Skessuhorn


Skessuhorn - 24.02.2016, Blaðsíða 22

Skessuhorn - 24.02.2016, Blaðsíða 22
MIÐVIKUDAGUR 24. FEBRÚAR 201622 Mikið hefur verið talað um sjón- varpsþættina Ófærð á kaffistofum landsins og ýmsar kenningar voru á lofti fyrir sýningu lokaþáttanna um niðurstöðu þess hver skúrkur- inn væri. Upp úr þessu spratt sú hugmynd að hrista upp í kaffistofu- stemningunni í Dölum og bregða á leik. Veitinga- og gistiheimilið Dalakot í Búðardal hélt utan um viðburðinn og sendi út áskorun um miðja vikuna þar sem kaffistofur á svæðinu voru hvattar til að bregða á leik og setja fram sínar kenn- ingar um lyktir mála. Niðurstöð- um var skilað í Dalakot fyrir sýn- ingu lokaþáttanna tveggja á sunnu- daginn þar sem fólk sameinaðist og horfði á þættina á tjaldi. Eftir sýn- ingu voru kenningar þátttakenda krufnar og höfðu menn gaman af hversu fjölbreyttar kenningarnar voru. Vildu þátttakendur meina að það væri til marks um hversu góð fléttan væri að enginn skyldi giska á rétta morðingjann í Geirmundar- málinu en réttar lausnir bárust þó á öðrum málum, svo sem á brunun- um tveimur og ýmsum málum sem tengdust Geirmundi. Þátttakendur voru allir sammála um ágæti þátt- anna og leyfa sér að vona að unnið verði að framhaldi enda telja sumir að ekki séu öll kurl komin til graf- ar ennþá. sm Kaffistofuáskorun í Dalakoti fyrir lokaþátt Ófærðar Svipmynd úr Dalakoti. Dr. Emily Lethbridge heldur fyr- irlesturinn, Landnámabók sem (landa)kort, í Snorrastofu í Reyk- holti þriðjudaginn 1. mars næst- komandi. Þar fjallar hún um hug- myndafræði, sem gengur út frá því að lesa megi Landnámu eins og landakort þó hún sé með orð- um gerð. Kenning Emily færir rök fyrir því að hlutverki landakorta og bókmennta svipi saman við að koma skipulagi á og halda utan um þekkingu samtímans á landi og lífi. Bæði kort og frásagnir séu grind- ur eða formgerðir, sem notuð séu í þessum sama tilgangi. Emily hefur rannsakað varð- veislu Íslendingasagna í handritum og hvaða hlutverk landslagið leik- ur í henni. Margir minnast hennar þegar hún ferðaðist um landið fyr- ir nokkrum árum á gömlum sjúkra- bíl og vann að rannsóknum sínum. Hún er doktor í fornbókmenntum frá Háskólanum í Cambridge og starfar um þessar mundir að rann- sóknum við Miðaldastofu Háskóla Íslands og Stofnun Árna Magnús- sonar í íslenskum fræðum auk þess sem hún sinnir kennslu í miðalda- fræðum við Háskóla Íslands. Hún vinnur nú að því að þróa stafræna tólið „Icelandic Saga Map“, þar sem öll örnefni í Íslend- ingasögunum eru tengd korti, og hægt er því að lesa sögurnar út frá landinu. Verkefnið, Icelandic Saga Map, hlaut fyrsta sæti í árlegri samkeppni um Hagnýtingarverð- laun Háskóla Íslands í nóvember 2015 og kortið er aðgengilegt hjá http://sagamap.hi.is. Fyrirlesturinn hefst að venju kl. 20:30 og að honum loknum verð- ur boðið til kaffiveitinga og um- ræðna. Aðgangseyrir er kr. 500. -fréttatilkynning Spurt hvort hægt sé að lesa Íslendingasögurnar eins og landakort Dr. Emily Lethbridge ásamt Jóni Atla Benediktssyni háskólarektor við afhendingu Hagnýtingarverðlauna HÍ 2015. Ljósm. Kristinn Ingvarsson. Annað kvöld, fimmtudaginn 25. febrúar, hefst í Stykkishólmi Júlí- ana - hátíð sögu og bóka, með setn- ingarathöfn í Vatnasafninu. Er há- tíðin haldin ár hvert og tileink- uð minningu skáldkonunnar Júlí- önu Jónsdóttur. Árið 1876 gaf hún út ljóðabókina Stúlku og varð þar með fyrsta íslenska konan sem fékk gefna út eftir sig ljóðabók. „Júlíönu- hátíðin er að mínu viti mjög merk- ur viðburður og hefur aldrei verið umfangsmeiri en núna,“ segir Gréta Sigurðardóttir, einn skipuleggjenda í samtali við Skessuhorn. Eitt af markmiðum hátíðarinn- ar er að vekja athygli á og hvetja til lesturs bóka. Liður í því er að virkja grunnskólabörn til þátttöku í dag- skránni. Yfirskrift hátíðarinnar í ár er „En hvað það var skrítið,“ og af því tilefni hafa grunnskólabörn les- ið verðlaunabókina Mömmu klikk eftir Gunnar Helgason. „Gunnar mun koma og hitta börnin í gömlu kirkjunni á föstudaginn, ræða við þau um bókina og svara spurning- um,“ segir Gréta, en bókin hlaut einmitt Íslensku bókmenntaverð- launin í flokki barnabóka. „Mín trú er sú að með þessu getum við aukið áhuga barna á lestri bóka. Ef börn elska að lesa þá verða þau bókafólk. Ef þau lesa aldrei bækur er líklegra að þau fari á mis við það á fullorð- insárunum,“ segir Gréta. Hún bæt- ir því við að yngri grunnskólabörn hafi skapað listaverk tengd bók- inni undir handleiðslu Kristbjarg- ar Hermannsdóttur textílkennara. „Þau hafa búið til skúlptúra inn- blásna af sögupersónum bókarinnar sem verða þeir til sýnis í Amtsbóka- safninu á föstudag og ég hvet alla til að koma og skoða,“ segir hún. Hvatt til sköpunar Að vanda verða sagðar sögur í heimahúsum. Bjóða húsráðendur þá sögumanni inn á heimili sitt og gestum að koma og hlýða á. „Með því viljum við halda í sagnahefðina sem fylgt hefur þjóðinni frá Land- námi,“ segir Gréta. Einnig mun hópur sem hist hef- ur í Hótel Egilsen í janúar og hlýtt á Hundadaga eftir Einar Má Guð- mundsson koma saman og hitta höfundinn. Geta má þess að Ein- ar er einnig handhafi Íslensku bók- menntaverðlaunanna. Við það til- efni verður snædd hin víðfræga Júlíönusúpa, sem er fastur liður í dagskrá hátíðarinnar. Í ár hefur verið bryddað upp á þeirri nýbreytni að hefja samstarf við tónlistarskólann. „Þriðja stigs nemendur hafa samið lag við ljóð eftir Júlíönu. Um er að ræða frum- samið verk sem nemendur hafa unnið að með leiðsögn kennara. Verður ljóðið lesið og lagið flutt á hátíðinni,“ segir Gréta. En það eru fleiri en nemend- ur tónlistarskólans sem eru hvatt- ir með beinum hætti til að virkja sköpunarkraft sinn á meðan há- tíðinni stendur. Á Hótel Egilsen kemur fólk saman, verður skipt í hópa og semur örsögur að forskrift Sigríðar Erlu Guðmundsdóttur. „Við viljum hvetja sem flesta til að kanna hvort ekki búi sögumaður eða rithöfundur innra með þeim. Á námskeiðinu semja þátttakendur örsögur í þremur hópum. Verkin verða svo lesin upp í lokin og því fylgir alltaf mikið fjör,“ segir hún. Þá munu tvö ungmenni úr Stykk- ishólmi, Nökkvi Freyr Smárason og Björg Brimrún Sigurðardóttir, flytja Víg Kjartans Ólafssonar að kvöldi laugardags, en það er leik- þáttur eftir Júlíönu. Með leikstjórn fer Bjarki Hjörleifsson. „Ég veit fyrir víst að það munu þau gera á skemmtilegan og framúrstefnuleg- an hátt,“ segir Gréta. Hugmyndin kviknaði á næturvakt Hátíðin er nú haldin í fjórða sinn og segir Gréta að alla tíð hafi hún ver- ið vel sótt. „Ég held það megi full- yrða að hátíðin sé stærsti menn- ingarviðburður í Stykkishólmi og margir Hólmarar segja að þetta sé skemmtilegasta helgin í bænum. Við höldum auðvitað Danska daga líka og ég vil alls ekki gera lítið úr þeim, en þessi hátíð er annars eðl- is. Fólk sækir Júlíönuhátíðina til að hlusta og njóta og fá kannski and- legt fóður í leiðinni og ef til vill upplifa ýmsa hluti á nýjan hátt að henni lokinni,“ segir hún. Gréta segir hugmyndina að há- tíðinni hafa kviknað nótt eina á Hótel Egilsen árið 2012. „Eftir að gestir voru farnir til hvíldar var ég einhverju sinni á gangi um salinn á hótelinu og velti fyrir mér hvort ekki væri hagt að halda sögu- og bókahátíð,“ segir hún. „Frænka mín hafði sagt mér frá Júlíönu og mér þótti hún svo áhugaverð, þessi kona sem hafði þetta mikla sjálfs- traust að semja ljóð og gefa út án þess að eiga sér nokkrar fyrir- myndir nema karlmenn. Hún bjó hér í Stykkishólmi þegar bókin kom út og eins þegar hún samdi leikverkið Víg Kjartans Ólafsson- ar. Var það einnig fyrsta leikverk- ið eftir konu sem fékkst sett á svið á Íslandi. Hún stóð sjálf að upp- setningu verksins til að fjármagna kirkjubyggingu í Stykkishólmi. Sagt er að hún hafi leikið öll hlut- verkin sjálf,“ segir Gréta. Henni þótti því við hæfi að til- einka hátíðina minningu Júlí- önu. Fékk hún til liðs við sig Dag- björtu Höskuldsdóttur, Sigríði Erlu Guðmundsdóttur og Þór- unni Sigfúsdóttur og hátíðin varð að veruleika fyrir fjórum árum síð- an. Lætur hún afar vel af samstarf- inu. „Ég vona að það verði áfram um ókomna tíð. Okkar samstarf hefur verið einstaklega frjótt og skemmtilegt. Þær eru allar vilja- sterkar og hugmyndaríkar konur sem gaman er að vinna með og ég vona að það sjáist á dagskránni,“ segir Gréta. Dagskrána má nálgast í heild sinni á facebook-síðu hátíðarinnar, https://www.facebook.com/juli- anahatid/. Vert er að taka fram að aðgangur er ókeypis á alla viðburði hátíðarinnar. „Ég hvet alla til að koma og taka þátt í hátíðinni því við lofum góðri skemmtun,“ segir Gréta Sigurðardóttir að lokum. kgk Júlíönuhátíðin hefst í Stykkishólmi á morgun Gréta Sigurðardóttir, einn af skipuleggjendum Júlíönuhátíðar sem haldin er í Stykkishólmi ár hvert. Ljósm. sá.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.