfðri vinnsluaðstöðu í
100 fermetra húsnæði þar sem hann
er með reykaðstöðu og fleira til að
geta unnið úr afurðunum. „Með
þessu erum við eiginlega að fara aftur
til upprunans, eða svona 40 ár aftur í
tímann þegar hótel og veitingastaðir
tóku mikið í heilu lagi og unnu úr því.
Við erum líka með nautakjöt héðan af
svæðinu og búum okkur meðal ann-
ars til hamborgara og allt sjálf,“ segir
Sæþór. Markmiðið er þannig að gera
út á hreinleika og rekjanleika. „En við
erum bara að rölta af stað með þetta
í rólegheitum, með lambakjötið og
fiskinn úr firðinum.“
Ætla að stækka húsið
Opið er í Narfeyrarstofu alla daga
vikunnar. Sæþór segir enda nóg að
gera í Hólminum, sem er vinsæll
meðal ferðamanna. „Það eru óskap-
lega bjartir tímar. Þessa daga sem við
vorum að græja húsið var oft barið að
dyrum hér að utan og við beðin um
að taka úr lás. Það er mikil umferð
fólks í bænum. Maður sér það líka á
því gistirými sem eru opið yfir hávet-
urinn að það er mikið að gera.“
Til viðbótar öllu framangreindu
þá stendur einnig til að stækka veit-
ingastaðinn, byggja við húsið og færa
til eldhúsið. Með þeim breytingum
verður til tenging við kjallara húss-
ins sem á að taka í notkun. „Við vilj-
um koma öllum þremur hæðunum í
veitingarekstur. Í kjallaranum verð-
ur rými sem hægt verður að nota fyr-
ir og eftir mat,“ segir Sæþór. Hann
segir þann hluta hússins verða svolít-
inn óð til fortíðar Stykkishólms enda
verði innréttað þar með húsgögnum
úr Stykkishólmi. „Við erum svæðis-
bundin eða lókal í matnum og ætlum
að vera það niðri líka. Á sjöunda ára-
tugnum var húsgagnaverksmiðja hér
sem hét Aton sem framleiddi stóla
og sitthvað fleira. Við erum búin að
safna saman því besta úr þeirri fram-
leiðslu og þarna verður því hluti af
okkar atvinnusögu.“ grþ
Sæþór tekinn við
Narfeyrarstofu að nýju
Sæþór Þorbergsson hefur opnað Narfeyrarstofu á nýjan leik eftir fimm ára hlé.
Hér er hann ásamt Anítu Rún dóttur sinni. Ljósm. sá.
Fjölskyldan í Narfeyrarstofu.
Ljósm. Facebook/Narfeyrarstofa.
Narfeyrarstofa er næsta hús við gömlu kirkjuna í Stykkishólmi.
Ljósm. Facebook/Narfeyrarstofa.
Sæþór bauð upp á reykt hangikjöt á Ljúfmetismarkaði í Stykkishólmi fyrir jólin.
Ljósm. sá.