Skessuhorn


Skessuhorn - 24.02.2016, Blaðsíða 12

Skessuhorn - 24.02.2016, Blaðsíða 12
MIÐVIKUDAGUR 24. FEBRÚAR 201612 Á aðalfundi í Kúabændafélaginu Baulu, sem fram fór síðastliðinn föstudag, voru veittar við- urkenningar nokkrum kúabúum á starfssvæði félagsins fyrir ræktunarstarf. Kúabændafélagið Baula á Vesturlandi var stofnað árið 2011. Það tók við af Mjólkurbúi Borgfirðinga, sem er sam- vinnufélag sem stofnað var 1994 og tók síðar yfir hlutverk þriggja kúabændafélaga á Borgar- fjarðarsvæðinu. Félagið nær ekki yfir Dalabyggð og Borgarfjörð sunnan Skarðsheiðar. Hlut- verk Baulu er að vinna að sameiginlegum hagsmunum kúabænda á svæðinu. Kýrin Urður á Hvanneyri er afurðahæsta kýrin á Vesturlandi en afkomendur hennar skora einnig hátt. Afurðahæstu kúabúin og bestu gripirnir Afurðahæstu kúabúin 2015 Sæti Kúabú Árský r Afurðir á árskú Fita % Prótein %1. Hvanneyri í Andakíl 68 7.593 3,87 3,29 2. Helgavatn í Þverárhlíð 92,5 7.217 4,56 3,33 3. Ásgarður í Reykholtsdal 60,6 7.202 4,05 3,29 4. Hrauntún í Kolbeinsstaðahreppi 34,6 7.169 3,86 3,23 5. Furubrekka í Staðarsveit 41 6.951 4,05 3,25 6. Hægindi í Reykholtsdal 10 6.736 4,25 3,38 7. Stakkhamar í Eyja- og Miklaholtshr. 59,4 6.711 4,01 3,28 8. Melur í Hraunhreppi 46,7 6.702 4,42 3,28 9. Tröð í Kolbeinsstaðahreppi 27,7 6.616 4 3,34 10. Snorrastaðir í Kolbeinsstaðahreppi 27,9 6.602 4,2 3,34 Table 1 Afurðahæstu kýrnar á starfssvæðinu Sæti Kúabú Nr. Nafn Faðir Ársafurðir Fita % Prótein % 1. Hvanneyri í Andakíl 1229 Urður Laski nr. 00010 12.489 3,11 2,87 2. Laxárholt í Hraunhreppi 624 Aþena Aðall nr. 02039 11.955 4,41 3,47 3. Ásgarður í Reykholtsdal 131 Króna 0349391-0198 11.163 3,56 2,91 4. Hvanneyri í Andakíl 1355 Önd Lögur nr. 07047 11.060 3,93 3,18 5. Helgavatn í Þverárhlíð 521 Retta Vindill nr. 05028 10.956 4,53 3,62 6. Hvanneyri í Andakíl 1380 Björk Blámi nr. 07058 10.936 3,58 3,28 7. Helgavatn í Þverárhlíð 505 Grallari nr. 05017 10.865 5,15 3,28 8. Ölkelda 2, Staðarsveit 512 Roða Sláni nr. 05007 10.858 3,71 3,12 9. Hvanneyri í Andakíl 1493 Skegla Kraki nr. 09002 10.578 3,89 3,11 10. Skálpastaðir í Lundarreykjadal 1032 Frigg Laski nr. 00010 10.563 4,83 3,19 Table 1 Hæst dæmdu kvígur í kvíguskoðun RML árið 2015 Sæti Kúabú Nr. Nafn Faðir Móðir Dómur Kynbótamat Stig alls 1. Glitstaðir í Norðurárdal 411 Rjóð Birtingur nr. 05043 Rauðka nr. 356 94 110 298 2. Stakkhamar í Eyja- og Miklaholtshr. 421 Tópas nr. 03027 nr. 333 93,2 111 297,4 3. Furubrekka í Staðarsveit 542 Þúfa Rauður nr. 04021 Fura nr. 371 95,8 102 293,6 4. Hvanneyri í Andakíl 1539 Skuld Aðall nr. 02039 Urður nr. 1229 89,6 114 293,2 5. Dýrastaðir í Norðurárdal 336 Ræma Koli nr. 06003 Jörð nr. 266 93,4 106 292,8 6. Steindórsstaðir í Reykholtsdal 391 Rák Baldi nr. 06010 Búbót nr. 294 94 104 292 7. Furubrekka í Staðarsveit 530 Næla Muni nr. 10018 Litla-Nál nr.414 93,2 105 291,4 8. Glitstaðir í Norðurárdal 636 Björg Mörsugur nr. 10097 Vör nr. 659 91,6 106 289,2 9. Þverholt í Álftaneshreppi 544 Lukka Glæðir nr. 02001 Úða nr. 356 89 111 289 10. Hvanneyri í Andakíl 1571 Gullhúfa Úranus nr. 10081 Glína nr. 1177 92,6 103 288,2 Síðastliðinn föstudag var skrif- að undir nýja búvörusamninga við bændur. Það gerðu fulltrúar Bændasamtaka Íslands og sjávarút- vegs- og landbúnaðarráðherra auk fjármála- og efnahagsráðherra fyr- ir hönd ríkissjóðs. Samningarnir eru gerðir samkvæmt búnaðarlög- um og fjalla um starfsskilyrði við framleiðslu grænmetis, kindakjöts og nautgripaafurða. Samningarn- ir eru til tíu ára en gert er ráð fyrir að þeir verði teknir til endurskoð- unar tvisvar á samningstímanum, árin 2019 og 2023. Það er nýmæli að gildistíminn sé þetta langur, en ástæða þess er að með samningun- um er verið að ráðast í umfangs- miklar breytingar á starfsumhverfi landbúnaðarins sem kallar á lang- tímahugsun, segir í tilkynningu frá samningsaðilum. Stefnt er að því að leggja af kvóta- kerfi, bæði í mjólkurframleiðslu og í sauðfjárrækt. Losað verður um styrkjafyrirkomulagið þann- ig að greiðslur til bænda verða ekki bundnar við framleiðslu á mjólk eða kjöti eins og verið hefur. Útgjöld ríkisins til landbúnaðarmála hækka um rúmar níu hundruð milljón- ir árið 2017 en fara stiglækkandi út samningstímann og verða held- ur lægri á síðasta ári samningsins en þau verða í ár. Í nýju samning- unum er lögð aukin áhersla á líf- ræna framleiðslu, velferð dýra, um- hverfisvernd og sjálfbæra landnýt- ingu. Veigamiklar breytingar fela það í sér að nýliðun og kynslóða- skipti í landbúnaði verða auðveld- ari en verið hefur. Sérstakt verk- efni kemur inn í samninginn um stuðning við skógarbændur til að auka virði skógarafurða. Um leið er kveðið á um annað nýtt verkefni um mat gróðurauðlindum sem ætlað er til frekari rannsókna á landi sem nýtt er til beitar. Jafnframt verða möguleikar á fjárfestingastyrkjum í svínarækt fyrri hluta samningstím- ans til þess að hraða umbótum sem bæta eiga aðbúnað dýra. Jarðrækt- arstuðningur er aukinn verulega og gerður almennari. Hægt verð- ur að styðja betur við ræktun, þar með talið ræktun matjurta en það er nýmæli. Um leið verður tekinn upp almennur stuðningur á ræktar- land sem er ekki bundinn ákveðinni framleiðslu. Stuðningur við lífræna framleiðslu verður tífaldaður frá því sem nú er og sérstakur stuðningur verður tekinn upp við geitfjárrækt, sem ekki hefur verið áður. Enn- fremur fylgir samningnum bókun þar sem gert er ráð fyrir frekari við- ræðum um innviði hinna dreifðu byggða og almenn atriði er varða byggðastefnu stjórnvalda. Mjólkursamningur tekur breytingum Í nautgriparæktarsamningi er stefnt að viðamiklum breyting- um. Vægi greiðslna út á fram- leidda mjólk auk gripagreiðslna eykst en á móti er gert ráð fyrir að vægi greiðslna út á greiðslumark verði þrepað niður. Viðskipti með greiðslumark verða jafnframt tak- mörkuð en aðlögunartími er tals- verður. Horft er til þess að hægt verði að afnema kvótakerfi í mjólk- urframleiðslu en ákvörðun um það verður ekki tekin fyrr en við fyrri endurskoðun árið 2019. Atkvæða- greiðsla verði meðal mjólkurfram- leiðenda um málið áður en til þess kemur. Ný verkefni eru einkum að nú verður tekinn upp stuðningur við nautakjötsframleiðslu, en inn- lend framleiðsla hefur ekki ann- að eftirspurn síðustu ár. Ennfrem- ur verður mögulegt að fá stuðning við fjárfestingar, sem líka er ný- mæli. Þá mun ráðherra beita sér fyrir því að tollvernd á ákveðnum mjólkurvörum verði færð til raun- gildis, en hún hefur verið óbreytt í krónum talið frá árinu 1995. Garðyrkjusamningur áþekkur fyrri samningum Samningur garðyrkjubænda er um margt áþekkur fyrri samningum og engar snöggar eða áhrifamiklar breytingar eru fyrirsjáanlegar vegna hans. Kveðið er á um hlutdeild rík- isins í kostnaði við dreifingu og flutning raforku, en undanfarin ár hafa verið gerðir sérstakir samning- ar um þá þætti, utan búvörusamn- inga. Áfram munu papriku-, gúrku- og tómataframleiðendur fá bein- greiðslur vegna framleiðslu sinn- ar. Sett hefur verið viðmið um há- marksstuðning til einstaka bænda vegna beingreiðslna og niður- greiðslna á flutnings- og dreifing- arkostnaði raforku í því skyni að þeir fjármunir sem til ráðstöfunar eru nýtist sem best. Breyttar áherslur í sauðfjársamningi Í sauðfjárræktarsamningi eru breyttar áherslur frá fyrri samn- ingi. Markmið nýja samningsins er að efla íslenska sauðfjárrækt í sátt við samfélag og náttúru þar sem sérstaða, sjálfbærni, fjölbreytni, verðmætasköpun og góðir búskap- arhættir eru hafðir að leiðarljósi. Vægi álagsgreiðslna gæðastýringar er aukið og greiðslur út á greiðslu- mark þrepaðar niður á móti. Tekn- ar verða upp gripagreiðslur í sauð- fjárrækt þegar liðið er á samn- inginn, en á öðru ári hans hefjast greiðslur sem kallast býlisstuðn- ingur og eru sérstaklega ætlaðar til að styðja við minni bú. Einnig verður kostur á fjárfestingastuðn- ingi í sauðfjárrækt og stuðning- ur við svæði sem eru sérstaklega háð sauðfjárrækt verður aukinn. Nýtt verkefni er í samningnum um aukið virði afurða sem er ætlað til margskonar aðgerða til að auka verðmæti framleiðslunnar. mm Nýir búvörusamningar undirritaðir Fulltrúar búgreinafélaganna, ráðherra landbúnaðarmála og formaður Bændasamtaka Íslands.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.