Skessuhorn - 20.01.2016, Side 22
MIÐVIKUDAGUR 20. JANÚAR 201622
þau hjónin á móti fólki sem hef-
ur áhuga á að ferðast um heiminn
með því að vinna fyrir fæði og hús-
næði. Fengu þau tugi gesta á þeim
tíma sem þau buðu heim. „Það má
segja að búið hafi verið nokkurs
konar gistiheimili á þessum tveimur
árum,“ segir Bertha.
Einnig taka þau að sér vefhönn-
un og hefur Jay starfað við slíkt um
langt skeið. „Ég er vefhönnuður.
Hef sinnt þjónustu með einum eða
öðrum hætti í 30 ár og alltaf verið
í beinu sambandi við viðskiptavini,“
segir hann. Ætla þau sér að halda
áfram að hanna vefi og telja það fara
vel saman við rekstur gistiheimilis.
„Ég sé um það sem er á bakvið, alla
kóða og slíkt en Bertha sér meira um
hönnun vefjanna og útlit. Mesta eft-
irspurnin í þessum geira er á veturna
þegar minna er að gera í ferðaþjón-
ustu og öfugt. Við reiknum því með
að þetta tvennt geti farið vel sam-
an. Við gætum vissulega þurft að
minnka örlítið við okkur í stórum
verkefnum en við munum halda
áfram að taka að okkur öll minni
verkefni í vefhönnun, ekki spurn-
ing,“ segir Jay.
Aðspurð segja þau að nóg hafi
verið að gera þann stutta tíma sem
liðinn er frá því þau tóku við rekstri
Borgarnes B&B. „Það hefur ver-
ið mun meiri umferð en við átt-
um von á. Við reiknuðum með smá
lægð en það var mjög mikið að gera
í desember,“ segir Bertha „og marg-
ir sem bókuðu á síðustu stundu, lík-
lega um 30 prósent gestanna,“ bætir
Jay við. „Fullt var milli jóla og nýárs,
eitthvað sem við áttum alls ekki von
á. Hingað kom hópur yfir áramótin
og fólkinu líkaði svo vel að það ætlar
að gera þetta að árlegum viðburði,“
segir Bertha að lokum og brosir.
kgk
Svipmyndir af Bed and Breakfast í Borgarnesi.
„Við vorum á leiðinni í Stykkis-
hólm að skoða hentugt húsnæði
fyrir okkur þar sem við gætum
byrjað að reka gistiheimili. Fólk-
ið gat ekki tekið á móti okkur fyrr
en seinnipart dags, þannig að við
ákváðum að panta gistingu í Borg-
arnesi og duttum því niður á Borg-
arnes B&B nánast af tilviljun,“ seg-
ir Bertha Kvaran, sem nýlega tók
við rekstri Borgarnes B&B ásamt
manni sínum Jay Burton. „Ég og
Inger Helgadóttir fórum að spjalla
saman og ég sagði henni frá áform-
um okkar hjóna. „Af hverju kaup-
ið þið ekki bara af mér,“ spurði
hún mig og tjáði mér að hún hefði
áhuga á að selja. Við sváfum á þessu
og daginn eftir yfir morgunnmatn-
um ræddum við þetta frekar við
Inger og í framhaldinu ákváðum
við að slá til og kaupa þetta fallega
hús,“ segir Bertha og brosir.
Formlega tóku þau við rekstr-
inum 1. desember síðastliðinn og
láta vel af fyrstu vikunum og hafa
orð á því hve staðsetning gisti-
heimilisins sé góð. „Hér í Borgar-
nesi er í raun allt nema spítali. Hér
eru verslanir, góðir veitingastaðir,
kaffihús og fleira. Svo er stutt að
skreppa til Reykjavíkur ef þarf,“
segir hún. „Gistiheimilið er einn-
ig á góðum stað í bænum. Hér er
skjólgott og það mæðir ekki mik-
ið á staðnum með tilliti til veðurs-
ins almennt.“
Húsið þykir þeim fallegt, það
þarfnist einhvers viðhalds eins
og gengur en vel hafi verið stað-
ið af því sem þegar hafi verið gert.
„Ekki skemmir að hafa útsýni
yfir Hafnarfjallið og sjóinn út um
gluggann,“ bætir hún við og Jay
tekur í sama streng. „Ég hitti mann
úti í búð um daginn sem sagði mér
að þetta væri besta húsið í Borgar-
nesi. Ég dró nú heldur úr en sagði
að já, líklega væri það með þeim
bestu í bænum. „Nei, það allra
besta,“ svaraði hann,“ segir Jay og
hlær við.
Gæði gamla kaupfélagsstjórabú-
staðarins snúa ekki aðeins að stað-
setningu og útliti. Innanstokks
segja þau húsið henta mjög vel til
reksturs gistiheimilis. „Inger hafði
mjög gott innsæi gagnvart hönn-
un og uppsetningu. Eldhúsið er
til dæmis mjög vel heppnað, en
það var endurnýjað fyrir nokkr-
um árum síðan,“ segir hún. „Stof-
an er stór og vel uppsett og her-
bergin eru rúmgóð. Fólki virðist
líka vel við rúmgóð herbergi,“ út-
skýrir Jay.
Ætla ekki að
breyta miklu
Þau segjast hafa tekið við góðu búi,
umsagnir um Borgarnes B&B voru
góðar og þjónustustigið hátt. „Í hug-
um fólks eru gistiheimili nánast eins
og hótel. Það væntir þess að boðið
sé upp á morgunmat og vel sé hugs-
að um það. Inger lagði mikið í hlut-
ina og gerði virkilega vel við gestina.
Hún nostraði við allt,“ segir Bertha.
„Eftir að við tókum við hef ég stund-
um verið hér langt fram á kvöld að
strauja rúmföt og fleira en mér
finnst það allt í lagi því ég hlakka til
að bjóða fólki inn á herbergi. Þannig
var þetta hjá Inger og þannig viljum
við halda því. Það er óþarfi að breyta
breytinganna vegna. Við ákváðum
sem dæmi að halda áfram að styðja
unga Borgnesinga með því að hýsa
leikstjóra þá sem koma að leikstjórn
fyrir Menntaskólann og ungmenna-
félagið Skallagrím eins og Inger
gerði,“ segir Bertha.
Eitt hafi þau ákveðið að bæta eft-
ir að hafa lesið umsagnir gesta var
þráðlausa nettenging hússins og
einnig að breyta um perur. „Netið
náðist ekki alls staðar í húsinu svo ég
kippti því í liðinn og jók hraðann á
því í leiðinni,“ segir Jay. „Svo skipt-
um við yfir í LED perur til að lækka
rafmagnsreikninginn til lengri tíma.
Það er það eina við munum eftir að
hafi verið breytt,“ segja þau.
Einnig segja þau mikinn kost að
gistiheimilið hafi matsöluleyfi. „Það
gerir okkur kleift að bjóða upp á há-
degis- og kvöldverð ef aðstæður
krefjast. Inger hafði skapað staðn-
um gott orðspor fyrir að hýsa við-
burði og einkasamkvæmi þar sem
boðið er upp á mat. Slíkir hópar eru
velkomnir og höfum við sem dæmi
þegar haft hóp hér í jólamat í des-
ember, sem er eitthvað sem get-
ur verið gaman að taka að sér fyrir
millistóra hópa í framtíðinni,“ segja
þau. „En við munum auðvitað gæta
þess að halda slík einkasamkvæmi
ekki þegar herbergi eru í útleigu, af
tillitsemi við gestina,“ bæta þau við.
Nóg að gera í desember
Þrátt fyrir að bæði séu þau að stíga
sín fyrstu skref í ferðaþjónustu búa
þau að reynslu sem þau telja víst
að nýtist vel við reksturinn. Bertha
var lengi kúabóndi að Miðhjálegu í
Landeyjum og síðustu tvö árin tóku
Bertha Kvaran og Jay Burton eru nýir eigendur Borgarnes B&B
Festu kaup á gistiheimilinu eftir næturdvöl
Bertha Kvaran og Jay Burton.
Borgarnes B&B er staðsett í gamla kaupfélagsstjórabústaðnum við Skúlagötu 21
í Borgarnesi.
Stjórnsýsluhús í
hers höndum
REYKHÓLAR: Viðamikl-
ar endurbætur fara nú fram í
Stjórnsýsluhúsi Reykhólahrepps
við Maríutröð á Reykhólum. Af-
greiðsla Landsbankans sem er
þar alla jafnan á miðvikudögum
hefur verið lokuð þennan mán-
uð en verður opnuð á nýjan leik
á mánudaginn eftir viku. Verið
er að útbúa tvær skrifstofur úr
rýminu hægra megin við inn-
ganginn og lagfæra aðgengi fatl-
aðs fólks inni í húsinu. Í haust
var aðgengið inn í húsið lag-
fært. Nú eru hurðagöt inn að af-
greiðslunni víkkuð og jafnframt
verða mjög rúmar dyr inn í báð-
ar nýju skrifstofurnar. Tækifærið
er notað til að gera við veggi og
mála öll húsakynnin. Framveg-
is verður skrifstofustjóri Reyk-
hólahrepps í annarri nýju skrif-
stofunni og jafnframt afgreiðsla
Landsbankans einu sinni í viku,
en Ágúst Már Gröndal gegnir
báðum störfunum. Í hinni skrif-
stofunni verða til skiptis María
Játvarðardóttir félagsmálastjóri
(á mánudögum) og María Maack
fulltrúi Atvinnuþróunarfélags
Vestfjarða (þriðjudaga, fimmtu-
daga og föstudaga). Þetta kemur
fram á Reykhólavefnum og þar
má skoða myndir af atgangin-
um.
–mþh
Átthaganám í
boði
SNÆFELLSNES: Símenntun-
armiðstöðin á Vesturlandi býð-
ur nú heimafólki á Snæfellsnesi
upp á nám í áttahagafræði, stað-
háttum, útivist, ferðamennsku,
gestamóttöku, upplýsingaöflun
og miðlun. Námið miðar með-
al annars að því að skapa fólki
tækifæri til atvinnusköpunar á
sviði ferðaþjónustu. Námið er að
hluta í fjarnámi og með þremur
námslotum sem fara fram á mis-
munandi stöðum á Snæfellsnesi.
Innritunarfrestur er til 22. janú-
ar (helga@simenntun.is).
–mþh
Réttindanám-
skeið fyrir
bændur
DALIR: Búnaðarsamtök Vest-
urlands og Vinnueftirlitið standa
fyrir námskeiði í næstu viku sem
ber heitið „Vinnuverndar- og
réttindanámskeið fyrir bænd-
ur.“ Eins og nafnið bendir til
er námskeiðið ætlað bændum
og þeim sem vinna við búskap
en er einnig opið öðrum áhuga-
sömum. Það veitir réttindi til
að taka verklegt vinnuvélapróf
á dráttarvélar, liðléttinga og
ýmsar minni gerðir vinnuvéla í
réttindaflokki „I“ og lyfturum
í flokki „J“, þar með talið skot-
bómulyftara. Námskeiðið er
hefðbundið vinnuvélanámskeið
en aðlagað að bændum. Einn-
ig verður fjallað um gerð áætl-
unar um öryggi og heilbrigði
(áhættumat starfa) á vinnustað.
Námskeiðið verður haldið í
Leifsbúð í Búðardal 26. og 27.
janúar frá kl. 10:00-17:00 báða
dagana. Kostnaður er 38.900
krónur og innifalin er bókleg
kennsla, kennslugögn, veiting-
ar og bóklegt próf. Nánari upp-
lýsingar eru veittar á skrifstofu
Búnaðarsamtaka Vesturlands.
-mm