Skessuhorn


Skessuhorn - 24.02.2016, Blaðsíða 23

Skessuhorn - 24.02.2016, Blaðsíða 23
MIÐVIKUDAGUR 24. FEBRÚAR 2016 23 Nemendur í 3. bekk BS í Brekku- bæjarskóla á Akranesi hafa að und- anförnu kynnt sér Barnasátt- mála Sameinuðu þjóðanna og velt fyrri sér réttindum og forréttind- um barna. Einnig voru skoðaðar og ræddar ólíkar aðstæður barna í heiminum og horft á myndband frá fátækrahverfi í Nairobi í Kenía. Í kjölfarið urðu nemendur uppteknir af því hvort þau gætu gert eitthvað saman sem hópur og látið gott af sér leiða. Úr varð að halda bingó fyrir fjölskyldur nemenda þar sem allur ágóði rynni til ABC barnahjálpar. Í framhaldi af bingóinu rak á fjörur nemendanna annað áhuga- vert verkefni í tengslum við sama námsefni. Þannig er að afi eins nem- anda í bekknum vinnur í Nairobi í Kenía þar sem hann aðstoðar tvær systur, fimm og sjö ára. Nemendum bekkjarins fannst tilvalið að hjálpa til og hafa nú safnað saman fötum og skóm sem afinn fer með til Kenía og færir systrunum. Hann mun svo senda bekknum myndir sem ger- ir verkefnið enn raunverulegra fyr- ir nemendur. grþ Nemendur láta gott af sér leiða í Afríku Á dögunum kom Birgir Snæfelld Björnsson, fulltrúi frá ABC barnahjálp, í heimsókn og tók við þeim 30 þúsund krónum sem söfnuðust í bingóinu.Nemendur 3. BS styrktu ABC barnahjálp og tvær systur í Kenía. Þessa dagana má heyra hamars- högg og söng vélsaga berast úr Fransiskushúsinu í Stykkishólmi. Þar er unnið hörðum höndum að framkvæmdum við nýja álmu Hót- els Fransiskus sem til stendur að taka í gagnið í lok næsta mánað- ar. „Þetta er svona á lokametrun- um,“ segir Unnur Steinsson fram- kvæmdastjóri í samtali við Skessu- horn. „Í upphafi var áætlað að framkvæmdum myndi ljúka í mars og allt bendir til þess að það muni ganga eftir.“ Nýja álman er þar sem áður var heimili systranna. Þar ráku þær einnig saumastofu, prentsmiðju, smíðaverkstæði og fleira á sínum tíma. „Þetta voru ótrúlegar konur sem létu ekkert aftra sér, byggðu sér heimili, kapellu og spítala. Ég vil meina að þær hafi verið frum- kvöðlar síns tíma og miklir skör- ungar.“ Unnur segir framkvæmd- irnar hafa verið mikla lyftistöng fyr- ir samfélagið. „Um 15 - 20 manns hafa unnið í þessu verkefni und- anfarin tvö og hálft ár. Þetta hefur verið skapað mörg störf fyrir iðn- aðarmenn hér í Stykkishólmi. Það eina sem við höfum þurft að sækja annað eru múrararnir,“ segir hún. Hótel með sína eigin kapellu Sá hluti hótelsins sem þegar var til- búinn var opinn í vetur og hefur verið tekið á móti gestum og hóp- um eftir pöntunum. „Sá hluti húss- ins sem var tilbúin fyrst var á sínum tíma gamla barnaheimilið eða leik- skólinn í Stykkishólmi, en systurn- ar ráku það til fjölda ára og marg- ir Hólmarar eiga góðar minningar úr því húsi,“ segir Unnur. Í þeim hluta hússins eru þrettán herbergi; þrjú einstaklings herbergi og svo tveggja, þriggja og fjögurra manna herbergi. Þegar nýja álman verður fullkláruð verða á hótelinu alls 21 herbergi og til stendur að hafa hót- elið opið allt árið um kring. Nýja álman mun einnig rúma skrifstofur, starfsmannaaðstöðu og fleira og þá mun presturinn sem hefur sinnt kaþólska söfnuðinum á Snæfells- nesi koma til með að búa í húsinu, en verið er að innrétta litla prests- íbúð í þessum sama enda hússins. Unnur bætir því við að einnig sé verið að taka kapelluna í gegn þessa dagana. „Hún er mjög falleg og tengir byggingarnar skemmti- lega saman. Ég held að þetta sé eina hótelið á Íslandi sem er með sína eigin kapellu. Hér eru einn- ig þrjár nunnur sem sinna störfum kirkjunnar og hlúa vel að barna- og unglingastarfi fyrir alla krakka í Hólminum. Þær messa iðulega í kapellunni og eru því tíðir gest- ir í anddyri hótelsins og lífga þann- ig upp á húsið í leiðinni. Þær búa ekki á hótelinu en aðeins nokkr- um skrefum frá, eða hinum meg- in við götuna í litlu nýuppgerðu gömlu timburhúsi. Kapellan hefur um árabil dregið að sér ferðamenn og mun eflaust gera um ókomna tíð, enda merkt inn á marga ferða- mannabæklinga sem áhugaverður staður. Kapellan er alltaf opin og því hægt að setjast inn hvenær sem er, hvort sem er til að skoða, hug- leiða eða bara njóta.“ Sagan verður í hávegum höfð Fransiskushúsið er sögufrægt hús. Byggt, eins og áður sagði, af frum- kvæði nunna af Sankti Fransiskus- reglunni, á árunum 1933-35. Unn- ur segir að sagan muni fá að njóta sín þegar hótelið verður opnað. „Við komum til með skreyta ein- hverja veggi með myndum af starfi systranna og textum sem segja þeirra sögu í stuttu máli. Ég held að allir hafi gaman af að lesa sögu hússins,“ segir Unnur og bætir því við að þegar heimasíða hótelsins fer í loftið verði sögunni einnig gerð góð skil þar. Ég er sannfærð um að þetta skapi okkur ákveðna sérstöðu,“ bætir hún við. „Ég held að allir sem koma og gista hjá okk- ur finni fyrir þeim góða anda sem hér svífur yfir að minnsta kosti er látið afar vel af dvölinni af þeim sem nú þegar hafa gist,“ segir Unnur að lokum með bros á vör. kgk/ Ljósm. eb. Framkvæmdir í Fransiskushúsinu á lokametrunum Þeir sem voru við störf í Fransiskushúsinu þegar ljósmyndara Skessuhorns bar að garði nýttu lausa stund til að stilla sér upp á mynd. Farið yfir teikningarnar. Samhliða framkvæmdum er kapellan tekin í gegn. Líklega verður Hótel Fransiskus eina hótel landsins með sína eigin kapellu.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.