Skessuhorn - 24.02.2016, Síða 1
FRÉTTAVEITA VESTURLANDS – www.skessuhorn.is 8. tbl. 19. árg. 24. febrúar 2016 - kr. 750 í lausasölu
Framtíðin er
full af möguleikum
Traust fjármálaráðgjöf leggur grunn
að farsælli framtíð
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
–
1
5
-0
0
5
0
Coldfri munnúði
Fluconazol
ratiopharm
- við kvefi og hálsbólgu
Eru bólgur og verkir
að hrjá þig?
FRAMKÖLLUNARÞJÓNUSTAN EHF
BRÚARTORGI - 310 BORGARNESI - S. 437 1055
www.framkollunarthjonustan.is
STYÐJUM
FRAMLEIÐSLU Á
VESTURLANDI
OPIÐ DAGLEGA
12-17
Ljómalind Sveitamarkaður, Brúartorgi 4, Borgarnesi.
Sími 437-1400. Netfang: ljomalind@ljomalind.is
Maður á níræð-
isaldri lést er bíll
hans fór í höfn-
ina í Ólafsvík
síðdegis á mið-
vikudaginn í lið-
inni viku. Mað-
urinn, sem var
einn í bílnum,
kom akandi nið-
ur á bryggjuna
og virðist síð-
an hafa misst stjórn á honum, með
þeim afleiðingum að bíllinn fór yfir
bryggjukantinn og hafnaði á hvolfi
í höfninni. Að sögn Lögreglunnar á
Vesturlandi hófust lífgunartilraunir
strax þegar búið var að ná bílnum
upp úr höfninni en þær báru ekki
árangur. Rannsóknadeild Lögregl-
unnar á Vesturlandi fer með rann-
sókn málsins. Hinn látni hét Þor-
gils Björnsson og var búsettur í
Ólafsvík. Hann var 88 ára gamall,
ókvæntur og barnlaus.
mm
Banaslys í
Ólafsvíkurhöfn
Þorgils Björnsson.
Þetta myndarlega merfolald kom í heiminn síðastliðinn föstudag í hestahúsahverfinu í Borgarnesi. Kom það eigendum þess
nokkuð á óvart enda ekki „á plani“ að láta hryssur kasta í lok Þorra. Nánar um þennan óvænta happafeng á bls. 14.
Ljósm. mm.
Fimm læknar munu hefja störf við
heilsugæslustöðina á Akranesi á
næstunni og fylla um þrjú og hálft
stöðugildi. „Þunglega hefur horft
undanfarna mánuði varðandi læknis-
þjónustu og biðtími lengst. Þetta
gerist í kjölfar þess að heilsugæslu-
læknar sem starfað hafa á Akranesi
um árabil hafa horfið frá stöðinni,
ýmist til annarra verkefna eða lok-
ið störfum,“ segir Guðjón Brjánsson
forstjóri í samtali við Skessuhorn.
Guðjón segir að nýráðnir læknar
séu með umtalsverða starfsreynslu
og fjölbreytilegan bakgrunn, bæði
í sérfræðigrein heimilislækninga, á
geðsviði, endurhæfingu og í almenn-
um lækningum. „Samningur við
lækna gerir ráð fyrir a.m.k. tveggja
ára samstarfi þar sem lögð verður
áhersla á uppbyggingu veigamestu
þátta þjónustunnar sem stjórnvöld
hafa kynnt undanfarin misseri, svo
sem fræðslu, forvarnir, hagnýtingu
hreyfiseðla, geðheilbrigðisþjónustu,
sálgæslu, hjúkrunarmóttöku og al-
menna lýðheilsu. Læknarnir munu
hefja störf fljótlega í áföngum en
þess er vænst að starfsemi heilsu-
gæslunnar verði komin í gott horf
að nýju á vormánuðum,“ segir Guð-
jón Brjánsson. mm
Rætist úr læknaskorti á Akranesi
Línubáturinn Vinur SH-34 kom
drekkhlaðinn að landi í Grundar-
firði síðastliðinn fimmtudag eftir
góða veiðiferð á Breiðafirði. Á vin
rær Bergvin Sævar Guðmundsson
og með honum tengdasonur hans
Þorsteinn Hjaltason. Þeir á Vini
hafa verið að landa þetta frá þrem-
ur og upp í þrjú og hálft tonn eftir
róðurinn, en róið er með 22 bala í
hvert sinn. Þennan dag náðist ekki
að draga fleiri en 16 bala því þá var
báturinn orðinn smekkfullur og
ekki nokkur leið að koma meiri afla
um borð. Þá þurfti að kalla til Birtu
SH sem kom og dró afganginn af
línunni eða sex bala. Þegar aflanum
hafði verið landað í Grundarfirði
kom í ljós að hann var tæp 7,6 tonn
eða um 475 kg á bala á móti 100 -
150 kg eins og venjan er. Það er því
ekkert lát á góðum aflabrögðum á
Breiðafirði.
tfk
Smekkfyllti bátinn og þurfti annan
til að draga síðustu línurnar
Vinur SH siglir að landi.