Skessuhorn


Skessuhorn - 24.02.2016, Blaðsíða 18

Skessuhorn - 24.02.2016, Blaðsíða 18
MIÐVIKUDAGUR 24. FEBRÚAR 201618 Aðalfundur Umhverfisvaktarinnar við Hvalfjörð var haldinn 14. febrú- ar síðastliðinn í Garðakaffi á Akra- nesi. Á fundinum voru samþykktar nokkrar ályktanir sem eðli málsins samkvæmt snúa allar að umhverf- ismálum en ábendingum beint til ólíkra stofnana sem um þau fjalla. Meðal annars skorar félagið á um- hverfisráðherra að láta gera úttekt á því hvort ákvarðanir Umhverfis- stofnunar gagnvart mengandi iðju- verum á Grundartanga samræm- ist meginmarkmiðum stofnunar- innar, sem er að vernda náttúru og lífríki Íslands. Vill félagið að þess- ari úttekt verði lokið haustið 2016. Í greinargerð með tillögunni segir m.a. að iðjuverin á Grundartanga beri ábyrgð á umhverfisvöktun vegna eigin mengunar samkvæmt starfsleyfi sem Umhverfisstofn- un gefur út og ber ábyrgð á. „Allt vöktunarferlið er á forræði iðjuver- anna sem stöðugt senda eiturefni út í andrúmsloftið. Umhverfisvaktin við Hvalfjörð álítur að Umhverfis- stofnun vinni gegn eigin markmið- um með því að veita starfsleyfi sem inniheldur slíka þjónkun við meng- andi iðjuver, jafnvel þó að dæmi um slíkt megi finna í öðrum löndum,“ segir í greinargerðinni. Þá er í annarri samþykkt aðal- fundarins skorað á Umhverfisstofn- un að draga til baka nýtt starfsleyfi sem Norðuráli á Grundartanga var veitt þann 16. desember síðastlið- inn þar sem það gefur Norðuráli meiri möguleika til losunar flúors en eldra starfsleyfið gerir. Minnt var á að eldra starfsleyfið gildir til ársins 2020. Þá var skorað á umhverfisráð- herra að hefja nú þegar undirbún- ing þess að flytja ábyrgð á um- hverfisvöktun vegna mengunar frá iðjuverunum á Grundartanga frá forsvarsmönnum iðjuveranna til óháðrar, til þess bærrar stofnunar. Umhverfisvaktin samþykkti að að skora enn og aftur á Matvælastofn- un að hlutast til um að hafnar verði grunnrannsóknir á þoli íslensks bú- fjár gagnvart flúori í fóðri og áhrif- um langtíma flúorálags á heilsu ís- lensks búfjár. Fundurinn vísar til þess að nú þegar eru þrjú stór ál- ver starfandi á Íslandi og hugmynd- ir eru uppi um fleiri slík, auk þess sem vænta má eldgosa sem hafa í för með sér verulega flúormengun. Loks skora félagsmenn Um- hverfisvaktarinnar á stjórn Faxa- flóahafna að snúa sé að öðrum og uppbyggilegri verkefnum en meng- andi iðnaði í Hvalfirði, sem orðið hefur tekjulind fyrir eigendur Faxa- flóahafna, einkum Reykjavíkur- borg. „Aðalfundurinn hafnar því að tilraunaverkefni Silicor Materials verði komið fyrir í Hvalfirði. Jafn- framt hvetur aðalfundurinn stjórn Faxaflóahafna til þess að leggjast í nákvæma skoðun á fyrirbærinu „grænn iðnaður“ og hafa hugfast að þungaiðnaður getur aldrei orð- ið „grænn“.“ mm Umhverfisvaktin við Hvalfjörð ályktar um umhverfismál Mikið var á síðasta ári rætt um sam- einingu Landbúnaðarháskóla Íslands, Háskólans á Bifröst og Háskólans á Hólum og meðal annars skipað- ur starfshópur sem kanna átti væn- leika sameingingar. Þar áður hafði verið rætt um sameiningu LbhÍ og Háskóla Íslands. Ríkti tímabil óvissu meðal stjórnenda þessara skóla, sem ekki vissu með hvaða hætti rekstrin- um yrði háttað í framtíðinni. Vinna nefndar um þau mál skilaði engri niðurstöðu og nú er unnið að heild- arstefnumótun í rekstri íslenskra há- skóla. Björn Þorsteinsson, rektor LbhÍ, telur að allar hugmyndir um sameiningu hafa verið slegnar út af borðinu að sinni. „Í tengslum við áform um sameiningu LbhÍ og HÍ, sem náðu ekki fram að ganga og síð- ar áform um sameiningu háskólanna þriggja í Norðvesturkjördæmi, varð tímabil biðstöðu. En nú er í mennta- málaráðuneytinu unnið að heild- stæðri stefnumótun fyrir íslenska háskóla. Ég tel því að öll áform um sameiningu skólanna hafi verið lögð til hliðar í bili,“ segir hann. Nauðsynlegur skóli í nánd við umhverfið Hluti þeirrar stefnu sem unnið er að í ráðuneytinu er fimm ára rammi um fjárhag ríkisstofnana. Þar verði gerð- ar skýrar kröfur um rekstrarafkomu og fjárframlög. „Mikið hefur verið talað um vanfjármögnun háskólanna á undanförnum árum. Við erum til að mynda langt undir meðaltali OECD ríkja í framlögum til opin- berra háskóla og enn lengra frá nor- rænum viðmiðum. En mér heyrist á yfirvöldum að það sé almennur vilji til að ráðstafa meiru fé til háskólanna og ég vona að svo verði,“ segir Björn. „En það liggur fyrir að draga þarf skýrari ramma um stærð kerfisins í heild, forgangsraða fé til háskóla á Íslandi og að taka ýmsar stefnumark- andi ákvarðanir,“ bætir hann við. Björn telur að ekki verði hjá því komist hér á landi að reka litlar ein- ingar innan háskólakerfisins með afmörkuð sérsvið. „Ísland er lít- ið samfélag og verður að geta þolað að ákveðin fræðasvið séu lítil,“ seg- ir hann og vísar til skólans á Hvann- eyri. Hann bætir því við að þar verði aldrei rekinn stærðarhagkvæmur skóli. Hann sé staðsettur á jaðarsvæði fyrir háskólarekstur og sé óhagkvæm- ur í rekstri út frá miskunnarlausri hagkvæmnigreiningu. „En skóli hér er nauðsynlegur vegna nándarinnar við viðfangsefnið. Samfélagið verður að átta sig á aðstæðum. Það er óhjá- kvæmilegt að hafa einhvern viðbún- að til að þekkingu á okkar sviði megi viðhalda og fleyta fram um ókomna tíð,“ segir Björn. Starfsreglur skólans endurskoðaðar Með því að leggja til hliðar samein- ingaráform líkur þessu óvissutíma- bili og stjórnendur skólanna geta lit- ið til framtíðar. Björn segir því rétta tímann fyrir skólann að ráðast í um- bætur inn á við. Til standi að taka starfsreglur skólans til gagngerr- ar endurbótar. Á döfinni er að sam- eina í eina sæng tvær háskóladeildir skólans; auðlindadeild og umhverf- isdeild. „Tilgangurinn með því er að auka krítískan massa innan deild- ar og efla þverfagleg tök milli við- fangsefna,“ segir Björn. Þannig megi styrkja stöðu námsleiðanna sem boð- ið er upp á við skólann. „Landbún- aðarháskólinn hefur stóru hlutverki að gegna í samfélaginu. Hann miðlar vísindalegri þekkingu um það hvern- ig megi nýta auðlindir landsins og hvernig skuli fara með land út frá faglegu sjónarmiði,“ segir hann. Sumar spurningar tengdar þeim málefnum eru aftur á móti hrein- ar og klárar pólitískar spurningar. „Hver er rétt meðferð lands? Hvern- ig framleiðum við matvæli á okkar landi á sem sjálfbærastan hátt? Hvar á að hafa skóg og til hvers? Hvar á að friða og hvar á að reisa frístunda- byggð? Raunvísindin ein og sér geta auðvitað ekki gefið einhlít svör við öllu hér. En þau veita faglega þekk- ingu sem hægt er að nýta þegar kem- ur að því að svara slíkum spurning- um,“ segir Björn. Betur menntað fólk hafi betri forsendur til að taka slíkar ákvarðanir. „Eitt er það sem stjórn- endur skólans hafa mikinn áhuga á, en það er að efla fagþekkingu í sam- félaginu á þessu mikilvæga sviði. Það verður aðeins gert ef fólk hefur að- gang að þeirri menntun sem við veit- um. Til dæmis eru fáir sem komast á sinni grunn- og framhaldsskóla- göngu í snertingu við öfluga nátt- úrufræðikennslu, en því er brýnt að breyta,“ segir hann og bætir við öðru dæmi af öðru fagsviði sem skólinn kennir. „Lengi vel voru ekki marg- ir menntaðir skipulagsfræðingar að vinna hjá sveitarfélögunum. Þeim hefur fjölgað nokkuð á undanförn- um árum og það er vel.“ En þrátt fyrir að skref hafi verið tekin í rétta átt telur Björn að hvergi megi slá af, halda verði áfram á sömu braut. „Ef við missum flugið þá er hætt við að vaxi úr grasi kynslóð sem getur ekki tekið afstöðu til pólitískra málefna sem varða náttúruna og nýt- ingu hennar. Okkar vilji er að þær fagstéttir sem hafa með auðlindanýt- ingu landsins að gera séu sem best menntaðar.“ kgk Áform um sameiningu háskóla slegin út af borðinu Rektor segir Landbúnaðarháskólann hafa stóru hlutverki að gegna í samfélaginu Björn Þorsteinsson, rektor LbhÍ. Á komandi misserum stendur til að sinna taka upp þráðinn þaðan sem frá var horfið í viðhaldi á hús- næði LbhÍ. Unnið hefur verið að því undanfarin sumur að klæða útveggi og skipta um glugga á suðurhlið Ás- garðs, gömlu heimavistar Land- búnaðarháskólans á Hvanneyri, og hún máluð að öðru leyti. Bygg- ingin hýsir nú kennslustofur, bóka- safn, mötuneyti og skrifstofur skól- ans. „Eftir er að klæða og skipta um glugga á norðurhlið hússins,“ seg- ir Björn Þorsteinsson rektor í sam- tali við Skessuhorn. Einnig verður á neðstu hæð hússins lokið við gerð kennslustofu sem einnig mun nýtast sem fjarfundarými. Þá verður skipt um gólfefni og húsgögn endurnýj- uð í kjallaranum. Er það liður í því að bæta aðstöðu nemenda. „Rýmin í kjallaranum eru komin vel til ára sinna. Þau eru dálítið eins og minn- isvarði um liðna tíma. Fyrrum nem- endur sem koma hingað í heimsókn hafa gjarnan orð á því að svona hafi þetta verið í gamla daga. Slitin teppi og gömul húsgögn,“ segir Björn og brosir. „En þetta stendur allt saman til að endurnýja.“ Nýlega var tekinn í notkun lítill líkamsræktarsalur í Ásgarði og eru nemendur þegar farnir að nýta sér hann. „Aðstaðan er ekki stór og læt- ur ekki mikið yfir sér en þar er allt það nauðsynlegasta, lóð og tæki,“ segir Björn. „Líkamsræktina geta allir nemendur og starfsfólk skólans nýtt sér endurgjaldslaust.“ Fyrirhuguð útleiga gömlu skólahúsanna Einnig standa nú yfir umbætur á eldri byggingum landbúnaðarskól- ans, Gamla skólanum og Skóla- stjórahúsinu. „Þær framkvæmdir miða að því að eldri byggingarnar okkar standist kröfur nútímans um brunavarnir,“ segir Björn. Hann segir stjórnendur LbhÍ hafa kann- að möguleika þess að leigja þau hús hverjum sem þau gætu nýtt sér og fyrir því hefur Alþingi nú veitt heimild. Ekki sér enn fyrir endann á undirbúningi slíkrar útleigu þar sem brunahönnun er enn í gangi og kostnaðarmati er ekki enn lok- ið og þá er sjálf framkvæmdavinn- an eftir. Að því loknu þarf að fara fram útboð í gegnum Ríkiskaup til að tryggja gegnsæi og jafnræði aðila á markaði. Telur hann að þar liggi tækifæri fyrir framtakssamt fólk á Hvanneyri og nágrenni. „Hug- myndaríkt fólk sem hyggst hasla sér völl í ferðaþjónustu gæti til dæmis leigt húsnæði af landbúnaðarhá- skólanum. Í gömlu byggingunum er rými fyrir allstóra hópa og leiga á þeim kæmi sér vel fyrir alla. Ferða- þjónustufyrirtæki hefði þar húsnæði til afnota og skólinn fengi af því tekjur,“ segir hann. Yrði þetta að sögn Björns góð viðbót við rekstur skólans. „Árlega veitum við nokk- uð miklu fé til viðhalds á húsnæði skólans. Að þessu sinni eru það um 60 milljónir á Hvanneyri, ekki síst vegna umbóta á gömlu byggingun- um,“ segir Björn og viðurkennir að það sé nokkur upphæð. „En það er eitthvað sem þarf að gera. Þetta eru sögufrægar og friðaðar byggingar. Það er mikils virði að húsakostur sé í lagi og gott ef við gætum haft af honum einhverjar leigutekjur,“ segir hann. kgk Viðhaldsframkvæmdir framundan hjá LbhÍ Skólastjórahúsið á Hvanneyri. LbhÍ hefur fengið heimild frá Alþingi til að leigja húsið út, sem og Gamla skólann.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.